Þjóðviljinn - 30.12.1958, Síða 3

Þjóðviljinn - 30.12.1958, Síða 3
Þriðju lagur 80. desember 1958 — ÞJÓÐVILJINN —■ (3 w Fmmtudaginn 11. des. sl. fór fram skákkeppni milli starfs- manna bifreiðastöðvarinnar Hreyfils og starfsmanna útvarps, pósts og síma. Keppnin var háð í Landssíma- húsinu og var teflt á 23 borðum. Sigruðu Hreyfilsmenn með 14 vinningum gegn 9. /v Iíakarinn í Sevilla eftir Rossini Iiefur nú verið vfpCS 3Í1 sýnd tvisvar í Þjóðleikluisinu \ ið húsfylli og mjög mikia lirifningu áhorfenda, enda ber þeim sem séð hafa saman inn að óperusýningin sé mjö,g vel heppnuð og leikhúsinu og öllum sem |að lienni liafa annið til sóma. Þriðja sýning óperunnar er í kvöld og sú fjórða n. k. íau.gardagskvöld og er uppselt á jiær báðar. Hér á myndinni sjást þrír af aðal- leikendum og söngvurum óperunnar: Guðmundur Guðjónsson í liliitverhi Abnaviva grcifa (til vinstri), Þuríður Pálsdóttir í hlutverki Rósínu og Guðmundur Jónsson sem rakariim og Jiúsimdþja’asiniðurinn Fígaró. Verður stofnað munkaklaust- ur norður í Eyjafirði? Fræðsla í vélgæzlu og matreiSslu Á aðalfundi LÍÚ var þessi samþykkt gerð: ,,Aðalfundur LÍÚ 1958 telur, að taka beri upp fræðslu- í mat- reiðslu fyrir matsveina á fisk- skipaflotanum í hinum stærri verstöðvum landsins. Ennfrefnur beinir fundurinn því til Fiskifélags íslands, að aukin verði kennsla 1 vélgæzlu ,til þess að trygeja flotanum nægilegan fjölda vélfróðra manna. Skorar fundurinn á stjórn LÍÚ að vinna eftir megni að framgángi þessa máls.“ Skák|*ing Reykjavíkur íiefst 26. jan- áar, hraðskákmót T. R. í næstu viku TafLfélag' Reykjavíkur hefur nýlega samið við Breið- firðingaheímilið um afnot af húsnæöi þess og verða skákæfingar, hraðskákmót og Skákþing Reykjavíkur haldin þav í næsta mánuði. Taflæfingar * þátttöku sína til. stjórnarinnar verða í Breiðfirðingaheimilinu á taflæfingum í félaginu. sem hér segir: Sunnudaginn 4. janúar kl. 2 e.h. og alla sunnu- Gjaíabókin í áli daga til 29. marz. Fimmtudag- inn 8. janúar kl. 8 e.h. og alla iin fimmtudaga til 29. marz. 11350811101 11111 Hraðskákmót: Hraðskákmót Taflfélags Rvikur verður að þessu sinni haldið í Breiðfirðingaheimilinu dagana 5. og 7. janúar. Fyrstu verð- laun er fallegur bikar, sem vinnst til eignar. Þátttakendur eru beðnir að láta skrá sig sunnudaginn 4. janúar á æfingu hjá Taflfélagi Reykjavíkur. Skákþing Keykjavíkur hefst þann 26. janúar. Sem fyrr verður teflt: í meistaraflokki, 1. flokki, 2. flokki og unglinga- flokki. Ráðgert er að tvær um- ferðir verði tefldar í viku, auk biðskáka. Væntanlegir þátttak- endur eru beðnir að tilkynna „Verður munkaklaustur stofnsett við Eyjafjörð“. Svo- hljóðandi spurnmgu gat að líta yfir þvera forsíðu blaðsins Dags á Akureyri fyrir þessi jól. Síðan. er skýrt frá því að kaþólska menn á Islandi dreymi um slíka framkvæmd. Hafi þeir m. a. haft augastað á Möðruvöllum í því augna- miði að reisa þar munkaklaust- ur. Ýmsir aðrir staðir þar nyrðra munu ha.fa komið til greina, en núverandi eigandi Möðruralla mun ekki hafa hug á að breyta þeim í klaustur í bráð. Frétt Dags byggist á viðtali við sr. Hákon Loftsson, binn kaþólska prest á Akureyri, sem hefur stærstu kirkjusókn á Is- landi: allt Hólabiskupsdæmi hið forna, — og jafnframt iámennastan söfnuð. Á öllu ís- íandi munu kaþólskir menn ekki vera fleiri en 600-700. Fátt eitt mun nú til þeirra helgu dóma er voru hér í kaþólskum sið, svo niðangurs- lega var að þeim búið á fyrri öldum. En tjaldað er því sem til er og lýsir ritstjóri Dags helgum dómum í kapellu kaþ- ólskra á Akureyri, þeir eru: „......Smá beinflís úr Ólafi helga Noregskonungi, önnur úr Píusi þáfa 10. og enn ein úr Sebastianusi píslarvotti frá Róm ...... Hinir helgu dóm- ar eru festir á litla skifu í forkunnarfögrum um.“ silfurstjök- 1 viðtalinu við sr. Hákon Loftsson kemur það fram, að þótt kaþólskir nyrðra hafi áhuga fyrir munkaklaustri muni það vart verða stofnað í bráð, og segir presturinn að flytja yrði inn munka erlendis frá, ætti að takast að koma á fót klaustri. Matthiasarsafn á Signrhæðum Hús Matthíasar Jochnmssonar á Mureyri gert að minnjasafni um þjóðsháldið Matthíajarfélagið á Akureyri keypti fyrir jólin neðri hæö hússins Sigurhæðir á Akureyri, en í því er fyrir- hugað að koma upp minnjasafni um þjóðskálöið Matt- hías Jochumsson. Þjóðskáldið Matthías Joch- umsson dvaldi síðari hluta æv- innar í húsi því er hann nefndi Sigurhæðir. Fyrir allnokkru stofnuðu nokkrir menn á Akur- eyri félag í því augnamiði að koma upp minjasafni um Matt- hías; eru nú um 120 menn í Matthíasarfélaginu. Fyrsta verulega áfanganum að því marki að koma upp Matthí- asarsafni náði félagið nú fyrir jólin er það festi kaup á neðri hæð hússins Sigurhæðir, en ris- hæðina fær það ekki keypta að sinni. Félagið er að vonum ekki fjársterkt. en Ákureyrarbær mun leggja fram 50 þús. kr. til kaupa á þessu húsi og á fjárlögum eru vejttar 25 þús. kr. í sama skynj. Að sjálfsögðu hyggst. félagið kaupa húsið allt, ef þess er kostur, og þegar neðri hæðin losnar á. næsta vor er ætlunin að færa hana í sama form og hún var á dögum Matthíasar og safna þangað ýmsum munum hans, en þeir munu hafa dreifzt allvíða. Dæmdi mann fyrir smygl gerði sér svo gott af smygllnu! Fyrir skömmu skýrði Þjóð- Viljinn ^rá útbreðslultöð-< inni fyrir hið réttlausa sjón- varp bandaríska hemámsliðs- ins hér á iandi. En það hefur fleira gerzt í sambandi við sjónvarp þetta. Eitt sinn voru lögreglu- menn Keflavíkurflugvallar látnir gera sjónvarpstæki eitt upptækt hjó manni einum, sem mun hafa eignazt það inn á flugvelli. Tæki þetta var flutt til lögreglustöðvar Kefa- víkurflugvallar. Litlu síðar hvarf tækið af lögreglustöð- inni — og vissu fáir hvað af því hafði orðið, aðrir en kunningjar Magnúsar Guð- jónssonar, nú bæjarstjóra á Akureyri, sem þá var full- trúi Björns Ingvarssonar, lög- reglustjóra á Keflavíkurflug- velli. Vjnir Magnúsar þessa er heimsóttu hann gátu notið þeirrar ánægju að horfa í smyglað sjónvarpstæki hjá manni sem þó hafði það að atyinnu að dæma menn fyrir smygl. Þegar Magnús Guðjónsson hætti fulltrúastörfum á Kefla- víkurflugvelli mun Birni Ing- varssyni hafa fundizt það tilheyra verkahring sínum að ákvarða hvað verða skyldi um hið tvísmyglaða sjón- varpstæki. Sjónvarpstækj þessu var nú smyglað í þrjðja sinn og í þetta skjpti heim til Sigurð- ar Sigurðssonar yfirvarð- stjóra í lögregluliði Keflavík- víkurflugvallar. Líklegt verð- ur að telja að lögreglustjóri Keflavikurflugvallar liafi verið í fullum dómarabúnjngi þegar hann kvað upp dóminn yfir tækinu í þriðja sinn, og vonandi hefur yfirvarðstjór- inn líka klæðst fullum skrúða sínum til að vera viss um að tækið yrði ekki tekið af sér þegar hann arkaði með það heim til sín. Það væri fróðlegt að vita hvaða dóm sá fékk er fyrstur smyglaði tækinu — og hvaða dóm almenningur leggur á dómarahæfileika og réttsýni lögreglustjórans á Keflavíkur- flugvelli, Gjafahók Norræna félagsins í ár er fræðslurit um Skán, myndabók með um 100 mynd- um. Er þetta liið eigulegasta og snotrasta rit. Norrænu félögin í Svíþjóð og Danmörku gefa ritið út sameig- inlega, en í ár eru þrjár aldir liðnar frá því að friðarsáttmál- inn í Hróarskeldu var undirrit- aður, en með þeim sáttmála lét Danmörk Skán af hendi við Sví- þjóð. — Bók þessi er send fé- lagsm.Qjmum Norrænu félaganna, en þeir eru nú rösklega 125 þúsund. Margir krossaðir 1 tilefni af vígslu Sements- verksmiðju ríkisins, á s.l. sumri hefur forseti Islands, að tillögu orðunefndar, sæmt þessa menn heiðursmerkjum hinnar ís- lenzku fálkaorðu, fyrir störf þeirra að framkvæmdum máls- sin: Dr. ing. Jón Vestdal, for- mann stjórnar sementsverk- smiðjunnar, riddarakrossi. Framkv.stjóra Helga Þor- steinsson, meðlim í stjórn verk- smiðjunnar, riddarakrossi. Múrarameistara Sjgurð Sím- onarson, Akranesi, fyrrv. með- lim í stjórn verksmiðjunnar, riddarakrossi. Þá hefur forseti Islands að auki sæmt eftirtalda menn heið- ursmerkjum fálkaorðunnar: E’ías Halldórsson, forstjóra fiskveiðasjóðs, riddarakrossi, fyrir störf í þágu sjávarútvegs- ins. Einar Arnalds, borgardóm- ara, riddarakrossi fyrir emh- ættisstörf. Guðmund Erlendsson, hónda og hreppsstjóra, Núpi, Rang- árvallasýslu, riddarakrossi, fyr- ir störf að búnaðar- og félags- málum. Hafstein Pétursson, hónda og oddvita, Gunnsteinsstöðum, Langadal, Austur-Húnavatns- sýs'u, riddarakrossi, fyrir störf að búnaðar- og félagsmál- um. Jónas Kristjánsson, forstjóra Mjólkursamlags Kaupfélags Ey- firðinga, Akureyri, riddara- krossi, fyrir störf í þágu ís- lenzks mjólkuriðnaðar. Valdimar Stefánsson, saka- dómara, riddarakrossi, fyrir embættisstörf. Skúrbnmi á öskuhaitg- UElUllft í fyrrinótt var slökkviliðið í Reykjavík kvatt að varðskúr við öskuhaugana á Seltjarnarnesi. Skúrjnn var alelda er að var komið og brann hann til ösku.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.