Þjóðviljinn - 07.05.1958, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 07.05.1958, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 7. maí 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Eiðaskóli er 75 ára á þessu ári Afmœlismóf i sumar og saga skólans effir Benedikf Gislason frá Hoffeigi 100 nemendur veru í skóianum s.l. vehir Alþýðuskólanum á Eiðum var slitið 27. apríl s.l. Skólinn er 75 ára á þessu ári. Bændaskóli var stofnaður á Eiðum árið 1883. Árið 1919 var honum breytt í al- þýðuskóla. Síðan starfaði hann sem tveggia vetra al- þýðuskóli þangað til 1946, að bætt var viö framhalds- deild, sem nú skiptist í landsprófs-, bóknáms- cg verk- námsdeild. í vetur voru aðeins 100 nem- endur í skólanum og skiptust þannig milli deilda, að 19 voru í yngri deild, 38 í eldri deild og 43 alls í framhaldsdeild, þar af 18 í landsprófsdeild. Fram- haldsdeildin er enn við nám, en eamkvæmt venju er skólanum slitið formlega fyrsta sunnudag í sumri, þegar yngri og eldri deild lýkur. Burtfararpróf stóðust allir nemendur eldri deildar. Hæstu einkunnir fengu: í bóklegum greinum Gunnar Magnússon frá Bakkafirði, 9,09, í verklegum greinum Þorvaldur Þorsteins- son frá Þórunesi i Reyðarfirði, 8,32, og úr iöllum greinum samanlögðum Jón Snæbjörns- son frá Geitdal í Skriðdal 8,60. í yngri deild hlaut Geirlaug, Sveinsdóttir frá Hvannstóði í Borgarfirði hæstu einkunn í bóklegum greinum, 9.61, og Bergþóra Gísladóttir frá Hlíð- arenda í Breiðdal í verklegum greihum, 8,06, og öllum grein- um samanlögðum, 8,52. Fæðiskostnaður varð að jafn- Á aS jofna Rauðhólana við jörðu? Reykvíkingar áttuðu sig á því þegar þeir voru búnir að umtuma mjög Rauðhólunum, að í þessum hólum hefðu þeir átt sjaldgæfa og sér- kennilega furðusmíð náttúr- unnar. Kom þá fram krafa Um að frekari eyðileggingu þeirra yrði hætt. Margir standa í þeirri trú að starf- andi sé- á bæjarins vegum náttúruverndarnefnd og enn- fremur að bæjarráð hafi sam- þykkt að ofaníburðartöku í Rauðhólum skyldi hætt. Staðreyndin er hinsvegár að imdanfarið hefur unnið þar vinnuflokkur frá Reykjavík- urbæ við að rífa hölana nið- ur og flytja þá til ofaníburð- ar og það mun hafa verið í fyrradag að bætt var við öðr- um vinnuflokki til þessa starfs. Það eru margir Reykvíking- ar sem spyrja: Ætla bæjaryf- irvöldin að láta jafna Rauð- hólana við jörðu? Á að þurfa að segja eftirkomendunum sem um veginn fara: þarna áttum við eina af furðusmíð- urn náttúrunnar rétt við bæj- arvegginn, en , bæjarstjórn Reykjavíkur, á fyrra helmingi tuttugustu aldarinnar lét rífa hana í burtu. Eða eigum við kannski að fá að halda því sem haldið verður, af þess- um stað? ' .. ' — ■ aði kr. 22,55 á dag. — Flestir nemendur voru í mötuneyti skólans, sem frú Sigurlaug Jónsdóttir veitti forstöðu. Heilsufar var ágætt í vetur og líkamlegur viðgangur mikill. Verðlaun og viðurkenningar úr sjóðum skólans, þeim er til þeirra hluta eru ætlaðir, hlutu þessir nemendur: Úr styrktarsjóði Jónasar Ei- ríkssonar og Guðlaugar M. Jónsdóttur: Rafn Kjartansson' frá Djúpavogi. Sami piltur hlaut einnig prúðmennskuverð- laun þau, sem árlega eru veitt, en skólastúlkur velja þann, sem hlýtur, með leynilegri atkvæða- greiðslu. Úr Hansonssjóði hlaut viður- kenningu Þórhallur Eyjólfsson frá Áreyjum í Reyðarfirði og Díana Sjöfn Helgadóttir frá Freyvangi í Eyjafirði úr minn- íngarsjóði Sigurðar Hafsteins Emilssonar. Úr styrktarsjóði Helga Ölafs- sonar frá Hrærekslæk, sem sér- staklega er ætlaður nemendum úr Hróarstungu, hlaut verð- laun Hermann Eiriksson frá Bót. Þau Soffía Jónsdóttir frá Gunnhildarholti í Hróarstungu og Þr"stur Þorgrímsson frá' Selnesi í Breiðdal hiutu sér- staka viðurkenningu fyrir að hafa verið í öllum þeim kennslu stundum, sem þeim bar að sækja. án þéss að koma nokk- urn tíma of seint, í þrjá vetur. Verðlaun þessi og viðurkenning- ar eru veitt fyrir árangursríkt nám, dugnað, trúmennsku og prúðmennsku. Skólaslitin hófust með guðs- biónustu. Sóknaruresturinn. sr. Einar Þór Þorsteinsson prédik- aði og nemendur sungu. Helgi EMasson fræðslum'álastjóri var víðstaddur skólashtin og flutti ræðu. Minnt.ist hann afmælis skólans og ámaði heilla. Þórar- inn Þórarinsson, skólastióri flut.ti skólaslitaræðu að vanda. Blandaður kór nemenda söng allmörg lög undir stjórn skóla- Stióra. Svning var h'ddm á handa- vinmi nemenda. Þót**’ bún fiöl- bre'dt, og vöndnft ÁHa r»i’<'ar í verknArv,sdei1d smí^tiðn 5 sófa- sett (sófa, 2 djúpa stóla og borð), eitt skrifborð og stól, 6 matborð, mörg smáborð, rennda muni svo sem lampa og skálar o. fl. Tveir afkastamestu nem- endurnir smíðuðu húsgögn virt á 10—12 þús. kr. Tíu stúlkur í sömu deild lærðu vélsaum, út- saum, prjón og hekl. Þær sýndu hver um sig kjól, náttkjól, blússu, sloppsvuntu, barnafatn- að, púða, dúka o. fl. Veður var gott, en vegna af- leitrar færðar á vegum sökum holklaka og forar, var fáttl gesta. Verknámshús er í smíðum á Eiðum og var tekin • í notkun í haust 130 nr smíðastofa. mjög vistleg og björt. Vonir standa til, að mögulegt verði að ljúka þessari byggingu bráð- lega. í þeim hluta hússins, sem eftir er að toyggja, verður saumastofa, húsrými fyrir kennslu, kennslu í vélgæzlu og geymslur fyrir efni og unna muni. Eins og getið hefur verið, verður Eiðaskóli 75 ára á þessu ári. Af því tilefni er fyrirhugað að halda mót í sumar, fjTst og fremst nemenda og kennara, svo og annarra velunnara skól- ans. Þá er væntanlegt í sumar minningarrit um skólann eftir Benedikt Gíslason frá Hofteigi. Óperettan Kysstu mig Kota frumsýnd í lok mónaðarins Hljómsveitarstjórinn verður bandarískur og aðalsöngkonan sænsk í lok mánað'arins hefjast væntanlega sýningar í Þjóð- leikhúsinu á bandarísku óperettunni Kysstu mig Kata. Leikstjórinn verður danskur, hljómsveitarstjórinn banda- rískur og aðalsöngkonan sænsk. Óperettan er nú æfð af full- um krafti í Þjóðleikhúsinu. Leikstjórinn, Sven Áge Larsen, er kominn hingað fyrir um því viðfangsefnið. Hér við Þjóóðleikhúsið hefur Sven Age Larsen sem kunnugt er áður stjórnað sviðsetningu óperett- anna Káta ekkjan og Sumar í Týról. Um næstu helgi er væntan- legur hingað til Reykjavikur frá New York bandaríski hljómsveitarstjórinn Saul Sch- echtman. Þriðji erlendi gest- urinn er væntanlegur síðar, en það er óperettusöngkonan Ulla Sallert frá Stokkhólmi. Söng- konan hefur sungið við óperuna í Vín undanfarna tvo vetur. Alls munu taka þátt í sýn- ingum óperettunnar í Þjóðleik- húsinu miili 50—60 manns. Sven Age Larsen hálfum mánuði frá Danmörku og hefur stjórnað æfingum sið- an. Hann hefur áður sett óper- ettuna Kysstu mig Kata á svið í Kaupmannahöfn, Osló, Stokk- hólmi og Helsinki og gerþekkir r 1 Vatnaskógi í sumar mupu 10 flokkar dvelja í Vatnaskógi á vegum Skógarmanna KFUM. Flestir flokkanna. verða viku. Hópar 9 ára drengja skiptast á vikulega á timanum frá 13. júni til 4. júlí og aftur til 1. ágúst. Loks verður flokkur fullorðinna frá 22.—29. ágúst. Sérstakur skógræktarflokkur fer uppeftir um næstu mánaðamót. Kristilegt æskulýðsblað—Fermingar- bamamót og sumarbúðir á Löngumý ri Æskulýðsnefnd þjóðkirkjunnar hefur hafið útgáfu á kristilegu blaði fyrir unglinga. Það gengst fyrir kristi- legnm fenningarbarnamótum á 8 stöðum og starfrækir sumarbúðir að Löngutunýri. Biskup fslands skipaði í fyrra, samkvæmt samþykkt presta- stefnu, æskulýðsnefnd þjóðkirkj- unnar og skal hún vinna að öll- urrí æskulýðsmálum er kirkjan lætur sig varða. Formaður nefridarinnar er sr. Bragi Frið- riksson, en aðrir í nefndinni sr. Árelíus Níelsson, Jón Þorvarðar- sori, Magnús Runólfsson, Jón Kr. ísféld, Pétur Sigurgeirsson og Erlendur Sigmundsson. Jóhannsdóttir boðið þjóðkirkj- unni húseign skólans ásamt nokkru jarðnæði til kaups. Fermingarbarnamót Nefndin gengst fyrir kristileg- Framhald á 6. siðn Systrabrúðkaup í Hveragerði Á laugardaginn var eaf sr. Gunnar Benediktsson saman tvenn brúðhjón og voru brúð- irnar systur. Voru það Sigrún Bergþórsdóttir frá Fljótstungu og Kristleifur Þorsteinsson frá Húsafelli og Ingibjörg Bergþórs- dóttir og Árni Þorsteinsson. Vélstjórafrum- varpið komið til 1 síðustu umræðu Frumvarp Karls Guðjónsson- ar um réttindi vélstjóra var til framhalds 2. umræðu á fundi neðri deildar Alþmgis í gær. Frumvarpsgreinarnar voru sam- þykktar með 14—16 atkvæð- um gegn 1—3 svo og breyting- artillögur sjávarútvegsnefndar, og því eíðan vísað til 3. umr. Sumarbúðir að Löngumýri Sumarbúðir verða í skólanum að Löngumýri, 30. júní — 12. júlí íyrir 9—11 ára drengi, 14. júlí — 26. júlí fyrir 11 ára drengi og eldri, 28. júlí — 9, ágúst fyrir 9—11 ára telpur og 11. — 23. ágúst fyrir 11 ára telpur og eldri. — Viðfangsefni verða bibiíulestur, söngur, í-, þróttir, föndur, garðyrkja og grasatinsla. Þátttökugjald kr. 450,00 fyrir hálfsmánaðardvöl. Umsóknir sendist sóknarprest- um eða biskupsskrifstofunni. Skóliun að Löngumýri var reistur sem einkaskóli og hefur forstöðukona skólans, Ingibjörg Faðirinn Framhald af 12. siðu. er fyrsta sænska leikritið sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. Vegna þess að önnur viðfangsefni leik- hússins kalla að verður aðeins uimt að hafa fimm sýningar á leikritinu á þessu vori, en sýn- ingar verðar teknar upp að nýju í haust. Skíðamót Norðurlands háð við Akureyri mn helgina Akureyri, Frá fi'éttaritara Þjóðviljans. Skíðamót Norðurlands fór fram í Hlíðarfjalli við Ak- ureyri um síðustu helgi. Veður var ágætt og fór mótið vel og skipulega fram, en það urðu þó nokkur vonbrigði að mun færri keppendur mættu til leiks en skráðir höfðu verið. Fljótamenn tilkynntu forföll á síðustu stundu og frá Siglufirði mættu fjórir menn. Helztu úrslit urðu þessi: Stórsvig: 1 A-flokki sigraði Magnús Guðmundsson og er hann því Norðurlandsmeistari í stórsvigi 1958. í B-fl. varð fyrstur Hákon Ólafsson Siglu- firði og í C-fl. Hallgrimur Jóns- son Akureyri. 1 4x5 km boðgöngu varð fyrst sveit Akureyringa, önnur sveit Þingeyinga og þriðja sveit Sigl- firðinga. Þess skal getið að þekktustu göngumenn Þingey- inga mættu ekki á mótinu. 1 skíðastökki varð Norður- landsmeistari Kristinn Steins- son Akureyri, 2. Einar Valur Kristjánsson Ólafsfirði og 3. Hjálmar Stefánsson Akureyri. I unglingaflokki varð fyrstur Jón Halldórsson Eyjafjarðar- sýslu. Svig: Fyrstur í A-flokki og Norðurlandsmeistari 1958 varð Hjálmar Stefánsson Akureyri, í B-flokki Hákon Ólafsson Siglu- firði og C-flokki ívar Sigmunds- son Akureyri. Gestir mótsins voru Haraldur Pálsson, Marteinn Guðjónsson og Ásgeir Ólafsson, allir frá Reykjavík. Náðu þeir ágætum árangri. Haraldur varð 4. í stökkkeppninni og svigi, Mar- teinn 2. í stórsvigi og Ásgeir fyrstur í svigkeppni. Marteinn og Ásgeir eru báðir B-flokks- menn. Mótsstjóri var Svavar Otté- sen.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.