Þjóðviljinn - 17.04.1959, Síða 11

Þjóðviljinn - 17.04.1959, Síða 11
Föstudagur 17. apríl 1959 — ÞJÓÐVILJIXN — (11 B U D D SCHULBERG helmingi eldri en þú, þegar hann hrökk upp af fyrir mörgum árum.“ „Fyrirgefðusagði ég. „Eg vona að ég særi þig ekki með því að rifja það upp. En ég þykist þó vita hvað hann segði, ef hann sæi þig í dag. Hann segði: „Sammi, þegar til lengdar lætur kemstu betur áfram með því að vera góður við annað fólk. því að þá verður það gott við þig, þegar þú þarft á að halda.“ Þið hefðuð átt að siá svipinn á Samma og hlátur hans. „Herra Manheim,“ sagði hann. „Þetta er viðeigandi lík- hringing yfir þeim gamla. Þetta segði hann alveg áreið- ardega við mig. Á ég nefnilega að segja þér hvað kom þeim gamla fyrir kattarnef? Heimska.“ „Mér þykir þú tala fallega um hann föður þinn,“ sagði ég. „Get ég' nokkuð gert að því þótt hann hafi sálazt úr heimsku?“ spurði Sammi. „Hann hafði ekki vita á að forða sér inn úr rignirigunni, og hann dó úr sjúkdómi sem virðist vera ættgeng'ur í minni fjölskyldu — heimsku.“ „Þetta er nú varla hávísindaleg sjúkdómsgreining," sagði ég. „Til fjandans með vísindin,“ sagði hann. „Eg veitj, bara að sá gamli hrökk upp af vegna þess að hann kunni ekki að nota heilann, og mamma gamla og hálfvit- inn hann bróðir minn þjást af sama sjúkdómi." Mér var ljóst að á þessu tali var ekkert að græða. Flestar gyðingafjölskyldur meta mikils ást milli föður og sonar, en Sammi var alls ekki það sem kalla mætti elsk- andi sonur. Og ég reyndi aðra aðferð. „Sámmi,“ sagði ég alvarlegur í bragði. „Þjóðfélagið er ekki bara hópur einstaklinga. Sem félagi í þjóðfélaginu er maðurinn samábyrgur, ekki sjálfstæður. Lífið er of margbrotið til þess að sú regla gildi lengur, að hver sé sjálfum sér næstur. Við höfum sameiginleg not af ýms- um þjóðfélagsstofnunum, svo sem. sjúkrahúsum, lög- reglu og sorphreinsun, svo að eitthvað sé nefnt. Já, meira að segja samræður eru þjóðfélagslegt fyrirbæri. Við getum ekki lifað í þessurn heimi eins og mannætur sem bíða þess að gleypa hver aðra í sig. Ef við lærum að taka tillit til annarra, þá verðum við öll langlífari.“ Eg var býsna ánægður með sjálfan mig eftir allt þetta, því að ég var sannfærður um að ég hefði aldrei sagt neitt jafn skjmsamlegt. En ég hefði eins getað verið að tala við steinvegg. Það hefði jafnvel verið betra. Hann hefði þó ekki svarað mér. Svar Samma var þetta: „Ef þú vilt bjarga sálum, ættirðu að reyna í Kína.“ Eg býst við að ástæðan til þess að ég var að brjóta heilann um Samma hafi verið sú að hann var útsmogn- asti og um leið takmarkaðasti náungi, sem ég hafði nokk- urn tíma fyrir hitt. Hann hafði skarpa greind, sem hann gat einungis notað til framdráttar Samma Glick. Og þess kpnar greind hefur takmörkun í för með sér, og þar sem annað fólk hafði ef til vill blindan blett, var heili Samma ein benda af blindum blettum, og einn ein- asti ljósgeisli beindist beint fram á við. En ég var uppþrunginn af umburðarlyndi eins og kvekari og var staðráðinn í að' sígr'á Sámmá' rireð g'oð- mennsku. Eg átti tvo miða á „Eg syng um þig,“ og ég gaf honum þá og sagði honum að taka mömmu sína með sér eða vinkonu sína. „Vinkonu," hvæsti hann. „Þú sérð mig aldrei með neinni vinkonu.“ í ■ „Það er mikill skaði fyrir hitt kynið,“ sagði ég. „Hvaða gagn hefði ég af stelpu?“ sagði hann. „Mað- Ur eyðir bara í þær tíma og peningum og ef þær lenda í vandræðum, æpa þ^r á mömmur sínar.“ „Þú ert þá með öðrum orðum yfir ástalíf hafinn," sagði ég. „Nei, svei mér þá,“ sagði hann. „Eg á kunningja sem reddar mér á hverju laugardagskvöldi. Ókeypis." „En hvað það er rómantískt.“ Eg raulaði fyrir munnl mér stef úr dægurlagi. „En fyrst það er upplýst, viltu þá ekki miðana samt sem áður? Þú gætir komið móður þinni á óvart með þeim.“ „Mamma gamla á söngleik?“ sagði Sammi. „Hún hefur aldrei komizt nær söngleik en þegar hún heyrir forsöngvarann kyrja „Elía, Elía“.“ „Þá ættirðu að gera henni dagamun,“ sagði ég. , Ekkert í heiminum er eins gaman og skemmta fólki sem er óvant slíku.“ „Almáttugur, hvað þú ert tilfinningasamur,“ sagði Sammi. „Flestir júðarnir sem ég þekki eru að gera mig vitlausan, því að þeir eru alltaf að rembast við að vera svo góðir. Atliða sé ekki óeðlilegt?“ „Mundu hvað ég sagði þér,“ sagði ég. „Ef þú segir „atli“ máttu búast við að vera á skrifstofu til eilífðar.“ „Lítil hætta á því,“ sagði Sammi og flýtti sér burt. Þegar ég sá Samma daginn eftir, minntist hann ekki einu orði á leiksýninguna, svo að ég varð að lokum að spyrja hann. „Eg ætlaðist ekki til að þú þakkaðir mér fyrir þessa miða,“ sagði ég, „en mér finnst þó að þá gætir sagt mér hvernig þér líkaði.“ „Ágæt sýning,“ sagði hann. „Ágæt sýning,“ æpti ég. „Þetta e- «v-HMrert merk- asta leikrit sem skrifað hefur verið í Bandaríkjunum, og þú segir bara „ágæt sýning“.“ „Mér þætti ekkert að því að hafa eittb^að af bví sem Kaufman og Ryskind hafa,“ bætti hann við. Þetta var nær lagi, hugsaði ég. „Eg gæti líka látið mér nægja helminginn af hæfileikum þeirra,“ sagði ég. „Eg átti ekki við hæfileika,“ sagði Sammi. „Eg var að hugsa um ágóðann. Þeir hljóta að þéna grimmilega á þessum sýningum.“ „Hypjaðu þig héðan,“ sagði ég. „Burt með þig.“ Nokkru seinna rakst ég á einn af prófarkalesurunum, Osborne, við drykkjarhanann. -Hann var elskulegur, gam- all gráhærður náungi, sem var smátt og smátt að vinna Lótusbúðin 1 dag er tízkan Teddy- klæði. er vandlátra val. Hafnarfirði. róítir Framhald aí 9. síðu. æfingum stutt vseri hægt að byggja ofan á þjálfunina frá ári til árs, og þá fyrst væri von til þess að árangur kæmi í vax- andi mæli. Karl kvað æskilegt að gefið væri út tímarit um knattspyrnu, þar sem gefnár væru bendingar og leiðbeiningar um þjáliun og annað það sem mættj verða til eflingar knattspyrnunni, til- kynna nýjungar í þjálfun og breytingar á lögum o. fl. Hann upplýstj ennfremur sð .gerðir hefðu verið þjálffíma- seðlar sem sendir verða út til félaganna. Áleit hann mörg verkefni bíða knattspymu- (Meira). Skrautið á skónum er mjög ] myndinni eru dálítið oddmjóar, mismunandi, spennur, hnappar,' en von er á beinum tám og á- slaufur og stungur. Tærnar á, valari tám. Voi- og sumacskérnii með lágnm hælum og beinni tá. T-reimarnar hreikka og styðja fétinn betur 2-3ja sm hæll. Stærsta breytingin hefur órð- ið á hælunum. Margar stúlkur fagna áreiðanlega lága, egglaga hælnum sem er bæði þægilegri og betri gönguhæl'Þien hái stil- et-hællinn. Háir hælar eru að vísu. enn æ skóm með ítölskum svip, en sjálfsagt verður það lági hællinn, 2-3ja sm. sem eignast flesta áhangendur. Tálögunin hefur líka breytzt mjög. Itölsku skórnir eru að vísu enn mjög oddhvassir, en beina táin ; og sú ávala hafa báðar komið fram á sjónar- sviðið aftur. Breiðú beltin sem nú eru notuð bæði við kjóla og kápur hafa líka haft áhrif á skóna. T-reimarnar hafa sém sé breikkað, þannig að þær styðja nú fótinn í stað þess að vera eingöngu til skraúts. krossaumur, spennur og hnapp- ar en allt í hófi. Margir tízkulitir. Fallegur vorskór úr möttu leðri. Lági hællinn er fallega lagaður og flestir hafa fallegra göngulag á -svona hæl en.mjög háum hrd. finna v C.elgar.di lit við kápu eða dragt því að litirnir eni ótal margir, bæði eldrauðir, apríkósulitir, sæfroðugrænir, olívugrænir og prímúlugulir. Ennfremur fjöimörg blá lit- brigði og hlutlausari litir, svo sem ijcsbrúnt, drapplitt, fíla- beinsguit og gráhvítt. Loks má geía þess að iiskór alls konar virðast ætla að verða mjög. vinsælir í -sumar, Það verður ekki erfitt að ibæði á börn og fullorðna. Skemmtilegur ilskór úr Annars er skrautið með ýmsu hvítu leðri með reim á milli móti, bæði slaufur, reimar, tánna. Búizt er við að svona skór verði mjög í tízku, þar sem þeim verður við komið. Reimin er úr „gulli“.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.