Þjóðviljinn - 11.04.1958, Side 10
I ) KVÍH JH/GOl/f
10) — ÞJÓÐVILJINN
111'' u-;:': 'I •urgcbjUH-f-'í..
Föstudagur 11. apríl 1958
íþróttir
Framhald af 9. síðu
skorar 19 mark ÍR 19:18. Enn
jafna Hafnfirðingar 19:19, en
Gunnaugur skorar á ný og
Birgir jafnar aftur 20:20. Enn
eru eftir 15 mín af leik, margt
gat skeð. Nú er það Valur sem
skorar fyrir ÍR og litlu síðar
Gunnlaugur. Birgir skorar 21.
mark FH, en svo skora þeir
Hermann og Gunnlaugur sitt
markið hvor og standa nú leik-
ar 24:21 og 5 mín til leiksioka!
Ragnar skorar 22. mark Hafn-
firðinga, en Gunnlaugur svar-
ar því með 25. marki ÍR. Enn
er það Ragnar sem skorar og
litlu síða^ Sigurður Júlíusson
og var það síðasta mark leiks-
4ns, 25:24.
L, :;.v
Ekki tapað í 59
Ieikjum í röð
Lið Hafnarfjarðar tapaði nú
í fyrsta sinn í nær 3 ér eða
eftir að hafa leikið 59 leiki í
röð í opinberum mótum án þess
að tapa. Er það afrek sem seint
mun slegið og sýnir hve sterk-
ir þeir hafa verið, og ef litið
er á markamuninn var ekki
hægt að tapa með minni mun
en hér var um að ræða. Hafa
þeir sýnt handknattleiksmönn-
um hér hve langt er hægt að
komast í handknattleik ef vilji
og áhugi er fyrir hendi, og vit-
að er það að Hafnfirðingar
hafa mun erfiðari skilyrði til
æfinga en aðrir sem mót þetta
sækja.
Eigi að síður er það skemmti-
legt fyrir ÍR að sigra hinn
sterka, sem allir þrá að gera,
og það verður ekki sagt að
hér hafi verið um heppni að
ræða, sem rekja mætti til þess
að hinir ágætu Hafnfirðingar
hefðu verið illa fyrir kallaðir
og átt sérstaklega slæman leik.
Þeir léku svipað og þeir eru
vanir, en ÍR setti allan vilja
sinn og orku í leikinn og náðu
því bezta sem þeir hafa nokk-
um tíma sýnt, enda er þetta
unga ÍR lið á hinum ákjósan-
legasta þroskaaidri, og af því
má mikils vænta í framtíð-
inni.
Beztu menn þess voru Ker-
mann, Gunnlaugur og Þorgeir.
Matthías er nú kominn aftur
eftir langan lasleika og er það
sýnilega styrkur fyrir liðið.
Annars voru allir góðir og iéku
.. á toppi getu sinnar.
Mörkin skoruðu: Gunnlaugur
11, Iíermann 8, Matthías 3, Val-i
ur 2 og Pétur 1.
í liði Hafnfirðinga voru þeir
Einar og Birgir beztir. Ragnai
Var líka ágætur og hann er sá
sem skorar mest og við ótrú-
leg skilyrði, Þessi ósigur á
sennilega rót sína að rekja til
smá „taktískra" galla í leik
liðsins.
Mörkin. skoruðu: Ragnar 12,
Birgir 6/ Einar 3 Sverrir 2 og
Sigurður 1.
Áhorfendur voru rnargir og
skemmtu sér konunglega.
Fram vaim Þrótt
31:8
Fyrri lcikur kvöldsins var
álíka lítið skemmtilegur og sá
seinni var spennandi. Leikur
Þrótíar var veikur og Fram-
arar urðu lítið varir við mót-
spymu nema svolitia stund í
byrjun síðari hálfleiks. Leikur
Franuiva var virkur og hraður,
óvenjulega hraður, og má vera
að hin veika mótstaða hafi ýkt
hraðan. í hálfleik stóðu leikar
14:3 fvrír Fram og þessi þrjú
mörk komu, á fvrslu 7 mín .
og síðustu 12 mín. skoruðu
Þróttarar ekkert mark en Fram
11. Lið Þróttnr vanta-r allt sem
til þarf að ná góðum leik og
getur varla verið um annað að
ræða en að leikmenn séu ilia
æfðir og taki þetta ekki alvar-
lega, qg þó eru flestir á fram-
fara- og þroskaskeiði.
Árniann vann 2 fl.-
mót kvenna
Úrslitaleikur í 2. fl. kvenna
var á milli Ármanns og Vík-
ings, og var leikurinn jafn og
tvísýnn allan tíman. Það er
ekki fyrr en seint í leiknum
sem úrslit fást og bera mörk-
in með sér að leikurinn hefur
verið jafn. Ármann vann með
aðeins 2:1.
íMmensv * sendi-
herrann
væatasiíegur í áag
TTinn nýj sendiherm Rúm-
enín er vsentan’egnr til Reykja-
vílnir föstndaginn 11. þ.m. or
afhendir forseía Islands trún-
rðarhréf siít mánudaginn 14.
1». m.
Sendiherrarui, sem I.iúsettur
r í London, er fæddur 1 nóv.
1906 í Cetate í Craiova héraði
og gokk á verzlunarh'skóla i
Búkarest.
1946-1950 var hann þirPTnað-
ur í rúmenska þinginu 1946 til
1947 viðskiptafulltrúj í rúm-
| enska sendiráðinu í Washing-
ton, 1948-1949 sendiherra iands
síns í Buenos Aires, 1949-1953
varaforseti áætlunarráðs ríkis-
ins, 1953-1955 forseti Ríkis-
bankans, 1955 til 1957 aðstoð-
arfjármálaráðherra og síðan
1957 forseti Rikisbanknns.
Bnlaceann sendiherrn er
kvæntur og á eitt ham.
(Frá utanrikisráðuneytinu).
Hestamannamót á Þingvöllum í júlí
? Þjóftviljanuiii
Sumarferðir Ferðafél.
Framhald af 3. síðu
ekki fyrr en á seinusiu árum
að ferðir hófusf þangað.
Helgarferðir
Of langt yrði upp að telja
helgarferðirnar. Þær eru marg-
ar hér um Reykjanesið, á Esju,
ennfremur Skjaldbreið. Eiríks-
jökul, Heklu o fl. staði er fjær
liggja, auk fiö’margra ferða í
Þórsmörk, Landamannalaugar og
Kerlingarfjöll. — Allar upplýs-
ingar um ferðirnar eru veittar
í skrifstofu félagsins, Túngötu
5, sími 19533.
Framhald af 12. síðu
ráð fyrir, að 30—40 góðhestar
komi á sýninguna og mun óhætt
að fullyrða að á meðal þeirra
verði beztu gæðingar landsins.
Keppt fyrsta sinni
í 400 m. hlaupi
Mótið verður opnað almenn-
ingi laugardaginn 19. júlí. Þann
dag og sunnudaginn 20. júlí
verða kynbótahross og góðhest-
ar sýndir í dómhring og dóm-
um lýst. Þá fara kappreiðar
einnig fram. Keppt verður í 300
og 400 m stökkj og 250 m skeiði.
Keppni í 400 m stökki er ný-
lunda, því ekki hefur áður verið
keppt á svö löngu sprettfæri, Er
þess að vænta, að áhorfendum
þyki fengur að lengingu hlaups-
ins. Skeiðkeppni fer einnig
fram með nokkuð öðrum hætti
en áður. Að þessu sinni verður
hverjum hesti hleypt tvisvar og
ræður betri tími úrslitum. Þetta
hefur í för með sér, að hestur
fellur ekki úr keppni, þó hann
„hlaupi upp“ í fyrsta spretti.
Boð-kapp reiðar
Fyrirhugað er, að kappreiðar
með boðhlaupsfyrirkomulagi fari
fram milli hestamannafélaga, en
slík keppni hefur ekki farið
fram á landsmótunum fyrr. Er
sennilegt, að þessi þáttur verði
vinsæll af áhorfendum.
Reiðmennska
öndvegisíþrótt
Landssamband hestamannafé-
laga var stofnað árið 1949 og eru
nú starfandi 16 hestamannafé-
lög innan vébanda þess. Hlut-
verk þess er að vinna að ræktun
íslenzka reiðhestsins og hefja
hestamennskuna til þess vegs,
^sem henni ber að skipa sem önd-
vegisíþrótt þjóðarinnar.
Þau tvö landsmót, sem Lands-
sambandið hefur efnt til, hafa
tekizt með ágætum og hafa
reynzt hestamennsku og hrossa-
rækt mikil lyftistöng, auk þess
sem þau hafa orðið fjölda hesta-
unnenda, sem hafa sótt mótin,
til mikiliar ánægju. Fyrsta
landsmótið var háð á Þingvöll-
um árið 1950 en árið 1954 var
annað mótið haldið á Þverár-
eyrum í Eyjafirði.
Það er von allra þeirra, sem
að mótinu í sumar standa, að
það verði til þess að efla áhuga
á íslenzka hestinum og styrkja
hin fornu tengsl þjóðarinnar við
þennan ástvin sinn.
Norðurlandasigliegar m. s,
sumarið 1958
HEKLU
Frá Reykjavík laugardag 7/6 21/6 5/7 19/7 2/8 16/8 30/8
Til/frá Thorshavn mánudag 9/6 23/6 7/7 21/7 4/8 18/8 1/9
— Bergen þriðjudag 10 6 24/6 8/7 22/7 5/8 19/8 2/9
— Kaupm.h. fimmtud. 12/6 26/6 10/7 24/7 7/8 21/8 4/9
— Gautaborg föstudag 13/6 27/6 11/7 25/7 8/8 22/8 5/9
—■ Kristiansand laugard. 14/6 28/6 L2/7 26/7 9/8 23/8 6/9
—■ Thorshavn mánudag 16/6 30/6 14/7 28/7 11/8 25/8 8/9
Til Reykjavíkur miðvikud. 18/6 2/7 16/7 30/7 13/8 27/8 10/9
Vísitölubréf
Framhald af 12. síðu.
Eigendur útdreginna ■' bréfa
úr fyrsta flokki, er var gefinn.
út 1955, hafa fengið 10,4%
vísitöluupphót, þ.e. fengið 10
þúsund króna bréf greitt með
kr. 11.040,00. Á bréf úr öðr-
um flokki hefur komið 6,11%
uppbót og 2,14 á bréf úr þriðja
flokki. \iferðgi!di 4. flokks bréf-
anna er óbreytt vegna stöð-
ugrar vísitölu. Þess ber einn-
ig að gæta, að bréfin eru skatt
frjáls og undanþegin framtals-
skyldu á sama hátt og sparifé.
Lækki visitalan skal aldrei
endurgreiða lægri upphæð en
bréfin hljóða upp á.
Enn er nokkuð óselt af vísi-
töluhréfum þriðja flokks og
verða þau seld á nafnverði út
aprílmánuð, en ekki lengur, en
grunnverð þeirra hefur hækk-
að um 2,14%, sem fellur vænt-
anlegum kaupendum í hlut.
Auk þess njóta kaupendur
þeirra kjara, að frá verði
bréfanna verða dregnir
vextir frá söludegi til gjald-
daga, hinn 1. marz 1959. Verð-
ur því söluverð bréfanna. rúm
95%.
Bréf þriðja flokks eru til
sölu í Reykjavík hjá Lands-
bankanum, Útvegsbankanum
og Búnaðarbankanum, en í
sparisjóðum og hjá helztu
verðbréfasölum er tekið á móti
áskriftum. Utaij Reykjavíkur
er tekið á móti áskriftum í
útibúum bankanna og væntaon-
lega einnig hjá sparisjóðum
úti á landi.
Fargjaldinu er mjög stillt í hóf. Til dæmis kostar hringferð, sem tekur 11 daga, aðeins
frá kr. 1744,00 til kr. 2623,00. Ferð til Bergen kosfar frá kr. 703,00 til kr. 1020,00. Fyrsta
flokks fæði og framreiðslugjald er innifalið í fargjöldum.
Farþegar, sem koma með skipinu erlendis frá, geta fengið að nota skipið sem liótel
meðan það stendur við í Reykjavík frá miðvikudagsmorgni til laugardagskvölds.
Skipaútgerð ríkisins.
Þórður
sjóari
'tisi
lAi
Sex vikum síðar er skonnortan var komin til Rio
Janeiro kom skipstjórinn fyrst upp á þiljur og tók
við stjórninni. Hann sagði Þórði, að nú myndi hald-
ið áfram suðurfyrir Hom útí Kyrrahafið, en nákvæma
staðarákvörðun gaf hann ekki. Er þeir komu suður
fyrir Horn, lentu þeir í þungum sjó, og sá Þórður þá,
að skipstjórinn var fráhær sjómaður. Er hann stýrði
skonnortunni í gegnum hættumar, byrjaði Þórður að
velta fyrir sér hvert ferðinni væri heitið.
Dregið í Happ-
drætti Háskólams
í gær var dregið í 4. flokki
Happdrættis Háskóla íslands.
Voru dregnir út 793 vinningar
að upphæð samtals ein milljón
og 35 þús. kr. Hæsti vinning-
urinn 100.000 kr. kom á heil-
miða nr. 31255, er var seldur
í umboði Elíasar Jónssonar
Kirkjuteigi 5. 50 þús. króna
vinningurinn kom á fjórðúngs-
miða nr. 9083. Voru tveir
fjórðungarnir seldir í Verzlun
Þorvaldar Bjarnasonar í Hafn-
arfirði, einn fjórðungurinn á
Vopnafirði og einn í umboði
Helga Sívertsen í Vesturveri.
10 þús. kr. vinningar komu
á nr. 1297, 10217, 30324, 32324,
34403 og 38005.
5 þús. kr. vinningar komu á
nr. 6561, 13162, 13397, 16045,
31431, 36657, 40370, 43889.
(Birt án ábyrgðar).