Þjóðviljinn - 20.02.1959, Síða 6
fi) — WÓÐVILrJINN — Föstudag'ur 20. febrúar 1959 -
þlÓÐVlLJINN
Útitefandl: Samelnlngarflokkur alþýöu — Sósialistaflokkurinn RltstJörar.
Magnús KJartansson, Sigurður Guðmundsson <áb.). — Fréttaritstiórl: Jón
?:jarnason. — Elaðamenn- Ásmundur Sigurjónsson, Guðmundur Vlgfússon.
var K Jónsson, Magnús Torfi Ólaísson, Sigurjón Jóhannsson, Slgurður V.
FrlðbJófsson. - AuglýsingastJóri: Guðgeir Magnússon - RitstJórn. ai-
aug1*«ine’flr nrentsmíðla: Skólavörðustíg 19. — Sími: 17-500 (1
! linur. — Áskriftarverð kr. 30 á mánuðl — Lausasöluverð kr. 2.00.
Prentsmiðja Þjóðviijans.
JLausn” Sjálfstæðisflokksins
T Tndanfarin tvö ár hefur at-
vinnuleysi magnazt mjög
í nágrannalöndum okkar aust-
an hafs og vestan. Miiljónir
manna í Ameríku og Vestur-
evrópu búa við þau* kjör að
fá ekki að vinna, fjölskyldur
þeirra Uraga fram lífið á ■
naumum atvinnuleysisstyrkj-
um — þar sem þeir tíðkast
— eða segja sig til sveitar.
Dag eftir dag er það eina
iðja atvinnuleysingjanna að
standa í löngum biðröðum til
]>ess að fá aurana úr styrktar-
sjóðnum eða gefinn málsverð.
TTið sífellda atvinnuleysi er
•**-gleggsta dæmið um gjald-
þrot auðvaldsskipulagsins. —
Hvað er andstæðara eðlilegri
skynsemi en að neita milljón-
iim manna um störf þar sem
hin brýnustu verkefni blasa
hvarvetna við? En atvinnu-
leysið er ekki aðeins vottur
tim lialdleysi auðvaldsskipu-
lagsins, það er einnig nauðsyn
ef kerfi gróðahyggjunnar á
ekki að bíða skipbrot. Kald-
rifjaðir fjárplógsmenn skipu-
leggja atvinnuleysi vitandi'
vits og nota það sem vopn
í átökum við verkalýðssam-
tökin; þeir nota her atvinnu-
leysingjanna sem svipu á hina
sem fá þó að selja vinnu sína.
Sprenglærðir auðvaldshag-
fræðingar hafa meira að segja
reiknað út hversu mikið at-
vinnuleysið þurfi að vera —
sem lágmark — til þess að
auðvaJdskerfið geti starfað á
,,eðlilegan“ hátt.
I^sland er eina landið í hin-
um „vestræna heimi“ þar
sem ekkert atvinnuleysi hefur
verið undanfarin ár. Ástæðan
er sú og sú ein að hér hefur
verið hafnað þeirri ,.lausn“
að nota atvinnulevsi til þess
að stjórna efnahagskerfinu.
Þegar vinstristjórnin var
mynduð laaði Alþýðubanda-
lagið megináherzlu á það að
tryggja að allir þættir fram-
leiðslunnar væru starfræktir
af fyllsta kappi hvarvetna á
lar.iinu, og á skömmum tíma
tókst að bæta úr verulegu at-
vinnuleysi sem var orðin föst
regla víða úti um land. Stór-
aukin afköst urðu hjá útgerð-
inni, byggð voru og keynt ný
framleiðslutæki ogaðrar fram-
kvæmdir jukust til muna. Af-
leiðingin hefur orðið sú að
hér hefur verið skortur á
vinnuafli, þótt fækkað hafi
verið til muna í hernámsvinn-
unni; við höfum flutt inn
verkafólk frá löndum þar sem
verið hefur veruJegt atvinnu-
leýsi. Að sjálfsögðu hefur
skorturínn á vinnuafli valdið
vmsum vandarrri lum liér á
iandi, fyrst og fremst vegna
%>ess hvérsu óskipulégur allur
bjóðarbúskapur okkar er enn
,-em komið er. Þó eru þessí
■-andamál léttvæg og hégóm-
':eg hjá atvinnulevsinu sem í
öðrum lördum er látið „leysa“
þau viðfangsefni sem hér er
glímt við.
etta mættu virðast augljós
og algild sannindi, en þó
er það svo að hér á landi
er ílokkur manna sem berst
fyrir því að taka upp hið
„frjálsa" skipulag gróðakerf-
isins. Sjálfstæðisflokkurinn
fer hamförum gegn ríkisaf-
skiptur.um og höftunum hér á
landi og krefst þess að í stað-
inn fái „framtak einstak-
lingsins" að drottna óskert,
það kerfi að nokkrir auðug-
ir og voldugir eigendur fram-
leiðslutækjanna fái að fíkja
yfir atvinnu og afkomu alls
fjöldans. Sjálfstæðirflokkur-
inn leggur þannig til að hér
verði tekið upp hömlulaust
auðvaldsskipulag, líkt og i
Bandaríkjunum; það skipulag
sem þarf á verulegu atvinnu-
leysi að ihalda ef það á að
geta staðizt.
TTáðamenn Sjálfstæðisflokks-
ins gera sér þetta að
sjálfsögðu fullljóst, en þeir
vona að allur almenningur
átti sig ekki á því hverjar
afleiðingarnar af stefnu
SjáTfstæðisflokksins yrðu.
Þess vegna er aldrei birt frétt
í Morgunblaðinu um atvinnu-
le>,sið í nágrannalöndum okk-
ar — ög raunar ekki í Al-
þýðublaðinu heldur. Þessi
málgögn klifa af miklum
dugnaði á göllum og ann-
mörkum núverandi fyrirkomu-
lags hér á landi og gera sér
vonir um að almenningur sé
orðinn svo þreyttur á árleg-
um vandamálum í sambandi
við efnahagskerfi okkar að
hann átti sig ekki á því að
ætlun er að leiða yfir ís-
lendinga skipulag sem myndi
hafa í för með sér miklu
alvarlegri og sárari vanda-
mál fjTÍr allan þorra þjóðar-
innar, sem myndi stórauka
misskiptingu á auði og völd-
um og liafa í för með sér
atvinnuleysi og napra fátækt
fyrir þúsundir manna um
land allt.
að er mikils um vert að
allur almenningur geri
sér Jiessar horfur fulkomlega
ljósar. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur þegar lýst yfir því að
kaupránslög Alþýðuflokksins
séu aðeins fyrsta skrefið. Ef
Sjálfstæðisflokkurinn fær það
fylgi í kosningunum í sumar
að hann liafi aðstöðu til að
móta þróunina á eftir, mun
„hið frjálsa framtak“ gróða-
mannanna veröa leitt til önd-
vegis á Islandi eins og í þeim
nágrannalöndum þar sem at-
vinnuleysið magnast. Mun
Sjálfstæðisfl. þá vissulega
,,leysa“ sum þau vandamál
sem íslendingar eiga nú við
að etja, en sú lausn verður
þungbær ailri aiþýðu.
50 ár tíöin írá stoinun
Vélstjórafélags íslands
í dag, 20. febrúar,
eru liðin rétt 50 dr frá
stofnun Vélstjórafélags
íslands, eins élzta stéttar-
og starfsgreinafélagsins
hér á landi. Hafa
vélstjórar minnzt þpssara
merku tímamóta í sögu
félags síns með útgáfu
myndarlegs afmœlisrits og
í kvöld koma þeir,
sem ekki eru bundnir
skyldustörfum á sjó eða í
landi, saman til fagnaðar
að Hótel borg.
•----
VÉLGÆZLUMENNIRNIR
TÖLDUST ÞÁ EKKI
TIL SJÓMANNA
Núverandi formaður Vél-
stjórafélagsins, Örn Steins-
Hallgrímur Jónsson
formaður Vélstjórafélags
íslands 1924—1948
son, hefur lýst tildrögum að
félagsstofnuninni á þessa leið
í afmælisgrein í síðasta tbl.
Sjómannablaðsins Víkings;
„Árið 1906 var fyrsta tog-
arafélagið stofnað, og með því
hófst vélaöld á Islandi. Engir
lærðir vélstjórar voru þá til
í landinu, en ungir og áhuga-
samir menn réðust til starfa
með mikilli elju í völundar-
hús vélarúmanna. Einstaka
vélstjóri hafði lítils háttar
kynnzt vélum hjá Norðmönn-
um, sem stunduðu hvalveiðar
hér við land. En flestir höfðu
enga æfingu. Starfi þessara
manna hefur lítt verið haldið
á loft. Það er þó engu ómerk-
ari þáttúr í atvinnusögu þjóð-
arinnar en þáttur skipstjórn-
armanna, sem jafnan er hugð-
arefni margra að skrifa um.
Mennirnir í vélarúminu, sem
oftast voru ataðir olíu eða
kolaryki, töldust ekki til sjó-
manna í eiginlegri merkingu.
Þeir voru eitthvað allt annað
— líkastir forjmjum úr öðrum
heimi .... Fyrstu vélstjórarn-
ir áttu líka ekkert sældarlíf.
Margir urðu að kynda undir
kötlum skipanna jafnframt
umhugsun um vélamar, og
dæmi eru til þess að þeir
væru látnir vera á „útkíkki"
í brúnni, þegar aðrir sváfu,
ef skip var látið reka. Fyrir
þetta fengu 1. vélstjórar báts-
mannslaun og 2. vélstjórar
þaðan af minna. Skipstjórar
og stýrimenn fengu hins veg-
ar miklu hærra kaup.
Nokkrir vélstjórar, hertir í
þessum skóla, komu saman
20. febrúar 1909 og stofnuðu
stéttarfélag vélstjóra. Mark-
miðið var fyrst og fremst að
skapa vélamönnum viðunanidi
vinnuskilyrði og reyna að
koma upp skóla, sem kennt
gæti ungum mönnum vél-
fræði“.
STOFNENDURNIR VORU
ÁTTA
Stofnendur „Gufuvélagæzlu-
mannafélags Reykjavíkur",
eins og félagið hét í fyrstu,
voru átta: Sigurjón Kinstjáns-
son, Ólafur Jónsson, Sigur-
bjami Guðnason, Eyjólfur
Björnsson, Jakob Bjamason,
Jón Steinason, Magnús Daða-
son og Sigurður Ámason. I
fyrstu félagsstjórnina voru
kjömir Sigurjón formaður,
Ölafur féhirðir og Sigurbjami
ritari.
Af stofnendunum eru nú'
aðeiris tveir á lífi: Sigurjón
Kristjánsson sem enn starfar
við vélgæzlu, 79 ára að aldri,
og Magnús Daðason, en hann
lét af störfum á s.l. sumri og
hafði þá verið vélstjóri á fiski-
skipum í hálfa öld.
Siðan á stofndegi hefur
Vélstjórafélag Islands (það fé-
lagsheiti var samþykkt á að-
alfundinum 1916) vaxið stöð-
ugt og komið fjölmörgum
stefnumálum sínum fram. Fé-
lagsmenn vom t.d. 1910 15
talsins, 1920 67, 1930 116,
1940 205, 1950 300 og nú em
þeir 473.
Formannsstörfum hafa níu
menn gegnt og HaHgrímur
Jónsson þeirra langlengst. —
Hann gekk í fé'agið 1912, var
ritari félagsstjórnar 1915—
1924 og formaður 192Í—’48
eða i 24 ár samfleytt. Núver-
andi form. er Örn Steinsson,
eins og fyrr er getið, en með
honum í stjórn eru Egill Hjör-
var, Hafliði Hafliðas., Gísli
Hafliðason, Friðjon Guðlaugs-
son, Andrés Andrésson og
Guðmundur Jónsson.
TRÚÐU EKKI FYRR EN
TIL ÞEIRRA VAR TALAÐ
Á DÖNSKU!
I hinu myndarlega afmælis-
riti Vélstjórafélagsins, eem
þeir hafa tekið saman Hall-
grimur Jónsson, Júlíus Kr.
Ólafsson og Þorsteinn Áma-
son, er gerð ýtarleg grein fyr-
ir framgangi baráttumála fé-
Jagsins: Viðurkenningu á at-
vinnuréttindum vélstjóra,
kjarasamningum og kaup-
gjaldsmálum, styrktarsjóði og
styrktarstarfsemi félagsins og
ekólamálinu. Vegna rúmleysis
verður eigi fjölyrt um þessi
mál, aðeins drepið lítillega á
kennslumálin.
Vélgæzlumennirnir á fyrstu
islenzku togurunum settu sér
það markmið að komið yrði
á kennslustofnun fyrir þesea
starfsgrein og lög sett henni
til vemdar. Þeir leituðu til
landstjórnarinnar en fengu
litla áheym fyrst í stað. „En
vélstjóramir létu ekki slíkt
á sig fá“, segir í afmælisriti
V. I. „Þeir fengu útlendan
mann, Theodor Jensen, í lið
með sér. Og þegar yfírvöld-
unum var sagt á dönsku að
hér væri ,um merkilegt ný-
mæli að ræða, þá trúðu þau“.
Frumvarp vélstjóranna var
lagt fvrir þingið og samþykktj
staðfestingu konungs fengu
þessi fyrstu lög um vélgæzlu
á íslenzkum skipum 11. júlí
1911. I lögunum var gert ráð
fvrir að stofnuð yrði vélfræði-
dei’d við Stýrimannaskólann í
Revkjavík. Maður vah þegar
ráðinn til vélfræðikennslunnar
sumarið 1911 og um haustið
tók deildin til starfa. 1915
voru síðan samþykkt lög nm
stofnun vélstjóraskóia í Rvík
og brevtinga.r á vélgæzlulög-
unum frá 1911 og M. E. Jes-
sen ráðinn forstöðumaður
skóians.
©----
MENNINGAR- OG
MANNÚÐARMÁL
Félagsstarfsemi vélstjóra
liefur á liðnum ámm verið
margvísleg, en einkum hafa
menningar- og mannúðarmál
einkennt félagssamtökin. Vél-
stjórafélagið gaf um langt
skeið út rit, fyrst ársrit en
síðan mánaðarblaðið Vél'-
stjóraritið. Þegar Farmanna-
og fiskimannasamband Islands
hóf útgáfu Sjómannablaðsins
Víkings 1939 tóku vélstjór-
ar þá ákvörðun að leggja
Vélstjóraritið niður, en vinna
í þess stað að útgáfu Víkinge
M. E. Jessen
fyrsti skólastjóri Véiekólans
og málefnum sjómanna al-
mennt. Forystumenn vélstjóra-
samtakanna höfðu á sínum
tíma átt mikinn þátt í stofn-
un Farmannasambandsins og
Vélstjórafélag Islands lagt
þar drjúgan skerf til málanna.
Árið 1928 stofnuðu vél-
stjórakonur með sér féiag,
sem þær nefndu fyrst Kven-
félag Vélstjórafélags Islands
en nafninu var síðar breytt í
Kvenfélagið Keðjan. Hefur fé-
lagið sþarfað vel til þessa ög
átt beinan og óbeinan þátt að
bættri kynningu og samheldni
vélstjóra. , ’
Geta má þess -að lokum, að
um nokkurt skeið hefur Vörið
unnið að því að safna ættar-
tölum og æviatriðum félags-
manna og er uppi áhugi með-
al þeirra um að gefa • út vél-
stjóratal, ef tæmandi upplýs-
ingar fást og efnahagur leyfir.