Þjóðviljinn - 22.04.1959, Qupperneq 1
VILJINN
Miðvikiidajíiir 22. apríl 1959 — 24. árgangur — 90. tölublað.
StjómaHlðfS sker níður oplnberar framkvæmdir,
afhendir gæðingum milljonir af almannafé
SjálhfœSisflokkurinn og AlþýSuflokkurinn fella tillögur
um úrlausn á brýnusfu þörfum fólksins og atvinnuveganna
Fundur Varsjár-
bandalagsmanna
Það var tilkynnt í Moskvu í
gær að utanríkisráðherrar Va.'-
sjárbandalagsríkjanna og Kina
myndu koma samana til fund.r
í Varsjá nk. mánudag.
Ekki var tilkynnt um funda.-
efni, en Tass-fréttastofan sagði
að fundurinn myndi sennilega
fjalla um sefnu sósíalisku rík;-
anna á fundi utanríkisróðhcrra
stórveldanna, sem hefst í Genf
11. maí nk. 'Fréittaritarar í
Moskvú telja að fundurinn muni
sérstaklega fjalla um friðar-
samninga við Austur-Þýzkalar.d
og brottför erlends hers l>aðan.
Meðferð fj árlagafrumvarpsins á Alþingi var haldiö
áfram lengi nætur í fjrrrinótt og ekki hætt fyrr en um-
ræðunni var lokið. Atkvæðagreiðslan var svo látin fara
fram á fundi síðdegis í gær, enda þótt einir sex þing-
raemi hefðu veikindaforföll og fram kæmi frá Fram-
sóknarflokknum eindregin tilmæli um að fresta a.m.k.
afgreiðslu mestu ágreiningsmálanna.
Við atlcvæöagreiðsluna var stjómaiiið Alþýðuflokks-
ins og Sjálfstæöisflokksins svo rækilega handjárnað að
þaö felldi hverja einustu tillögu frá Alþýöubandalag-
inu og Framsókn, aðrar en þær sem samkomulag hafði
náðst um í fjárveitinganefnd og fluttar voru af nefnd-
inni alh*i.
Ráðherratign — og hagsmunir
Akureyrar
Það vakti t.d. athygli að Ak-
ureyrarráðherrann Friðjón
Skarphéðinsson greiddi atkvæði
gegn hverri tillögunni eftir
aðra varðandi hagsmunamál
kjósenda sinna og bæjarfélags.
Þannig felldi stjómarliðið sem
einn maður tillögu frá Birni
Jónssyni um að veita 300 þús.
kr. til Dráttarbrautar Akureyr-
ar og var sú tillaga felld með
27 atkv. gegn 14. Tillaga Al-
þýðubandalagsmanna um eina
millj. kr. til Akureyrarflugvall-
ar og önnur um 800 þúsund
krónur voru báðar felldar, en
stjómarflokkunum þótti hæfi-
legt að skammta honum 625
þús. kr. Einnig samþykkti
stjómarliðið að lækka fjárveit-
ingu til byggingar heimavist-
arhúss við Menntaskólann á
Akureyri úr 300 þús. kr. í 100
þús., allt með ljúfu samþykki
ráðherrans.
Þu rrafúahneykslið samþykkt
Þá samþykkti stjórnarliðið
með 22 atkvæðum gegn 17 a-t-
kv. Alþýðubandalagsmanna og
Framsóknarmanna hina hneyksl
anlegu tillögu fulltrúa Alþýðu-
flokksins og Sjálfstæðisflokks-
ins í fjárveitinganefnd „að-
gefa hlutaðeigandi útvegsmönn-
um eftir þær skuldakröfur er
ríkissjóður eignast á þá fyrir
innlausn á lánum, sem hann
er í ábyrgð fyrir vegna þurra-
fúa í fiskiskipum". Samþykkt
þessarar tillögu sýnir glöggt
hverjir það em sem ciga ríkis-
stjórnina, því hér er ætlunin
að gefa nokknmi gæðingum
milljónir af almannafé, og það
fátæklingum á borð við Einar
Sigurðsson!
Sparnaðaraðferðir
stjórnarliðsins
Hins vegar var ekkert hik á
stjómarliðinu að samþykkja
niðurskurðinn á opinbemm
framkvæmdum, en hin almenna
tillaga stjórnai’flokkanna um
meir en 8 milljón króna sparn-
að með því móti var samþykkt
með 25 atkvæðum Alþýðu-
flokksins og Sjálfstæðisflokks-
ins gegn 19 atkvæðum þing-
manna Alþýðubandalagsins og
Framsóknar.
En þegar kom að tillögu
Karls Guðjónssonar um sex
milljón króna spamað á
„gjaldaliðum stjóraarráðsins,
utanríkismála, dómgæzlu, lög-
reglustjómar og toll- og skatt-
heimtu" kom annað hljóð í
sparaaðarstrokk stjóraarliðs-
ins. Sömu mennirair sem voru
á sömu klukkustundunum að
slcera niður opinberar fram-
kvæmdir í landinu og afhenda
nokkrum gæðingum milljónir
af almannafé, brugðu nú hart
við og felldu þessa sparnaðar-
tillögu, féll hún með 26 atkv.
gegn 9, því ekki virtust marg-
ir Framsóknarmenn hafa á-
Framhald á 11 síðu
Meirihluti stjórnærskrárnefndar; Benedikt Gröndal, Einar Olgeirsson, Bjarni Benediktsson,
Jóhann Hafstcin o.g Jón Sigurðsson.
Fimm af sjö stjórnarskrárnefndarmönnum leggja til: j
Stjórnarskrárfrumvarpið
verði sambykkt óbreytt
Fimm af sjö fulltrúum í stjórnarskrámefn<Iinni, full-
trúar Alþýðubandalagsins, Albýðuflokksins og Sjáif-
stæðisflokksins, skiluðu í gær áliti sem meirihluti nefnd-
arinnar. Leagja þeir til að stjórnarskrárfrumvarpið verði
samþykkt óbreytt.
Stjórnarskrárnefndin hefur
rætt frumvarpið á fundum í Al-
bingishúsinu, 15. og 17 apríl.
Var Bjami Benediktsson kjör-
inn formaður nefndarinnar og
Sósíalistac Kópavogi
Munið árshátíð Sósíalista-
félags Kópavo-gs í kvöld
í Félagsheimilinu. — Sjá
nánar auglýsingu inni i
blaðinu.
Gugna þeir við árás-
ina á orlofslögin?
Magnús Jónsson játar að ekki sé hægt að gerbreyta
um íramkvæmd laganna ;nema með lagabreytingu
Við fjárlagaumræöuna í fyrrinótt geröi Björn Jóns-
son m.a. aö umtalsefni þá furöulegu tillög-u stjórnarliðs-
ins að fella niður greiðslu orlofsfjár með merkjum, en
meö þessu telur ríkisstjórnin að spara megi 500 þús. kr.
Minnti Björn á þá löngu bar-
áttu, sem verkalýðssamtökjn
hefðu háð fyrir orlofslögunum
og þeim rétti til hvildar, sem
þau veita. Með þeirri breytingu,
sem hér er lögð til, sagði Björn,
er í raun réttri verið að afnema
orlofslögin með öllu fyrir allt
lausráðið verkafólk og breyta
því fé, sem verkamann eiga rétt
á sér til hvíldar og ber skylda
til - að nota í því augnamiði í
framíærslueyri, sem eytt er
jafnóðum og hans er aflað.
Þegar svo þar við bættist að
þessi ráðstöfun værj gerð ein-
mitt rétt á eftir lögbundinni
kauplækkun, sem næmi mun
meiru en orlofsfénu værj ekki
um að villast hvað verið væri
gera: að afnema bæði rétt
skyldu verkamanna til þess
hvílast í orlofi eins og allar
Framhald á 2. síðu
Einar Olgeirsson ritari.
Siðari fundinum lauk með því
að nefndin klofnaði, og mynda
bessjr nefndarmenn meirihluta:
Benedikt Gröndal. Bjarni Bene-
diktsson, Einar Olgeirsson, Jó-
hann Hafstein og Jón Sigurðs-
son. Minnihlutinn er skipaður
fulltrúum Framsóknarflokksing,
Gísla Guðmundssyni og Páli
Þorsteinssyni.
Nefndaráliti meirihlutans lýk-
ur á þessa leið:
„Hvernig sem þetta mál er
skoðað, verður Ijóst, að öll rök
hníga með því önnur en þau, ef
menn vilja halda við þeirri
skipan að veita einum flokki
forréttindi á kostnað allra ann-
arra flokka og þar með yfir-
gnæfandi meirihiuta þjóðarinn-
ar.
f þessu frumvarni er ekki gert
á hlut neins frá því, sem nú er.
Engum er veittur réttur, sem
hann á ekki fulla kröfu til. Hinu
má miklu fremur halda fram, að
fólkið í þéttbýlinu sitji enn við
of skarðan hlut. En það vill una
því og réttir fram bróðuvhönd
sína til fámennisins til einlægr-
ar samvinnu um heill allra
hyggða íslands í þeirri von, að
þeir verði, þegar á reynir, fáir,
sem ekki láti sér nægia að mega
kjósa hlutfallslega fleiri þing-
menn en aðrir, heldur heimti og,
að þeir séu kosnir hver með
sinni aðferðinni. svo að af hljót-
ist magnað ranglæti.
Meirihluti stjórnarskrárnefnd-
ar telur, að í frv. felist svo brýn
réttarbót, að ekki megi dragast
að samþykkja hana, Hann legg-
ur þess vegna til, að frv. verði
samþykkt, og getur ekki fallizt
á till. að rökstuddri dagskrá urrt
frestun málsins, sem fulltrúar
Framsóknarflokksins lögðu fram
í nefndinni. Úr því sem kom-
ið er, virðist betur í samræml
við lýðræðislega stjórnarhætti,
að önnur atriði stjómarskrár-
innar verði ekki tekin til endur-
skoðunar fyrr en réttlátari skip-
un Alþingis hefur verið tryggð
en nú er. Breytingartillögur þær
við frumvarpið sem fulltrúar
Framsóknarflokksins báru frairt
i neíndinni, miða að þvi að auka
enn misrétti milli flokka um
bingmannafjölda og koma í veg
fyrir, að upp séu teknar sams
konar reglur um kjör þingmanna
hvarvetna á landinu. Meiri hlut-
inn getur þess vegna ekki mælt
með samþykkt þeirra.
Meiri hlutinn leggur með skír-
skotun til framanritaðs til, að
frv, sé samþykkt óbreytt."