Þjóðviljinn - 08.02.1959, Page 1
Sunmidagur 8. febrúar 1959 — 24. árgangur — 32. tölublað.
KÓPAVOGUR
Sósíalistafélagar Kópavogi.
Munið málfundinn annaS
kvöld kl. 9 að Digraneev. 4a.
Sti&öningsfólk A-
listans í Iðju.
Ilafið samband
\ ið skrifstofu
A-listans, Tjarn-
argötu 20 —
Rétturinn var settur aftur
kl. 1 e. h. og flutti þá verj-
andi landhelgisbrjótsins, Gísli
ísleifsson stutta vörn. Krafð-
ist hann sýknunar og til vara
að sakborningnr yrði dæmdur
í vægustu sekt.
Véfengdi hann gildi bráða-
birgðalaga nr. 54 frá 28. ág.
1958 og taldi þau ekki hafa
hlotið staðfestingu Alþingis.
Kvað hann kæruna. byggða á
ákvæðum um 12 milna land-
helgi, sem hann véfengdi að
hefði fengið fullt gildi.
sími 17511
.Seyðisijörðmr. Víirðskipið Þór við bryggjuiui (til vinstri á myndinni) o,g fyrir aftan hann íslenzkur togari, en brezki
landhelgisterjötiurinn Valafell liggnr úti á pollimun fyrir utan.
12 mílna mörkin gilda
Málið var siðan tekið til
dóms. — Skipstjórinn var ekki
viðstaddur uppkvaðningu dóms-
ins.
Roiiald Pretious sldpstjóri gengur í réttarsalinn til yflrheyrslu. Verjandinn Gl'sli ísleífsson að balu lionum. Yzt til vinstri
er dómarinn Erlendur Björnsson bæjarfógeti á Seyðisíirði. — Myndirnar tók Skúli Gunnarsson, Seyðisfirði.
Skipstjórinn hlaut 74 þús. kr. sekt — lágmarkssekt! — Áfli og
veiðarfæri gerð upptæk —en hann fékk að halda veiðarfærun-
um, þvert gegn gildandi lögum!
í gær var kveðinn upp á Seyðisfirði fvrsti dómurinn fyrir brot á 12
mílna fiskveiðilandhelginni. Skipstjóri brezka landhelgisbrjótsins Valafells
var dæmdur í 74 þús. kr. sekt, greiðslu alls málskostnaðar og afli og
veiðarfæri gerð upptæk.
Það kemur mönnum mjög furðulega fyrir sjónir að togari þessi sem
10—12 sinnum hefur brotið 12 mílna landhelgina undir herskipavernd
skuli aðeins vera dæmdur í lágmarkssekt!
Þá vekur það ekki síður furðu að togaranum skuli sleppt út með veið-
arfærin, til þess að geta þegar hafið landhelgisbrot að nýju, þvert gegn
gildandi lögum, en þar segir svo í 6. grein:
„Aldrei má þó selja hinum seka uiptæk veiðarfæri'1.
Fréttaritari Þjóðviljans á
Seyðisfirði slnmði í gær að
réttur hafi verið settur yfir
skipstjóranum á brezka land-
helgisbrjótnum Valafelli kl.
11,40 í gær. Verjandi hans,
Gíísli ísleifsson, fékk frest til
kl. 1 e. h.
Véfengdi 12 mílna fisk-
veiðilandhelgina
Skipstj. Valafells var dæmd-
ur fyrir ólöglega veiði 8,8 sjó-
mílur innan fiskveiðilándhelg-
innar. Þótt skipstjórinn hafi
viljað afsaka brot sitt með
því að hann hafi talið sig 7,5
milur frá landi þá hafi það
ekkcrt gildi hvort hann hafi
verið nokkrum mílum utar eða
innar imian 12 milna mark-
aiuia.
Lágmarkssekt: 74 þús.
Skipstjórinn var dæmdur til
að greiða 74 þús. kr. sekt, all-
an sakarkostnað og afli og
veiðarfæri gerð upptæk. 7 mán-
Framhald á 2. síðu.
Hvað borðar stúlkan?
Alþýðublaðið birti fyrir nokkrum dögum mynd af
stúlku og sagð'i að hún hefði sparað rúmar 20. kr.
á einum degi með því að borð’a fimm pund af
hveiti, heilt rúgbrauð, heilt franskbrau'ö, eitt pund
af smjöri, eitt kíló af súpukjöti, 2 kíló af kartöfl-
um, 1 kíló af osti, 1 kíló af molasykri og eitt kíló
af skjui og drekka fjóra lítra af mjólk; myndi hún
geta sparað sér kynstrin öll á ári meö slíku áfram-
haldi! í gær segir blaöiö svo aö ekki hafi nú veriö
ætlunin aö stúlkan boröaöi svona mikið á hverjum
degi, en „meö því a'ö spara 15—20 kr. á dag í mat-
arkaup mundi hún spara vegna ver'ólækkanaima
5500—7000 krónur á ári.“
Hér með’ skal skorað á Alþýöublaöiö a'ö birta lista
yfir hin raunverulegu matarkaup stúlkunnar —
fyrst eltki var aö’ marka upphaflcga listann — og
sanna a'ö meö þeim megi spara 15—20 kr. á dag
til jafnaðar eða allt aö 7000 kr. á ári. Mun mörgum
þykja forvitnilegt að sjá þann lista, auk þess sem
fólki veitir sannarlega ekki af aö fá slíkar leiff-
beiningar þegar búiö er aff lækka launin um rúm-
an áttunda hluta.
Fyrsti dómur iyrir brot á 12
mílna fiskveiðilandhelginni