Þjóðviljinn - 19.06.1959, Page 7

Þjóðviljinn - 19.06.1959, Page 7
\ Föstudagur 19. júni 1959 — ÞJÖEÍVILJINN — (7 Sömu laun íyrir jaínverð mæta vinnu er réttlætis lEUlefu ár eru liðin frá því að Hannibal Valdimarsson flutti á Alþingi frumvarp um réttindi kveima, en hann var þá nýkominn á þing. Frum- varpið var flutt í því ekyni að algert jafnrétti karla og kvenna yrði þannig bumdið í lögum, að ekki yrði fram hjá því gengið, ekki heldur á sviði launamálanna, þar sem tryggja skyldi algert jafnrétti kvenna. Flutningsmaður hélt ýtarlega framsöguræðu og gerði grein fyrir hvernig laga- ákvæðin um réttindi kvenna hefðu verið sniðgengin í reynd á ýmsum sviðum þjóðlífsins og skoraði hann á þingmenn að bæta úr því með eamþykkt frumvarpsins. Þingmenn Alþýðuflokksins Hannibal Vjaklimarsson í efri deild (nema Guðmundur í. Guðmundsson) vildu sam- þykkja frumvarpið og allir þingmenn Sósíalistaflokksins, en þingmenn Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknar voru sammála um að koma því ein- hvemveginn fyrir kattamef (nema einn Framsóknarmaður sem horfinn er af þingi). Vildu sumir vísa málinu til ríkisstjóminnar' en aðrir fel’a það hreinlega. Þá reis upp einn af leið- togum Sjálfstæðisflokksins, úr stóli dómsmálaráðherra, Bjami Benediktsson. Mót- mælti hann því að málinu væri vísað til ríkiestjórnarinn- ar, á þeim forsendum að hún vissi ekkert hvað við það ætti að gera! Taldi hann sér alveg ókunnugt um ef konur hefðu ekki á öllum sviðum jafnrétti við karlmenn að lög- um og á ýmsum sviðum meiri rétt. „Það jafnrétti sem flutn- ingsmaður talar um er fyrir löngu fyrir hendi, og hann er þess vegna heilan manns- aldur á eftir með tillögum sín- um hér“. Annar þingmaður Sjálfstæðisflokksins lét svo um mælt að elckert þingmál hafi sér virzt annar eins „krypplingur" og þetta mál, og var það rökstuðningur hans til að vera á móti mál- inu: „Ég treysti mér ekki til að setja þennan kryppling á og segi því nei“. Þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins og Framsóknar gerðu svo atkvæðagreiðsluna um málið að hreinum skrípaleik. Fyrsta grein frumvarpsins var sam- þykkt með atkvæðum Alþýðu- flokksmanna og Sósíalista- flokksins og eins Framsóknar- manns. En hinar greinar frumvarpsins léku þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknar sér að því fella og felldu síðan að vísa frv. til 3. umræðu og hentu mikið gaman að. Þetta var áður en Sjálfstæðisfl. og Bjarni Bene- idiktsson gerðu sér ljóst að hægt var að gæla við svona mál í áróðri og með sýndar- tillögum á Alþingi en hindra engu að síður í áratugi fram- gang réttlætismáls eins og launajafnréttis kvenna og karla. ★ Hannibal flutti aftur frum- varp um launajafnrétti kvenna og karla 1953 og hafði nú fleiri flokksmenn sína að meðflutningsmönnum. Efni þess frumvarps var að lög- fest yrði að konum skyldi hvarvetna greiöd sömu laun fyrir jafnverðmæta vinnu og körlum. Flutningsmaður ræddi þetta mál og réttindamál kvenna yfirleitt í langri og fróðlegri ræðu, og sagði þar m.a.: „Ég held að þeir verði fáir, sem treystast til þess að mæla gegn því að þetta frumvarp flytji réttlætismál. Þetta mál er fyrst og fremst flutt af Alþýðuflokknum sem réttlæt- ismál. Það er ekki flutt sem neitt sérmál kyenna. Það er jafnréttismál og réttlætismál sem ætti ekki að þurfa að gera ráð fyrir að yrði bar- izt á móti af neinum. Það er skammt síðan kon- ur höfðu ekki rétt til náms í skólum ríkisins. Þær höfðu ekki rétt til að taka próf,^ þó að þær hefðu fengið að njóta námsins. Þær höfðu ekki rétt til íslenzkra embætta í þjónustu ríkisins, hvaða lær- dóm sem þær höfðu, fyrr en það var tekið í lög árið 1911. Þær höfðu ekki atkvæð- isrétt, hvorki í sveitarstjórn- armálum né til Alþingis og ekki heldur kjörgengi. Og það eru aðeins örfáir áratugir síð- an menn opnuðu augun fyrir því að þetta væri slíkt hróp- legt ranglæti að það gæti ekki gengið og það yrði að tryggja með lögum konum sama rétt og körlum í þessu efni. Sú var líka tíðin að foreldrar gerðu þannig að íslenzkum lögum upp á milli barna sinna að sonurinn fékk heilan hlut þegar skipta skyldi arfi en dóttirin hálfan — hálfan arf. Einnig það ranglæti var af tekið með lögum. Þannig hef- ur orðið að saxa ranglætið niður í þessum efnum og er þó ýmislegt sem máli eliiptir eftir enn, þar á meðal þetta sem frumvarp Alþýðuflokks- ins fjallar um, misrétti kvenna og karla í launamál- um. Vinnuafl konunnar í þjón- ustu þjóðfélagsins, þjóðfélags- stofnana, er ekki metið á í dag, 19. iúní, þykir ástæða til að rifja upp nokkur atriði úr afgreiðslu Alþingis á því jafnréttismáli sem nú er brýnust nauðsyn að fá framgengt, en það er að konum verði greidd sömu laun fyrir jafnverðmæta vinnu. Öll verkalýðshreyfingin á íslandi hefur gert þá kröfu að sinni, öll samtök íslenzkra kvenna einnig. En ekki hefur tekizt að vinna bug á ofurvaldi afturhaldsins í samtökum atvinnurekenda, er staðið hefur sem veggur gegn þessari kröfu. Á Alþingi hafa einungis þingflokkar Sósíalistaflokksins og Alþýðu- flokksins fenaizt til fylgis við þá leið að lögfesta lausn málsins. Frumvörp um málið hafa jafnan verið annað hvort felld eða svæfð af Sjálfstæðisflokknum og Framsókn- arflokknum. sama mælikvarða og vinna etarfsbróðursins. Til þess að kveða það niður þarf laga- setningu. Það er alveg greini- legt að það gerist ekki af sjálfu sér, og það gerist jafn- vel ekki því miður við hörð- ustu baráttu hinna sterkustu samtaka í landinu, þau áorka því ekki og eru búin að fást við þetta verkefni árum og áratugum saman og hafa ekki náð marki, eru í rauninni tiltölulega litlu nær“. ★ í lok ræðu sinnar minnir Hannibal á, að til skamms tíma þótti sjálfsagt að kaup væri til muna lægra úti á landi en í Reykjavík, og kost- að hafi harða baráttu að af- nema það misrétti. „Alveg eins er með launa- mismun karla og kvenna. Þetta eru leifar gamals tíma, þetta er ranglæti sem menn einungis geta þolað vegna vanans, sem menn halda að sé búinn að helga það. En það á engan rétt á sér og það á að hverfa, hverfa sem fyrst, al- veg eins og launamismunur- inn á hinum ýmsu stöðum á landinu hefur horfið. Ríkið er búið að stíga langt skref til þess að eyða launa- mismun kvenna og karla. Það launar embættismenn eins, hvort sem það eru konur eða ltarlar. Það dettur engum í hug að ríkið eigi að græða á því að ætla þeim konum sem eru embættismenn í þjónustu ríkisins, lægri embættislaun heldur en körlum, og að nokkrum árum liðnum munu allir sjá hvílík fjarstæða það Framhald á 10. síðu. Sólveig Ólafsdóttir: Jafnréttismál kvenna í dag Ekki er hægt að minnast svo á 19. júní — kvenréttindadag- inn — að ekki sé jafnframt minnzt konunnar, sem mei’kið hóf fyrir almennu jafnrétti kvenna í þjóðfélaeinu við karl- menn, — konunnar sem va« lífið og sálin í réttindabaráltu kvenna um áratugi, — Brietar Bjarnhéðinsdóttur. Hún varð fyrst kvenna til að rita grein í íslenzkt blað (Nokkui- oro um frelsi og menntun kvenna). Hún var fyrsta íslenzka konan, sem hélt fyrirlestur, og það sem henni lá þyngst á hjarta var, að ræða „Um hagi og réttxncli kvenna “ Hún stofnaði og hélt lengi úti Kvennablaðinu og hún var stofnandi og leiðandi kraft- ur Kvenréttindafélags íslands alla tíð, meðan henni entist aldur til. Bríet Bjarnhéðins- dóttir var mikilhæf kona, gagntekin af frelsisþrá og jafwn réttisanda og sá langt inn í framtíðina — ég held jafnvel betur og skýrar, en við ílestaiy sem nú erum unni. — Hún var hugsjónamaður, ekki aðeins í orði, heldur einnig á borði. Framhald á 10. síðu Hulda Bjarnadóttir: Við heimtum lull mannréttmdi — Hvað hefurðu mikið kaup? — — Ég hef tvö þúsund átta hundruð og sex krónur á mán- uði. — — Hvað borgarðu mikla húsaleigu? — — Átta hundrað krónur á mánuði fyrir eina stofu með eldhúsaðgangi. — Ég kvaddi kunningjakonu mína og rölti heim á leið döpur í skapi. Þessi stúlka hefur fyrir barni að sjá. Hún er að ala upp nýjan þjóðfé- lagsþegn, og enginn sendi- sveinn myndi líta við þeim launum, sem henni eru skömmtuð til þess að fram- fleyta sér og barni sínu, og samt vinnur hún í þjónustu ríkisins, þar sem launajafn- rétti á að rikja samkvæmt landslögum. Hún á dreng, og mér varð hugsað til þess, hvort hann myndi ekki skilja það og gera sér grein fyrir því, þegar honum yxi fiskur um hrygg, hvers hann hefði farið á mis í uppeldinu, vegna óréttlætis þjóðfélagsins gagn- vart móður hans, og verða hatramur kvenréttindamaður. Hulda Bjarnadóttir Þeim, sem vegna miður á- reiðanlegra blaðaskrifa, halda að launamál starfskvenna rík- isins séu komin í viðunandi horf fyrir atheina fjármála- ráðuneytisins á s.l. ári, vil ég segja, að þar var um hálf- kák og sýndarmennsku að ræða, sem lítið á skylt við að hálf hvað þá full leiðrétt- ing hafi fengizt. Og ég hef aldrei heyrt meiri öfugmælí en þau, að fjármálaráðuneyt- ið hafi staðið fyrir því að konur í þjónustu ríkisins fengju launakjör sín leiðrétt. Allar, eða velflestar, sta.rfs- konur ríkisins vita að það hefur einmitt verið fjármá’a- ráðuneytið, sem hefur staðið eins og klettur á móti því að þau mál fengju réttláta úr- lausn. Og í þessum blaðaskr'fum hefur alveg láðst að geta þess, að það var eins og fvrir úlfaldann að komast gegnum nálaraugað, fyrir ríkisstnrfs- konurnar að fá leiðréttingu mála sinna. Hverri umsókn kvennanna um kiara'eiðrétt- ingu þurfti' að fylgja þvkkur bunki af meðmælum. voriorð- um, umsögrmm og öðru slíkui um störf þeirra, samfara brá- beiðni viðkomandi forstióra, til þess að hún fyrdi náð fvrir augum fjármálaráðuneytisins. Framhald á 10. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.