Þjóðviljinn - 07.11.1957, Side 9
Fimmtudagur 7. nóvember 1957 — ÞJÖÐVILJINN — (S
Ungmemiafélag Reykjavíkur
að hefja vetrarstarfsem
Kvennadeild félagsins stcfnuo
síiia
Ungmennafélag Reykjavíkur
er nú að hefja vetrarstarfsemi
sína. I kvennadeildinni er lögð
áherzla á leikfimi og frjálsar
iþróttir, og verður Elín Sigur-
vinsdóttir kennari. Körfuknatt-
leikur á sívaxandi vinsældum
að fagna og hefur kvennadeild-
in því fengið Kristínu Þórðar-
dóttir íþróttakennara til að
kenna stúlkunum körfuknatt-
leik í vetur. Þær æfingar eru
i Miðbæjarskólanum kl. 9 á
föstudögum.
Nokkur ár eru síðan stúlkur
hófu að æfa frjálsar iþróttir
hjá félaginu. Á tslandsmótinu
s.l. sumar átti fclagið þrjá þátt-
takendur í kvennagreinum, og
þrátt fyrir litla sem enga æf-
ingu urðu þær í tveim grein-
um nr. 2, tveim nr. 3 og í
einni nr. 4. Enn eiga stúlkur
úr félaginu gildandi Islandsmet
í þremhr greinum: langstökki
og 80 m grindahlaupi (Mar-
grét Hallgrímsdóttir) og spjót-
kasti (Kristín Árnadóttir).
Margrét jafnaði einnig metið
i 200 m 1952. Æfingar frjáls-
íþróttastúlknanna eru á mið-
vikudagskvöldum ld. 8.
Glímudeildin hefur einnig
byrjað æfingar sínar. Það var
árið 1945 sem Umf. Reykjavík-
ur hóf glímukennslu sina.
Fyrsti ke’nnarinn var Kjartan
Bergmann, en árið 1946 réðist
Lárus Salómonsson til félags-
ins sem glimukennari og hefur
það notið kennslu hans siðan.
Dy
namo Moskva
til S»Ámeríku
I Buenos Aires er frá því
sagt að sovétliðið Dynamó frá
Moskva muni leika við argen-
tínsku meistarana, River Plate
sem eru í Buenos Aires, í byrj-
un desember.
I fréttinni segir ennfremur að
Dynamó muni leika x Brasilíu,
Chile og Uruguay.
Ibbotsson kjörinn
„íþróttamaður
ársins46 í Bretlandi
Brezkir íþróttamenn hafa ný-
lega valið „íþróttamann árs-
ins“ í Englandi. Fyrir valinu
varð heimsmethafinn í einnar
mílu hlaupi Dei'ek Ibbotson.
Hann hefur um nokkurra ára
skeið verið einn af beztu hlaup-
urum Breta.
Annar varð kappaksturs-
kappi Stirling Moss að nafni,
fyrsti Breti sem vinnur hinn
fræga Grand Prix kappakstur.
3. Peter May (cricket), 4.
Dai Rees (golf), 5. Johnny
Haynes (knattspyrna), 6.
Lester Piggott (knapi) og 7.
Chris Davidge og Tony Leadley
Ev r óp umei sta r ,ar í tveggja
manna róðri.
Glimumennirnii' hafa staðið sig
mjög vel á glímumótum o
tvisvar sinnum hafa þeir farið
utan i sýningarferðir.
I vetur verða glímuæfingar
á föstudögxnn og þi-iðjudögum
kl. 8 í Miðbæjai-skólanum.
Á 15 ára afmæli Ungmenna
félags Reykjavíkur var stofnuð
sérstök kvennadeild, og í sum-
ar hafa stúlkurnar unnið að
undirbúningi blóma- og trjá-
ræktar við hið nýja félags-
heimili i Laugai’dalnum.
Þá ráðgerir félagið einnig
að cfna til fræðslukvölda; og
mun það fyrsta að öllu for-
fallalausu verða 10. þ. m. Á
þeim fundi verður sagt frá og
rætt um skáldið Jónas Hall-
grímsson og lesin verða upp
kvæði eftir skáldið. Féiagið
nýtur í þessu aðstoðar Æsku-‘
lýðsráðs Reykjavíkur.
Þeir sem hafa hug á að taka
þátt í fræðslukvöldum þessum,
geta látið skrá sig hjá hús-
verðinum i Félagsheimilinu.
Nórræna liðið
gégn USA valið
eftir EM
Leiðtogar frjálsíþi’óttamanna
Norðui’landa voru um fyrri
helgi á fundi í Stokkhólmi til
að ræða sameiginleg mál land-
anna. Rætt var um keppni
Norðurlandanna við Banda
rikin eða Kaliforníu næsta
haust og hún ákveðin 13. til
15. sept. Liðið á að velja með
tilliti til árangursins í Evrópu-
.meistáramótiixu sem fer fram
rétt ,áður.
Rætt var um að athuga
möguleika á því að koma á
Norðurlandameistarakeppni
fi’jálsum iþi’óttum 1961, og þá
sem tilraun, ef samböndin viljá
að athuguðu máli vei'a með í
slíkri keppni.
Um þetta mun þó ekki vera
einhugur þar sem stærri löndin,
sérstaklega Svíþjóð álíta aÆ
flestir keppnisdagar sumarsins
séu svo setnir þar sem félögin
þurfa að fá með á mót sin
beztu mennina. til þess að fólk-
ið komi til að horfa á; það sé
varliugavert að safna um of
úivalsmönnumnn saman, með í-
hlutun sambandanna! — Á
þinginu var rætt um breyting'ar
á gaddaskóm og samþyrkkt að
seixda IAAF tillögur um það,
og ennfremur ýmsar reglu-
bi’eytingar o.fl.
Athugasemd um geugislækkun
SkÉðafélögin hefja skíðaferðir
Það er óvenju snemma sem lind og njóta um leið skemmt-
skíðafélögin fá tækifæri til unar í góðum félagsskap.
skíðaferða að þessu sinni. Varla
er vetur svo byrjaður að snjór-
inn hafi ekki þakið fjallahlíð-
arnar kringum skíðaskálana,
og boðið upp á ágætt skíða-
færi.
Það var heldur ekki látið á
sér standa a.m-h. hér í Reykja-
vík, þvi að um síðustu helgi
efndu skiðafélögin hér í fyrsta
sinn til ferðar á skíði á þess-
um vetri. Var þátttakan furðu
góð, þegar tekið er tillit til
þess að þetta er í fyrsta sinn
og þetta snemma. Veðrið gex’ði
að vísu sitt til þess að draga
fólk út og upp til fjallanna,
enda var sem komið væri langt
fram á vetur. Margir aðrir en
þeir sem fóni á vegum skíða-
félaganna fóru á skiði um helg-
ina, því að margir einkabilar
voru uppi við skíðalöndin.
Fyrir þá sem rniklar inniset-
ur hafa er annað varla betra
til hressingar en að fara á
skíði um helgar eða eins oft.
og þeir geta; það jafnar upp
hið óeðlilega hi’eyfingarieysi, en
ekkert er eðlilegra fólki á öll-
um aldri, sem heilbrigt er, en
hafa hreyfingu úti í hinum
frjálsa snævi þakía faðmi fjall-
anna.
Skíðafélögin hafa ákveðið að
halda uppi skíðaferðum í all-
an vetur eins og að undan-
förnu, og íram að áramótum
verður farið á hverjum sunnu-
dagsmorgni þegar fært þykir
og iajgt af stað kl. 10 fi’á Bif-
reiðastöð Reykjavikur.
Það er því ástæða til þess
að hvetja alla að fará á skíði
og riota fjallaloftið sem heilsu-
Lokomotív russ-
neskur meistari í
knattspyrnu
Um siðustu helgi íór fram úr-
slitaleikurinn í rússnesku kcppn-
inni í knattspyrnu og kepptu þá
Lok.omotív og Spartak. Úrslit
urðu þau, að Lokomotív vann
með 1:0 og þar með varð Loko-
motiv sovétmeistari að þessu
sinni. Leikurinn íór fram á
Lenínleikvanginum í Moskva.
Puskas til Vienna
Fyrir nokkru var frá því
sagt að ýmislegt benti til þess
að Ference Puskas myndi fara
heim áður en langt um liði og
að það myndi ákveðið fyrir 10.
þ.m. hvort svo snerist eða ekki.
Nú kemur enn ný frétt sem
segir að hann hafi gert samn-
ing við knattspyrnufélagið Vi-
enna i Austurriki, og má hann
byrja að leika með félaginu
með voi’inxi. Almennt var búizt
við því að itölsk lið mundu
yfirbjóða svo að önnur félög
kæmu ekki tii greina. Á meoan
á hann að leika í flóttamanna-
liði i Austurríki sem hefur leit-
að fyi-ir sér t. d. í Danmörku
um æfingaleiki, en slíkir leikir
erti bannaðir i Austurríki.
Vafasamt cr talið að liði þessu
takist að ná samningum við
Danina, svo að gert er ráð fyr-
ir að Puskas verði að láta sér
nægja að æfa með liðinu þar
til í vor að hann má fara að
Ieika með Vienna, verði þá ekki
komin ný frétt.
Alþýðublaðið birtir í dag
rammagrein ‘ með fyrirsögn-
inni: „Hai'aldui’ 'Jóhánnsson
hagfræðingur telur krónuna
ofmetna — og gengislækkun
lið í ráðstöfunum, sem gei’a
þurfti“. Síðan birtir Alþýðu-
blaðið lokamálsgreinar síð-
ustu greinar minnar um fjár-
festinguna. Þeii', sem ekki
hafa lesið greinarnar, geta
skilið tilvitnun þessa, þótt
rétt sé tekin upp og sam-
hengis getið, á þann veg, að
ég telji gengislækkun nú
nauðsynlega. Vegna þess vil
ég taka fram eftirfarandi:
a) Bæði í ár og i fyrra
hef ég aðspurður, látið þá
skoðun i ljós, að gengislækk-
un mundi ekki leysa efna-
hagsvarictemál þau, sem við
væi’i að etja. Um þá skoðun
hef ég ekki vei'ið einn meðal
hagfi’æðinga. (En að sjálf-
sögðu er ég ekki dómbær á
hvers virði skoðanir mínar á
efnahagsmálum eru yfirleitt).
b) Bátagjaldeyriskerfið, sem
sett var á stofa 1951, og
Framleiðslusjóður, sem settur
var á stofn 1956, qg lqks Út-
flutningssjóðui’, sem tók við
stofnunum þessum um síð-
ustu áramót, voru sett á lagg-
irnar til að koma i veg fyiár
formlega gengislækkun. Þeir
tilflutningar tekna, er stofn-
anir þessar hafá innt af
liöndum, eru þannig dulbún-
ar gengislækkanir. íslenzka
krónan verður þess vegna að
teljast ofmetin á formlegri
gengisskráningu.
c) Gengislækkun er aðeins
f jármálaleg ráðstöfun. Við ;
þær aðstæður, sem nú eru til '
staðar í efnahagslífi lands-
ins, mundi þjóðarframleiðslan
hvorki vaxa né minnka við
gengislækkun. En gengislækk- <
un hefði áhrif á skiptingu
þjóðarteknanna, fyrst í stað
að minnsta kosti og á verð-
lag.
d) Að mínu viti er það ‘
mesta efnahagslega vandamá),
landsins að leggja grundvöll
að varanlegum vexti raun-
verulegra tekna og gjaldeyris-
tekna á íbúa. Gengislækkun
án ráðstafana sem miðuðu i
þá átt væri út í bláínn. Nauð-
synlegnstu ráðstafanir til
undirbúnings þess háttar ráð-'
stöfunum krefjast margra
mánaða vinnu.
Reýkjavík, 6. nóv, 1957.
Haraldur Jójjarinsson
3íunið
happdrælfi
ÞfóðvHjaus
Undanliald í togaramálinu?
Framhald af 3. siðu.
ráðið afstöðu íhaldsfulltrú-
anna í bæjarstjórn, þegar þeir
vísuðu frá tillögunni um að
bæjarstjórnin óskaði eftir tíu
af skipunum i hlut Reykja-
víkur og ætlaði Bæjarútgerð-
inni sex þeirra, að þeir hafi
beinlínis verið áhugalausir um
málið enda allur tónninn sá
í málflutningi þeirra á bæjar-
stjórnar.Pundinum.
En nú er íhaldið sem sagt
farið að óttast afleiðingarnar.
Á bæjarstjórnarfundinum s.l.
fimmtudag mátti ekki vísa til-
lögu Guðmundar til umsagnar
útgerðarráðs og bæjarráðs, og
ekki heldur til 2. umræðu í
bæjarstjórn. Hvortveggja
felldi hið steinrunna bæjar-
stjórnaríhald. Brúðuhendurn-
ar hlýddu eins og fyrri dag-
inn. Nú er hins vegar frásögn
Morgunblaðsins breytt í það
horf í gær að um það hafi að-
eins verið að ræða að fá ,,at-
hugun“ gerða á tillögunni og
afla um hana „umsagnar" hjá
útgerðarráði. íhaldinu datt
svo sem ekki i hug að drepa
málið, nei, sei, sei, nei, slíkt
hvarflaði ekki að íhaldinu.
Fyrir því vakti aðeins að fá
„athugun" og „umsögri* eins
og ábyrgum og gætnum
mönnum sæmdi!
Þetta er eitt dæmið enn um
það undanhald sem ihaldið
neyðist oft til vegna þungans
frá almenningsálitinu. Þau eru
ótal mörg umbóta- og fram-
fararmálin sem það hefur
brugðið fæti fyrir og tafið ár-
um saman meðan það þorði.
Ómælt er það tjón sem þessir
starfshættir hafa bakað
Reykjavík og Reykvikingum.
Þeir hafa þurft að bjða árvun
saman eftir framkvæmdum
scm lá í augum uppi að voru
sjálfsagðar og hagkvæmar og'
þegar þær loks komu voru
þær orðnar milljóiium eða
milljónatugum dýrari fyrir at-
beina ílialdsins. Þessir starfs-
hættir eru óhagkvæmir og
kostnaðarsamir fvrir bæjar-
búa og nauðsynlegt að losna.
við þá við fyrsta tækifæri.
„Linari1 á bæjansljórnar-
fundinum var að togaratillag-
an skyldi kistulögð. Þess
vegna mátti hvorki vísa henni
til 2. umræðu né umsa.gnar út-
gerðarráðs og bæjarráðs. Nú
hefur íhaldið fundið andúð-
ina á þessum vinnubrögðum
og þess vegna er reynt að
bjarga sér úr klipunni og
draga í land. Því á það nú
að hafa vakað fyrir íhaldinu
sem það lét lið sitt fella á
bæjarstjórnarfundinum s. I.
fimmtudag!
Vonandi á undanhalö ihalds-
ins eftir að verða svo hratt að
það neyðist til að ganga inn
á og samþykkja þær nauð-
svnlegu ráðstafanir til efling-
ar atvinnulífi Reyfyjavíkur
sem í tillögunni fólust.
Reynið viðskiptim.
Blöð, tímarit, sælgæti, tó-
bak, molakaffi.
Hagstætt verð.
Þórsbar
Þórsgötu 14.