Þjóðviljinn - 21.01.1959, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 21.01.1959, Blaðsíða 4
4) ÞJÖÐVILJINN — Miðvikudagur 21. janúar 1959 Ncrskií kvikmy n d a gerðarmenn yekja athygli á alþjóÖlegum vettvangi í einni ai' síðustu kvikmyndunum, sem iranska þoklea- gyðjan IJrigitte Bardot liefur leikið í, er liinn snjalli og kunni leikari Jean Cabin aðalinótleikari hennar. Sjást þau liér bæði í eimi atriði kvikmyndarinnar. Af norskri kvjkmyndagerð hafa ekki farið sérlega mikl- ar sögur til þessa. Þó hafa fáeinar norskar myndir vakið allmikia athygli á undanförn- um árum, sumar jafnvel hlot- ið alþjóðiega frægð eins og til dæmis kvikmyndin Níu líf, sem lýsir ótrúlegri þrek- raun Norðmannsins Jan Baalsrud á stríðsárunum síð- Arne Skouen Ieikstjóri vakti ]»egar niikla athygli með fyrstu tveim myndum sínum: „Götustrákum“ (fullgerð 1949) og „Nauðlendingu“ (1952). Myntlin hér fyrir ofan er úr síðarnefndu kvikmynd- inri. Ústu, en Baaisrud þessi komst einn iífs af úr för skæruliða- flokks, sem sendur var til að vinna skemmdarverk á mannvirkjum Þjóðverja i norðurhluta Noregs. Hann var þá 2G ára gamall. ★ Gírúleg þrekraun A fyrsta degi flóttans varð Baalsrud að ryðja sér braut gegnum varðgæzlustöðvar þýzku nazistanna , og særðist þá á fæti. Hann komst um síðir undan sporhundum Þjóð- verja og lagði þó særður værj tjl sunds yfjr einn af hinum ísköldu fjörðum Norður-Nor- egs. Landi náði hann hjnum megin fjarðarjns, en svo ör- magna var hann þá, að hann varð að halda kyrru fyrir um nóttina þar í fjörunni. Næsta dag lagði Baalsrud af stað i áttjna til sænsku landamæranna. Kalblettir höfðu myndazt á fótum hans og sárið eftir byssukúlu Þjóð- verjans hafðist mjög illa við, svo að. hann tók út óskapleg- ar kvalir við hvert skref sem honum miðaði áfram. Og ekki varð veðrið þarna á regin ör- æfum til að flýta ferð hans. I þrjú dægur hafðist Baa’srud við í skjóli kletts meðan vcð- urofsinn var sem mestur og í fjóra daga drógst hann síð- an, haldinn snjóblindu, yfir f jallgarðinn. Einn daginn lenti hann í snjóflóði. Hann komst þó að bjálkakofa einum þarna á fjallinu og þar-leynd- ist hann í vikutíma; skár þá af sér allar lærnar, sem kal- ið hafði og drep var hlaupið í. og notaði til þes.s veiðihnif sinn. Enn liðu vikur, óbæri- lega kvalafullar, en loks var Jan Baaisrud kominn til byggða í Svíþjóð, nær dauða en lífi. ★ Önnur frásiign frá hernámsárunum A slíkri nótt heitir önnur norsk kvjkmynd, sem nýlega hefur verið lokið við og þykir mjög góð, á köflum jafnvel . afbarðasnjöll. Efni myndar- innar, eins og þcirrar sem áð- ur er getið, er sótt til her- námsáranna; sögð sagan um það hvernig 10 börnum af Gyðjngaættum var hjálpað á flótta yfjr sænsku landamær- in. Lcikstjórinn heitir Sigval Maartmann-Moe og þó að A slíkri nótt sé aðeins önnur kvikmyndjn sem hann gerjr hefur honum nú þegar verjð skipað í hóp snjöilustu kvik- myndagerðarmanna á Norður- löndum. Aðallejkendumir í myndinni eru. Anne-Ljse Tangstad, J. Iloist-Jensen og Lalla Cárlsen, tvejr þeir síð- astncfndu gamalkunnir norsk- ir leiksviðs- og kvikmyr.da- leikarar. Klutverk tveggja þýzkra hershöfðingja i kvik- myndinni eru leikin af Þjóð- verjunum Ottokar Panning og Gúnther Húttman. Út úr myrkrinu nefnist ein nýjasta kvikmyndjn, sem lok- ið hefur verið við í Noregi. Fjallar hún um vandamál geð- sjúkdóma og hvaða læknisað- gerðum helzt verði við komið á því sviði. Aðalpersónan í myndinnj er ung stúlka, sem verður geðveik en nær ful'ri heilsu aftur, lcikin af Urdu Arneberg, Fær iejkkonan mjög (lof]cga dórri£>. um ■ sinn, en í heild þykir kvik- rriyhdin þó misheppnuð, enda þótt n.argt gott sé annars um hana að segja. Út úr myrkr- Bæjarbíó í Ilafnarfirði hefur nú sýnt síðustu kvikmynd Cliaplins „Kóng í New York“ síðan á aiwian í jólum við mjög mikla aðsókn. ViII þátt- urinn eindregið livet.ja alla þá sem enn hafa ekki séð þessa snjöllu mynd meistar- ans að taka sér ferð suður í Hafnarfjörð og sjá hana — sú ferð svíkur engan. ' inu er fyrsta kvikmyndin sem gerð er undir stjórn Ar- ild Brinchmann, en hann er einn af hinum ungu og upp- rennandi kvikmyndagerðar- mönnum í Noregi. Vr Mynd um Asbjömsen og Moe Arne Skouen, sá sem stjórn- aði gerð kvikmyndarinnar Níu lif sem áður var getið, er nú kominn vel á veg með næstu mynd sína, e'n hún á að i efnast Jarnian presíur snýr aftur. Fjallar mynd þessj um skipsprest einn, sem snýr aftur til heimalands síns eftir margra ára. fjarveru og' dvöl r eriendum hafnarborg- um, og lýsir vandamálum þeim sem mæta lionum vjð heimkomuna. Prestinn leikur Henki Koistad, einn af vin- sæiustu leikurum Norðmanna, en aðalkvenhlutverkið er í höndum Henny Moan, sem hlotið hefur ágæta dóma fyr- ir leik sjnn í Níu Iífuin. Myndatökustjóri er Finn Bergan, en tónlistina við myndina hefur samið Gunn- ar Sonstevoid, sem nú er eitt af kunnustu samtímatónskáld- um Norðmanna. Ivo Caprino, ncrski kvik- mýndaleikstjórinn sjm kuhn- astur er fyrir léikbrúðumynd- ir sínar (um skeið nemandi tékkneska snillingsi-ns Jiri Trnk'a), hefur í hyggju að gera kvikmynd fullrar lengd- ar um hina frægu norsku þjóðsagnásafnara Asbjörnsen og Moe. í kvikmyndinni verð- ur að sjálfsögðu brugðið upp svipmyndum úr nokkrum af ævintýrunum eða þjóðsögun- um úr söfnum þeirra. Þetta verður að nokkru leyti leik- in mynd og að nokkru leyti brúðumynd. Nafn hennar verður Einu sinni var, en gert er ;-áð fyrir að hún verði full- gerð eftir tvö ár. Kvikmynd- in verður í litum. GÓLFTEPPI — EitasaSa — Moitusafa í dag og næsíu daga seljum við moííur og búta með nioursettu verði TEPPl b.L Aðalstræti 9 — Sími 14190

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.