Þjóðviljinn - 07.11.1957, Síða 4
Steíán Ögmundsson:
og sigrar í 40 ór
v-----------------------------------------------j
13 árum fyrir byltinguna í
Rússlandi segir svo í bænar-
skrá rússneskrar alþýðu til
keisarans: „Það er komið að
þeim hræðilegu tímarnótum í
tilveru okkar, þar sem þján-
ingarnar eru orðnar svo óbæri-
legar, að dauðinn er ákjósan-
legri en framhald þeirra.... “
Þessari bænarskrá var svar-
að með skothríð. Bióð þús-
unda verkamanna litaði stræti
Pétursborgar þann dag, yfir
þúsund lágu dauðir, og særðir
voru á þriðja þúsund manns.
Kyölin, sem nísti alþýðuna
í Rússlandi keisarans og knúði
hana til þess að biðja harð-
stjórann griða óx með ári
hverju. En „blóðsunnudagur-
inn“ kenndi rússnesku alþýð-
'unni að leiðin til frelsis ligg-
ur ekki gegnum bænarskrár
og blauð hjörtu harðstjór-
anna, heldur er hjartaprýði
hennar sjálfrar vegurinn til
lífsins.
Fullvita menn, hvar í flokki
sem þeir standa játa nú flest-
ir að ástandið hjá meginþorra
rússnesku alþýðunnar fyrir
byltinguna sé bezt táknað með
orðunum: Lífið var óbærilegra
en dauðinn. Og alltaf fjölgar
þeim, sem telja að byltingin
í Rússlandi hafi verið eitt hið
réttlátasta andsvar, sem al-
þýðan nokkru sinni hefur gef-
ið kúgurum sínum.
En það er annað sem seint
ætlar að fyrirgefast rúss-
neskri alþýðu. Og það er sú
konungshugsjón fátæktarinn-
ar, sem réðist að því ófarna
einstigi að skapa manninum
sem herra jarðar vísindalegan
grundvöll fyrir lífi sínu, móta
nýtt þjóðfélagsform, sem mið-
ar við þarfir mannsins sem
einnar tegundar. Af fjendum
ráðstjórnarskipulagsins hefur
í ‘10 ár hver athöfn sovétþjóð-
anna, rétt ekki síður en röng,
verið dæmd í hlut þess vonda.
1 upphafi sá auðvald heims-
ins fyrir hrakfarir sínar í við-
gangi þessarar jtilraunar, það
sá endalok arðráns síns og
stríðsofbeldis. Og því fleiri
sem árin urðu og ávöxtur sós-
íalismans stærri, því þykkar
lagðist yfir mökkur lyginnar.
Þar kom, að þýzki fasisminn
taldi sig eiga nógu traustan
bakhjarl í stálkóngum auðsins
og >°''Vktum almenningi auð-
valdslandanna til þess að
heyja. styrjöld til tortímingar
ráðstjrjrnarfólkinu,
Svo fór þó að barátta
þeifi’a, sém aldrei létu blekkj-
ast, .innri motsetningar auð-
váidsins sjáifs og hryðjuverk
fas'smans þögguðu að nokkru
um stundarbil ófrægingar auð-
valdsins um Ráðstjórnarþjóð-
irnar. En ekki var þýzki fas-
isminn fyrr brotinn á bak aft-
ur, en öll „Morgunblöð" auð-
valdsins þrumdu. enn einum
rómi áróður sinn og kynntu
elda nýrrar styrjaldar.
Það er ekki á mínu færi að
gefa neina viðunandi mynd af
þeirri stórfenglegu ummyndun
sem orðið hefur á lífi Ráð-
stjórnarþjóðanna síðustu 40
árin. Hitt er hægt að segja og
standa við, að það hafa gerzt
kraftaverk í iðnaði, landbún-
aði, vísindum og menningu
þeirra 200 milljóna, sem Sov-
étríkin byggja, þessa fólks,
sem langflest lifði áður í ó-
læsri fáfræði. En auk þess
hefur rússneska byltingin og
þróun sósíalismans í Ráð-
stjórnarríkjunum einnig ger-
breytt ásjónu heimsins. Hvar
sem barizt var um „brauðið
og hitann" var fordæmið rúss-
neska alþýðunni styrkur, auð-
valdinu ógn.
En það er saga út af fyrir
sig og harla merk: hlutur
rússnesku alþýðunnar síðustu
40 árin í hverri hræringu fá-
tækra manna til bættra lífs-
kjara hvar sem þeir voru í
heiminum. Þar eru dæmin
allt frá sókn íslenzkra verka-
manna, til sigurs 600 milljóna
Kínverja yfir böðlum sínum.
★
Það væri rangt að minnast
svo 40 ára afmælis rússnesku
byltingarinnar að getið væri
að engu erfiðleikanna, sem
alþýðan og forvígismenn henn-
ar hafa átt við að stríða eft-
ir byltinguna. Rétt eins og
vegur þjóðar, sem gert hefur
byltingu, sé rósum stráður.
Ef ég man rétt hafði Lenin
þau orð um rússnesku alþýð-
una að hún væri efni í fólk.
Það orðalag skýrir mætavel
hvílíkt átak uppeldis- og
fræðslumálin hlutu að verða:
Að kenna þjóðum ráðstjóniar-
landanna að að kenna
þeim að vinna, að kenna þeim
að stjórna, að kenna þeim að
skapa nýjan landbúnað, nýjan
iðnað, ný visindi. Þó hefði allt
þetta orðið ráðstjórnarþjóð-
unum leikur einn, ef þær
hefðu mátt vinna það í friði.
Þá hefðu þær uppskorið á-
vexti starfa sinna óttalausar
í stað þess að eiga í hverri
ömi óvis grið á næsta degi.
Enda hefur þessi hætta, sem
staðfest var svo áþreifaniega
með síðustu styrjöld, haft
mikil og í flestu cheillavæn-
Ieg áhrif á líf og starf ráð-
stjórnarþjóðanna.
Maðurinn, hvar sem hann
er á jörðinni, er ávallt í mikl-
um vanda staddur, þegar
hann á að velja milli þess að
njóta ríkulega skammra lif-
daga við nægtir landsgæða og
frjóa starfshætti og hins að
leggja mikinn liluta erfiðis
síns til tryggingar framtíð-
inni, ekki aðeins sinni framtíð
né sinna, heldur ekki síður
framtíð annarra óskildra, ó-
þekktra.
En það er einmitt þetta
vandasama val, sem kom í
hlut sovétþjóðanna að fram-
kvæma gagnvart alþýðu
heimsins.
Það kostaði óhemju átök og
erfiði að fá meginþorra fólks-
ins til að skilja gildi þeirra
langsýnu markmiða að gera
Sovétríkin að því ríki friðar-
ins í heiminum, sem veður
fasismans brotnuðu á, að því
trausta vígi, sem áformin um
atómstyrjöld hafa strandað
við til þessa. Og sigur þess-
arar stefnu hefur kostað gif-
urlega sjálfsafneitun sovét-
þjóðanna. En framkvæmd
hennar hefur lika oft orsakað
baráttu sem leitt hefur til mis-
notkunar valdsins og hörmu-
legra glapráða, sem enga stoð
eiga í hugmyndakerfi sósíal-
ismans.
Þráitt fyrir það eni það
sigrar sósíalismans síðustu 40
árin, sem gefa mannkyninu í
dag vonir um frið og bjarta
framtíð. Þeir afsaka ekki ó-
hæfuverk, sem framin hafa
verið, en hrikaleiki átakanna
um líf eða dauða sovétskipu-
lagsins, líf eða dauða sósíal-
ismans í heiminum, frelsi eða
ánauð alþýðunnar um ókomn-
ar aldir, þessar hrikalegu
sviptingar em baksvið og
grundvöllur mistakanna.
Sjaldan hafa andstæðingar
sósíalismans férigið ' kærkomh-
ari tækifæri til árása á Sovét-
ríkin en síðustu tvö árin og
undrar engan þótt fast sé set-
ið að seiði. Hitt verður þó að
teljast furðumikill árangur af
ófrægingu auðvaldsins um
starf og stefnu sovétþjóðanna,
þegar menn, sem telja sig vin-
veitta baráttu alþýðunnar,
snögglega hætta að sjá allt
ncma glöpin. Þeir gleyma því
að sigramir sem unnust, forð-
uðu útþurrkun heilla þjóða,
já, gleyma því í hofmóði og
heilagri vandlætingu að auð-
valdið sé til, nema þá sem
meinlaus áhorfandi að erfið-
leikum alþýðunnar við að um-
skapa veröldina í friðsaman,
byggilegan heim. Og þegar
slíkir ,,vinir“ alþýðunnar eru
teknir að rétta vopnin yfir
virkisvegginn finnst manni
ekki óeðlilegt þótt að þeim
hvimaði spurning ljóðsins:
„Hvers vegna ertu hér“ ?
Hér eftir sem hingað til
mun íslenzk alþýða óska þess
að fá sem truflunarminnst að
velja sér vini að eigin geð-
þótta. Og það væri í sannleika
sagt ólíkt íslendingum, ef vér
lokuðum augunum fyrir veilun-
um í fari manna. Þess vegna
koma þær okkur ekki svo
mjög á óvart. Hitt vitum við
sósíalistar að eina leiðin til
þess að aga mannlega veik-
leika og uppræta arf fortíð-
arinnar í samskiptum manna,
er að gefast ekki upp við að
læra af mistökunum, og reyna
ævinlega að draga sem hlut-
lægstar ályktanir í hverju
málefni. Og dómurinn í því
máli sem hér um ræðir verður
óumdeilanlega sá, að tilraun
Ráðstjómarþjóðanna til að
byggja upp skipulag sósíal-
ískra þjóðfélagshátta liafi
tekizt betur en nokkur maður
hefði þorað að vona fyrir 40
árum.
Þá stefndu vonir alls hins
þjakaða mannkyns að Rúss-
landi byltingarinnar og síðan
hafa gengið í fótspor þess 850
milljónir manna.
Með friðarstefnu sinni í al-
þjóðamálum og yfirburðum
sínum á sviði visinda og
tækni, eru Sovétríkin í dag
öruggasta vörn heimsfriðarins.
Uppreisnin gegn styrj-
öldinni var rík-
ur þáttur 1 byltingunni í
Rússlandi. Hermennirnir á
vígvöllunum neituðu að
berjast. Á fundum á víg-
stöðvumnn (myndin til
luegri) voru stofnuð her-
mannaráð og byltingar-
nefndir til þess að halda
byltingunni áfram. Rúss-
nesku hermennirnir hróp-
uðu yfir víglínurnar til
stéttarbræðra sinna í skot-
gröfmlum íýrír handan.
Stýrjaldaraðgcrðir hættu,
og Þjóðverjar, Austurrík-
ismenn og Rússar ræddust
\ið eins e,g bræður. Mynd-
in til vinstri sýnir austur-
ríska og rússneska her-
menn á viiiáttufundi.
Þess vegna tengir alþýða
auðvaldslandanna og nýlendu-
þjóðanna enn í dag vonir sín-
ar við gengi og aukinn stjTk
Ráðstjórnarlýðveldanna —< og
væntir þeirra tima, þegar allri
alþýðu gefst færi á að móta
sósíalíska þjóðfélagshætti i
löndum sínum, með dýrmæta
reynzlu Ráðstjórnarþjóðanna
að bakhja.rli.
Dömufatnaður
Undirfatnaður
Náttkjólar
Náttjakkar
(vatteraðir)
Nylon-sokkar nxeð
saum og sauinlausir.
Verzl. Hafbiik
Skólavörðustíg 17B
Nýkomið
Prjónakjólar, jersey-
kjólar og samkvæmis-
kjólar, ullarpeysur, or-
lonpeysur, hattar og
húfur.
Hattabúð
Heykfavíkur
Laugaveg 10.
Tóledó
Ódýru síðu nærbux-
urnar eru komnar.
VerÖ kr. 28.