Þjóðviljinn - 19.01.1958, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 19.01.1958, Qupperneq 4
2) —ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 19. janúax 1958 Vinstri stjórn á Akureyri Framhald af 12. síðu. gjaldeyrisleyfa fari hér fram. Að öðru leyti munu fulltrú- arnir telja sér skylt að standa að vexti og viðgangi þeirra at- vinnugreina sem þegar eru reknar með framsýni og ráð- deild í bænum og efla nýjar til vaxtar. Um framkvæmdir í at- vinnumálum verði haft sam- ráð og samvinna við verka- lýðsfélög bæjarins. GATNAGERÐ — SKIPULAG Þá er það sameiginlegt á- Ihugamál frambjóðenda þessara flokka að skipulagsmál og gatnagerð bæjarins verði tekin fastari tökum til úrlausnar en verið hefur, og þá ekki sízt í þeim bæjarhlutum er fram til þessa hafa orðið afskiptir og þörfin er mest. Frambjóðendur lýsa yfir stuðningi sínum við rannsókn möguieika til hitaveitu í bæn- um. Þeir telja sjálfsagt að bæjarfélagið stuðli að eflingu skólanna í bænum og bættum húsakosti, svo sem geta er fyr- ir hendi, og þeir líta svo á að bygging vist- og hjúkrunar- heimilis í bænum fyrir aldrað fólk sé aðkallandi, einnig fé- lagsheimili, og minna í þessu sambandi á að bæjarstjórn sú er situr næsta kjörtímabil und- irbýr með störfum sínum 100 ára afmæli bæjarins. SKIPTIR MESTU AÐ VINNA VEL Frambjóðendum fyrrgreindra I flokka er hinsvegar ljóst að j aliar framkvæmdir verður að sníða við fjárhagsgetu bæjar- félagsins, og telja því ástæðu- laust að birta ítarlega skrá um verk sem vinna þurfi, enda skipti mestu að vinna þau vel sem unnin verða, í þeirri röð sem nauðsynlegast er og með þeim hætti að fjárhagsgetu borgaranna sé ekki ofboðið. Undir samninginn um vinstri stjórn á Akureyri að loknum ■bæjarstjórnarkosningum skrifa efstu menn flokkanna. Fyrir Framsólmarflokkinn: Jakob Frímannsson, Guðmund- ur Guðlaugsson og Stefán Reykjalín. Fyrir Alþýðuflokldnn: Bragi Sigurjónsson, Albert Sölvason og Jón M. Árnason. Fyrir Alþýðubandalagið: Björn Jónsson, Jón B. Rögn- valdsson og Jón Ingimarsson. FRUMKVÆÐI ALÞÝÐU- BANDALAGSINS Samningur þessi um sam- vlnjiu og sameiginlega stjórn vinstri flokkanna á bæjarmál- um Akureyrar er árangur af baráttu Alþýðubandalagsins fyrir samstarfi vinstri flokk- anna. Alþýðubandalagið átti framkvæði að samningavið- ræður voru teknar upp, með bréfi til hinna flokkanna á síð- ast liðnu hausti. Viðræður hófust 10. nóvem- ber, en undanfama daga hafa verið daglegir fundir og árang- ur þeirra funda liggur nú fyr- ir í áður greindum samningi. í þeim viðræðum hafa verið rædd helztu vandamál sem fyrir liggja og hvemig flokk- arnir í samvinnu vilja snúast við þeim. ' Langsamlega þýðingarmesta og vandasamasta málið er málefni togaraútgerðarinnar, sem floklcarnir hafa nú kom- ið sér saman nm að fram- vegis verði rekin sem lirein bæjarútgerð, og nýir menn valdir til forustu. ÞÁTTASKIL 1 SÖGU AKUREYRAR ^ Þá. er vert að benda á að þctta er í fyrsta skipti í sögu Akureyrar sem verkalýðsfélög- in eiga aðild að meirililuta í bæjarstjórn. En eitt kjörtíma- bil, eftir kosningarnar 1946, var sameiginlegur málefna- samningur milli allra flokka í bæjarstjórn, og í þeim mál- efnasamniugi var ákveðið upp- haf togaraútgerðar frá Akur- eyri. Þá verður það og í fyrsta skipti nú í sögu Akureyrar sem bæjarstjóri verður ekki íhalds- maðuí. % i-í - 1 í gær var 31 árs maður leidd- ur fyrir rétt í Skótlandi og sak- aður um fjögur morð. Hann er sakaður um að hafa banað 16 ára stúlku, en lík hennar fannst grafið í jörðu, og hjónum og syni þeirra, sem fundust látin í húsi sínu eftir jólin. /-------------------- Bretum vís tortíming Hailsham lávarður, fonnað- ur framkvæjndastjórnar í- lialdsflokksins breaka, sagði í ræðu I Birmingham í gær, að hveruig sem öðrum þjóðum kynnl að reiða af í kjarnorku- styrjöld, væri engum bliiðum um það að fletta að Bretum yrði útrýint. v____________________/ Bjarni Ben og Isægri kraíarnir æíir við Dansbrúnarmenn! Bæði íhaldsblöðin, Moi-gun- blaðið og Alþýðublaðið, halda látlaust fram þeirri lýgi að hundruðum verkamann sé neitað um kosningarétt í Dagsbrún. Síðast i gær skrif- ar Bjami Ben. í leiðara stóra Moggans: „Um kosningarétt neita þeir hundruðum verkamanna, sem fulla kröfu eiga til hans.“ Tugir launaðra kosninga- smala frá öllum kosninga- skrifstofum íhaldsins í bæn- um hafa vikum saman verið látnir dreifa út sömu lygasög- unni. „Kommúnistar" eiga að hafa fundið upp eitthvért ægi- legt aukameðlimakerfi til að níðast á blessuðum, saklaus- um verkamönnum Þjóðviljinn skýrði frá því í gær, að aukameðlimakerfið hefðj árum saman verið í gildi og framkvæmd þegar stjóm Sigurðar Guðnasonar tók við vðldum. Síðasta ári® sc*n samstjórn íhalds og krata sat að völdum í Dagsbrún voru aukameð- limagjöld 35,9% af tekjum fé- lagsins, en núverandi stjórn hafði tekizt að lækka þetta niður í 22,6% 1954. Vitanlega er engum starf- aridi verkamanni neitað um full réttindi í Dagsbrún, og það vita mennirnir sem stjóma lygaverksmiðju íhaldanna of- urvel. Það er þvi ekki út af rétt- indum verkamanna sem Bjami Ben. og hægri kratarn- ir eru æfir. í*eir cru æfir af reiði við Dagsbriinarmenn yf- ir því að Dagsbrúnarmenn liafa staðið trúan vörð um heiður og framtíð félags síns og aldrei síðan 1941 látið hlekkjast til að afhenda at- vinnurekendum völd yfir fé- lagi sínu, lieldur vísað sendl- um íhaldsins heim til föður- liúsanna með fyrirlitningu. Dagsbrúnarmenn oru nú staðráðnari en nokkru sinni að reka atvinmaekendaþjóu- ana af höndum sér. SCveiiRðdssld Siysavarnar- félagsins í Reykjavík heldur skemmtifund þriðjudaginn 21. janúar ldukkan 8.30 i Sjálfstæðishúsinu, Til skemmtunar: Kvennakóriim syngur. Stjórnandi Herbert Heibursliik SKenuntiþáttur: Hjálmar Gislason. Dans. Fjölmennið Stjórnin Gluggað í íslenzka fyndni — Prjónað meðan við vísu — Bjarni — Gunnar — Áki — Thorlacius BORGARI SICRIFAR: „Nýlega var ég að blaða í íslenzkri fyndni, og rakst m.a. á vísu þessa um innlimun Áka Jakobssonar í Hræðslubanda- lagið: „Víða er á skötu sbreypt, skítugt inargt eitt hræið. Hefur Áka heilan gleypt Hr æðslubandalagi ð“. Mér datt í hug, að það mætti halda áfram með söguna ú þessa leið: Þessu fylgdi þjáning stór, þannig hermir saga: Bölvanlega bitinn íór í bandalagsins maga. Óttast tóku hjnin hrjáð um heilsufarslegt gengi, unz þau loksins eygðu ráð og ældu vel og lengi. ‘W Með liinu get ég liuggað menn; — hér fer allt að vonum: Bitinn er í boði enn, og Bjarni er að nasa af honum. FJÓRÐI MAÐUR á íhaldslist- anum við bæjarstjói’narkosn- ingarnar núna, er Þorvaldur Garðar Kristjánsson, og hef- ur Bjarni sérstakar mætur á honum, líklega af þvi að hami sveik jafnvel hægrj kratana til þess að komast á mála hjá íhaldinu. Eftirfarandi kviðling setti ég saman fyrir munn Bjarna, er ég hafði lesíð hrós- yrðin um Þorvald í Moggan- um um daginn: Engan veit ég ofan jarðar yndislegri en Þorvald Garðar; ekki skulu um haim sparðar ýkjugreinar, skáldað hól. Upp hjá krötum alinn var hann, eliki hugðust þeir að spar’ ’ann, en framsækniiinar bára bar hann beint í oldtar iiáðarskjóí“ NOKKRU EFTIR forsetakosn- ingarnar, þegar Ásgeir Ás- geirsson var fyrst kjörinn forseti, var komizt þannig að orði í gamankvæði: ,,Og hermálaráðherrann, Bjarna kemþuna Ben., bið ég að forláta Gimnari Thoroddsen sitt fyrsta og einasta víxlspor á flokksins vegi“. En eins og kunnugt er, brauzt Gunnar undan flokksaganum í þessum kosningum, — raun- ar af fjölskylduástæðum ein- um saman, — og átti Bjami bágt með að ■fyrirgefa hon- um það. Kunnugir telja meii-a að segja, að Bjarni hafi ekki enn fyrirgefið Gunnari ó- hlýðnina, og sé honum lítið um að hampa borgarstjóran- um meira en nauðsynlegt er. Telja ýmsir, að Bjarni óttist að Gunnar kunni að langa til að verða formaður Sjálfstæð- isflokksins, þegar Óafur Tliors hættir, en þann frama ætlar Bjarni sjálfum sér. Er og auðséð á ýmsum skrifum Morgunb1 n ðsins undir rit- stjórn Bjarna, að dálætið á Gunnari er eltki fölskvaláust. En nú er ekki útilokað, að annar maður geti orðið Bjarna hættulegur keppinaut- ur um formannsstöðuna; það er Áki Jakobsson. Allt bendir til ao Áki sigli hraðbyri imi í innstu raðir Sjálfstæðis- /lokksins, og eins og segir i vísunni liér að fratnan, þá er Bjarni þegar farinn að nasa. allgíruglega a.f honum. ÞÁ VIL ÉG skora á kollega mína, Dagsbrúnarmenn, að fjölmenna á kjörstað og hafna krcftuglega íhlutun at- vinnurekenda í innanfélágs- mál þeirra. Okkar gamli, góði formaður, Sigurður Guðna- son, sagði eitt sinn að af- stöðnu verkfalli, að enn einu sinni hefði það ásannazt, að við værum dagsbrúnarmenn, Látum það ásannast i kosn- ingunum núna um lielgina, rækilegar en nokkru sinni fyrr. KÆRI Bæjarpóstur, Er það sem mér sýnist, að það sé hann Kristján Thorlacíus, deild- arstjóri í fjármálaráðuneytinu, sá sem hefur launamál starfs- manna ríkisins á siilni könnu og sem ríkisstaxfsmenn eiga mest undir högg að saékja í launa- málum sínum, sem er í öðru sæti á lista Fi'amsóknarflokks- ins í bæjarstjórnarkosningun- um ? Vart trúi ég því að flokkur- inn fái mörg atkvæði út á hann, minnsta kosti ekki frá kvenþjóðinni. — Og rétt fvnd- ist mér af þér, Bæjarpóstur Framh. á 11. síðu VjEfé/D lcGAA/fiÚ!) € |Q)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.