Þjóðviljinn - 19.03.1958, Page 4

Þjóðviljinn - 19.03.1958, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 19. marz 1958 Tóniist í kvikmyndum „Kvikmyndamúsík er hávaði“, sagði Sir Thomas Beecham, hinn heimskunni brezki hljómsveitarstjóri einhverju sinni. Og sú var tíðin, að kvikmyndaleik- stjórar í Hollywood töldu þá tónlist hæfa kvikmyndum sínum bezt, sem áheyrendur (eða á- horfendur) tækju sem minnst eftir, heyrðu ekki. Áhorfendur hafa líka til skamms tíma látið tónlist með kvikmyndum að öll- um jafnaði sem vind um eyrun þjóta; einstaka lög og lagasyrp- ur hafa þó náð almenningshylli og minna má hér á, að íslenzka ríkisútvarpið hefur um langt árabil haft fastan, vikulegan lið í dagskránni með nafninu: Lög Á síðustu árum hefur viðhorf manna, jafnt kvikmyndagerðarmanna sem almenn- ings, til tónlistar í kvikmyndum breytzt mjög mik- ið og nú seljast hljómplötur m'eð"^sliWr^musik í geystistórum upplögum í Bandaríkjunum til dæmis. Fyrsta lagið, sem vefúlega „sló í gegn“ var Þriðji maðurinn úr samnefndri kvikmynd, sem mikla ,at- Honegger úr kvikmyndum. Úr tékknesku teiknimyndinni, sem gerð hef- ur verið eftir myndasögu franska teiknar- ans Jean Effeis um sköpun heimsins. Þjóð- viljinn hcfur nokkrum sinnum birt teikning- ar úr þessari myndasögu Effels. Hún er ítölsk þessi og heitir Christina Denise. hygli vakti og aðsókn. Eins hlaut lag Dimitri Tiomk- ins High Noon úr kvikmyndinni Ifádegi, sem sýnd var hér í Trípólíbíói, fnjög miklar vinsældir. Bæðl þessi iög áttu mikinfí þátt i að skapa þá drama- 'tísku .„§pennu, sem einkenndi fyrrgreindar kvik- myndir, jafnframt •þv.í. sem .þau náðu eyrum hlust- enda utan kvikmyndahúsanna. Af jjcim lögum úr kvikmyndum, sem selzt hafa í stærstum hljómplötu-upplögum að undanförnu í Bandaríkjunum má nefna tónlist Elmer Bernstein við kvikmyndina Maðurinn með gultna arminn, lög Victör Young við myndina Umhverfis jörðina á 80 dögum, lög brezka tónskáldsins Malcolm Arnold við Brúin yfir Kwai-ána og franska tónskáldsins Georges Auric við myndina Bonjour Tristesse, og eru þá aðeins nokkur dæmi nefnd. Af öðrum tónskáldum, sem getið hafa sér orð fyr- ir tónsmíðar í kvikmyndum (einkum áður fyrr) má nefna Max Steiner, bandarískt tónskáld. sem samdi lögin við stórmyndina Á hverfanda hveli, og landa hans Aaron Copland og Leonard Bernstein. Sá síðarnefndi samdi m. a. tónlistina við mynd Elia Kazan Á eyrinni. Enn má nefna sovézku tón- skáldin Prokoféff og Aram Katsjatúrían og Frakk* ann Honegger. Aðsókn eykst aftur Eins, og greint var frá hér í þættinum í janúar- mánuði s.l., voru flestir kvikmyndagerðarménn í Bendaríkjunúm uggandi um hag sinn um síðustu ' áramót vegna síminnkandi aðsóknar að sýningum kvikmýndahúsa þar í landi og samkeppni sjónvarps- ins. Nú herma fréttir hinsvegar að vestan að aðsókn að kvikmyndahúsum hafi orðið talsvert meiri en búizt hafði verið við fyrstu tvo mánuði þessa árs, þrátt fyrir illviðri í janúar. Samkvæmt yfrliti bandaríska tímaritsins Variety skiluðu eftirtaldar fimm kvikmyndir mestum tekjum í síðasta mánuði: 1. Vopnin kvödd (20th Century-Fox). 2. Umhverfis jörðina á 80 dögum (United Artists). 3. Peyton Place (20th Century-Fox) ■ 4. Old Yeller (Walt Disney). 5. Raintree County (M—G—M). Austurbæjarbíó sýnir nú bráðskemmtilega íta'lska gamanmynd, sem nefnist Fagra malarakonanr Efni myndarinnar er sótt aftur til loka 17. aldar og með þáð íarið á kankvísan og léttan hátt, en ytri búnað- ur er hinn glæsilegasti: fallegir Eastman-litir og Cinema-Scope. Aðallrlutverkin eru leikin mjög skemmtilega af Sophiu Loren, VitíorioMe Sica og Marcello Mastroiani. — Myndin hér fyrir ofán er af einu atriði kvikmyndarinnar: Landstjórinn (Vitt- orio de Sica) leitar eftir ástum fögru malarakon- unnar (Sophia Loren). Hláka — Rok — ÞAÐ hlánaði heldur betur um helgina, og nú segja menn, að ekki muni festa snjó hér meira í vetur. Hvort sem sú spá ræt- ist eða ekki, þá er víst um það, að þetta hefur verið leiðinda- tíð núna um lengri tíma, og hér hefur verið óvenjumikill snjór í vetur. Bifreiðarstjór- ar hafa sagt mér, að þeir muni varla eftir því, að hafa þurft að nota snjókeðjur jafnmikið og í vetur, enda hefur oft verið erfitt að komast um bæinn sökum ófærðar. Göturnar hafa oft verið slæmar, margyr hverjar, og annan daginn fljúg- andi hálka á þeim, hinn dag- inn ófærð. En hiákunni fylgir aur og bleyta; það var tæplega farandi út úr húsi um helgina nema í bíl; maður gat átt á hættu að fá óþyrmilegar aur- slettur frá bílunum, og raunar er varla hægt að komast hjá slíku, þegar jafn blautt er um eins og núna um helgina. OG Á laugardaginn og sunnu- daginn voru göturnar orðnar slæmar yfirferðar ekki sökum snjóa, heldur fyrir holurnar sem komnar voru í þær. Og á sama hátt og maður bölvaði snjónum áður, formælti maður nú holunum og bleytunni á göt- Hattar,húfur og pils. unum. Aðfaranótt laugardags- ins og fram eftir deginum var heiftarrok hér, og rok er, ykkur að segja, eitthvert leiðinlegas’ta veður, sem ég kem út í. Eg veit að það þarf ekki að lýsa því fyrir ykkur hvernig það er, þegar maður ræður sér varla úti og verður ýmist að ganga óeðiilega álútur eða óeðlilega fattur, eftir því hvort maður fer á móti storminum eða und- an honum. Og svo er maður alltaf á glóðurn um að höfuð- fatið fjúki af manni, hvort sem maður gengur með simpilt húfupottlok eða forláta hatt. Og þrátt fyrir það, þótt menn reyni að bera höfuðin þannjg til, að höfuðfötin fjúki ekki af þeim, þá fer varia hjá því, að einn og einn hattur og ein og ein húfa svífi af höfði eigenda sinna spölkorn upp í lo.ftjð Qg setjist síðan á ólíklegustu stöð- um, jafnvel á pollana á göt- unum. Einu sinni var ég lát- inn glíma við að ráða gátu, sem er á þessa leið: „Býr mér innan rifja ró, reiði, hryggð og kæti. Kurteisin og kári þó koma mér út sæti.“ Og ráðningin var sem sé hatt- ur eða húfa. MENN taka ofan af kurteisi, og kóri (rokið) rífur af manni höfuðfatið án þess að spyrja neitt að því, hvort maður hafi sétltyjj að taka ofan hvort eð var. En þótt ég hafi 'jafnan sámúð með mönnum, sem eru' að elta höfuðfötin sín, þá vor- kenni ég blessuðu kvenfólk- inu enn þá meira. í roki er kvenfólkið nefnilega alltaf í vandræðum með pilsin sín, því að kári er mesti ruddi og leit- ast við að lyfta pilsunum ó- sæmilega hátt ef svo ber und- ir. — Einu sinni orti piltur einn' kvæðisnefnu um rok og rigningu; það byrjaði svoha: „Um himininn sveima í suðri og vestri hin svörtu óveðursský. Svo rignir hann djöfulinn ráðalausan, og, rokið er eftir því. Eg bít á jaxlinn, bölva í hljóði og baki í veðrið sný.“ —- JÁ, það var nú meira leið- indarokið aðfaranótt laugar- dagsins, og gott er til þess að vitá, að ekki hefur frétzt um neina mannskaða á sjó eða landi af þess völdum, en marg- ir bátar munu hafa orðið fyrir talsverðu veiðarfæratjóni. Æííarsamfélag og ríkis- vald í þjóðveld i ' islendinga eftir F.INAR OLGFIRSSON. Eins og nafn hókarmnar ber með sér fjallar hún um sögu ístands á hinu mikla umbyltingartímabili á Norð- urlöndum, þegar hin stéttlausu ættarsamfélög eru að líða ur.dir lok og stéttaþjóðfélag að myndast. Einar telur, að þjóðveldið liafi verið eins conar framlenging og endurnýjun ættasam- télagsins á íslenzkri grund, og út frá því sjónarmiði skýrir hann félagsstofnanir þjóðveldisms, lífsskoðun þess, bókmenntir og siðgæðishugmyndir. Björn Þorsteinsson sagnfræðingur segir um bókina: „Bók Einars neistar af nýjum hugmyndum og þjóðfélagslegu innsæi í fornn tíma, en er þó jafnframt mjög fræðileg“. Og um stílinn segir hann: „Bókin er ekki þung aflestrar, heldur lipur og eitt skemm tilegasta rit sinnar tegundar.“ Bókm fæst í öllum bókaverzlunum og er send í póstkröfu um allt land.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.