Þjóðviljinn - 13.12.1957, Page 1
JINN
Fjárlögin á dagskrá í dag
Fjárlagafrumvarpið kemur
til 2. umræðu á fundi samein-
aðs þings kl. 1.30 í dag. Flyt=
ur þá Karl Guðmundsson, for-
maður fjárveitinganefndar,
framsöguræðu af hálfu meiri-
hluta nefndarinnar.
Föstudagur 13. desember i Ö57 — 22. árgangur — 282. tbl.
Kosnmgalagafrumvarpið
afgreitt úr efri deifd í gær
Yfirkjörstjórn heimilaÖ oð láfa kjörfund
i kaupsföÖum hefjast kL 9 árdegis
Frumvarpið um breytingar á kosningalögunum var
afgreitt til neðri deildar á síðdegisfundi efri deildar Al-
þingis í gær. Var sú ein breyting gerð við 3. umræðu
málsins í deildinni, að samþykkt var heimild til yfir-
kjörstjórna í kaupstöðum að ákveða aö kjörfundur skuli
hefjast kl. 9 í stað kl. 10.
fhaldsþingmenn töku nú upp
málþóf, er gekk svo langt að
meíra að segja Sigurður Ó.Ól-
afsson og Friðjón Þórðarson
töldu sig hafa eitthvað til mál-
annaað leggja, að ekki sé minnzt
á þingskörunga eins og Jón
Kjartansson, Gunnar Thorodd-
sen og Jóhann Þ. Jósefsson.
Voru ræður þeirra og gagnrýni
allar á einn veg, að með frum-
varpinu væri stefnt í „einræðis-
át-t“, nú ætti að torvelda mönn-
Kaffiverð
lœkkar
Kaffi hefur nú Iækkað í
verði, eins og verðlagsyfir-
vöidin auglýstu í blaðinu í
gær.
Hin nýja verðlækkun er
2.30 kr. á kg. af brnndu
og möluðu kaffi.
um að nota kosningarétt sinn,
og var reynt í hverri ræðu að
hafa um þetta stærri orð en áð-
ur.
Bernharð Stefánsson og Frið-
jón Skarphéðinsson svöruðu og
röktu sundur blekkingavef og
hártoganir íhaldsþingmanna.
BreytingatiIIögur um
kjörfundarbyrjun
Jón Kjartansson og Friðjón
Þórðarson (minnihluti allsherj-
amefndar) fluttu þá breytinga-
tillögu að kjörfundur í kaupstöð-
um skuli hefjast kl. 9 í stað kl.
10 í núgildandi lögum.
Friðjón Skarphéðinsson taldi
að þetta gæti verið rétt og eðli-
legt í fjölmennustu bæjunum, en
óþarft að lögfesta það fyrir alla
kaupstaðina. Flutti hann aðra
tillögu, svipaða efnis og var hún
samþykkt, en tillaga Jóns íelld.
Samkvæmt þeirri tillögu Frið-
Málþófsherferð íhaldsins
einnig hafin í neðri deild
Bjarni Ben. missir stjórn á sér í ræðu um
það hvort tiltekinn ráðherra „hristi hausinn
eða „kinki kolli"
Auk málþófs íhaldsþingmanna um kosningalögín í
efri deild Alþingis, hófu íhaldsþingmenn í neðri deild
almennt málþóf, og töluðu sig dauöa og hálfdauða hver
eftir annan, og voru þar þolnastir Jóhann Hafstein og
Bjarni Ben. en Ingólfur Jónsson, Björn Ólafsson og
meira að segja Ólafur Björnsson gerðu einnig nokkuð.
jóns Skarphéðinssonar yrðu laga-
ákvæðin þannig:
„Kjörfund skal setja á kjör-
stað eigi síðar en kl. 12 á há-
degi, eni i kaupstöðum kl. 10
árdegis. Yfirkjörstjóm í kaup-
Framhald á 5. síðu-
Laxoess kom til Hongkong 4. ]un.
Mun nú kominn til Peking — íer tii Ind*
lands að lokinni dvölinni í Kína
Halldór Kiljan Laxness kom til Hongkong 4. þ.m„
á leið sinni frá Bandaríkjunum til Kína, í boði kínversku
stjórnarinnar.
Blöðin South China Morning ritun. Blaðið skýrir allýtarlega
Post og Honkong Tiger Standard
skrifa bæði um komu hans 5.
des. South China Morping Post
getur þess að Laxness hafi
komið á óvart, þegar hann heim-
sótti Bandaríkjamann í Hong-
kong, að vera rétt eintak af
Sjálfstæðu fólki og beðinn um á-
Friðrik telur Reshevsky
hafa mestar sigurlíkur
En segir að Gligoric geti orðið hættulegur
11. umferðin á skákmótinu í Dallas var tefld í fyrra-
kvöld. Friðrik Ólafsson átti þá viö Najdorf og varð sú
skák jafntefli. Allar hinar skákirnar í þeirri umferö urðu
einnig jafntefli.
Ekki töluðu þeir fremur um
málið . sem fyrir lá en hvað
annað, t.d. snerust ræður
þeirra mjög um úthlutun at-
vinnubótarfjár, þegar á dag-
skrá var frumvarp um toll-
skrá. I þeim iimræðum gerði
Bjarni Ben. mikið úr því hvort
Lúðvílt Jósepsson hefði kinkað
kolli eða ekki, er Bjarni tal-
aði illa um Eystein!
Síðar komust þeir Bjarni og
Jó'hann og Ólafur í útflutn-
ingssjóðsfrumvarpið, um skipa-
leigurnar, og þá kom ein Morg-
unblaðsraunaroUan um verkfall-
ið í sumar. ÆMi Bjarni sig upp
eins og naut í flagi og mál-
flutningur hans varð á þessa
leið: Nú sé ég að hæstvirtur
sjávarútvegsmálaráðherra hrist
ir hausinn, nú kinkar hann ekki
kolli eins og í dag! Um fjár-
málaráðherra lét Bjarni svo
ummælt í þessu sama kasti,
að hann hefði fyrr á fimdinum
ógnað þingmanni með f járhags-
legri kúgun, sagt að ekki borg-
aði sig fyrir hann að segja
satt í þingsölunum, auk þess
að hann kvað Eystein marg-
staðinn að ósannindum!
Lúðvík Jósepsson og Ey-
steinn Jónsson svöruðu í stutt-
um ræðum.
Loks var svo af Bjarna
dregið um sjöleytið að hann
Framhald á 3. síðu.
Röðin er þá þessi eftir 11 um—
ferðir:
1. Reshevsky 7 vinningar,
2. Gligoric 614,
3. —4. Friðrik og Szabo 6,
5. Larsen 5 V>,
6. Janovsky 5,
7. Najdorf 4 V2,
8. Evans 314.
Bíðskák þeirra Larsens og
Janovskys úr 10. umferð varð
jafntefli.
12. umferð var tefld í gær-
kvöld og tefldu þá Friðrik og
Larsen, en fréttir voru ekki
komnar af henni þegar blaðið
fór í prentun. Biðskákir verða
tefldar i dag, 13. umferð á morg-
un og 14. og síðasta á sunnudag-
inn. Mótinu lýkur á mánudag
og Friðrik býst við að koma
heim í næstu viku.
í viðtali við fréttastofu ríkis-
útvarpsins í gær sagði Friðrik
að aðbúnaður væri ágætur í
Dallas. Fyrst var teflt í stórum
sal, , síðan í minni. Teflt er frá
7-
um frá 2—7. Ahorfendur hafa
stundum verið margir.
Friðrik sagði einnig nokkuð
frá skákum þeim sem hann hef-
Ur þegar teflt. Hann sagðist hafa
fengið ágæta stöðu út úr byrj-
uninni í skákinni við Larsen og
hafa haldið henni að mestu til
loka. Hins vegar sagðist hann
hafa fengið slæma stöðu út úr
byrjuninni í skákinni við Resh-
evsky, en báðír lentu í tímahraki
og Friðrik fékk færi á sókn, sem
Framhald á 12. síðu.
Allsœmileg
síldveiði
Allsæmileg síldveiði var í
gær. Komu 14 bátar til Akra-
ness með um 1700 tunnur, 16
bátar til Grindavíkur með um
1400 tn., 13 til Sandgerðis með
um 1000 tn. og 6 til Hafnar-
fjarðar með um 500 tunnur. —
Ekki var búizt við að bátarnir
myndu róa aftur í gærkvöldi
12 á kvöldin, en á sunnudög- vegna veðurs.
Nýr fíuoTÖllur í Aðaldal
Nýr flugvöllur var tekinn í
frá Húsavík, í gær.
Jóhann Skaftason sýslumaður
tók á móti fulltrúum flugmála-
stjómarinnar og Flugfélagsins
er þeir lentu á vellinum í fyrsta
sinn. Siðan var haldið til Húsa-
víkur og snætt þar í boði Flug-
félagsms.
Flugvöllurinn er í Aðaldals-
hrauni rétt hjá Laxá og stefnir
flugbraut norður og suður. Er
notkun í Aöaldal, um 10 km
hún 1000x50 m. Skáli fyrir af-
greiðslu og farþega hefur verið
byggður. Bygging vallarins mun
kosta um 1 millj. kr.
Flugstjóri var Snorri Snorra-
son og flaug hann Glófaxa. Flug-
félagið tekur nú upp vikulegar
ferðir til Aðaldals, í sambandi
við ferðirnar frá Akureyri til
Kópaskers, en þær eru á fímmtu-
dögum.
frá bókum Laxness. Segir það
að hann haldi áfram á föstudag-
inn með járnbraut til Canton í
Kina. Hann muni síðar í förinni
heimsækja Indland í boði
menntamálaráðuneytisins þar.
Ilongkong Tiger Standard hef-
ur það eftir Laxness að banda-
rískir höfundar síðustu 30 ára
hafi haft mikil áhrif á sig og
verk sín. Varðandi för sína til
Kína kvaðst hann ætla að kynn-
ast því hvernig kommúnisminn
sé. Blaðið sagði að Laxness
muni dveljast um hálfan mán-
uð í Kína og annan hálfan mán-
uð í Indlandi.
Breyting á út-
svarslögunum
samþykkt á Al-
þingi
Samþykkt var í efri deild
Alþingis í gær breytingartillaga
frá Jón Kjartanssyni við út-
svarslagafrumvarpið, á þá
leið að afnema allar takmark-
anir á því hverjar útsvarskær-
ur yfirskattanefnd og ríkis-
skattanefnd megi taka til með-
ferðar.
Frumvarpið er flutt til stað-
festingar á bráðabirgðalögum
frá s.l. hausti, um að þessum.
nefndum sé heimilt að fjalla
um kærur ef álagsskekkja nemi
3% (í stað 10% í lögum áður).
Tillaga Jóns var samþykkt
með 7 atkv., gegn 6, og málinu
vísað til 3. umr. með sam-
hljóða atkvæðum.
Bráðsnjall 13 ára
skákmaður á
Selfossi
Selfossi. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans.
Hraðskákkeppni Taflfélags Sel-
foss Iauk í gær. Sigtryggur Ing-v-
arsson varð efstur með 1214
viiming af 16 mögulegum.
2. varð Gísli Þorleifsson með
12 vinninga, 3. Egill Guðjóns-
son með 1114 og 4 Vilhjálmur
Pálsson með 11 vinninga. Vil-
hjálmur er aðeins 13 ára gamall
og er frammistaða hans því með
sérstökum ágætum.
Fjórmenningarnir keppa allir
í hraðskákmóti Árnessýslu en í
því munu 4—5 félög keppa og
þátttakendur verða 16—20.
I O ilngnn ÞangaS fil dregiS verSur - Dræffi ekki fresfaS
S geriS skil sfrax — ÞjóSvHjinn