Þjóðviljinn - 26.03.1959, Blaðsíða 11
E r n e s t JK. G a n n a
*-Vjí "«
c’C
84, dagur.
missirðu af því öllu saman og innst inni fyrirgefurðu
a'ldrei að þú hættir við það.“
„Eg hætti af frjálsum vilja.“
„Nei, alls ekki, og ef þú gerðir það í raun og veru,
eru tveir menn sem aldrei fyrirgæfu þér — .... og Keith.“
Hann sneri sér við og horfði reiðilega á hana. Lucille
vissi að hann hafði aldrei fyrr langað til að slá hana.
„Eg vildi að þú hefðir ekki sagt þetta!“
„Ástin mín, ég veit að það er eins og ég sé rugluð,
en þegar ég giftist, giftist ég líka öllum bræðrum þínum.
Það sagðirðu sjálfur. Og ég er farinn að skilja hve
míkla þýðingu flugið hefur fyrir þig. Eg vil ekki að
neitt eyðileggi það. Kannski er flugið með vaxtarverki,
rétt eins og Keith fær með tímanum — ef það verður
drengur. Tad g'afst ekki upp og þú gefst ekki upp heldur.
Fluvð verður stórkostlegt einn góðan veðurdag .... stór-
kostlegra en þig og Roland eða jafnvel Gafferty hefur
nokkurn tíma dreymt um ....... og það eru rrtenn af þínu
tagi sem hafa gert það slíkt.“
Þá vissi hún að hún var að sigra. Hann greip um hönd
hennar og smátt og smátt færðist bros yfir andlit hans.
Hánn leit stríðnislega á hana.
..Þetta var aldeilis ræða. Eg held þú sért afbrýðisöm.“
,,Eg er hræðilega afbrýðisöm. En flugið er alveg eins
mikill hluti af þér og ég. Það skipti ekki neinu máli
hversu mjög það tæki þig frá mér — ég verð að hafa
samvinnu við það. Þú verður að halda áfram að fljúga,
ástin mín .... hvað sem fyrir kemur!“ Hún kyssti hann
innilega á munninn. „Haltu áfram að brosa. Eg er að
deyja úr hungri. Farðu með mig út að borða og kauptu
dálítið vín handa mér og farðu svo með mig hingað aft-
ur og sofðu hjá mér! Fljúgðu svo ferðina þína samkvæmt
áætlun á morgun ...... og láttu mig aldrei framar heyra
þig tala um ábyrgð!“
Hún kyssti hann einu sinni og þaut inn í baðherbergið
og læsti á eftir sér, og þegar þangað kom gat hún varla
opnað varirnar — þær skulfu svo ofsalega af gráti.
XVIII. kafíi
Roland gekk stórum skrefum inn í vöruhúsið með
svip manns, sem er staðráðinn í að framkvæma erfitt
verk. Hann hafði tekið Fleska Scott með sér til hjálpar,
og það var ekki fyrr en lyftustúlkan leit tortryggnislega
á þá og spurði hvert þeir ætluðu, að mesta loftið fór
úr þeim.
\ 11, 11
Roland. Fleski
Fimmtudagur 26. marz 1959
kihkaði kolli
„Ungbarnaföt“ sagði
með alvörusvip.
Stúlkan virti þá fyrir sér frá hvirfli til ilja og sagði:
„Á fimmtu hæð.“
Þeir stigu varlega út úr lyftunni og skálmuðu vand-
ræðilega yfir teppalögð gólfin og gegnum heil völundar-
hús af bleikum kvennærfatnaði sem lá á borðunum og
enn bleikari flíkum sem héngu á grindum. Þarna voru
allmargar konur með hatta á höfðum og þær sneru sér
til á alla vegu og lyftu upp bleikum flíkum, horfðu á
þær girndaraugum meðan þær hristu þær úr brotunum.
Bakvið borðin voru hattlausar-konur og horfðu á Roland
og Fleska með óduldum áhuga sem á ekki sinn líka í
annarri starfsgrein. Þegar karlmennirnir tveir höfðu
fengið að standa og bíða hæfilega auðmýkjandi tíma, lét
ein kvennanna bakvið borðið svo litið að orða það að
hún gæti ef til vill orðið þeim að liði. Roland togaði
í buxnastrenginn og sama gerði Fleski, alveg eins og
Ás
«nmssynii:
HÍLJ
í Listasaíni ríkisins í Þjóðmi’iiasaíninu
er opin virka daga kl. 13—22, og lielgi-
og hátíðisdagana írá kl. 10—22.
Aðgangur ókeypis.
Reykjavík — Hsfnarjörður
Ferðir Hafnartjarðarvagna um páskana verða sem
liér segir:
Skírdagur:
Ferðir hefjast kl. 10:00.
Siðasija i'erð kl. 00:30.
Föstudagurinn langi:
Ferðir hefjast kl. 14:00.
Síðaslja ferð kl. 00:30.
Laugardagur:
Ferðir liefjast kl. 07.00.
Síðasfja ferð ki. 00:30.
Páskadagur:
Ferðir hefjast kl. 14:00.
Síðasjja l'erð kl. 00:30.
Annar páskadagur:
Ferðir hefjast kl. 10:00.
Síðaslja ferð kl. 00:30.
LANDLEIÐIR h.L
Þ J ÓBTVIL JINN — (Sfc
Minningarorð
Framhald af 4. síðu
sama, mynd af góðum drcng.
Ég þekki eagin fegurri orð
eða önnur, sem myndu lýsa.
þér betur. Þú hefur eflaust
ekki verið gallalaus fremur en
aðrir menn, en galla þína
þekkti ég ekki. Ég man ekki
eftir þér öðruvísi en glöðum
og reií'um, trúum og sönnum.
Koma þín á heimili mitt var
fjölskyldu minni ætið gleði-
efni. Ég minnist þess, er
börnin þutu upp til handa og
fóta, er þú birtist í dyrunum.
Kiddi var kominn, og litlir
handleggir lögðust um háls-
i:in á þér, frændi minn. Þá
þótti mér vænzt um þig. Börn-
in finna betur en við, hin
fullorðnu, þá hlýju, sem til
þeirra stafar. Ég minnist þín,
er við sátum saman og rædéh
um um heima og geima. Þú
hafðir heilbrigðar skoðanir á
mönnum og málefnum, og
lastmæ!gi var þér fjarri. Ég
minnist einnig þeirra stunda,
er við sátum einir og þögðum.
Þögr. er hrjúf og óþægileg í
návist sumra manna, en ljúf í
nærveru annarra. Þín þcgn
var mild og hlý.
fítarf þitt hin síðari ár \’ar
einkum á sjónum, eins og
svo margra annarra íslend-
inga, Ég þekkti þig ekki í
starfi af eigin raun, en mér
er fullkunnugt um, að þú
tókst það alvarlega og á-
vannst þér traust og vin-
sældir vinaufélaga þinna. Þar
varstu sami sanni drengurinn
og endranær. En nú ertu
horfinn, Ægir gamli bjó þér
hvílu. Eftir er minningin, sem
auðgar okkur sem eftir lifum
öðru fremur. Ég er guði þakk->
látur fyrir það, að þín nauí:
þó við þessi .fáu ár, þaikklát-
ur fyrir þá birtu og þann yl,
sem þú veittir inn á heimili
mitt, þakklátur fyrir börnin
mín, sem þú varst svo góður.
Foreldrum þínum, Ingirlði
Grímsdóttur og Friðbirni Ein-
arssyni á Vopnafirði, syst-
kinum þínum öllum og nánum
skyldmennum votta ég inni-
legustu .hluttekningu mína í
sorg þeirra. Vertu sæll, Kiddi
minn, kæri vinur og frændi,
þakka þér fyrir allt.
G. M. H.
Jarðarför föður okkar
HALLDÓRS ÞÓRÐARSSONAR,
fer fram þriðjudaginn 31. marz — kl. 1,30 frá
Fossvogskapellu.
Fyrir oltkar hönd og annarra
skyldmenna,
Guðbjörn S. Halldórsson,
Bjarni Þ. Hhlldórsson.
Við þökkum af hjarta öllum nær og fjær, sem
sýndu okkur samúð og hluttekningu við fráfall
eiginmanns míns, föður og sonar okkar
SI EINBJARNAR FINNSSONAR, stýrimanns,
sem fórst með vitaskipinu Hermóði þ. 18, febr. s.l.
Sérstaklega þökkum við konum í Hrönn fyrir
þeirra vinsemd.
Biðjum. guð að blessa ykkur öll.
Agnes Egilsdóttir,
Finnur Sveinbjiírnsson,
Halla Halldórsdóttir,
Finnur Sveinbjörnsson.
r
HEIMILISÞÁTTURJÍ
Svörtu sokkarnir vinna á
Að undanförnu hafa sézt næ-
lonsokkar í næstum öllum regn-
bogans litum og þó virðast
svörtu sokkarnir hafa náð
einna mestri útbreiðslu, eink-
um meðal ungra stúlkna. Ef
maður kærir sig ekki um að
beina alhyglinni að fótleggjum
sínum, er auðvitað fi'áleitt að
,klæða sig í svarta sokka, því
sá litur er sérlega áberandi á
sokkum. En hann getur verið
skemmtilegur á ungri stúlku,
sem er ef til vill í- hvítum kjól
sem stingur hressilega í stúf
við svarta sokkana- og t.d. eld-
rauða skó.
Hafi maður samt sem áður
hugsað sér að geva þessa djörfu
tilraun og hætta við holdlitu
sokkana, er rétt að aðgæta vel
í búðinni hvort svarti liturinn
er vel jafn. Litunin misheppn-
ast nefnilega stundum og eink-
um sést það oft á saumlausum
sokkum að þeir eru með dálít-
ið misdökkum rákum.
Mjúkar ífalskai línai
v
Skemmtileg, ítölsk þlússa úr
hinu mjúka og yndislega ca-
chemis-efni. Blússan liggur í
mjúkum föllum um hálsinn og
ermarnar eru út í eitt. Pilsið
er úr þykku moliair með breiðu,
stungnu foelti, skreyttu tveim
hnöppum.