Þjóðviljinn - 20.05.1958, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 20.05.1958, Blaðsíða 12
De Ganlle lýsir ylir fnlln s 1 • r 7 E.’ 1 r| ^ & |.# _f ; sV-A' i. •* I. . ,»J J 11 ti '^■**/j* t7L~’7. | Ja. uppre 15 o ¥• i i,\ ... u @ nor Hijðst enn til að taha rið völdmm esi shýrir ehhi afsiöðu sína3 frönsh rerhalýðsh reyfin g segir félögum sínum að rera á rerði Charles de Gaulle hershöíðingi lýsti í gær yfir því að hann væri fyllilega samþykkur framferði frönsku herforingjanna í Alsír sem risið hafa upp gegn stjórnarvöldunum í París. Hann ítrekaði enn að hann væri fús að taka við völdum í Frakklandi og gaf í skyn að hann einn gæti ákveðið með hvaða hætti það yrði. :. Þessar yfiriýsingar hershöfðingjans hafa enn aukið á óvissuna í Frakkiandi og hættuna á því að í odda skerist milli einræðisafianna og lýðveldis- sinna. Frönsk verkalýðshreyfing hefur hvatt alla félaaa sína að vera á verði. Jarques Soustelle, leiðtogi gaullista og fyrrverandi landstjóri í Alsír, slapp ár stofufangelsi í Parjs á laugardaginn og tókst að komast til Ai geirsborgar þar sem honum var fagnað sem sér- legiun sendimanni de GaulJe. Myndim er tekm af konum (í miðju) \ið komuna þangað. Til liægri á myndinni er Massu hersliöfðngi, formaður ,,velferðarnefndarinnar“ í Algeirsborg og höfuðforsprakki uppreisnannaniia. Frakkar enn á barmi bræðra- viga ©g Yfirlýsingar de Gaulle liershöfðingja á fundi með blaðamönnum, sem skýrt er frá annars staöar hér á síð- unni, hafa síöur en svo oröið til að draga úr hættunni á aö til borgarastyrjaldar komi í Pi-akklandi. Eindreg- inn stuöningur hans við uppreisnarmenn annars vegar, hins vegar óljós og' loöin svör viö spurningum um hvaö hann í rauninni hafi í hyggju, hafa þvert á móti aukiö líkur á aö í odda skerist. Fundur de Gaulle með blaða-1 mönnum sem boðaður SSýafBi verið á laugardaginn hófst kl. 3' í gær í móttökusal Hotel Palais d’Orsay á vinstri bakka Signu, gegnt Tuileries-garðin- um. Þar biðu hans 5—600 frétta- anenn, en fjölmennt vopnað lögreglulið hafði lokað öllum göfum sem að byggingunni liggja. Öll umferð var stöðvuð og aðeins fótgangandi fólk með sérstök vegabréf fékk að komast gegnum lögreglugirð- ingarnar. Þúsundir annarra lögreglumanna voru í bifreið- ium sem stóðu í hliðargötum þar í grenndinni. t)e Gaulle kom til Parísar frá bústað sínum í þorpinu Colombey les deux Eglises í austurhluta Frakklands, sem öryggislögregla ihefur staðið á Verði um síðustu sólarhring- ana. Um 100 blaðamenn fögn- uðu honum þegar hann kom á éfangiastað. Hann bar ekki einkennisbúnig sinn. „Ég get orðið að gagni“ Fundur hans með frétta- anönnum hófst með þvi að hann gerði stutta grein fyrir afstöðu sinni. Hann sagði að íhann hefði rofið þriggja ára þÖgn aðeins vegna þess hve ískyggilegt ástandið væri. At- burðirnir í Norður-Afríku gætu teitt af sér hin ógurleg- Ustu vandkvæði fyrir þjóðina, en þeir gætu einnig orðið upp- Ihaf nýrrar endurreisnar. Hann gæti nú enn einu sinni orðið þjóð sinni að gagni, vegna þesss að hún hefði ekki gleymt því sem áður hefði gerzt og vegna þess að sýnilegt væri að stjórnmálaflokkunum væri um megn að leysa þau vandamál, sem þjóðin yrði nú að glíma við. — ®g ,get orðið að gagni, sagði liann, af því að ég er engum háður, hef engin sam- tök að baki mér. Hann lagði áherzlu á að ihann hefð; ekki í hyggju að taka sér neitt einræðisvald eða svipta. Frakka lýðréttindum. — Hverjum dettur í hug að ég vilji verða einræðisherra, 67 ára gamall, sagði hann, og bætti við að allur æviferill hans, öll afskipti hans af op- inberum málum sýndu að hann kærði sig ekki um slíkt vald. Hann hefði bjargað lýðveldinu í styrjöldinni, hann hefði end- urreist lýðveldið og látið kjörna fulltrúa þjóðarinnar fá fullt frelsi. —- En {æir hafa koinið öllum inálum Frakk- lands, bæði heima og erlendis, í Mnar verstu ógöngur, sagði haim, og bætti við; — Það er staðreynd að stjórn stjónunálaflokkanna hefur ekki leyst, leysir ekki og inun aldrei leysa þau gífurlegu vandamál sem við stöndum framnri fyrir, einkum vanda- mál tengsla Frakkiands við þjóðir Afríku, Að lokinni þessari . yfirlýs- ingu var de Gaulle spurður hvað hann ætti við þegar hami segðist vera reiðubúinn að taka við' vÖldum lýðveldisins. Hann sagði að öllum ætti að vera það ljóst: Hann mvndi ekki ■ka sér Öimur völd en þau sem lýðveldið sjálft myndi fela honum. Fréttamenn voru ekki ánægðir með þetta svar sem þeir töldu loðið, en de Gaulle fékkst ekki til að skýra nán- ar afstöðu; sína. Hins vegar tók hann að lýsa því hvernig hann hefði lialdið Ely hershöfðingi, formaður franska herforing'jaráðsins, sem sagt hefur af sér starfi. á málum þegar hann veitti for- ystu frönsku ríkisstjórninni eftir frelsun Parísar 1944. Það væri Ijóet af störfum hans þá, sagði hann, að þau hefðu verið mótuð af frjálslyndi í fé- lagsmálum. Hann hefði veitt konum kosningarétt, hann hefði gengizt fyrir þjóðnýtingu á námum, bönkum, fyrir fjöl- skyldubótum sem átt hefðu þátt í vaxanái mannfjölgun, fyrir Framhald á 5. síðu. Verkalýðsflokkamir hafa ein- : dregið fordæmt yfirlýsingu de GauUes. Kommúnistar segja að hann sé höfuðpaurinn í samsæri gegn lýðveldinu. Blað þeirra l’Hunranité skoraði í gær á verkamenn, lýðræðissinna og lýðveldissinna að vera á verði og reiðubúnir til hvers konar að- gerða. Franska þingid kemur sanian á fund í dag. Telja má liklegt að þar muni koma til átaka, Ráðuneytisfundur verður hald- inn fyrir þingfundinii. Framkvæmdanefnd sósíai- demókrata lýsti yfir eftir blaða- mannafund de Gaulle að hann hefði brotið gegn stjórnarskránni með því að fara fram á að hon- um yrði falin völd eí'tir sérstök- um leiðum sem hann sjálfur ætti að ákveða. Flokkurinn lýsir yíir trausti sínu á að stjórhinni muni takast að viðhalda einingu þjóð- arinnar. Öll þrjú verkalýðssambönd Frakklands, iUþýðusam bandið sem kom'núnístar ráða, og sam- hönd sásíald“iiiákra.ta og kaþ- ctskra. hafá hvatt iéiaga sína til að Vera á verði. Lýst var yfir verkföllum i gær meðan de Slökkviliðinu var tilkynnt um eldinn laust fyrir klukkan 10 og þegar það kom á vettvang var mikiil eldur -í kjallara húss- ins, sem er tveggja hæða timb- urhús nr. 53B við Laugaveg, og stóðu logatungur út um glugga. Eldurinn virtist magn- aðastur í gangi í kjallaran- um, en aldraður maður og öldr- Gaulle liélt fund sinn og stöðv- uðust m. a. allar neðanjarðar- lestir í París. En samtimis því sem verka- lýðsflokkamir og aðrir lýðveld- issinnar fordæma yfirlýsingar de Gaulle hafa þær vakið mikinn fögnuð hjá uppreisnarmönnum í Alsir og fylgismönnum hershöfð- ingjans í Frakklandi. Miklir útifundir voru haldnir í flestum borgum Alsír í gær. Jaeques Soustelle, einkavinur de ■Gauile, sem kom til Algeirsborg- ar á laugardag' hefur talað á uð kona bjuggu hvort í sí.nu herbergi í kjallaranum. Maður- inn, Þorbergur Skúlason, var heima er eldurinn kviknaði og hlaut hann allmikil brunasár á höndum og í andliti, er hann' brauzt út úr húsinu. Hann var fluttur í Landakotsspitalann þar sem gert var að sárum hans. Siökkviliðinu tókst greiðlega að slökkva eldinn og komst hann ekki upp á hæðirnar ofan við kjallarann. Skemmdir urðu mjög miklar í kjallara og nokkrar af reyk á hæðunum. —- Ókunnugt er um eldsupptök. mðomumN Þriðjudagur 20. maí 1958 — 23. árgangur — 112. tölublað. Framhald á 8. síðu. Eídsvoði í gœrkvöid - aldrað- ur maður hlauí brunasár í -gærkvöldi hlaut aldraður maður allmikil brunasár, er krtknaði í gömlu timburhúsi við Laugaveginn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.