Þjóðviljinn - 30.12.1958, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 30.12.1958, Blaðsíða 12
Þingfundum frestað til 5, janúar Daufleg koma hinnar ný}u rikisstjórnar þJÓÐVILJINN Þnðjudagur 30. desember 1958 — 23. árgangiir — 296. tbl. Fundir voru í gær í báðum deildum Alþingis og sett- ust nýju ráöherrarnir í stóla sína án nokkurrar viöhafn- ar. Voru tvö mál afgreidd sem lög á fundum deildanna 1 gær: Bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði og breyt- ingar á tryggingarlögunum, varðandi hækkun bóta. Höfðu bæði frumvörpin verið flutt að tilhlutan fyrrver- andi stjócnar og íóru í gegn ágreiningslaust. Á fundi neðri deildar kvaddi Eysteinn Jónsson sér hljóðs ut- an dagskrár, og minnti á að venja væri að ný ríkisstjórn kynnti sig þingheimi og léti eitthvað uppi um stefnu sína og lýstu þá oft aðrir flokkar afstöðu sinni til hennar. Nú væri brugðið út af þeirri venju, en hann vildi engu að síður segja nokkur orð um afstöðu Framsóknarflokksins. Teldi flokkurinn miður farið að Emil Jónsson skyldi ekki hafa reynt myndun fjögurra flok'ka þjóð- stjórnar er einbeitti sér að jausn efnahagsvandamálanna og þrautreyndi á næsta ári hvort ekki væri hægt að leysa kjördæmamálið án þess að stofna til stórátaka um það. Forsætisráðherra, Emil Jóns- son, svaraði og kvaðst hafa komizt á þá skoðun með við- ræðum við forystumenn þing- flokkanna að ekki væri nema um tvo kosti að velja til stjómarmyndunar, utanþings- stjórn eða minnihhvtastjóm. Hann hefði t&lið að minni- hlutastjórn, sem hefði meiri- hluta Alþingis að baki sér, ætti að hafa meiri möguleika að koma málum fram en utan- þingsstjórn. Sér væri það hins vegar ljóst að núverandi stjórn væri einungis bráðabirgðastjórn til þess að freista að leysa vanda efnahagsmálanna nú um áramótin og kjördæmamálið fyrir vorið. Sér hefði orðið það Ijóst við tilraunimar til stjómarmyndunarinnar að ein- mitt kjördæmamálið stæði eins og fleinn í holdi allra þing- Rausnarleg gjöf til Hringsins Þann 19. desember s. 1. var fomianni Kvenfélagsins Hrings- ins afhent stórgjöf til Barna- spítalasjóðs Hringsins, að upp- hæð kr. 100.000.00 — Var gjöf þessi til minningar um systurnar Sigríði og Ingunni Þorkelsdætur frá Hamri i Ár- nessýslu. Minningargjöf þessi er gefin af föður systranna, Þorkeli Þorsteinssyni, Reykjavík, og sonum hans sex. Kvenfél. Hringurinn þakkar þessa stórhöfðinglegu gjöf og þann skilning og hlýhug í garð Barnaspítalamálsins, sem gjöf þessi ber vott um. Stolin bifreið fannst á hvolfi f fyrrakvöld var fólksbifreið- inni R-552 stolið af bifreiða- stæðinu við Ttríbólíbíó. Síð- degis í gær frétti svo rannsókn- arlögreglan, að bifreiðin hefði fundizt á hvolfi suður undir Krisuvík. flokkanna og yrði að fá á því máli varanlega lausn ef eðlileg samvinna flokka á milli ætti að geta tekizt um lausn ann- arra brýnna úrlausnarefna. Eysteinn Jónsson tók aftur til máls og taldi ólíklegt að þessi stjórn ætti auðvelt að koma fram skynsamlegum lausnum á vanda efnahagsmál- anna með kosningar rétt fram- undan og það tvennar kosn- ingar ef stjórnin kæmi fram vilja sínum um stjórnarskrár- breytingu. Sér væri kunnugt um að tilraun hefði verið gerð til myndunar fjögurra flokka stjórnar. Forsætisráðherra kvaðst ekki trúa því að óreyndu að flokkar og þingmenn fengjust ekki til að taka eðlilfga og ábyrga afstöðu enda þótt kosningar væru í nánd. Hann áréttaði fyrri ummæli þannig, að segja mætti að ekki hefði verið gerð formleg tilraun til myndunar fjögurra flokka þjóðstjórnar. En fyrir hefði legið alveg af- dráttarlaus yfirlýsing frá for- ystumönnum Siálfstæðisflokks- íns, Ólafi Thórs og Bjarna Benediktssyni, að flokkur þeirra myndi ekki taka þátt í neinni stjórn sem ekki leysti kjördæmamálið fyrir vorið og efndi til kosninga í vor, og hins vegar jafn afdráttarlaus Minnisbók 1959 Blaðinu hefur borizt Minnis- bók 1959, sem Fjölvís gefur út og kom í bókabúðir fyrir jólin. Eins og í fyrri minnisbókum út- gáfunnar eru í bók þessarí ýms- ar handhægar upplýsingar, auk almanaks 1959. Fremst í bókinni er t.d. skrá um ýms fyrirtæki og verzlanir, og er skránni skipt niður í efnis- og vöruflokka margskonar til hægðarauka fyr- ir lesandann. Þá er stutt yfirlit um minnisverð tíðindi á innlend- um og erlendum vettvangi frá 1. sept. 1957 til 1. okt. 1958, upp- lýsingar um strætisvagnaferðir í Reykjavík og nágrenni, ásamt fjölda uppdrátta af akstursleið- um, útdráttur úr nýju umferð- arlögunum, upplýsingar um flug- fargjöld, afgreiðslutíma benzín- sölustöðva, póst- og símagjöld, mannfjölda á íslandi, sendiráð Islands erlendis, skipan Alþing- is og bæjarstjórna, helztu kosn- ingaúrslit; birtur er útsvarsstigi í Reykjavík, sagt frá álagningu skatts, lífeyri, kaupi nokkurra starfsstétta, ýmsar handhæga’r tölur, birt kort af landhelgi fs- lands og upplýsingar um hana, kafli um orðasöfnun o.m.m.fl. Aftast í bókinni er skrá um ýmsar stofnanir hér í bæ og upp lýsingar um helztu vegalengdir hér á landi — Minnisbók 1959 er prentuð í Prentsmiðju Þjóð- viljans og hin vandaðasta að frá gangi að sjá. yfirlýsing frá Hermanni Jónas- syni og Eysteini Jónssyni að Framsóknarflokkurinn tæki ekki þátt í myndun neinnar ríkisstjómar sem afgreiddi kjördæmamálið á árinu 1959. Hefði hann því talið að fjög- urra flokka stjórn kæmi ekki til greina, Að loknum deildarfundum óskuðu forsetar þingmönnum gleðilegs nýárs og voru þær óskir endurgoldnar í sömu mynt. Boðað var að næstu fundir þingdeildanna yrðu að öllum líkindum mánudaginn 5. janúar. Hafin er framleiðsla á rjómaís sem almennri neyzluvöru ísborg h.f. hefur nýlokið við að reisa rjómafsverk- smiðju í Eskihnð við Miklatorg og verðúr aðalfram- leiðslan riómaís i pökkum. Verksmiðjan getur með fullum afköstum framleitt 3-4000 1 af rjómaís á dag og mun því auð- veldlega fullnægja allri eftir- spurn eftir rjómaís á næstu ár- um. Rjómaísinn er að hráefnis- verðmæti 95% innlendar rjóma- afurðir; hefur skapazt þarna nýr markaður fyrir offram- leiðslu mjólkur. ísinn er framleiddur með ým- iskonar bragðbæti og síðar er í ráði að blanda niðurbrytjuðum ávöxtum saman við ísinn. Auk Effli eitt dauðaslys á dráttarvél Ungur bóndi í Árnessýslu beið bana er dráttarvél sem hann ók valt Á laugardaginn var varö emveitt banaslys á dráttar- vél. Ingimundur Ingimundarson, bóndi á Reykjavöllum í Biskupstungum, varð undir dráttarvél og beið bana. Slys þetta skeði á móts við' bæinn. Fell, en Ingimundur var á leið að Fellskoti þegar slys- ið varð. Hann var einn á ferð, og því enginn til frásagnar um hvernig slys þetta bar að höndum. Aftan í dráttarvélinni var vagn, og þegar að var komið lá drátta.rvélin fyrir ut- an veginn. Hafði Ingimundur lent undir henm og hálsbrotn- að; mun hann hafa látizt þeg- ar við byltuna. Alvarleg slys á dráttarvél- um gerast nú svo tíð hér á landi að óhjákvæmilegt er að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir slíkt. Hefur m. a. verið rætt um að lögbjóða að sterk hús eða skýli s'kuli vera fyrir ökumanninn. — Dráttar- vélar eru verðmæt tæki, en mannslífin eru þó dýrmætari. Mótmæli gegn eldflaugastöðvum Fjölmargir félagar í samtökunum „Baráttan gegn kjarn- orkustyrj<ild“ fóru eigi alls fyrir löngu í mótmælagöngu til þess að mótmæla byggingu leynilegrar eldflaugastöðvþr á Austur-Englandi. Talið er að nóta ei.gi eldflaugastöð þessa til þess að skjóta frá henni „Thori'-eldflaugum, sem horið geta kjamasprengjur. Eins og sjá má á myndinni, gekk lögreglan hart fram gegn kröfugöngufólkinu. Beindu lögreglumenn að því vatnsstrókum úr brunaslöngum og drógu fólk upp úr forarpollum. Forystumenn samtakamia hafa nú verið handteknir, sakaðir um ólöigleg fimdarhöld. þessa verður framleitt rjómaís- kex, íspjnnar, rjómaís í köku- formum o.fl. Einnjg verður hafin framleiðsla á is er nefnist sherbet. Eftir áramótin er vænt- anlegur hingað danskur sérfræð- ingur á þessu sviði og mun hann sjá um alla framleiðsluna. ísborg h.f. ráðgerir að hafa vörur sínar á boðstólum í mörg- um matvörubúðum og mun leit- ast við að stilla verði og smá- söluálagningu mjög í hóf, þar sem hér er um almenna neyzlu- vöru að ræða. Framkvæmdast.iórar íyrjrtæk- isins eru Pálmi Jónsson og Stein- þór Þórisson. Eegir togarar í landhelgi síðan á jóladag í gær voru engir brezkir togarar að ólöglegum veiðum í fiskveiðilandhelginrJ. Er Landhelgisgæzlunni ekki kunnugt um að ólöglegar tog- veiðar hafi verið stimdaðar hér síðan á jóladag, en þá var einn brezkur togari að veiðum stutta stund á verndarsvæð- inu útaf Austurlandi. Brezka flotadeildin heldur sig einsog áður útaf Austur- jandi. Brezkir togarar á íslands- miðum veiða nu alllangt útaf Austurlandi, 20 til 30 sjómílur útaf Eystrahorui og á uiiðum, sem nefnd em Gullkistan' og eru djúpt útaf A’ustfjörðUm. Fyrir Vestfjörðum hafa nokkrir erlendir togarar verið að veiðum, en í dag hefur verið hvassviðri og slydduél á miðunum. Voru flestir togar- anna í vari. Enginn þessara togara. er brezkur. Fræðsla í notkun ásdic-tækja Á aðalfundi LÍÚ var eftirfar- andi samþykkt: „Aðalfundur LÍÚ 1958 .skorar á Fiskifélag fslands að hald.a á- fram fræðsju sinni 02 námskeið- um fyrjr skipstjóra og stýri- menn til fræðslu í notkun aedic- tækja og annarra fiskileitar- og öryggistækja. Jafnframt skorar fundurinn á Fiskifélag ísiands að lá'ta útbúa í samráði við umboðsmenn tækjanna leiðarvísi á íslenzku um meðferð þeirra. Felur fundurinn stjórn LÍÚ að hafa . samvinnu við Fiskifélag íslands um þessj mál.‘‘ .

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.