Þjóðviljinn - 11.10.1957, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 11.10.1957, Blaðsíða 6
6) — ÞJÖÐVTLJINN — Föstudagur 11. október 1957 mÓÐVIUINN Ötseíandl: Samelnlngarflokkur alÞýBu — SósiallHtaflokkurlnn. — Ritetjórar: AÆagnús KJartansson (áb), Slgurður Guðmundsson. — Préttaritstjóri: Jón BJamason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Guðmundur Vlgíússon, Ivar H. Jónsson, Magnúa Torfl ólafsson, Sigurjón Jóhannsson. — Auglýs- ingastjórl: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prent- ‘ tmiðja: Skólavörðustig 19. — Simi 17-500 (5 linur). — Askriitarverð kr. 25 á nán. 1 Reykjavík og nágrennl; kr. 22 annarsstaðar. — Lausasðluverð kr. 1.50. Prentsmiðja ÞjóðvllJans. Verkin tala [orgunblaðið heldur enn á- fram að heimta hreinar línur í hemámsmálum, og er sjálfsagt að taka undir þá kröfu. Blaðið segir í gær í forustugrein: „Aðaltalsmaður Atlanzhafsbandalagsins hefur nýlega sagt, að hann héldi að þriðja heimsstyrjöldin myndi aldrei ské’la á . . . Það er því alger blekking við þjóð'na, ef henni er sagt, að erlent vam- arlið þurfi aðeins hér í bili, vegna hættulegs heimsástands. Annaðhvort er tímabært að víkja varnarliðinu nú þegar úr landi eða gera sér grein ■fyrir, að það muni dveljast hér lengur en um sirin. Hver Sém sköðun manna kann að vera á þessu, er hér um svo Tnikilsvert og alvarlegt mál að tæða, að ekki verðj framhjá því komizt að taka það til meðferðar“. A fstaða Morgunblaðsjns er sem kunnugt er sú að fs- lendingar eigi að vera herset- in þjóð um alla framtíð; hvemig svo sem ástatt er í heiminum skuli bandarískir stríðsmenn halda veldi sínu á fslandi. Mikill meirihluti fs- lendinga er hins vegar þeirrar skoðunar að það sé algerlega ósamrýmanlegt frelsi, sjálf- stæði og mennjngu þjóðarinn- ar að hafa erlent herlið í land- inu. Þessi tvö andstæðu sjón- armið verða aldrei samrýmd, og ekkert millistig er til. Nú- verandi ríkisstjóm hefur heit- jð því að framkvæma þá á- kvörðun þings og þjóðar að aflétta. hemáminu, og engar röksemdir finnast sem réttlætt geta að vikið sé frá því fyrir- héit'i: Þess er engirin kostur að segjastí ver'a andvigur her- náminu en heimila það í verkj; í því efni sem öðrum eru það verkin sem tala. Tvöfalt afrek jp'ervitunglið heldur áfram að " að hringsóla kringum hnöttinn, tákn snilli og hug- vits sem mua leiða mannkynið til æ glæsilegri afreka. Enn «inu sinni hafa vísindin opn- að mannkyninu nýja heima, og þróun næstu áratuga kann að verða svo stórfengleg að hugmyndaflugið hrökkvi eng- an veginn til þess að draga upp mynd af henni fyrirfram. Én þótt aimenningur um all- án heim skilji hver stórtíðindi hafa gerzt, eru til einstak- Iingar, éinnig hér á landi, sem eru haldnir einskonar tungl- sýki og geta ekki litið litla hnöttinn sem geisist áfram fyrir ofan okkur réttu auga. Ástæðan er sú að mennirnir Rem sendu hann upp aðhyll- ast ekki réttar stjórnmála- skoðanir! lýessi geðvonzka er raunar * ofur skiljanleg. Gervi- hnötturinn er ekki aðeins vottur um sniiligáfu vísinda- ihanna og tæknifræðinga held- ur óhrekjanlegt tákn um af- rek þess þjóðskipulags sem hefur gerbreytt Sovétríkjun- tim á ctrúlega skömmum tíma. Á einum saman 40 árum liafa þjóðir Sovétríkjanna liafizt úr frumstæðri villi- mennsku og sárustu eymd til forustu í menntun og vísind- um, cg slík þróun í þjóðfé- lagsmálum á sér engar hlið- stæður. Hún er hinn athygl- isverðasti fyrirboði þess hvernig fara muni í þeirii keppni auðvaldsskipulags og sósíalisma sem vonandi fær að þróast á friðsamlegan hátt iim ókomin ár. Qá maður sem litið hefur ^ sovézka gervihnöttinn af hvað mestri geðvonzku hér á landi er Haukur Snorrason Uitstjóri Tímans, enda er hann heiðursborgari í New York. Hann segir að framfar- ir í vísindum og tækni sanni ekkert um yfirburði þjóð skipulags, heldur birtist þeir í því hvernig þjóðfélag „breyti við hina almennu borgara og hvaða skilyrði það skapi þeim til menningar, frelsis og lífs- afkomu“. En skyldi ekki vera órjúfanlegt samhengi milli vísindaafreka og lífs hinna ó- breyttu þegna, ætli stórstíg- ar framfarir í tækni og vís- indum séu ekki undirstaða þess að öll alþýða geti lifað við menningu, frelsi og góð kjör? Það er satt og rétt að þjóðir Sovétríkjanna hafa orðið að leggja ákaflega hart að sér á undanförnum ára- tugum, menn hafa verið beitt- ir miklu harðrétti og ógnar- leg mistök hafa verið gerð, eins og jafnan hefur orðið raunin á byltingartímum í lífi þjóða, en engir þurfa að ef- ast um að íbúar Sovétríkjanna hafa unnið stórfelldustu sigra í hinni hörðu baráttu sinni og að nú er hafinn mikill uppskerutími. rannski veit Haukur Snorra- son ekki hver örlög vest- ræn alþýða varð að þola þeg- ar iðnvæðingin var að ryðja sér rúms í upphafi. En hann var nýoröinn heiðursb*rgari í New York þegar þau stór- felldu tíðindi gerðust á sviði vísinda og tækni að kjarninn var leystur úr læðingi. Þar urðu Bandaríkjamenn fyrstir til, og þeir auglýstu afrek sitt með því að nota kjarn- orkuna til að myrða á ann- að hundrað þúsund varnar- lausra Japana. Var það vott- ur þess hvernig vestrænt þjóðfélag „breytir við hinn al- menna borgara og hvaða skil- yrði það skapar þeim til menningar, frelsis og lífsaf- komu“ ? Stefán frá Hvítadal Árið 1918 kom út í Reykja- vík fyrsta ljóðabók ungs skálds. Þessi bók var ekki stór í sniðum eða fjölbreytt að efni, en engu að. síður vakti hún verðskuldaða athygli og hafði mikil áhrif á þá skáldakynslóð, sem þá var að ,vaxa úr grasi. Bókin hét Söngvar förumanns- ins og höfundur hennar Stefán Sigurðsson frá Hvítadal. í Söngvum förumannsins var sleginn nýr strengur íslenzkrar ljóðhörpu. Hún boðaði nýja stefnu í íslenzkum skáldskap. Af þeim sökum var hún svo nýstárleg. Ágæti skáldskapar- ins var ekki h;ð merkilegasta við bókina, þótt í henni væri vissulega margt piýðilegra kvæða, því að fyrr hafði verið vel kveðið á íslenzku, en með henni kvað ný kynslóð sér hljóðs á íslenzku skáldaþingi og hún valdi sér ný yrkisefni í samræmi við breyttar að- stæður. Sama árið og Söngvar föru- mannsins komu út varð fs- land frjálst og fullvalda ríki. Með þeim atburði var lang- þráðu marki náð í sjálfstæðis- baráttunni. Sú barátta hafði bsgði verið langvinn og hörð, og skáldin ekki legið þar á liði sínu. Þau höfðu kveðið dug og þrótt í þjóðina og hvatt • hana til dáða. Með þe:rra at- beina hafði sigurinn náðst. Nú gátu þau snúið sér að öðrum viðfangsefnum, og það gerðu þau líka. Um þesar mundir var mikil gróandi í íslenzku þjóðlífi á öllum sviðum. Þjóð'n var að rétta úr kútnum eftir langvar- andi erlenda áþján og harð- rétti, sem hún hafði átt við að búa. Nú sá hún drauma sína vera að rætast og hún leit björtum augum á framtíðina. Einkanlega átti þetta við um æskuna. Við henni blasti líf- ið bjart og heillandi og' hún átti kost á að njóta þess. Þess vegna var brjóst hennar fullt af söng um lífið og vorið. Og Söngvar förumannsins voru einmit öðrum þræði um þetta efni, þess vegna fengu þe:r svo góðan hljómgrunn. ★ ★ ik Skáldið sem orkti Söngva förumannsins, Stefán frá Hvítadal, fæddist 11. október árið 1887 og hefði því orðið sjötugur í dag, ef hann hefði lifað. Ungur að aldri hélt hann að heiman og gerðist „föru- maður“. Um skeið stundaði hann prentnám, en varð að hverfa frá því sökum sjúk- leika. Hann varð einnig fyrir því óhappi að missa annan fót- inn ofan við ökla og gekk eftir það við tréfót. Háði það hon- um mjög. Um hríð hafði hann ofan af fyrjr sér með Ijós- myndun, en hálfþrítugur að aldri hvarf hann til Noregs og dvaldist þar um fjögurra ára bil. Fékkst hann þar m. a. við skipasmíðar en veiktist síðan og varð að leggjast á heilsu- hæli. Árið 1916 hvarf hann aftur heim tjl íslands, sjúkur maður, en komst til nokkurr- ar heilsu aftur. Og tveimur ár- um eftir heimkomuna gaf hann út Söngva förumannsins. í íslenzkum aðli segir Þor- bergur Þórðarson frá fyrstu kynnum þeirra Stefáns og gefur ágæta og eftirminnilega lýsingu á þessum sérkennilega manni. Þeir kynntust árið 1912, sumarið ááður en Stefán fór tdl Noregs. Um efnahag hans segir hann svo: „Hann var bláfátækur. Hann vár svo fá- tækur, að hann hafðj aldrei haft efni á að kaupa sér fót, sem hann gæti gengið á þrautalaust." En hvorki fá- tækt eðia þrautir gátu bugað lífsþrótt éða kæft lífsgleði Stefáns. „Hann var gæddur .... .. . -------- — ■ Stefán frá Hvítadal lýsandi lífsgleði,,1 segir Þor- bergur. Hann lýsir einnig vel málsnilld Stefáns og frásagn- arl st. „Við vissum að hann átti tungutak, sem var á við margar vinnustundir á síldar- þlönum,“ segir hann. Og enn fremur: . . . „Hann sagði allt- af þann veg frá, að frásögnin varð manni ógleymanleg. Hún fór í gegnum mann. Mál hans var skýrt og látlaust, þó lítið eitt mengað bóklegum keim. Frásögn hans var öll mjög skipuleg ög lifandi, fádæma einföld og trúleg. Undir hverri setningu lék þó hæg undiralda upprunalegra tilfinninga, Sem hóf alla frásögnina upp á ívið hækkað svið.“ í Söngvum förumannsins kemur hvort tveggja glöggt fram, lífsgleði Stefáns og ó- brotið, listrænt tungutak. Hann kveður af heitri tilfinn- ingu um vor og sól, æsku og ástir. Einna bezt lýsi-r hann þessu í kvæðinu Hún kyssti mig: k ★ ★ Heyr mitt ljúfasta lag, þennan lífsglaða eld, um hinn dýrlega dag og hið draumfagra kveld. Rauðu skarlati skrýðzt hefur skógarins flos. Varir deyjandi dags sveipa dýrlingabros. Ó, þú brostir svo blitt, og ég brostj með þér. Eitthvað himneskt og hlýtt kom við hjartað í mér. Gegnum skínandi skrúð inn 1 skóginn mig bar. Þangað kóngsdóttir kom, og hún kyssti mig þar. Lífs míns draumur er dýr, þessi dagur hann ól. Mér finnst heimurinn hýr eins og hádegissól. Ég er syngjandi sæll, eins og sjö vetra barn. Spinn þú, ástin mín, ein lífs míns örlagagam. * k k Hér koma fram beztu ein- kenni Stefáns, skýr og lifandi framsetning, einfalt og óbrotið orðaval, sönn og náttúrleg til- finning, allt leggst þetta á eitt og gerir ljóðið ógleyman- legt. SÖrigvar fö.rum,aimsins eru þó ekki 'einvörðungu um lífs- gleðina. Þar kennir einnig harms og dapurleika enda vart við öðru að búazt eins og lífið hafði leikið Stefán grátt. Þeir söngvar koma einnig béirit; jfrá 1 hj artanu og. eru » kveðnir af jafn óbrotinni list eins og kvæðin um vorsólina og ástina. Tregi Stefáns er ekkj uppgerður eða ímyndað- : ur heldur sannur, þess vegna snertir hann lesandann svo djúpt. Þau orð, sem Þorbergur Þórðarson hefur eftir honum í íslenzkum aðli um þessa grein skáldskapar hans eru sörin og rétt: „Það er list að kunna að gráta. Ég er fyrsta skáld á ís- '■ landi, sem hefur kunnað að gráta í skáldskap. Gráti hefur aldrei verið stiílt í jafn-list- ■ rænt hóf í íslenzkri lýrjk eins og í kvæðum mínum.“ k k k f Söngvum förumannsins er fleira nýstárlegt en éfnisválið Form kvæðanna er einnig nokkuð með nýju sniði, léttara og frjálsara en áður. Vafa- laust hefur Stefán bæði að efni og formi lært mikið af norskum skáldum og Noregs- dvöl hans þannig orðið skáld- skap hans til mikils- góðs þótt hún yrði honum ekki til gæfu að öllu leýti. Árið eftjr að Söngvar föru- mannsins komu út kvæntist Stefán og hóf búskap. Skáld- skapinn lagði hann þó ekki á hilluna og þrjár aðrar bækur gaf hann út áður en hann lézt, Óð einyrkjans, 1921, Heilaga kirkju, 1924 og Helsingja, 1927, og eftir lát hans kom ljóðabálkurinn Anno Domini 1930. Engin þessara bóka tekur þó fyrstu bókinni fram. í þeim daprast skáldinu nokk- uð flugið og þyngra verður yfir kvæðum hans í heild, þótt einstöku ágætiskvæði yrki Stefán á þessum árum. Heilsu- leysi og örðug lífsbarátta hafa sett mark sitt á skáldið og ljóð hans. Hann hneigist til trúar, gerist' kaþólskur og kveður mikla drápu um heil- aga kirkju auk fleiri trúar- ljóða. En þrátt fyrir allt lifir þó alltaf í gömlum glæðum, og í kvæðum hans bregður fyrir, allt til hins síðasta, leiftrum frá æskueldinum, sem brann .svo glátt I Söngvum föru- mannsins. Stefán frá Hvítadal andaðist árið 1933. Sú skáldakynslóð, sem hann var af, hefur lifað sitt fegursta. Tímarnir hafa breytzt og nýjar stefnum í bókmenntum komið fram. Nýir menn hafa erft landið. Mörg kvæða Stefáns eru þegar farin að fyrnast sem vonlegt er, en hið bezta í skáldskap hans lif- ir enn góðu lífi og mun lifa áfram. Hann var svo listfengt og einlægt skáld að honum Framhald á 11.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.