Þjóðviljinn - 12.01.1958, Page 9
Sunnudagur 12, janúar 1958 — ÞJÓÐVILJINN •— (9
A ÍÞRÓTTIR
llrrSTJORl; FRIMANN HEVCASOH
Ifíróttahreyíingin má ekki eingöngu
treysta á Iþóttaskólann
Hán verðui að halda síireigin. námskeið
Eitt af þeim málurrvf sem
stendur íþróttahreyfingunni
fyrir þrifum, er skortur á
kennurum og leiðbeinendum. í
svo að segja öllum greinum í-
þrótta, hvort þur eru fámenn-
ar eða fjölmennar, er sama
sagan: alltof fáir kennarar,
alltof fáir leiðbeinendui. Stjórn-
ir sérsambandanna þekkja þetta
vel og þar með talin fram-
kvæmdastjórn ÍSl, sem fer með
sérmál þeirra greina sem ekki
hafa stofnað með sér sérsam-
bönd. Fjölda beiðna berast ár-
legá um kennara og leiðbein-
endur, sem ekki er hægt'að
afgreiða, vegna þess að kenn-;
arar eru ekki til.
Síðasta ársþing ISl virðist;
hafa gert sér grein fyrir þessu!
og bendir eftirfarandi tillaga
til þess:
„Ársþing ISÍ haldið á Akur-
eyri dagana 26.—27. júlí felur
framkvæmdastjórn ISÍ að
vinna að því að íþróttaskóli Is-
Iands miðaði starfsemi sína við
það að geta í ríltara mæli sér-
menntað kennara fyrjr íþrótta-
samtökin í iandinu og skorar
á Alþingi að veita skólanum
| aukna fjárstyrki til þess að
! afla skólanum þeirrar aðstöðu
! sem hann þarfnast til þess að
rækja hlutverk sitt til fulln-
ustu.“
Eins og fyrr segir, bendir
tillga. þessi eindregið til þess
að tiilögumenn og þingið hafi
fundið fyrir því, að það væri
tilfinnanlegt að hafa ekki næga
kennara, og þá verður fyrst
fyrir þeim að samþyklíja með
öllum greiddum atkvæðum á-
I
! skorun t’l Ibróttakennaraskóla
' Islands að hann „miði starf-
semi cina við það að geta í
ríkara mæli sérmenntað kenn-
ara fyrir íþróttasamtökin“.
Hér skal sannarlega ekki
amast við tillögum sem miða að
því að bæta íþróttakennara-
skóla íslands, það hlýtur að
vera íramtíðarmál sem styðja
verður, að gera hann sem bezt-
an. Við verðum aðeins að horf-
ast í augu við það, hvernig
aðstaðan er hér hjá okkur;
fámennið, skortur á fé til að
leggja í slíkan skóla', sem einn-
ig þýðir það að ekki er hægt
að hafa hann eins langan og
æskilegt er, og ennfremur að
ekki er hægt að nota beztu
kennara . sm vSl er á, . svo að
gagni verði í mörgum grein-
um.
Oi' fáir kennarar frá Laugar-
vatni fara lil íþróttafélaga.
Það hefði verið nógu fróð-
legt að fyrir hefði legið skrá
yfir þann fjölda kennara sem
eru starfandi að meira eða
minna leyti lijá íþróttafélögun-
um, og skrifast hafa frá I-
þróttakennaraskólanum, frá því
iiann fór að útskrifa kennara.
Því er nefnilega haldið fram
hér að j ótt sú lagfæring sem
fariö er fram á í framan-
greindri tillögu fengist mundi
skólinn hvergi nærri útskrifa
þann fjölda sem til þyrfti að
sinna eftirspurn frá félögun-
um.
Ef maður reynit- að geta sér
til um það hvað verður um þá
sem útslcrifast frá skólanum
t. d. á einu ári, mundi varla
f jærri lagi að skipta þeim þann-
ig, ef um er að ræða-12 nem,-
endur: Fimm þeirra fari til
skóla eingöngu og starfi ekk-
ert meðal íþróttafélaga, fjórir
starfi að einhverju eða öllu
leyti hjá íþróttafélöguin og að
nokkru hjá skólum, og þrír
hverfi fijótlega alveg bæði skól-
um og íþróttafélögiun. Ef þetta
væri tala sem byggjandi væri
á og sem gert verður þar til
annað reyndist réttara sjá allir
að þetta er alltof lítil viðkoma
til þess að nægja þörfinni, eins
og reynslan sýnir um fjölda
ára.
Menn skulu ekki halda að
þetta sé eitthvað alveg sér-
stakt fyrir okkur hér, að kenn-
ara vanti, og að þar eigi í-
þróttaskólinn alla sök. Ef við
tökum dæmi frá Norðurlönd-
um þá er þar starfandi fjöldi
íþróttaskóla þar sem menn eru
þrjú ár að fullnuma sig. Þrátt
fyrir þessa fullkomnu skóla
hafa íþróttasamböndin og sér-
samböndin áriega styttri ög
íengri námskeið til þess að
| hjálpa sér sjálf um þessi mál
i og brúa þ að bil sem íþrótta-
I skólarnir getá ekki brúað. Ár-
j lega taka hundruð manna í
hverju landi þátt í námskeið-
um sem haldin em á vegum
' sambandanna til þess einmitt
! að mennta og útskrifa leiðbein-
endur og þjálfara. Þetta er
snar þáttur í starfi þeirra og
miidð lagt upp úr því að þetta
sé sem bezt undirbúiö og sem
fléstir taki þátt í þeim.
Ef iþróttahreyfingin ætlar að
valda hlutverki sínu verður
hún að byggja þetta mál upp
á svipuðum grundvelli og hér
hefur verið lýst.
Ef ársþingið hefði komið
fram með tillögu í þá átt að
fá opinbera aðila til þess að
áætla ákveðna upphæð til þess
að efna til smánámskeiða hér
og þar um landið og' þar verið
lögð áherzla á að fá menn á
stöðunum til þess að taka þátt
í námskeiðunum til þess svo
að leiðbeina. Uppúr þxíim jarð-
vegi mundi svo vaxa hópur á-
hugasamra manna sem ýmist
mundi vinna í félögum sínum
eða fara svo áfram til meira
náms í íþróttakennslu, nema
hvort tveggja væri. Til að
byrja með gætu námskeið þessi
verið stutt, en staðfastlega í
- Framhald á 8. síðu.
Hidcgkuti
Hidegkiiti flytur
til Þyzkalands
Frá því segir að hinn ung-
verski landsliðsfyrirliði, Sandor
Hidegkuti, muni eftir heims-
meistarakeppnina 1958 flytja
til Þýzkálands.
Um skeið á hann að leika
fyrir knattspyrnuliðið Bayern
í Múnehen, og á hann að hafa
lofað þessu í sambandi við
landsleikinn við Þjóðverja um
daginn. Hidegkuti skýrði frá
því að hánn hefði fengið leyfi
ungverska knattspyrnusam-
bandsins til þess að setjast að
í Þýzkalandi eftir H.M. Haft
er eftir forráðamönnum knatt-
spyrnufélagsins Bayern að Hid-
egkuti eigi að leika með félag-
inu 1958-’59, og samtímis að
hafa umsjón með drengjum
félagsins.
hýður ifður eiíirf&rundi þfónustu
Trésmíðaverkstæði vort annast smíði
á: eldhúsinnréttingum — verzlunar-
innréttingum — stigum — gluggum
— hurðum og íieiru.
Leigjum leftpressu og vélkrana.
Tbkum að oss nýbyggingar og breyt-
ingar. — Gerum kostnaðaráætlanir yð-
ur að kostnaðarlausu og án nokkurrar
skuldbindingar frá yðar hálfu.
Víðgerðaverkstæði vort annast smíoi
á handriðum (úti og inni).
Annast jafnframt viðgerðir á:
bifreiðum og tækjum.
Tökum að oss gröft, sprengingar og
fleygavinnu í grunnum.
Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga.
Tökum að oss ntúrhúðun og annað
múrverk.
HÖfum trausta og vandvirka fagmenn
í þjónusfu vorri og þaulvana bygginga-
verkamenn.
Vinnum ofantalin verk hvort heldur er
eítir reikningi eða föstum tilboðum.
H.F.
:V>
•V .»
Melavöllum við Rauðagerði og Miklubraut.
Sími 33560 (2 línur).