Þjóðviljinn - 03.01.1958, Blaðsíða 9
Föstudagur 3. janúar 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (9
Hallsteinn Hini
Stjórn handknattleikssam-
bandsins bauð öllum þeim hand-
knattleiksmönnum, sem valdir
voru til þess að taka þátt í
æfingum undir heimsmeistara-
keppnina, ti! íundar sJ. mánu-
dagskvöld,-til þcsa að ræða um.
fyrirhugaðar æfingar undir
keppnina i febrúar n, k., og
ennfrehiúr'til að lysá fjárhags-
ástæðum' Sambandsihs er ferð-
ina varðar.
Á fund þennan var einuig
boðið fréttamönnum blaða og
útvarps til að lofa þeim að
fyigjast með því sem er að
gerast í þessum málum.
Formaður sambandsins, Árni
Árnason, setti fundinn og bauð
menn velkomna til fundar þessa
sem væri hinn fyrsti sem hand-
knattleikssambandið efndi til
með handknattleiksmönnum til
umræðu um fyrstu þátttöku
íslands í heimsmeistarakeppni
í handknattleik, og' væri því
æði sögulegur fundur.
Gat hann þess að til stefnu
væri.röskur hálfur annar mán-
uður þar til iagt yrði af stað
í ferðina, en það væri hugað
að fara héðan 20. til 24. febr.,
en þann 26. febr. yrði flokkur-
inn að vera kominn til þeirr-
ar borgar sem hann ætti að
leika fyrsta leik sinn en það
er í Magdeburg. Keppa íslend-
ingar þá við Tékka, 1. marz við
Rúmena og 2. marz við Ung-
verja. Þau tvö liðin sem verða
efst í riðlinum halda áfram i
keppninni í milliriðli.
Þá gat Árni um kostnað við
ferð þessa og kvað hann hann
mundi komast uppí 85 þús.
og lýsti einstökum liðum. Benti
hann einnig á nokkra tekjuliði,
sem sambandið hefði von um að
fá í sambandi við ferðina.
Einn af þeim tekjuliðum sem
hann ræddi var það, að þeir
sem þátt tækju í ferðinni
greiddu 1000 kr. í ferðasjóð
vegna hins slæma fjárhags og á
þann hátt tækju þeir einnig
þátt í því fjárhagslega að gera
fei'ðina mögulega á þessu frum-
býlingsskeiði. Árni upplýsti
einnig að gerð hefðu verið drög
að því að fá erlendan þjálf-
ara, en um það yrði ekki end-
a.nlega vitað fyrr en eftir 2
daga. Annars væri Hallsteinn
Hinriksson ráðinn til þess að
vera aðalþjálfari liðsins, er
starfaði í samráði við iandsliðs-
nefndina.
Mætum sterkum liðum —
verðum að æfa vel.
Næstur tók til máls Sigurð-
ur Norðdal sem er annar
Jandsliðsnefndarmaðurinn, og
gat þess í upphcfi að i heims-
meistarakeppni kvenna s.l. sum-
ar hefðu Danir oi'ðið í 8. sæti
en hefðu leikið sér að því að
vinna Norðuriandakeppnina síð-
ustu með sænsku gtúlkumar í
öðru sæti. í efctu sætin í HM-
keppninni hefðu rcðað sér lið
frá Austur-Evrópu eða þeim
sömu iöndum og karlafiokkarn-
ir ættu , að- keþpa : við í karla-
keppninni í vetur. Það væri því
ekki ástæða til ■ að efast um
það, að þeir flokkar væru ekki
hlutfalislega miklu lakari og
því ekki annað að gera en að
reyna að mæta þeim eins vel
Hallsteinn Hinriksson
þjálfaðir og tök væru á. Tékk-
ar byrjuðu að æfa í júní í
sumar, og þeir sem þar væru
í æfingum væru flestir úr hern-
um og hefðu nægan tíma og
fyrsta. flokks þjálfara. Er mik-
il áherzla lögð á það austur
þar að vel sé æft, og sem dæmi
um það gat hann þess að stúlk-
urnar sem kepptu á HM í sum-
ar æfðu tvo tíma á dag! Þeir
leggja því mikið uppúr þoli
leikmanna.
Hann gat þess að »það væri
skoðun sænskra sérfræðinga
að sænskir handknattleiksmenn
æfðu of lítið. Þeir segðu að 2
æfingar á vikú og einn leikur
væri of lítið. Þeir héldu því
fram að ef hús væru ekki til
ættu þeir að hlaupa úti og á
þann hátt ná fullu þoli; þeir
bættu því líka við að enginn,
sem valinn er til þess að taka
þátt í landsleikjum getur komið
fram nema fullþjálfaður. Sig-
urður tók undir þetta og undir-
strikaði nauðsyn þess að vera
í líkamlega góðri þjálfun fyrir
þcssa hörðu leiki sem framund-
an væru.
Æft fjóriun sinnum í viku.
Sigurður sagði að nefndin
hefði orðið sammála um það
að gera fasta áætlun um þjálf-
unina. þennan tima. Hefðu ver-
ið gerðir samningar við frjáls-
íþróttadeildir KR og Á um að
þeir mættu koma til þeirra
kennara sem þar stjórna æf-
ingum, en þeir eru sem kunn-
ugt er Benedikt Jakobsson og
Eiríkur Haraldsson, báðir á-
gætir kennarar, sem hafa mikla
þekkingu í því að þjáifá. Eru
þessar æfingar fyrst og fremst
húgsaðar til þess að byggja
upp hina líkamlegu þjáifun, þar
sem leikfimi o. fl. verður uppi-
staðan.
Þá er.til þess ætlazt, að þeir
mæti á tveim öðrum æfingum
þar sem aðallega verða- knatt-
æfingar og leikur. Ætlast
nefndin til að menn komi 30
min. fyrir hverja æfingu til
þess að hita sig upp með hlaup-
um úti áður en sjálf knatt-
æfingin byrjar, en hún er stutt,
aðeins 55 mín.
Þessar fjórar æfingar eru
ekki endanlegar; vera kann að
fimmtu æfingunni verði bætt
við, enda er það svo að menn
þola meiri æfingu.
Margir þessara manna eru í
góðri æfingu og er því ætlun-
in á þessum lokaspretti að
byggja eins og hægt er ofan
á það sem fyrir er.
Gerði Sigurður ráð fyrir að
liðið sem fer mundi endan-
lega valið í byrjun febrúar.
Leilini — Skipulag — Hraði,
Hallsteinn Hinriksson, aðal-
þjálfari liðsins, sagði m.a. að
lið okkar mundi mæta mikilli
leikni og snjöllu skipulagi sem
yrði erfitt viðfangs og því
fylgdi mikill hraði. Því væri
ekki hægt að mæta með öðrum
vopnum en þeim sömu, en til
undirbúnings því værum við ver
settir en þeir sem við eigum
að keppa við og veldur því að
við höfum ekki hús af sömu
stærð og leikið verður í, sem
þeir hafa. Við verðum þó að
gera. sem við getum til að not-
færa okkur þá aðstöðu sem við
höfum og leggja við það eins
mikla rækt og frekast er unnt.
Allir þeir menn sem við kom-
um til með að mæta hafa sér-
æ.ft hin óteljandi atriði sem
fyrir koma í leiknum. Þetta
verðum við að reyna líka eins
og við frekast getum og nota
tímann vel, var álit Hallsteins,
Töluverðar umræður urðu á
fundinum um þessi mál, og
tóku ýmsir tO máls og ræddu
um þjálfunina og þó sérstak-
lega fjárhagsmálin.
Æfingarnar hefjast í kvöld
og væntanlega verður f jölmennt
og samhugur um það að gera
þennan undirbúning eins góðan
og frckast er hægt. Áætlun sú
sem nefndin hefur gert um
þjálfun mannanna er ágæt og
það er skynsamlegt að reyna
að mæta leikni og hraða mót-
herjanna með eins mikilli þjálf-
un og hægt er, ef leiknin og
skipulagið er ekki eins full-
komið og þeirra. Til þess að
leiða þjálfunina hafa verið
valdir að því er séð verður
færustu menn hér, svo að það
er undir leikmönnunum sjálf-
um komið, hver árangurimi
verður, og að svo stöddu er
ékki ástæða til að vantreysta
því að þeir láti sitt eftir liggja.
Nýtt dilkakjöt
Grænmeti, þurrkaðir ávextir
Álegg
Hamborgarhryggur
Nautakjöt, buíí og gullash
Wienarschnitchel
MáT¥ÖBUBÚÖIR
QsM'
KópavogsbúaT munið hangikjötið góða úr Beynisbúð Sími 1-76-75. Sendum heim allar matvörur.
Fossvogsbúðiimi Sími 19-8-40. Beynisbúð Sími 1-76-75.
Verzlunin Hamborg
Skjólakjöfbúðin Nýtt kjöt, hangikjöt, svið, lifur, Nýtt og saltað dilkakjöt og nýtt trvppakjöt, svið, bjúgu og hangikjöt.
dilkakjöt og nýru.
1-86-44
VESTFIRZKL'R steinbíts- riklingur. Reyktur rauðmagi. Verzlunm Skeifan, Snorrabraut 48, Blönduhlíð 35. Kjöthúðin Sólvallagötu 9.
Húsmæður.
Lifur, hjörtu, nýru, svið Úr\mls hangikjöt. Reynið viðskiptin í kjörbúð okkar. Rúmgóð bílastæði. Sendum heim. Nesvegi 33. Sími 1-98-31
Kjötbcrg h.f. Búðagerði og Háaleitisveg. Sími 34-999 og 32-892. Verziunin Straumnes, Sími 1-98-40.
Úrvals hangikjöt,
Nýtt, reykt hangikjöt. Svið, lifur, lijörtu, blóð- mör og lifrapylsa. SS Kjötverziunin Grettisgötu 64. nýtt kjöt og- svið. Nýir ávextir. Bæjarbúðin Sörlaskjóli 9
Nýreykt hangikjöt, Alikálfasteik, sníttur,
Höfum ailt í jólamatinn. Kaupfélag Kópavogs Álfhólsvegi 32. Sími 1-96-45. nautakjöt i buff, gúllasch og hakk. Búrfeil, Skjalúborg við Skúlagötu. Sími 1-97-50.
Auglýsið í Þ 'jóðviljanum