Þjóðviljinn - 31.08.1958, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 31.08.1958, Qupperneq 12
Mmmjnm Sunnu;íigur 31. ágúst 1958 — 23. árgangur — 195. tölublað Friðrik í 3. sæti með 9 vinninga eftir 14 umferðir Að loknum 14 umferðum á skákmótinu í Portoros er Petrosjan efstur með 10 vinninga, Tal hefur 9y2 vinn- ing og Friðrik Ólafsson er í þriðja sæti með 9 vinninga. Eftir að Þór hafði tekið hrezka togarann Lord Plender í landhelgi hélt hann aftur úr höfn, að þessu sinni til þess að verja 12 mílna fiskveiðalandhelgi íslendinga fyrir erlendum þjófum. Þegar haldið var úr höfn stóð hluti áhafnarinn- ar frammi í stafni, eins og sést á myndinni. Öll ís- lenzka þjóðin óskar sjó- mönnum á strandgœzlu- skipunum allra heilla í hin- um vandasömu og dbyrgð- armiklu störfum sem bíða þeirra. &£■■ v-'fy :■ ■'■: ■■’ . . Svíar virða landhelgina í Reuters-frétt frá Stokk- hólmi í gær var skýrt frá því að sænski tundurdufla- slæðarinn Havnö, sem er til aðstoðar og eftirlits á íslandsmiðum, hafi fengið fyrirskipanir um að vara sænska fiskimenn við því að fara inn fyrir 12 mílna fiskveiðalandhelgina eftir 1. september. Siþpstjóranum á Havnö hefur verið fal- ið að vara sænska togara á svæðinu miili gömlu og nýju fiskveiðimarkanna við því að þeir kunni að verða teknir af íslenzkum eftirlitsskipum, og að far- ið verði með þá til hafnar og þeir sektaðir. Þá var honum falið að minna sænska togara á, að árum saman hafi Svíar einkum stundað veiðar utan hinna nýju fiskveiðitakmarka. Staðan eftir 14. umferð er 19. Rossetto 312 v. þessi; 20. de Greifí 2 v. 1. Petrosja,n 1!) V. 21. Fuster 2 v. 2. Tal 91/2 V. 15. urnferð mun hafa verið 3. Friðrik 9 V. tefld í gær. Tefldi Friirik Ólafs- 4,— 7. Averbach 8 V. son bá við' Arecntínumanninn Benkö 8 V. Sanguinetti 0" haíði hvítt, Petr- Matanpvic 8 V. osjan átti í höggi við Averbach Pachmann 8 V. og Tal tefldi við Bent Larsen. 8— 9. Gligoric 8 V. Engar fréttir höfðu borizt um Panno 8 V. úrslit er blaðið fór í prentun, í 10.—11. Bronstein 7V2 V. 16. umferð teflir Friðrik með Szabo 7% V. svörtu gegn Panno, í 17. um- 12. Fischer (1 bið) 6V2 V. ferð situr hann hjá, í 18. umferð 13. Filip 6 V2 V. hefur hann hvítt gegn Tal, í 19. 14. Larsen 6 V. umferð svart gegn Petrosjan, í 15. Neikirk 6 V. 20. umferð hvítt gegn Sherwin 16. Sherwin (1 bið) 5 >/2 V. og í 21. umferð, siðustu umferð 17. Sanguinetti 5 V2 V. mótsins, teflir hann gegn de 18. Cardoso 4 V. Greiff og hefur svart. Fiskveiðilandhelgin 12 mílur Framhald af 1. siðu. útkljáð á morgun eða næstu daga. En þetta er mikill mis- skilningur; Islendingar eru búnir undir þrautseiga bar- áttu til að tryggja rétt sinn að fullu. Allir vita að brezka heimsveldið getur beitt of- beldi á íslandsmiðum, ef ráðamönnum þess sýnist svo, en landhelgismálið verður ekki útkljáð með neinum slíkum „sigrum“ næstu daga eða vikur. Brezkur ódreng- skapur og ofbeldi mun aðeins fullkomna þann ásetning ís- lendinga að víkja aldrei frá rétti sínum og þeim lögum sem sett hafa verið; og ís- -<s> Danir ættu að veita íslenzku bræðra|)ióðinni fullan stuðning Gegir 1 orðsendingu þingflokks danska kommúnista til dönsku stjórnarinnar Á fimmtudaginn var afhenti Aksel Larsen fyrir hönd þingflokks danska Kommúnistaflokksins, dönsku ríkis- stjórninni orðsendingu, vegna deilna um fiskveiðilög- sögu á norðanverðu Atlanzhafi og afstöðu dönsku stjórn- arinnar til þeirra. í orðsendingunni se?ir að eng- ínn vafi sé ó þvi að Islending- ar byggi afstöðu sína í öilu á þjóðarrétti, er þeir stækka landhelgj sína i 12 mílur. Fisk- veiðarnar eru svo mikilvægar fyrir íslendinga, að efnahagur þjóðarinnar er í stórhættu, ef erlendir togarar halda áfrarn Framhald á 10. síðu. Málverkasýning Hafsteins Austmanns opnuð í fyrradag Ungur listmálari, Hafsteinn Austmann, opnaði í fyrra- kvöld málverkasýningu í Listmannaskálanum. Er þetta önnur sjálfstæða sýning listamannsins. lenzka þjóðin hefur áður sýnt að hún á til þrautseigju og festu og fulikomið virðingar- leysi fyrir ofurefli og valdi. Bretar liaí'a þegar við- urkennt að þeir geti ekki stundað neinar raunveru- legar veiðar innan 12 mílna eftir miðnætti í nótt. Fari togarar jnn fyrir mörkin undir herskipa- vernd verður aðeins um valdsýningu að ræða, kostnaðarsama og gagns- lausa, og jafnt brezkir togarar sem brezk stjórn- arvöld munu fljótlega þreytast á svo fávíslegri iðju. Einhuga þjóS. Islendingar hafa að undan- förnu deilt um ýms fram- kvæmdaratriði í; sambandi við . landhelgismálið; það er ■engin nýlunda, þannig var einnig deilt áður en lýðveldi var endurreist á Islandi. En um sjálfan kjarna málsins, sjálfa stækkunina, er öll þjóð- in sammála, jafn einhuga og er bún birti öllum heimi vilja sinn í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni um stofnun lýðveldis. Þannig munu Islendingar standa sameinaðir, með einn vilja, þar til alger sigur er unninn og engri þjóð dettur í hug að ásælast þann hluta islenzka ríkisins sem nú er verið að endurheimta. A sýningunni erú rúmlega 50 myndir, olíumálverk og vatns- litamyndir, og eru allar málað- ar á sl. tveim árum. Eins og áður var sagt, er þetta önnur sjálfstæða mál- verkasýning Hafsteins Aust- manns, þá fyrri hélt hann í júlí 1956, einnig í Listamannaskál- anum. Hann hefur og tekið þátt í nokkrum samsýningum, m.a. samsýningu Félags íslenzkra myndlistarmanna árið 1955 og einnig síðustu sýningu félags- ins. Hafsteinn Austmann stundaði fyrst nám í myndlistarskóla frístundamálara, síðan um tveggja ára skeið, 1953 og 1954, í Handíða- og myndlistarskólan- um, en 1954—55 var hann við framhaldsnám i Frakklandi. Þess má geta, að Listasafn rík- isins hefur keypt tvær myndir eftir hann. Sýning Ilafsteins Austmanns í Listamannaskólanum var opn- uð boðsgestum í fyrrakvöld og kl. i síðdegis í gær var hún^, opnuð almenningi. Síðan verður sýningin opin daglega til 7. september n.k., á virkum dögum kl 1—11 síðdegis, en á sunnudög- um einnig árdegis kl. 10—12. Glæsilegt félags- heimili vígt í gær I gær fór fram vígsla nýs félagsheimilis er Múrarafélag Reykjavíkur og Félag íslenzkra rafvirkja hafa reist að Freyju- götu 27. Fór vígsluathöfnin fram í tvennu lagi; fyrst sátu ýmsir forráðamenn félaganna og þeir sem unnu að bygg- ingunni kaffisamsæti, þar sem mörg stutt ávörp og árnaðar- óskir voru fluttar. Síðar komu aðrir félagsmenn saman til að fagna þessum merka áfanga í starfsemi félaganna. Húsið Freyjugata 27 er glæsilegt hús og salarkynni hin vistlegustu. Nánari frásögn af vígsluhátíðinni verður að bíða þriðjudagsblaðsins. Hafsteinn Austmann

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.