Þjóðviljinn - 19.03.1958, Síða 7
Miðvikudagur 19, marz 1958 — I'JÖÐVILJINN — (T
Loítvarnanefnd-má
Fvrrililuli greinargerða r stefnds í meiðyrðamáíiim
nr. 430/I958* Hjálmar Biöndal gegn Inga R. Helgas.
Fj'rri hluti
Greinargerðar
stefnds
í meiðyrðaniáiinu nr.
430/1958
Hjálmar Blöndal
gegn
Inga R. Helgasyni
Ég flyt mál þetta sjálfur og
legg frani greinargerð þessa
og afrit af bréfi til dómsmála-
ráðherra.
Ég leyfi mér að gera þær
réttarkröfur, í fyrsta Iagi, að
sú aðalkrafa stefnanda, að ég
verði dæmdur til refsingar
skv. 108. gr. hegningariaga
verði vísað frá dómi, í öðru
lagi að öllum öðrum kröfum
stefnanda verði hrundið, og í
þriðja lagi að mér verði
dæmd hæfileg málsvarnarlaun
að mati hins virðulega réttar.
Mál þetta er risið út af
ummælum minum í útvarps-
umræðunum í Ríkisútvarpinu
22. janúar s.l. um stefnanda,
sem hann telur ærumeiðandi
fyrir sig.
Eru ummælin á þessa leið:
.......Þó eru það smámunir
hjá framkvæmdastjóranum
Hjálmari Blöndal, því að hann
hefur fengið frá miðju ári
1951 rúmar 700.000.— kr. í
greiðslur, eða rúmlega 100.00.
— kr. á ári, en af þeirri fjár-
hæð hefur hann greitt ein-
hvern skrifstofukostnað til
annarra.......
Þessi framkvæmdastjóri er
jafnframt framkvæmdastjóri
Heilsuverndarstöðvarinnar og
er þar á hæstu launum ....
methafi íhaldsins í sukki. Þar
fær hann þriðja framkvæmda-
stjórastarfið....“
Sáttakæra var gefin út í
máli þessu hinn 25. janúar
1958 og sáttafundur haldinn
hinn 3. febr. s.l. Á þeim fundi
kvaðst ég að athuguðu máli
geta tekið þau ummæli mín
Stefna í málinu var síðan
útgefin 11. febr. s.l. og málið
þingfest í bæjarþingi Reykja-
víkur hinn 13. febr. s.I. ásamt
3 öðrum málum í sama dúr.
HjáJmar Blöndal
aftur um stefnanda að „liann
væri methafi íhaldsins í
sukki“, enda. erfitt að færa
sönnur á það, en við hin um-
mælin skyldi ég standa. Þessu
sáttaboði var ekki tekið og
málinu vísað til aðgerða dóm-
stólaftna.
Ingi R. Helgasom
Á þessu stigi málsins vil ég
taka þetta fram:
(1) Frávísunarkrafa mín
byggist á 24. grein hegningar-
laga, sem svo er orðuð:
„Sérhver refsiverður verknað-
ur skal sæta opinberri ákæm,
nema annað sé sérstaklega á-
kveðið í lögum“. Aðalkrafa
stefnanda er sú, að ég verði
dæmdur eftir 108. gr. hegnl.,
en hún er svohljóðandi: „Hver
sem hefur í frammi skainmar-
yrði, aðrar ínóðganir í orðum
eða athöfnum eða ærumeið-
andi aðdróttanir rið opinberau
Mímir á Seifossi
sýnir Kjarnorku
og kvenhylii
Selfossi. Frá fréttaritara
Þjóðviljans.
Leikfélagið Mímír á Selfossi
frumsýnir gamanleikinn Kjam-
orka og kvenhylli, eftir Agnar
Þórðarson, í Selíossbíói n. k.
föstudag. Leikstjóri er Ilildur
Kalman.
Aðalhlutverkin leika þau
Magnús Aðalbjarnai'son: al-
þingismanninn, Svava Kjart-
ansdóttir: Karitas konu a.1-
þingismannsins, Elín Arnolds-
dóttir leikur dóttur þeirra,
Guðmundur Jónsson Sigmund
bónda og Ólafur Jóhannsson
leikur dr. Alfreð. Alls eru
hlutverk 14.
Leikurinn verður sýndur á
Hellu laugardaginn 22. þm. og
í Gunnarshólma 29. þm.
Leikfélagið Mimir var stofn-
að í byrjun janúar sl. að til-
hlutan Kvenfélags Selfoss. Fé-
lagsmenn eru nú 40. 1 ráði
er að stofna leikskóla á vegum
félagsins með haustinu. Stjórn
Mímis skipa: Ingi Ebenhards-
son formaður, Sigrid Österby
ritari og Ólafur Ólafsson
gjaldkeri. Framkvæmdastjóri er
frú Áslaug Símonardóttir.
starfsmann, þegar hann er að
gegna skyldustarfi sínu, eða
við hann eða um hann út af
því, skal sæta. sektum, varð-
haldi eða fangelsi allt að 3
árum. Aðdróttun þótt sönnuð
sé, varðar sektiun, ef hún er
borin fram á ótilhlýðilegan
hátt“. Hvergi er á það minnzt
í 108. gr. hegnl. né í öllum 7.
kaflanum um brot gegn valds-
stjórninni, að einstaklingar
geti höfðað mál út af meint-
um brotum á þeim lagagrein-
um, og' gildir því hér grund-
vallarregla 24. gr. hegnl., að
mál til refsingar eftir 108.
gr. skuli aðeins höfða eftir
opinberri ákæru. Er því hvort-
tveggja, að Hjálmar Blöndal
hefur enga aðild að þessari
refsikröfu og að hún er liöfð
uppi fyrir röngum dómstól, og
sætir því frávísun frá dómi
eftir 68. gr. laga um meðferð
einkamála nr. 80/1936.
(2) Aðrar kröfur mínar
mun ég ekki ræða að svo
stöddu efnislega. Hinn 21.
febr. s.l. skrifaði ég dóms-
málaráðherranum bréf og fór
þess á leit við hann, að fram
yrði látin fara opinber rann-
sókn á störfum Loftvamar-
nefndar Reykjavikur út af
málaferlum þessum sérstak-
lega vegna kröfunnar um refs-
ingu eftir 108. gr. hegningar-
laganna, sem Hjálmar Blöndal
setur fram til málamynda í
stað þess að krefjast sjálfur
opinberrar rannsóknar, svo að
hægt væri að f jalla um meint
brot mitt eftir 108. grein.
Meðan svar er ókomið frá
ráðuneytinu við bréfi mínu
svo og meðan hin opinbera
rannsókn fari fram, óska ég
þess, að mál þetta bí.ði hér
fyrir réttinum, en að því
loknu mun ég taka til vama
og gera kröfum mínum efnis-
leg skil.
Virðingarfyllst,
Ingi R. Helgason.
Bréf Inga R. Hel gasonsr
til dómsmálaráðherra
21. febr. 1958
I kosningabaráttunni fyr-
ir bæjarstjórnarkosningarnar,
sem fram fóru hór í Reykja-
vík í janúarmánuði síðast-
liðnum, bar Loftvarnanefnd
Reykjavíkur og störf hennar
nokkuð á góma. Dagblaðið
Þjóðviljinn birti ýmsar upp-
lýsingar um nefndina og störf
hennar og undirritaður gerði
sömu upplýsingar að um-
ræðuefni i rökræðum stjórn-
málafiokkanna í útvarpinu
nokkru fyrir kosningarnar.
Framkvæmdastjóri nefnd-
arinnar, Hjálmar Blöndal
• framkvæmdastjóri hagsýslu-
skrifstofu Reykjavíkur svo og
nefndin sjálf hafa kveinkað
sér mjög undan upplýsingum
og gagnrýni Þjóðviljans og
mín og talið sig þurfa að
höfða mál fyrir bæjarþingi
Reykjavíkur gegn ritstjóra
Þjóðviljans, Magnúsi Kjart-
anssyni og mér fyrir meið-
andi ummæli, og eru nú í
gangi fyrir bæjarþinginu
fjögur meiðyrðamál J þessu
tilefni:
nr. 428/1958 Loftvarna-
nefnd gegn Magnúsi Kjart-
anssyni
nr. 429/1958 Loftvarna-
nefnd gegn Inga R. Helga-
syni
nr. 430/1958 Hjálmar Blön-
dal gegn Inga R. Helgasyni
nr. 431 /1958 Hjálmar Blön-
dal gegn Magnúsi Kartans-
syni
og voru þau öll þingfest í
bæjarþingi Reykjavíkur hinn
13. febrúar s.l.
Aðalkrafan í öllum málun-
um er sú, að varaaraðili verði
dæmdur til refsingar eftir
108. gr. hegningarlaga, en til
vara eftir 236. eða 235. gr.
sömu laga. Auk þess eru
kröfur um ómerkingu um-
mælanna eftir 241. gr„ sömu
laga og um málskostnað.
Nú er ijóst, að refsikrafan
eftir 108. gr. hegningarlaga er
í ír.áiaferlu.n þessum höfð
ir?;:i fyrir röngum dómstól og
nvur.di s!:v. 68. gr. laga nr.
06/1936 sæta frávísun frá
bæjarþingi Reykjavíkur. Mái
til refsingar eftir 108. gr.
hegningarlaga skal aðeins
höfða eftir opinberri ákæru.
Opinber embættismaður, sem
njóta vill æruvemdar 108. gr.
hegningarlaganna, á þvi ekki
aðild, að slíku máli, en get-
ur farið fram á það við dóms-
málaráðuneytið að það fyrir-
skipi opinbera rannsókn út af
hinum meintu ærumeiðing-
um, en að henni lokinni tek-
ur hið opinbera ákvörðun um
málshöfðun.
Þar sem nú Hjálmar Blön-
dal sem framkvæmdastjóri
Loftvarnanefndar Reykjavík-
ur og Loftvarnanefndin sjálf
hafa ekki farið hina eðlilegu
leið og óskað eftir opinberri
rannsókn en hafa þó uppi
kröfuna um refsingu eftir 108
gr. hegningarlaganna, og með
tilliti til þess að varnaraðil-
ar eiga ekki aðgang að skjöl-
um og gögnum Loftvarna-
nefndar til stuðnings máli
sínu, leyfa þeir sér hér með
að fara fram á það við yður,
hr. dómsmálaráðherra, að þér
látið fram fara opinbera rann-
sókn á störfum Loftvarna-
nefndar Reykjavíkur út af
hinum meintu meiðyrðum.
Virðingarfyllst,
Ingi R. Helgason
(sign)
Til
Dómsmálaráðherrans
Reykjavík.
Minningarorð:
LOFTUR BJARNASON
pipulagningameistari
I dag er til moldar borinn
Loftur Bjarnason, pípulagn-
ingameistari. Hann fæddist
30. september 1881 að Kirkju-
bóli i Hvítársíðu. Um tvítugt
flutti hann til Reykjavíkifr
og lærði á fyrstu árum sínum
þar járnsmíði hjá Þorsteini
Jónssyni járnsmið. Að námi
loknu flutti hann til Eyrar-
bakka og dvaldi þar til
haustsins 1911, en það haust
settist hann að í Reykjavik
aftur og hefur dvalið hér
síðan.
Loftur vann í mörg ár að
járnsmíði á verkstæði „Lands-
sjóðs“, sem svo var kallað.
Þegar Félag jámiðnaðar-
manna var stofnað árið 1920,
var hann einn af aðal hvata-
mönnum að stofnun þess og
fyrsti formaður félagsins.
Um 1927' fór Loftur að
vinna við pípulagnir og vann
að þeim meðan honum endt-
ist heilsa. Meistararéttindi
hafði hann í þeirri iðngrein.
Loftur var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Kristín
Kristófersdótir frá Hrauns-
múla í Kolbeinsstaðahreppi.
Kristín lézt árið 1944. Þau
Kristín og Loftur eignuðust
tvær dætur, Ástu, sem lézt
1946, og Laufeyju. Laufey
er gift' Sigurði Guðmundasyni
Loftur Bjarnason
vélstjóra við Andalkílsárvirkj-
unina.
Síðari kona Lofts, Helga
Sigurbjörnsdóttir, frá Grund
í Húnavatnssýslu lifir mann
sinn.
S.