Þjóðviljinn - 16.09.1958, Side 3
þriðjudagur 16. september 1958 — ÞJÓÐVILJINN (3
Þetta eru sovétlistamenuirnir. — myndin teldn í viðtali í gænnorgun. — (Ljósm. Sig. Guðm.).
Fjölbreyttasti hópur sovézkra listamanna
heldtir fyrstu skemmtusi sína
í Þjóðleikhúsinu — Flytur klassiska tónlist og þjóðlega
Listamannanefnd frá Sovétríkjunum kom hingað til
lands í fyrrakvöld. Þetta er fjölbreyttasta tónlistar-
mannanefnd er hingaö hefur komiö, en í nefndinni ei'u
snjallir túlkendur bæöi klassiskrar og þjóölegrar tón-
listar.
Fyrsta skemmtun listamannanna hér verður í ÞjóÖ-
leikhúsinu í kvöld.
Listamannanefndin er hingað
komin á vegum MÍR og mun
halda skemmtanir á vegum
MÍR-deildanna á Siglufirði, Ak-
ureyri, Neskaupstað, Eskifirði,
Vestmannaeyjum, Akranesi og
sennilega einnig á fsafirði.
Þetta er sem fyrr segir fjöl-
breyttasta listamannanefndin
er komið hefur frá Sovétríkj-
unum. Auk baritonsöngvara,
flúrsóprans, fiðluleikara og
pianóleikara eru balalaikuleik-
ari, bandúrutríó og harmoniku-
leikari, en það eru þjóðleg
rússnesk hljóðfæri.
LLstafólkið er frá ýmsum
lýðveldum Sovétríkjanna, 5 eru
frá Ukrainu, einn frá Georgíu,
einn frá Arkangelsk, 1 frá
Riga og nokkrir frá Rússlandi.
Listamennirnir ræddu við
blaðaménn í gærmorgun. For-
maður nefndarinnar, harmon-
ikuleikarinn Kazakov kvað til-
gang komunnar að kynna sov-
éttónlist og efla gagnkvæm
kvnni og vináttu Sovétríkjanna
og Islendinga. Minnti hann á
að þetta væri ekki í fyrsta
sinn að sovétlistamenn heim-
sæktu ísland, og hefði hann
6jálfur rétt áður en hann fór
verið með einum þeirra lista-
manna er hingað hefðu farið
áður. Bæru þeir landi og þjóð
vel söguna og hefðu sannfærzt.
um að þó þetta væri land ísa,
þá væri það einnig land hjarta-
hlýrrar þjóðar. Ivvað hann
listamennina vonast til að kynn-
ast ekki aðeins áheyrendum,
heldur einnig fegurð landsins.
Sérstaklega kvað hann þá óska
að kynnast islenzkum tónlist-
ármönnum og ísl. tónlistarlífi,
verkámönnum og bændum og
öðru vinnandí fólki á fslandi.
I nefndinni eru þessir lista-
menn; Júri Kazakov, formaður
nefndarinnar, hann leikur m.a.
verk Backs á harmoniku, hefur
leikið í mörgum Vestur-Evrópu-
löndum og hvarvetna fengið
hina vinsamlegustu dóma.
Grigorij Neeterov bariton-
söngvari, Veronika Pílone flúr-
sópran, Alexander Igkarev
pianóleikari, Míkhail Bank
undirleikari, Evgenij Blínov
balalaikuleikari, Abram Os-
troníetskí simbalóleikari og
þær Nína Pavlenkó, Tamara
Pólístsúk og Vanentína Trétja-
kova, en þær leika saman á
bandúru. — í Þjóðviljanum í
fyrradag voru listamenn þessir
kynntir í ýtarlegri grein og því
ekki ástæða til að endurtaka
það hér.
Allir þessir listamenn hafa
unnið verðlaun fyrir list sína,
Listamennirnir halda fyrstu
skemmtun sína í Þjóðleikhúsinu
annað kvöld, þá næstu á miðv,-
dagskvöld en síðan halda þeir
norðxir og ferðast um landið en
koma svo aftur til bæjarins og
1. okt. verða þeir á MÍR-
skemmtun á Hótel Borg. Ráð-
gert er að þeir dvelji hér á
landi 3—4 vikur.
Óperan „Carmen" tekin til |
tónleikoflutnings að nýju
Flytjendur nú ílestir þeir sömu og á tón-
leikum Siníóníuhljómsveitarinnar í vor
Sinfóníuhljómsveit íslands heldur tónleika í Austur-
bæjarbíói n. k. fimmtudagskvöld og hefjast þeir kl. 9.15.
Flutt veröur óperan Carmen eftir Bizet og er Wilhelm
Brúckner-Ruggeberg frá Hamborg stjórnandi.
Eins og mörgum mun enn
í fersku minni, flutti Sinfón-
íuhljómsveitin óperu þessa á
sex tónleikum í Austurbæjar-
bíói sl. vor. Flutningurinn þótti
afbragðs góður, ■enda var að-
sólkn að tónleikunum gífurleg,
húsið jafnan troðfullt og urðu
þó mjög margir frá að hverfa.
Vegna þessarar miklu aðsókn-
ar var ákveðið að taka óperuna
aftur til flutnings á tónleikum
í haust og samið um það við
gestina sem hlut áttu að máli.
Stjórnandinn verður eins og
áður Wilhelm Briickner-Rúgge-
berg, aðalhljómsveitarstjóri við
Ríkisóperuna- í Hamborg, en
með aðaleinsöngslilutverkin
fara Gloría Lane frá City-
Centre óperunni í New York
og Stefán íslandi. Ludmilla
Schirmer frá Hamborg, eigin-
kona hljómsveitarstjórans, tek-
ur nú við því hlutverki sem
Guðmunda Eliasdóttir söng í
vor, en Guðmunda er stödd
erlendis. Aðrir söngvarar eru:
Alvarlegt slys er bifreið
ekur á mann á reiðhjóli
Á ellefta tímanum í fyrrakvöld varð alvarlegt um-
ferðarslys á Suðurlandsbraut er fólksbifreið ók aftan á
mann á reiðhjóli.
Slysið varð með þeim hætti að
fólksbifreiðin R-10039 var að
koma austur Suðurlandsbraut, á
móts við Herskólakamp, og all-
ýmist á alþjóðavettvangi eða í i mikil umferð á móti. Vissi bíl-
heimalandi sínu. stjórinn ekki fyrri til en hann
T
varmr
Hvers vegna brugðust
laIldsins,, svo gersamlega?
Atriði sem Varnarmáladeild utanríkisráðneytisins
þarí að rannsaka til hlítar
Margir hafa vakið athygli
Þjóðviljans á því hversu ger-
samlega „varnir landsins“
brugðust aðfaranótt s.I. laug-
ardags. Þá gerðust þau tíð-
indi að erlent herskip sigldi
langt inn fyrir hina almennu
landhelgi fslaijds og stöðvað-
ist ekki fyrr en það var hálfa
mílu frá hinni miklu herstöð
Bandaríkjanna, þar sem þaul-
þjálfað lið, búið mikilvirkustu
morðtólum hefur beðið þess
í sjö ár að fá að verja landa-
mæri fslands. En „verndar-
arnir“ vissu ekki neitt! Rad-
arstöðin mikla sem átti að
fylgjast með hverri hreyfingu
innan íslenzkra endimarka,
varð ekki vör við neitt, or-
ustuþotur verndaranna húktu
hreyfingarlausar á flugvellin-
um og einu stríðshljóðin sem
heyrðust voru svefnlæti dát-
anna. Og á sömu stundu
hrundu til grunna allar hinar
áhrifamiklu lýsingar um Is-
land sem hinn mikilvægasta
hlekk i varnarkeðju vest-
rænna þjóða, það reyndist
enginn hlekkur vera; engar
varnir; aðeins auglýsinga-
brella. Hvernig skyldi Bjarna
Benediktssyni nú líka sem
fyrir nokkrum árum sá Rauða
herinn alvopnaðan á hverjum
rússneskum síldardalli sem
nálgaðist ísland; nú veit hann
að hvaða her sem er getur
hvenær sem er komið án þess
að nokkur viti og gert vernd-
urum hans rúmrusk!
Eða er skýringin önnur.
Vissi bandariska herstjórnin
ef til vill fyrir fram um árás-
brezka herskipsins á íslenzka
landhelgi? Eru Bandaríkin á
þann hátt orðin virkur aðili
að hernaðaraðgerðum Breta
hér við land?
Varnarmáladeild utanríkis-
ráðuneytisins ætti að kynna
sér hvernig stóð á því að
„varnir landsins“ brugðust
svo gersamlega aðfaranótt
síðasta laugardags. Báðar
skýringarnar væru jafn lær-
dómsríkar fyrir íslendinga,
hvor á sinn hátt.
Þuriður Pálsdóttir, Ingibjörg
Steingrímsdóttir, Árni Jóns-
son, Guðmundur Jónsson, Jón
Sigurbjörnsson og Kristinn
Hallsson, Einnig syngur Þjóð-
leikhússkói'inn.
Wilhelm Brúckner-R.úgge-
berg hljómsveitarstjóri, lýsti
ánægju sinni í stuttu viðtali
við blaðamenn í gær yfir komu
sinni hingað til lands og fór
viðurkenningarorðum um hæfni
ók aftan á mann á reiðhjóli, með
þeim afleiðingum, að reiðhjólið
kastaðist upp á bílinn og braut
framrúðuna, en maðurinn skall
á götuna og hlaut mikið höfuð-
högg. Var hann fluttur á Slysa-
varðstofuna og þaðan á Landa-
kotsspítala. í gær voru teknar
röntgenmyndir, en ekki er enn
vitað hve mikil eða alvarleg
meiðsljn voru.
í bílnum voru þýzk hjón og
höfðu þau bíiinn að láni. Hafa
þau dvalið hérlendis í nokkur
ár, en voru búin að selja allar
eigur sínar og ætluðu að setjast
að í Ameríku — voru búin að
panta flugfar og ætluðu að
fljúga í gærkvöldi.
Maðurinn á reiðhjólinu heitir
Björn Halldórsson, 38 ára gam-
all, og er til heimilis að Grunda-
vegi 7. Reiðhjól hans var vel
merkt með kattarauga og aur-
bretti málað hvítt að neðan og
full ljós að framan. Þrátt fyrir
það sá bílstjórinn ekki hjólið.
Samkvæmt upplýsingiun er
blaðið fékk seint í gær lijá lækni
á Landakotsspítala þá var Bjöm
búínn að fá rænu og þykir sýnt
að liann er ekki í bráðri lífs-
hættu, en meiðsli lians samtt
alvarleg.
Gloria Lane
íslenzkra tónlistarmanna. Geta
má þess að nýlega eru komnar
á markað nokkrar Columbia-
hljómplötur, þar sem flutt eru
verk eftir þýzka tónskáldið
Kurt Weill undir stjórn
Brúckner-Rúggebergs, Er hér
um að ræða þrjú af þekktustu
tónverkum Weills, m.a. Drei-
grosse iopera með söngkonuna
Lotte Lenya í aðalhlutverkinu.
Pósthús opnað í
Kópavogi í dag
f dag verður opnað pósthús
í nýjum húsakynnum að
Neðstutröð 4 í Kópavogi. Póst-
hús þetta mun annast alla
póstafgreiðslu ásamt afgreiðslu
orlofs- og sparimerkja.
Mynd eftir Ásgrím
geíin listasafninu
I gær var Listasafni ríkisins
afhent gjöf sem er safninu mjög
kærkomin. Myndina gaf Hall-
dór Jónsson frá Eiðum, en það
er „Portraid“ mynd er Ásgrímur
Jónsson málaði af honum 1920
til 1921.
Fordæmir vald-
beitingu Breta
Á fundi hreppsnefndar
ITvammshrepps, Vestur-Skapta.
fellssýslu, 12. september, var
eftirfarandi tillaga samþykkt:
„Hreppsnefnd Hvammshrepps
lýsir fyllsta stuðningi við út-
færslu íslenzku landhelginnar
í 12 sjómílur og þakiiar öllum
þeim, sem nnnið hafa að út-
færslu landhelginnar, bæði fyrr
og nú. Hreppsnefndin fordæm-
id valdbeitingu Breta í íslenzkri
landhelgi o,g skorar á alla fs-
lendinga, að sýna einhug og
festu í landhelgismálinu og
fylg.ja þvi fram til sigurs.
Jafnframt þakkar hún íslenzku
landhelgisgæzlunni einarða en
rólega frainkomu við skyldu-
störf.“