Þjóðviljinn - 27.04.1958, Síða 9
Sunmidagur 27. apríl 1958 — I>JÓi>VILJINN — (9
A ÍÞRÖTTIR
KrrSTJÖRI: FRlUANH HEUGASOU
Karen Larsen frá Svíþjóð og Lars
Larsson frá Danmörku
Á sundmóti ÍR, sem íer fram
á morgun og þriðjudag í Sund-
höllinni verða tveir góðir erlend-
ir gestir. Annar þeirra kemur nú
í þriðja sinn hingað til lands
og er því hér að góðu kunnur og
vinsæll, enda einn snjallasti
sundmaður Norðurlanda, Dan-
inn Lars Larsson. Hiirin gestur-
inn er Karen Larsson frá Sví-
þjóð og ein bezta sundkona
Svía; er þetta í fyrsta sinn sem
hún kemur hingað til keppni.
Munu sumdáhugamenn fagna því
að fá slíka gesti sem þessa.
Það er líka ánægjuefni að við
eigum sundfólk sem getur veitt
þessu ágæta sundfólki harða
keppni.
Karen Larson hefur synt 100
m skriðsund á 1.06.8 mín. en
Ágústa hefur synt þessa vega-
lengd á 1.07.0 mín. svo munur
er ekki mikill og mikiar líkur
ti-1 þess að Ágústa bæti met sitt.
Hún hefur æft vel undanfarið. i
Karen keppir einnig í 200 m.
skriðsundi, en bezti tími hennar
þar er 2.23.2. Ágústa hefur ekki
synt þessa vegalengd lengi, en
Fer keppni Norð-
urlanda og Bancía-
ríkjanna lit um
þufur?
Eins og áður hefur verið frá
sagt, var frá því gengið að
mestu að fram færi keppni í
frjálsum íþróttum milli Norður-
iandanna og Bandaríkjanna í
sept. n.k. og að keppnin færi
fr-am í Los Angeles.
Um þessar mundir hafa for-
ystumenn frjálsíþrótta setið á
fundi í Helsinki og rætt mál
þetta. Af fundi þeim hafa komið
þær fréttir að það geti ekki
orðið af þessari fyrirhuguðu
keppni. Við nánari athugun kem-
ur í ljós að það er of kostnaðar-
samt að ráðast í ferðiija, ef far-
ið verður eftir þeim skilyrðum
sem ritari bandaríska sambands-
ins, Dan Ferris, hefur sett fram
í bréfi til Norðurlandanna ný-
lega.
Þau skilyrði sem Dan Ferris
setur nú eru ekki nærri eins að-
gengileg og þau sem um var
rætt í Melbourne og síðar í
Kaupmannahöfn, og með tilliti
til þess hefur verið ákveðið að
sleppa ferðinni til Los Angeles.
bezti tími hennar er um 2.30.0.
Hún hefur mikla möguleika til
að ná miklu betri árangri í
þetta sinn. Það sund verður síð-
ari daginn.
Lars Larsson liefur náð bezta
tima í 100 m skriðsundi á Norð-
urlöndum í ár, 57.7, en næstir
honum koma Guðmundur Gísla-
son og Svii með sama tíma, 58.2
sek. Þeir tveir og Pétur Kristj-
ánsson keppa m.a. í sundi þessu
og er það tvímælalaust harðasta
keppni sem fram hefur farið hér I
í Sundhöliinni.
Larsson syndir einnig 50 m
fyrri daginn en tími hans á
þeirri vegalengd er 26,6, Guð-
mundur á 26.8 og íslandsmet
Péturs er 26.3 svo hér má líka
búast við harðri keppni .
Síðari daginn keppir Larsson
í 400 m skriðsundi' og verður
Guðmundur , • laðalkeppin-autuf
hans. Larsson á injög góðan
tíma á þeirri - vegalengd eða
4.42.6. Guðmundur á drengja-
mstið á vegalengdinni, en nú er
orðið nokkuð síðan han-n synti
400 m síðast, en met hans á 300
m sýnir að miklar líkur eru til
þess að hann fari 400 m nokkuð
undir 5 mín.
í sundmóti þessu taka þát-t
allir beztu sundmenn landsins,
því að auk þátttakenda úr
Reykjavík koma keppendur frá
Akranesi, Keflavrk og Hafnar-
firði.
Á morgun verður keppt í 11
sundgreinum, en á þriðjudag-
inn í 10 greinum.
Gestirnir koma með flugvél
Flugféiags ísla-nds' í dag.
Atta nemendur geta komizt á liand-
knattleiksnámskeið í Danmörku
í sambandi við ferð sma á
Heim'smeistaramótið í hand-
knattleik r vetur ræddi formað-
ur Handknattleikssambands ís-
lands, Árni Árnason, við dönsku
handkn-attleikssambandsstjórnina
um þátttöku íslenzkra hand-
knattleiksmanna í væntanlegu
námskeiði fyrir leiðbeinendur og
kennara í Vejle í sumar.
Árangur af viðræðum þessum
varð sá, að á vegum handknatt-
leikssambandsins hér geta nú
farið 4 stúlkur og fjórir karlar
sem þátttakendur í námskeiðum
þessum.
Ákveðið er að kvennanám-
skeiðið standi frá 27. júlí til 2.
ágústs, og er þátttaka opin öllum
stúlkum sem vilja taka að sér
þjálfun næsta vetur, en þær
þurfa- að kunna handknattleiks-
reglurnar eða hafa íþróttakenn-
araprófv
Karlanámskeiðið er framhalds-
námskeið og er þátttaka opin
öllum þeim er hafa kennt hand-
knattleik og vilja kenna hann
næsta vetur. Námskeiðið stend-
ur frá 3. til 9. ágúst.
Á námskeiðum þessum verður
kennsla, liúsnæði og fæði ókeyp-
is en viðkomandi verður sjálfur
-að sjá sér fyrir ferðum.
Handknattleikssamband íslands
hefur milligöngu um þetta og
eiga umsóknir um dvöl á nám-
skeiðum þessum að sendast til
þess eigi síðar en 15. maí. Með
umsóknunum þurfa að vera upp-
lýsingar um hvar viðkomandi
ætlar að þjálfa næsta vetur, og
þurfa helzt að fylgja meðmæli
viðkomandi sérráðs eða íþrótta-
bandalags.
í fyrra var fyrsta tilraunin
gerð nreð þátttöku í námskeiði
í handknattleik r Vejle fyrir leið-
beinendur og kennara, og tókst
hún mjög vel, en héðan fóru
Hallgrímur Sveinsson frá Ár-
manni og Pétur Bjarnason frá
Vrking. Árangur í nýafstöðnu
ísiandsmóti, hjá flokkum þeirn
sem þessir menn kenndu og leið-
beindu, talar sí-nu máli.
Er vonandi að fjórir karlar og
fjórar stúlkur hafi möguleika
til að notfæra sér þetta tæki-
færi, sem er einn þátturinn i
því að bæta handknattleikinn
hér.
Karen Ivarsen, sem nú lieimsækir ísland í fyrsta sinn, er
aðeins 16 ára, (f. 30—8—’41) -frá félaginu SK. Ran í Malmö.
Hún liefur þegar náð glæsilegmn árangri í sundíþróttinni. í
sænsku meistarakeppninni vann hún gullverðlaun í 400 m
skriðsundi, silfurverðlaun í 200 m skriðsundi en bronzverðlaun
í 100 m flugsundi og gullverðlaun í boðsundi. Hún vann 400 m
á Norðurlandamótinu í fyrra og varð önnur í 100 m flug-
sundi. Hún á sænska metið í 400 m skriðsundi, sein er 5,11,1
mín. sett 1956. Hún á einnig sænska inetíð í 400 m fjórsundi á
5,54,2. Hún lærði að synda 1948 og byrjaði að keppa fyrir
Ran 3 árum síðar.
Félag Nýalssinna
heldur almennan fund í 1. kennslustofu Háskóla
íslands í dag kl. 4.
Efni fundarins verður:
Lífið í alheitni og samband þess
DAGSKRA:
Erindi. Þorsteinn Jónsson á Úlfsstöðum.
Fluttir verða kaflar úr ritum Fred Hoyle’s — Brúnós
og Dr. Helga Péturss.
Aðalfundur
IBárnavinafélagsins Sumargjafar verður haldinn í
skrifstofu félagsins, Laufásvegi 36, miðvikudaginn
30. apríl kl. 20,30.
•
Dagskrá:
1. Lagabreytingar.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Barnavinafélagsins Siunargjafar.
á eítirtöldum.
tækjum:
E A S Y þvottavélum
BLACK & DECKER
rafmagnshandverk-
færum
PORTER CABLE
rafmagnshandverk-
færum
R C A ESTATE-eldavélum
A B C olíukyndingartækjum
P & H rafsuðutækjum
HARRIS logsuðutækjuin
RIDGE snittvélunv
A N N A S T
m
‘ónssonar,
Borgarlioltsbraut 21 — sími 19871.
Reykjavíkurmót
meistaraflokks hefst í dag kl. 2 með leik á milli Fram og Víkings
Dómaii: Magnús Pétursson.
Línuverðir: Páll Pétursson og Baldur Þórðarson.
Mótanefndin.