Þjóðviljinn - 20.05.1958, Page 3
Þriðjudagur 20. maí 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Prentarar mótmæla barðlega efna-
kgsmálafrumvarpu
Aöalfundur Hins úslenzka prentarafélags var haldinn
s.l. sunnudag og sanrþykkti fundurinn eftirfarandi:
. Í5JC. idk k..A4C----—
Móti Norræna1 embættismannasambandsins, sem staðið hefur yfir undanfarna fjóra daga hér
í Reykjavík, var slitið í gær og j dag munu Iangflestir erlendu þátttakendanna lialda lieim-
leiðis með norska farþegaskipinu Meteor. Myndin var tekiu við setningu mótsins í Þjóðleik-
húsinu sl. föstudagsmorgun og sjást á heuni fonneim hinna einstöku deilda Norræna emb-
ættismannasambandsins. Við borðið sitja frá vinstri: Bo Hainarskjöld frá Svíþjóð, Einar
Bjarnason ríkisendurskoðandi, U. J. Carstén frá Finnlandí og J. Saurbrey frá Danmörku.
I ræðustólnum er Norðmaðurinn ELnar Boysen. (Ljósmst. Sig Guðm.)
Ægir farinn í rannsóknarleiðangur
LeiSangrinum lýkur 24. júni og hefst þá
t. fundur fiskifrœðinga á SeySisfirSi
Surmudaginn hinn 18. þ.m. hófst hinn almenni haf-
Tannsóknaleiöangur á vegum Fiskideildar Atvinnudeildar
Háskólans, en slíkir leiöangrar hafa veriö' farnir undan-
farin ár í samvinnu við Dani óg Norðmenn. Rannsókn-
irnar fara fram á varöskipinu Ægi, og stendur leiöangur-
inn til 24. júní.
Fyrst verður farið suður fyr-' son, magister, og sér liann
ir land, og síðan vestur með jafnframt um áturannsóknir.
Jandi og allt norður undir ís-
rönd. Hafsvæðið norðan lands
verður ránnsakað bæði djúpt
og grunnt, og sömuleiðis verð-
ur útbreiðsla Austur-íslands-
stra.umsins könnuð. Áætlað er,
að þessum yfirlitsrannsóknum
Ijúki undan Austfjörðum um
13. júní, og verður þá á ný
í'arið yfir veiðisvæðið norðan
lands., Leiðangrinum lýkur á
Seyðisfirði 24. júní, en þá hefst
fundur fiskifræðinga frá þeim
áðildarríkjum Alþjóða hafrann-
sóknarráðsins, sem stunda síld-
arrannsóknir á Norður-Atlanz-
hafi, en það eru Isíendingar,
Danir, Norðmenn og Rússar.
Að þessu sinni munu þó Danir
ekki taka þátt í þessum sam-
'eiginlegu rannsóknum, en vænt-
anlega mun færeyskur fiski-
íræðingur taka þátt í fundin-
um.
Leiðangursstjóri íslenzka leið-
angursins er Ingvar Hallgríms-
(Jtför Hauks
rrasonar rit-
stjóra gerð í gær
Útför Hauks Snorrasonar rit-
stjóra fór fram frá Dómkirkj-
niniii i Reykjavík í g-ær.
Sr. Sveinn Víkingur flutti ræð-
una í kirkjunni og jarðsöng. Dr.
Páll ísólfsson lék á orgel og
ÞorvaMur Steingrímsson á fiðlu.
Hluti af karJakórnum Fóstbræðr-
xmi söng. Frímúrarar stóðu iieið-
Ufsvörð undir fánum við kistuna
í kirkjunnj. Úr kirkju báru mið-
stjórn Framsóknarflokksins,
blaðstjórn og samstarfsmenn, í
kirkjugarð báru blaðamenn og
síðasta spölinn nánir vinir og
ættingjar. Útförih var mjög fjöl-
menn.
Snor
Jakob Jakobsson, fiskifræðing-
ur, sér um athuganir á síldar-
dreifingu, og Þórunn Þórðar-
dóttir, magister, sér um rarm-
sóknir á plöntugróðri sjávar og
Gráklæddi
inaðuriim
Önnur mánaðarbók Almenna
bókafélagsins: Gráklæddi mað-
urinn eftir Sloau Wilson í þýð-
ingu Páls Skúlasonar ritstjóra,
er komin út fyrir nokkru.
Sloan Wilson er ungur Banda-
ríkjamaður og háskólakennari.
Bók lians, Gráklæddi maður-
inn, kom fyrst út 1955 og
hefur lengi verið metsölubók
um öll Bandaríkin.
Saga þessi fjallar um ungan
heimilisföður, Tom Rath, sem
býr ásamt ungri og glæsilegri
konu sinni og þremur bömum
í lélegu húsi í New York. Hann
hefur meðaltekjur 7000 dali á
ári, en þessi ungu hjón dreym-
ir um hærri laun, betra. hús-
næðj og háskólanám fyrir börn-
in.
Bókin hefur verið send ttm-
boðsmönnum Almenna bókafé-
lagsins út um land. Félags-
menn í Reykjavík vitji hennar
á afgreiðsluna að Tjarnai’götu
16.
Sovétríkin og
England 1:1
Lapdslið Sovétríkjanna og
Englánds í knattspymu gerðu
jafntefli í Moskvu á sunnudag-
inn, 1:1. Englendingai- settu sitt
mark á síðustu sekúndu’ fyrri
hálfleiks, en. sovézka liðið jafn-
aði þegar tíu mínútur voru eftir
af leiknum. 100.000 áhorfendúr
voru á Lenínleikvanginum.
framleiðslugetu hans af lífræn-
um efnum. Auk þess munu þeir
dr. Hermann Einarsson og
Unusteinn Stefánsson, sjófræð-
ingur Fiskideildar, taka þátt í
hluta leiðangursins og fundin-
um á Seyðisfirði. Ennfremur
verða með í leiðangrinum 4
aðstoðarmenn frá Fiskideild.
Skipstjóri á Ægi er.Þórarinn
Bjömsson.
,,Fundur í Hinu ísl. prentarafé-
lagi, haldinn 18. maí 1958 mót-
rriælir harðlega ..Frumvarpi til
laga um útflutningssjóð o. fl.“
sem nú liggur fyrir Alþingi.
Telur félagið frumvarpið ganga
Mmnisvarði um
sr. Þorvald
Böðvarsson
Nokkrir niðjar Þorvalds Böðv-
arssonar prests og sálmaskálds
hafa reist honum minnisvarða að
Holti undir Eyjafjöllum, í tilefni
þess, að! þann 21. maí eru 200
ár liðin frá Xæðingu hans.
Síðdegis á niiðvikudag verður
minningarathöfn um sér Þor-
vald austur í Holtí og verður far-
ið þangað frá Ferðaskrifstofu
ríkisins kl. 1.30 á miðvikudag
og komið aftur að kvöldi. Þátt-
takendur eru beðnir að panta
far tímanlega.
Séra Þorvaldur Böðvarsson
var prestur að Breiðabóistað í
Fljóthlíð 1783—88, forstöðumað-
ur eða skólastjóri barnaskólans
að Hausastöðum 1792—1804,
prestur að Rejmivöllum 1804—
1810, að Holti í Önundarfirði
1810—21, að Melum 1821—''26, að
Holti undir Eyjafjöllum 1827—
’36.
Af honum er mikil ætt komin.
AðaJfundur Skógræktarfélags Suðurnesja
Skógrækt hafin norðan Þorbjörns
Aöalfundur Skógræktarfélags Suöuraesja var haldinn
í Barnaskóla Keflavíkur miövikudaginn 14. þ.m.
Þar mættu í fyrsta sinn full- trjáplöntur á þessu félags-
trúar tveggja nýrra félaga,
þau: Halldóra Thorlacius og
Gísli Guðmundsson frá Skóg-
ræktarfélagi Miðnesinga, og
Svavar Árnason frá Skógrækt-
arfélagi Grindavíkur. Það fé-
lag hefur nú sett upp stærstu
skógræktargirðingu á Suður-
nesjum, norðan Þorbjarnar, og
ráðgerir að gróðursetja þar í
vor 5000 plöntur, en alls er
ráðgert að gróðursetja 11000
svæði,
Grasfræssáning hefur farið
fram í girðingunum með góð-
um árangri og er unnið að því,
að græða þar upp öll flög jafn-
hliða trjáræktinni.
Allt til þessa hafa störf öll
verið unnin án endurgjalds, og
hefur eignaaukning félagsins
vaxið hröðum skrefum.
Stjórnin var öll endurkjörin,
Framhald á 6. síðu
Þessa fallegu mynd af Stapagatinu tók Guðmundur Egilsson
í hvítasuniuiferð ÆFR í fjrra, þegar gengið var á SnæfeUs-
jökul. Nú á hvítasunnunni fer ÆFR austur að líirkjubæjar-
klaustri. — Er mjög nauðsynlegt að þátttakendur tiUíynni
þátttöku sína fyrir föstudagskvöld á skrifstofu ÆFR milli kl.
6—7 í síma 17513 eða á aígreiðslu Þjóðviljans í sima 17500.
í berhögg við gefin loforð ríkis-
stjórnarinnar og stefnu siðasta
Alþýðusambandsþings um það,
að halda dýrtíðinni L skefjum,
tryggja lifskjör almennings, auka
kaupmátt launanna og ieysa
efnahagsmálin á kostnað þeirra
sem mest hafa fjárráðin.
Fyrir því skorar fundurinn á
Alþingi að feila frumvarpið og
hverfa að þeim úrlausnum á
efnahagsmáiunum, sem eru i
samræmi við yfirlýsta stefnu
stjórnarinnar og verkalýðssam-
takanna.“
Flutningsmenn voru Stefán
Ögmundsson og Jóhannes Sig-
urðsson. Nánar verður sagt frá
aðalfuridinum síðar.“ ° -—
Harður bifreiða-
árekstur á
Vesturgötunni
Um kl. 2 e. h. á sunnudaginn
varð harður bifreiðaárekstur á
mótum Vesturgötu og Ægisgötu.
Rákust þar saman strætisvagn,
er kom eftir Vesturgötunni og
varnarliðsbifreið, er kom eftir
Ægisgötu. Var áreksturinn svo
harður, að bifreiðamar báðar
köstuðust á húsið Vesturgötu 28
og ollu þar nokkrum skemmd-
um á því, auk þess sem þær
stórskemmdust báðar.
Alvarleg slys munu ekki haia
orðið á mönnum, en þó meidd-
ist einn farþeganna i strætis-
vagninum nokkuð og var fluttur
á slysavarðstofuna. Var talið, að
hann hefði rifbrotnað. Báðir bif-
reiðarstjórarnir meiddust ein
ig lítils háttar.
Strengja-
kvartett Björns
Ölafssonar
ásamt Agli Jónssyni klarinett-
leikara, halda tónleika fyrir
styrktarfélaga Tónlistarfélags-
ins, annað kvöld og á föstu-
dagskvöld kl. 7 í Austurbæjar-
biói.
í kvartettinum eru auk
Björns Ólafssonar þeir, Jón
Sen, Jósef Felzmann og Einar
Vigfússon.
Á efnisskránni eru tveir
kvartettar eftir Beethoven, op.
18, nr. 2 og op. 59, nr. 1.
Auk þess verður leikinn klart-
nettukvintett eftir Mozart.
Kvartett Björns Ólafssonar
hefur starfað í mörg ár og kom-
ið oft opinberlega fram við
ýmis tækifæri, en leikur nú i
fyrsta sinn fyrir etyrktarfélaga
Tónlietarfélagsins.
Egill Jónsson er mörgtmi
kunnur fyrir klarinettleik sinr..
Hann er fyrsti klarinettleikari í
Sinfóníuhljómsveit íslands.
Auglýsið
í Þjóðviljaniun