Þjóðviljinn - 25.10.1957, Side 10

Þjóðviljinn - 25.10.1957, Side 10
10) — ÞJÖÐVILJINN — Föstudagur 25. október 1957 Framleiðni Framhald af 7. síðu. sína skuldbindjngu um afköst, verði með öllu af premíunni, nakir þess að vinnuflokkurinn í heild náði ekki sínu tilskilda marki. Sérstakir premíuhafar og deildarstjórnir ganga óspart fram í að brýna fyrir verka- fólkinu aukin afköst, og er þá ósjaldan skýrskotað t'il persónu- metnaðar til iað skerpa sam- keppni milli einstaklinga og vinnuhópa. Til að auka enn kapphlaup vinnuhraðans hafa Opel-bíla- verksmiðjunnar í gangi einnig annað ákvæðisvinnufyrirkomu- lag, svokallað bónuskerfi, en þessi svokallaði arður eða bónus greiðist fyrir viss af- köst vinnuflokks, en þó því aðeins að hver og einn ein- staklingur flokksins hafi af- lokíð sínum ákveðna hluta vinnuafkasta. Mistök í vinnu verður yfirleitt viðkomandi v.innuflokkur að greiða, annað hvort með aukavinnu eða í launafrádrætti. Meðferðina á vinnuaflinu gefa vissulega bezt til kynna hin vaxandi slys á vinnustöðv- um Opel-bílaverksmiðjanna. Árið 1952 voru þau t.d. 1532, samkvæmt tilkynningu verk- smjðjunnar, en 1953 hafði þeim fjölgað í 1883 eða um 23% á einu ári. — Árið 1954 hafði hins vegar gróði verksmiðj- anna numið 250 milljónum marka, á sama tíma og vinnu- laun stóðu tæplega í stað, mið- að við verðlag. Hér hafa verið rakin nokkur dæmi um það, hvaða tilgangi svoköliuð framleiðni er látin þjóna undir handleiðslu stór- iðjuhöida. Og þótt á íslandi sé að ýmsu leyti ólíku saman að jafna við risafyrirtækin í útlöndum sem fremst ganga í gernýtingu vinnuaflsins, undir nafninu framleiðni, er vissu- lega tími til kominn að íslenzk verkalýðssamtök geri sér nokkra grein fyrir, hvað hér er á ferð og styðjist við reynslu erlendra verkalýðssamtaka í þessu efni. íhaldið Framhald af 7. síðu. koma að notum. Hann byrjaði á ýmsu en endaði fátt, og allt lá það hálfgert í brotum“ . . . Margur skildingurinn á eft- ir að hverfa í Miklubrautar- mannvirkið áður en það er fullgert. Alltaf þegar ég geng þama um finnst mér að ég hljótj að vera kominn til Búss- lands. Þama var um eitt skeið slík ógnargjá, sem þó náði ekki nema út í miðja götuna, að ekkert var til samanburðar nema helzt skurðimir sem Rússamir kváðu búa t'l þegar þeir breyta farvegum fljótanna _,.Jijá sér. Furða að verkfræðing- ' arn’r skuli ekki hafa látið verða af því að fá hingað sov- * ézka jarðpumpu til þess að daela þessu mýrarfeni úr göt- unni, og spúa því suður í Hafnarfjarðarhraun, til þess að hsegt væri að rækta þar kartöflur. Og fá svo um leið austan að elnhvem þrumu- traktorinn til að spyma Keil- inum héma inn eftir og steypa honum ofan í gjártá. Annað eins hefur nú verið fengið frá Sovétinu og þó að þetta hefði verið gert, skyldi maður ætla. Annars minnir þessi stað- setning götunnar, endilega yf- ir mýrina, óþægilega mikið á kýmar í sveitinni, sem ösla út í fenin og sitja þar fastar, í stað þess að spásséra yfir holt- in í mýrarjaðrinum. — Meira seinna. Verkamaður. Mál er að linni Framhald af 4. síðu. af dýrslegri ánægju yfir ein- staklingsódæði. Nú hafa staðið yfir fjár- flutningar vestan af fjörðum. Mér er sagt að í einni slíkri ferð hafi um 20 kindur farizt og limlestst. Mér er sagt að skip þetta hafi lagt af stað þrátt fyrir illa veðurspá, en önnur skip sem voru í samskonar flutn- ingum, lágu í höfn til að hætta ekki neinu. Kannski hefur burgeisinn sem á skipið ekki fundið mikið til, en vátryggingin greitt tjónið. Halldór Pétursson (Vegna mistaka hefur birt- ing þessarar greinar tafizt). Hng FFSÍ Framhald af 3. síðu. Þau sjónarmið hafa gengið sem rauður þráður í gegnum alla baráttu samtakanna fyrir endurheimt þess hluta landsins, sem nú er hulinn sæ, en á þeim hluta þess hafa erlendir fiski- menn svo lengi látið greipar sópa, að þeir virðast vera fam- ir að trúa því að þeir séu þar í sínum eigin veiðilendum. Vér teljum því að ekki megi lengur dragast að sá misskiln- ingur sé leiðréttur. Þar til réttur vor á þessum hluta landsins er viðurkenndur, er ekki hægt að segja að full- veldi hins íslenzka ríkis sé raun- verulega viðurkennt. Augljóst er, að nokkur ’tími muni líða þar til fært verður að stíga þessi skref til fulls, en hinsvegar er mjög aðkallandi þörf skjótra aðgerða, til að bæta úr því vandræða ástandí sem þegar er orðið. Þess vegna er lagt til að fyrsta skrefið í sóknjnni verði það sem bent er á í öðmm lið, og teljum vér að það sé hægt að framkvæma eft- ir sömu grundvallarreglum og farið var eftir við setningu frið- unarlaganna 1952. Þær reglur hafa þegar gengið í gegnum þá eldraun, sem sannað hefur ágæti þeirra. Ekki þarf að vekja at- hygli á því, hvað ómetanlegt það væri fyr’r íslenzkan síldar- útveg, ef allt svæðið frá Horni að Melrakkasléttu, Innan Gríms- eyjar væri lokað erlendum veiðiskipum, og sömuleiðis frá Langanesi að Glettinganesi, og skal í því sambandj bent á hina stöðugt vaxandi síldveiðileið- angra og hina auknu tækni í öll- um útbúnaði þeirra. Má og bú- ast við áð innán skamms tima verði þar stórir leiðangrar með mörgum verksmiðjuskipum. Það er því augljóst mál, að ef slíkír flotar hafa aðstöðu til að athafná sig á innhöfum íslands, geta þeir að miklu leyti lokað fyrir fiskigöngurnar inn á fjrð- ina — og mun þá mörgum is- Öryggi óttans f hrekkur ekki til frambúðar Framhald af 1. síðu. ekki hinum ítrustu óskum né íramtíðarvonum um öryggi og frið. Það er bezt að gera sér engar tálvonir". Síðan ræddi hann um alþjóðaálit það er skapazt hefði í friðarviðleitn- inni og mælti: „Og þegar litið er á þessi hlið í starfsemi hinna Sameinuðu þjóða á síðasta : starfsári, þá er sízt um aftur- r för að ræða. Allur almenning- ur þráir frið og farsæld, og starfsemi Hinna Sameinuðu þjóða er tákn og traust þess hugarfars. Eg mun ekki rekja starfsemi Hinna Sameinuðu þjóða í þessu stutta ávarpi. En barnahjálp, flóttamannafyrirgreiðsla, tækni- aðstoð, matvælastofnunin og margt fleira, eru dæmi þeirrar viðleitni, sem heimurinn má ekki án vera, og nú fyrst er sýnd á alheimsmælikvarða. Hver veit hve langt verður komist um lausn hinna stærstu alþjóðavandamála á þessum vettvapgi, ef haldið er áfram í einbeittri trú á mikla mögu- leika. Öryggi óttans á þessari atómöld hrekkur ekki til fram- búðar. Gagnkvæmur skilningur og traust, samhjálp og um- hyggja þarf að útrýma óttan- um og styrjaldarhættunni. Með vaxandi samúð og samstarfi á alþjóðavettvangi mun heiti „Hinna Sameinuðu þjóða“ að lokum reynast sannnefni. — En allt getur brugðist til beggja vona. Framtíðin veltur á hugarfari og stefnu þeirra, sem forustuna hafa. Hinar Sameinuðu þjóðir eru hin víðtækustu alþjóðasamtök, sem til liefur verið stofnað. Enn eru þau ung að aldri. Vér megum ekki vera mjög bráð- lát. Allt er lengi að vaxa, sem lengi á að standa. Framtíðar- möguleikarnir eru miklir, og gifta mannkynsins í veði. Yfir þessum degi blakta allir fánar hinna einsböku sameinuðu þjóða — og bera við himin líkt og friðarbogi. Vér óskum hinum Sameinuðu þjóðum allra heilla, og gefi Guð góðri viðleitni sigur“. lenzkum fiskimanni þykja verða þröng fyrir dyrum. í 3. lið er lagt til að strax þegar niðurstaða er fengin í þessum málum hjá nefndum þeim, sem um þau eiga að fjalla á vegum SameiniKVi ^jóð- anna, sé án tafar stigið næsta skrefið. Gjört hefur verið ráð fyrir að þær njðurstöður muni ekki heimila meiri útfærslu en 12 mílur frá grunnlínustöðunum. Verði þær hinsvegar þannig, að fært sé að færa línuna lengra úr, t. d. 16 sjómilur, leggjum vér áherzlu á að svo langt verði farið. í því sambandi vill 18. þing FFSÍ minna ó þá sögulegu stað- reynd, að tilskipunin frá 1662 um 16 sjómílur var ekki form- lega felld niður fyrr en með þvingunarsamningunum, frá ár-j inu 1901, sem danska ríkisstjóm-j in þröngvaðj þá upp á íslenzkuj þjóðina. iaMMMMBMMMB^| Vetrarfagnaður Rangæingaíélagsins er í kvöld í Skátaheimilinu^ við Snorrabraut og hefst kl. 8.30. Dagskrá: 1. Myndasýningar. 2. Dans. Sigurður Ólafsson syngur með hljómsveitiuni. Stjórnin Barnaverndar~ dagurinn er á morgun Börn sem vilja selja merki dagsins og Sólhvörf mæti kl. 9 í fyrramálið við eftirtaldar af greiðslustöðvar: SJcrifstofu Rauða Krossins, Torvaldsen- strœti 6, Drafnarborg, Barónsborg, Grœnuborg, Sleinahlið. ANDYRI: Melaskóla, Eskihlí&arskóla, ísaksskóla, Háagerðisskóla, Langholtsskóla, og anayri Digranesskóla og Kárs- nesskóla í Kópavogi. Dvalarheimili aldraðm sjómanna, Laugarási. Komið hlýlega klædd. Góð sölulauit og biómiði. Stjórnin. Enskar kápur Gott úrval ARKAÐURINN Laugaveg 100. 1 anum —M«M>M»l Saumavélar Noiað leðursaumavélar ftil sölu ■ ■ Skógerð Kristjáns Guðmundsson j Spítalastíg 10. . ! mmmmmm«mm»mmmmmmmmmmm»«mmmmmmmmm»i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.