Þjóðviljinn - 10.01.1959, Síða 3

Þjóðviljinn - 10.01.1959, Síða 3
Laugardagur 10. janúar 1959 ÞJÓÐVILJINN (3 Landssambanáið gegn áíengisbölinu: Áíengisverzlimin verði lögð niður Drekka íslendingar áfengi fyrir 100 kr. á hvern landsmanna á ári? Þing Landssambandsins gegn áfengisbölinu hefur ósk- aö birtingar á ávarpi því til þjóðarinnar sem hér fer á eftir. Landssamband þetta kemst a'ö þeirri niðurstöðu aö útgjöld landsmanna fyrir áfengi séu 5 þúsund krónur á 5 manna fjölskyldu á ári, — og krefst sambandiö þess aö „öll áíéngisverzlun verði lögö niÖur“. Ávarp sambands- ins er svohljóðandi: rp-m Þriðja þing Landssambandsins gegn áíengjsbölinu, haldið í Reykjavík dagana 8. og 9. nóv- ember, 1958, vill vekja athygli allra landsmanna á því ískyggi- lega ástandi í áfengismálum þjóðar vorrar, sem enn ríkir og í vaxandi mæli. Sífellt hækka þær upphæðir stórkostlega, sem þjóðin ver til áfengiskaupa, og iítur út fyrir, að ekki verði langt að biða, að sú fjárhæð fari fram úr hálfu öðru hundraði milljóna króna á ári. ,;a' : "-j v : ■ ■; ' "1: ' Vantar þá ekki orðið mikið á, að til áfengiskaupa fari þúsund krónur á hvert mannsbarn á landinu, eða 5000 kr. á fimm rnanna fjölskyldu, og sé meðtahð það fé, sem fer fyrir smyglað áfengi, mun ékki fjarri sanni. að. þessi sé áfengisskatt- ur þjóðarinnar orðinn í dag, og þó ekki nema sá hluti hans, sem greiddur er . í peningum til að iafla þess. Ótaiið er þá allt hið gífurlega tjón, sem áfengið veld- ur með glötuðum vinnustund- um, slysum, sjúkdómunr og beinni sóun efnisverðmæta. Allt er þetta þó aðeins ytrá borð áfengisbölsins, og hitt enn geig- vænlegra, sem birtist í siðferð- islegri upplausn, glataðri heim- ilishamingju, glæpum og töpuð- um manndómi. Þegar á allt þetta er iitið, verður ekki of- anælt, enda mál margra vitrustu manna meðal menningarþjóða, að áfengið sé sá versti bölvald- ur, sem nú herjar mannkyn- ið. Fyrir því má enginn loka augunum né varpa frá sér á- byrgðinni í þeirri sérgóðu sjálfs- blekkingu, að þetta sé honum ó- viðkomandi og gagnslaust um það að fjasa. Sagan hefur sýnt, að áfengisnautnin hefur komið heilum þjóðum á kné, og er enn að gegnsýra svo sumar þekkt- ustu menningarþjóðir heims, að það veldur leiðtogum þeirra mjög alvarlegum áhyggjum. Ilér þarf íslenzkt almennings- álit að rísa á móti voðanum, áður en iengra verður farið á þessari braut. Þjóðin þarf að vakna til meðvitundar um, að það er hverjum manni vansæmd að skerða vit sitt og heilbrigði með áfengisnautn. Iiver maður á að hafa gát á því, að sóa ekki dýrmætum fjármunum sinum og þjóðarinnar fyrir mannspill- andi nautnalyf, og verða um leið valdur að enn meiri sóun and- legra og efnislegra verðmæta. Hver þegn þjóðarinnar er ábyrg- Ur í þessu efni gagnvart sjálf- um sér og þjóðarheildinni. En um leið ber að gera þær kröf- ur til ríkisvaldsins, að það gefi ekki spillingunni undir fólinn með síaukinni sölu áfengra drykkja. Stefna ber að því staðfastlega, að losa ríkissjóð við það að vera háður tekjum af áfengisverzlun, með það takmark í huga, að öll áfengisverzlun verði niður lögð. Jafnframt verður að gera þá kröfu til ríkisvaldsins, að það hagi ekki þannig úthlutun er- lends gjaldeyris, að það leiði beinlínis til áfengissmygls, eins og reynsla síðustu tíma bendir til. Og meðan leyfð er lögleg meðferð áfengis í landinu, verð- ur einnig að krefjast þess, að I stranglega sé gælt allra lagafyv-, irmæla um þau efni, og hvergi séð í gegn um fingur við ólög- íega áfengissölu, heldur tekið með festu og vægðarlaust á öll- um áfengislagabrotum. Þessum kröfum ský.tur þingið til allra landsmanna. og mælist til þess, að þeim verði sem víð- ast og oftast á lofti haldið, ekki aðeins í samþykktum funda og félaga, heldur einnig manna á milli af hverjum einstaklingi við öll tækifæri. Hei'tir Landssíambandið á Framhald á 4. siðu Mynd þessi var teldn s.l. þriðjudag af flaki flugvélar- innar, sem fórst á sunnu- daginn. Vængir vélarinnar voru brotnir af, einnig hægra hjól og skíði. Að framan var vélin mjög brotin og m.a. liafði hreyfill vélarinnar snúizt alvég við. Slysstaður- inn var í Fjósatungufjalli i 760 m hæð, um það bil 2 km sunnan Bíldsárskarðs. Braltið úr vélinni var dreift um stórt svæði. — Fot: Guð- mundur Gunnarss. Reykjum. Mergjuð grein um land- helgismál í esperantoblaði Tímarit Sambands íslenzkra esperantista, „Rödd íslands”, kemur nú út á ný Komiö er út nýtt hefti af tímariti Sambands íslenzkra esperantista, er nefnist „Voco de Islando“, en það þýðir „Rödd íslands“. Sambandið gaf út fyrir nokkrum árum vandað og myndskreytt tímarit með þessu nafni. Vakti það athygli víða um heim og varð hin bezta landkynning. Þar voru greinar Ung dœgurtagasöngkona fró Londion róðin að Hótel Borg Ung- ensk dægurlagasöngkona, Mary Marshall, heíur veriö ráðin til að syngja meö danshljómsveitinni á líót- el Borg á kvöldin næstu fjórar vikurnar. Mary Marshall, sem oft erlá Hótel Borg er nú Björn R. um íslenzka atvinnuvegi, ís- lenzka náttúru og síðast en ekki sízt þýðingar á íslenzkum skáldverkum, í bundnu og ó- bundnu máli. Á síðastliðnu ári hóf Sam- band íslenzkra esperantista á esperantistaritum. Ritstjórn þessara liefta liafa þeir annazt Ólafur S. Magnús- son kennari og Baldur Ragn- arsson. Skrifar Ólafur í nýrra heftið mergjaða grein um land- helgismálið sem mikill fengur er að, því esperantoblöð fara ótrúlega víða. Þetta tímarit er tilvalið fyr- ir þá esperantista sem vilja senda vinum sínum og kunn- ingjum erlendis eitthvað um fs- land og íslandsmál. Vonandi heldur Samband íslenzkra es- perantista útgáfunni áfram og gaman væri að sjá tímaritið taka á sig að nýju jafnásjá- iegan frágang og var á fyrstu árgöngunum tveimur. kölluð „Kiss Girl“ í heimalandi sínu, er 24 ára gömul og hefur Einarsson, sem leikur á básúnu og harmoniku. Aðrir í liljóm- sveitinni eru: Steinþór Stein- grímsson píanóleikari, Erwin Köppen bassaleikari og Torfi Baldursson gítarleikari. ný útgáfu tímaritsins, sem er nú í minna broti, en það flytur sams konar efni og fyrr. Komu tvö hefti út á árinu og eru í | þeim m.a. frumsamin ljóð eft-, ir Baldur Ragnarsson, kynning á rithöfundunum Guðmundi G. Hagalín og Jóni Dan og þýdd- ar smásögur eftir báða. Þýðir Ölafur Þ. Kristjánsson sögu eftir Hagalín og Stefán Sig- urðsson kennari sögu eftir Jón Dan. Jón er sjálfur esperant- isti og hefur birt frumsaminn skáldskap og greinar um ís- lenzkar bókmenntir í erlendum Margir hjálpnðu tii að gera joliiB á wGrumiY' áaaægjuleg Mary Marshall stundað dægurlagasöng um sjö ára skeið. Hún hefur sungið á ýmsum þekktum skemmtistöð- um í Englandi, t.d. hinum kunnu næturklúbbum í London: Stork- club og Keyhole; einnig sungið á skemmtunum bi’ezkra her- manna á Kýpur. Hótel Borg hefur ráðið Mary Marshall til að syngja með danshljómsveitinni sex kvöld í viku (milli kl. 9 og 11,30 á kvöldi) fram í febrúarbyrjun. Syngur ungfrúin allskonar dans- og dægurlög, auk þess sem hún sýnir stutt kabarett- atriði á hverju kvöldi. Stjórnandi hljómsveitarinnar Samkvæmt frásögn Gísla Sig-1 urbjörnssonar, forstjóra Elli-j lieimilisins Grunclar, urðu niarg- ir til að gleðja vistfólkið áj heimilinu um jólin og gera því, hátíðina sem ánæg julegasta.! Frásögn Gísla um jólin á Grund fer liér á eftir: „Um jólin var mikið um að vera á fjölmennasta heimili landsins einsog að líkum læt- ur. Heimilisfólkið fékk margar jólakveðjur og gjafir, heimsókn- ir og heimboð. Átthagafélög, kvenfélög og Blindravinafélag- ið, sendu vistfólkinu gjafir og kveðjur. Fimmtíu vistmenn fengu rausnarlega peningagjöf frá manni hér í bæ — einsog svo oft áður. Varnarliðið sendi sælgæti, ávexti, spil, töfl og fjóra hjólastóla, sem komu i góðar þarfir. Allar þéssar gjaf- ir, og ýmsar fleiri, er mér Ijúft og skylt að þakka. Einnig þakka ég heimsóknir og skemmtanir ágætra gesta, sem hingað komu. Lúcíurnar komu og glöddu vistfólkið með söng sínum. Sigurður Ólafsson skemmti með söng, en undir- leik annaðist Skúli Halldórs- son tónskáld. Á gamlársdag, að lokinni messu séra Þorsteins Björnssonar, söng Fríkirkju- kórinn, söngstjóri Sigurður ís- ólfsson, á sjúkradeildum og gladdi með því marga. Ungu skólastúlkunum, sem komu til okkar fyrir jólin og buðust til að hjálpa — þær vissu að erfitt var að fá starfs- fólk og að annir voru miklar, þakka ég ágæta og kærkomna aðstoð. Öllu þessu fólki, sem á ekin eða annan hátt hjálpuðu til að gera jólin á Grund ánægju- leg, glöddu og skemmtu vist- fólkinu, þakka ég af alhug. Þetta voru 25. jólin mín á Grund og tveggja annarra starfsmanna. Þessum sam- starfsmönnúm mínum, sem og hinum hundrað, þakka ég á- nægjulegt eamstarf og öll störfin, sem eru oft þreytandi og erfið —- en sem em unnin af starfsfólkinu með gleði, á- nægju og trúmennsku“. Barnaspítalasjóður Hringsins 1208,90 kr. til béka- og leik- fangakaupa fVíinninciiarqjöí um Mörtu Maríu Nielsdóttur á álítanesi • Barnaspítalasjóði Hringsins liefur borizt gjöf aö uppbæð tólf þúsund króuur. Er það íninningar.gjöf um Mörtu Mar- íu Nie'.sdóttur húsfreyju á Álftanesi í Mýrasýslu, í tilefui af 100 ára afmæli liennar, Marta María Nielsdóttir var ifædd 18. nóv. 1858 og er lái- in fyrir 17 árum. Gefendur eru eftirlifandi síðari maður henn- ar, Haraldur Bjarnason tyrr- um bóndi á Átftanesi, börn hennar og tengdabörn. Það er ósk gefenda að þess- ari upphæð verði varið til þesa að stytta börnum stundir á meðan þau dvelja í spítalanum, t.d. með þvi að koma upp vísi að bóka- og leikfangasafni, sem yrði við liæfi barna á öllum aldri. — Kvenfélagið Hving- nrinn hefur beðið blaðið að færa, gefendunum hjartanlegar þakkir fyrir þessa kærkomnu Síöf- _____, Sósíalistaíé- lag Képavogs Félagsfunclur verður halðinn n.k. mánudag. Fundarefni: Bæjarmál. Stjórnin

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.