Þjóðviljinn - 16.09.1958, Qupperneq 1
'★----★-----★
1
íslemki fáninn
skartar á reykháf
ásigling'arfantsins
Sjá 5. síðu.
—★-------★-----★-----
Dagsbrún boðar vinnustöðvun frá 23. sept.
Einróma samþykkt f j ölmenns Dagsbrúnarf undar á sunnudaginn
Síðastliðinn sunnudag hélt Verkamannaíélagið
Dagsbrún fjölmennan fund í Iðnó. Þar var einróma
samþykkt tillaga stjórnarinnar um að trúnaðar-
mannaráð félagsins boði atvinnurekendum vinnu-
stöðvun til að knýja fram kröfur félagsins þar sem
samningar hafa ekki tekizt.
Einnig samþykkti fundurinn þar sem samn-
ingar hafa ekki tekizt án þess að vinnutöðvun væri
boðuð að hækka kaupkröfur félagsins úr 9% í
grunnkaupshækkun í 12%.
Samkvæmt þessari einróma ákvöröun hefur trúnaðar-
mannaráð félagsins samþykkt að boða atvinnurekendum
vinnustöðvun frá og með 23. þ. m. hafi samningar ekki
tekizt fyrir þann tíma.
Framsögumaður á fundinum
var Eðvarð Sigurðsson ritari
Dagsbrúnar, flutti hann
skýrslu um gang málsins.
Samningar Dagsbrúnar hafa
verið lausir frá 1. júní, en í
byrjun júlí hófust viðræður
milli Dagsbrúnar og Vinnu-
veitendasambands Islands og
var þeim haldið áfram til 6.
ágúst að málið var fengið í
hendur sáttasemjara, er hefur
síðan haft það með höndum.
Atvinnurekendur neituðu
öllum lagfæringum
Kaupknöfur Dagsbrúnar 1.
ágúst voru 9% hækkun á
grunnkaupi. Atvinnurekendur
gerðu litlu síðar formlegt til-
boð um 6% grunnkaupshækk-
Bretar mótmæla
12 mðum við Kina
Brezka ríkisstjómin sendi kín-
versku stjórninni í gær mót-
mælaorðsendingu vegna útfærslu
kínversku landhelginnar í 12
sjómílur. Þar segir að Bretar
áskilji sér rétt til siglinga utan
Þi'ig'g'ja mílna frá kínversku
ströndinni. Bretar viðurkenni
ekki stærri landhelgi en þrjár
sjómílur, nema við Noregs-
strendur.
un, en neituðu öllum öðrum
kröfum félagsins til lagfæring-
ar á samningum, að undan-
skilinni lítilfjörlegri lagfæringu
á kaupi mánaðarkaupemanna.
Þessu hafnaði Dagsbrún. At-
vinnurekendur töldu þetta nán-
ast úrslitaboð, en vildu jafn-
framt vísa málinu til sátta-
semjara, og varð það að sam-
komulagi. Sáttasemjari hefur
síðan haldið nokkra árangurs-
lausa fundi með deiluaðilum.
og hafa atvinnurekendur á
þeim fundum ekki viljað slaka
til um eitt einasta atriði.
Kaup verkamattna er of lágt
Næst kom Eðvarð að því
hvers vegna Dagsbrún gekk
ekki að tilboði atvinnurekenda
um 6% grunnkaupshækkun, en
í upphafi hafði hann rifjað upp
þær kröfur er félagið hefur
sett fram.
Meginástæðan er sú að kaup
verkamanna er of lágt, og
benti Eðvarð í því sambandi
á þróun verðlagsmálanna.
verðhækkanir sem orðið hafa á
öllum hlutum, og fulltrúar
Dagsbrúnar hafa áður sagt fé-
lagsmönnum að verða myndu.
Ranglætið eykst
Eðvarð benti á að þau 6%
sem atvinnurekendur nú bjóða
verkamönnum jafngilda 65
aura hækkun á grunnkaupi, en
að atvinnurekendur hafa samið
lCínversk alþýða fordæmir
aðferðir Breta við Island
Peking, 12. september 1958 (Hsinhua).—
Fulltrúarráð verkalýðsíélaganna í Peking
heíur sent Albýðusambandi íslands eítiríar-
andi skeyti:
Aí hálfu alþýðunnar í Peking látum vér
í ljós eindregna fordæmingu á sjóræningja-
■ aðgerðum brezku ríkisstjórnarinnar í land-
helgi íslands. Vér tjáum samúð vora og
stuðning í baráttu yðar að vemdun fullveld-
' is og sjálfstæðis, fullvissir bess að þér mun-
- i - ið sigra. ,
við önnur félög um frá 74ra
aura grunnkaupshækkun á klsL
uppí kr. 1.14 á klst.
6% grunnkaupshækkun á
kaup Dagsbrúnarmanna er vit-
anlega allt annað en 6% á
kaup hálaunamanna og að
bjóða þeim hækkun um jafn-
mörg prósent er einungis til
þess að auka ranglætið.
Óh jákvæmi legar
lagfæringar
I öðru lagi henti hann á að
samningar Dagshrúnar eru nú
orðnir rösklega tveggja ára
gamlir og á þeim tínia hafa
eðlilega komið í ljós ýmis at-
riði sem sjálfsagt væri að lag-
færa, og félagið hefur nú gert
kröfur um, en atvinnurekendur
þvertekið fyrir allar lagfæring-
ar, að undanskildu því sem áð-
ur segir um mánaðarkaups-
menn.
Krafan um 1%
Sérstaklega ræddi Eðvarð þá
kröfu félagsins að greitt verði
Framhald á 2. síðu.
Seldu fyrir
4-0000 fiund
Samkvæmt útvarpsfregii-
um í gærkvöld liafa brev.k-
ir togarar sem stundað
hafa veiði í íslenzkri land-
helgi selt afla sinn síð-
ustu daga í Hull og Grinis-
by fyrir 4—6.000 sterlíngs-
pund.
Nefnd Afríkuríkjanna ásamt ráðherrunum Hannibal Valdimarssynl, Gylfa Þ. Gísla-*
syni og Eysteini Jónssyni. þ
heimfar freiss, réftiæti, frið
Sendmefnd 8 sjálfstœðra Afrlkurlk}a
rœSir viS rikissi}órn íslands um AlslrmáliS
Þrjár sendinefndir frá átta sjálfstæðum Afríkuríkjum
eru nú á ferðalagi um heiminn til aö kynna ríkisstjórn-
um viöhorf Afríkubúa til Alsírmálsins. Ein þeirra er
stödd hér á landi.
| Afrika er vöknuö. Afríka heimtar sjálfstæöi, frelsi,
■ réttlæti og frið, sagöi Abderrahman Abdelali, sendiherra
Marokkó í London í vi'ötali viö' blaðamenn hér í gær.
Á ráðstefnu 8 sjálfstæðra Af-
ríkuríkja, sem haldin var í
Accra í apríl s.l. var samþykkt
að þau sendu nefndir til að
ræða við ýmis þátttökuriki
Sameinuðu þjóðanna um Aisír-
málið og skýra fyrir þeim kröf-
ur Alsírbúa til frelsis og sjálf-
stæðis. Er þetta f fyrsta skipti
sem sjálfstæð Afrikuríki senda
slíkar nefndir út um heiminn.
Þrjár slíkar nefndir eru nú að
starfi, ein í Suður-Ameríku, ein
-hjá Mið-Ameríkuríkjunum og
eitl í Evrópu. Nefnd sú hefur
verið í Englandi, Skotlandi og
á Norðurlöndum og er nú kom-
it^ hingað og hefur rætt við ís-
lenzku rikisstjórnina um Als.V-
málið, sem verður á dagskrá á
þingi Sameinuðu þjóðanna.
Nefndina hér skipa Abderrah-
man Abdélali, sendiherra Mar-
okkó í London. Wiliiam M. Q.
Halm, ambassador Gahna í
ísrael og Hassan Muhameð El-
Amin sendiráðunautur og
blaðafulltrúi hjá sendiráði Súd-
an í London. Með þeim er einn-
ig ritari nefndarinnar.
Afríka er vöknuð ;■
Afríka er vöknuð" sögðii
þeir. Evrópumenn tala um lýð-
ræði, sjálfstæði, frið og frelsi..
Alit sem við förum fram á er
að þetta verði einnig látið ná
til Afríku, að Afri.kumenn fáí
að njóta þessa.
Síðan Evrópumenn réðu það
loks við sig að líta á Afríku-;
búa eins og menn hefur a’.lt \
gengið vel hjá okkitr. Átta ríkl'
í Afríku hafa. nú fengið sjálf-
stæði og við höfum sýnt að við
komumst af án afskipta Ev-
rópumanna. í öllum þessurn
löndum voru óeirðir meðan þau
voru nýiendur, en eftir að þær
hlutu sjálfstæði hafa óeirðir
lagzt niður — og Frökkum í
þessum löndum liður nú betur
og þeir eru ánægðari með lífiCt
Framhald á 11. síðu.