Þjóðviljinn - 07.11.1957, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 07.11.1957, Blaðsíða 12
prsfjérniii GuSmundiir Vigfussou og Alfreð Gíslason fluttu um það tillögu 7. marz sJL sem afgreidd verður í dag Á fundi í bæjarstjórn Reykjavíkur 7. marz s.l. íluttu þeir Guömundur Vigfússon og Alfreð' Gíslason tillögu um stofnun Byggingarsjóðs Reykjavíkurbæjar er hafa skyldi það verkefni að greiða fyrir byggingu íbúðarhúsa í bæn- um. Var tillögunni vísað til bæjarráös og 2. umræöu frestaö. Bæjarráð fól síðan Tómasi Jónssyni borgarlög- manni athugun málsins og hefur hann skilað allítarlegri greinargerð. í dag er málið á dagskrá bæjarstjórnarfund- ar og hafa íhaldsfulltrúarnir tekið tillöguna upp í nokk- uð breyttu fonni, og má vænta að hún nái fram að ganga. Tillaga Guðmundar og Alffeðs umræðu og afgreiðslu í bæjar- var svohljóðandi: „Bæjarstjórn ákveður að stofna sjóð, er neínist Bygging- arsjóður Reykjavíkurbæjar. Fé sjóðsins skal varið til að greiða fyrir byggingu íbúðarliúsa í bænum, enda séu húsin reist af bæjarfélaginu, eða félagssam- ..tökum, er starfi samkvæint regl- um, er bæjarstjórn samþykkir. Starfssvið sjóðsius skal vera á- kveðið í reglugerð, er bæjar- stjórn setur. Árlegar tekjur sjóðsins skulu vera: ---- 1. Framiag úr bæjarsjóði, eins og ákveðið er í fjárhagsáætlun livert sinn. 2. Hagnaður, sem • verður á rekstri íbúðarhúsa, sem hærinn á; 3. Afborganir og vextir af iánum, er bærinn liefur veitt vegna húsa, er hann hefur selt. 4. Afborgarnir og vextir af iánum, er bærinn hefur veitt til íbúðabygginga eða greiðslu á húsaieigu. 5. Hluti af hagnaði af húsa- tryggingum bæjarins, að feng- inni nauðsynlegri lagabreytingu, og eftir nánari ákvörðuu bæjar- ráðs hverju sinni.“ Þótt um skeið hafi legið fyr- ir álitsgerð borgarlögmanns þar sem m, a. er viðurkennt að eign- ir sjóðsins gætu þegar í byrjun numið milli 50 og 60 millj. kr. hefur Gunnar borgarstjóri ekki sýnt þá sjálfsögðu háttvísi að taka tillöguna um álitsgerðina til Þjóðviljann vantar röskan ungling til blað- burðar á Teiga og Lönguhlíð Afgreiðsla ÞJÓÐVILJANS ími 17 - 500. ráði. X þess stað taka íhalds- menn tillöguna upp efnislega og flytja hana svohljóðandi í bæj- arstjórn í dag: „Bæjarstjórn samþykkir að stofna Byggingarsjóð Réykja- víkurbæjár í því skyni .að greiða fyrir byggjngum íbúða til þess að útrýma heilsuspillandi íbúð- arliúsnæði í bænum. A. Stofnfé sjóðsins skal vera: 1. Lán bæjarins til kaupenda íbúða í Hringbr.aut 37—47, Lönguhlíð 19—425, Bústaðahverfi, skv. reikningi bæjarsjóðs pr. 31. des. 1956 Kr. 17.514.042,67 2. Framlög bæjarsjóðs til í- búðabygginga 1955—1957 24.500.000,00 1. Vaxtatekjur. 2. Fr.amlög úr bæjarsjóði, eft- ir ákvörðun bæjarstjórnar. 3. Væntanleg framlög úr rík- issjóði til útrýmingar heilsu- spillandi húsnæði í bænum. 4. Aðrar tekjur. Bæjarstjórn felur bæjai-- ráði að semja frumvarp að í-eglugerð fyrir Byggingarsjóð- inn, þar sem gert er ráð fyrir því m. a. að sjóðurinn geti tek- ið lán til starfsemí sinnar.“ Efnislega virðist ihaldið þann- ig- liafa gefizt upp lið ándstöðu sína gegn stofnun byggingar- sjóðs, en auðvitað reynir það eftir föngum að draga úr þeim tekjum sem til hans falla, ehis og auðvelt ei- að ganga úr skugga um með samauburði - á tillögunum. ðoviumic B. Árlegar skulu vera: Kr. 42.014.042,67 tekjur sjóðsins Fimmtudagur 7. nóvember 1957 ■— 22. árgailgur —251, tölublað Skoiradalsbændur sigra í deilunni um hækkun Skorradalsvatns Skorradalsbændur hafa nú sigrað í togstreitunni um hækkun Skorradalsvatns. Hefur veriö fallið frá 2ja m. hækkun vatnsins. Þjóðviljinn sagði frá því á i un þessa, — og láta þá sætta sig sínum tíma er bændur í Skorr.a- við orðinn hlut. dal sameinuðust til að hindra að | Upphaflega mun ætlunin hafa hækkað yrði í Skorradalsvatni. ver'ð að hækka í vatninu nokk- Bændum var allþungt í skapi,! uð á annan metra, eða allt upp þar sem þeir töldu að átt hefði í tvo metra', í því augnamiði að að fara á bak við sig með hækk- fá þannig varabirgðir af vatni fyrir Andakílsárvirkjunina, til afnot'a 'á • vetrum • þegar vatns- renns'ið kcmst í tógmark. I-að . samkomulag . hef ur nú náðst í þessu ■ máli að hækkáð verður í vatn'nu . um M>. m,. en við það eigá að, fást vatiisbirgð- ir sem endást Andakílsárvirkj- uninni 3—4 vikur. Hækkun þe'ssi er báð því skilyrði fið telji bændur m'klar skemmdjr hljót- ast- af hækkuninni verði stiflan ek-k;. notuð. Hinsyegar er . ekki talín hætta á að miklár skemmd- ir hljótist af þéssari. hækkun. 'í' haúst hefur verið unnið að því að leegjá nýja vegj' 'með-. , .. ! fram vatninu béggja vegna, en A siðasta bæjarstjornarfundi flutti Einar Ogmundsson ; „9rn,u vegirnir lágu viðásthvar. eftilfai-andi tillögu. | alveg meðfram vatnsborðinu. „Bæjarstjórn samþykkir að framkvæma breikkun á ■------- : Suðurlandsbraut móts við viðkomustaöi strætisvagn- anna, þannig að farþegar geti livortveggja, yfirgefið og tekið strætisvagn utan aðalakbrautarinnar“. Sósíalfstar Kópavogi Aðalfundi Sósíalistafélags Kó'avogs, sem ha'da átti í kvöld, er frestað til n.k. þriðju- dags, 12. nóv. ¥®rða útskot fyrlr strætisvapana til þess að draga úr slysahættunni? Fangaoppþot á Litla-Hraimi Fangar þeir á Litla-Hrauni sem brugðu á strok, og frá hef- ur verið sagt náðust aftur dag- inn eftir, en einn meirra, Jó- hann Víglundsson undi ekki þeim málalokum og brá enn á strok. Fannst hann í fyrrakvöld niðri á Eyrarbakka, þar sem liann hafði falið sig í olíubíl og ætlaðj að komast sem laumu- farþegi til Reykjavíkur. Nokkru eftir að hann hafði verið flutt- ur í einangrunarklefa á Litla- Hrauni í fyrrakvöld fóru að héyrast óánægjuraddir í föngum á hælinu, varð mótþrói þeirra svo mikill að sveit lögreglu- manna var send austur í gær- morgun, fangavörðunum til að- stoðar. Einn fanganna í hselinu lézt þar í gærmorgun, en dauði hans er ekki settur í samband við uppreistarhug fánganna. Sýslu- imaðurinn í Árnessýslu rannsak- aði mál þetta í gær. 7. HÓy-hátíðin í kvöid í kvöld efnir MÍR til hátíðar á Hótel Borg í tilefni af 40 ára afmæli níssnesku bylting- arinnar. Sjá auglýsingu á 8. síðu. Einar rökstuddi tillögu sína með slysahættunni í sambandi við viðkomustaði strætisvagn- anna á ejnni mestu umferðar- götunni, en einmitt á þessari götu hafa orðið alvarleg slys þegar fólk hefur verið að fara út úr vögnunum. Eínar Thoroddsen kvað mál þetta hafa komið til umræðu í umferðarnefnd, en það mætti mjög mjkilli andspyrnu frá strætisvagnastjórunum, sagði hann, sem töldu þetta ófært þar sem það myndi verða til þess að þeír kæmust ekki inn í um- ferðina aftur fyrr en eftir langa bið. Tjllögu Einars var vísað til bæjarverkfræðings og umferðar- nefndar, til umsagnar er liggi fyrir á næsta fundi, en sá fund- ur er í dag. Mikil snjókoina var norðan- lands í fyrrinótt og gær. Veg- ir voru illfærir og töfðnst mjólk- urbílar mjög, bæði í Eyjafirði og víðar. Úti í Ólafsfirði var snjó- dýptin í gær orðm nokkuð á annan metra, — og þar var einn mjólkurpósturinn 3 klst. að komast 2ja kra, vegalengd! Mynd Jiessi birtist í sovézku blaði og sýnir hún mynd af geimtíkinni Dömku í hinum sérstaka búningi sem lmn er í á ferð sinni um geiminn. Hún hefur einnig sérstaka súrefnisgrímu sem gerir lienni fært að matast. Búninguriun verndar hundinn gegn Jieim þrýstingsbreytingum sem verða þegar homun er skotið út í geiminn og einnig er honum verður skotið áleiðis til jarðar. Munið happdrætti Þjóðviljaris

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.