Þjóðviljinn - 19.06.1959, Page 12
Símcslíimr slitsics - Fé femtlr
Vetrarveður gerði aftur um land allt 16.—17. júní. Ák
Norðurlandi brotnuðu símastaurar og slitnuðu línur og
fé fennti í Mývatnssveit.
Snjókoma var á Norður- og
Austurlandj og fennti fé á Mý-
vatnsheiði. Vaðlaheiðin varð ó-
fær af snjó og Siglufjarðarskarð
lokaðist enn og mun mikið verk
að opna veginn aftur. Fjarðar-
heiði og Oddsskarð á Austur-
landj urðu að heita ma ófær
af snjó.
f Skagafirði brofnaði einn
símastaur en 10 á Hrútafjarðar-
hálsj og 5 drógust upp.
í Ólafsfirði slitnaði fisktöku-
Barízt í Dnrban
í Soðnr-Afríkn
Lögreglan í Durban í Suður-
Afríku skaut í gær á rúmlega
3000 manna hóp blökkumanna,
og svöruðu þeir með skothríð.
Ekki var vitað um manntjón í
gærkvöld. í hópnum voru aðal-
lega konur sem vopnaðar kylf-
um höfðu ráðizt inn í ölkrár
borgarinnar og brotið þar allt
og bramlað. Ástæðan er talin
sú að lögreglan gerði nýlega
leit að bruggtækjum blökku-
manna og eyðilagði þau, en öl-
krárnar eru eign bæjarstjórnar-
innar.
skip frá bryggju og rak upp í
sand handan fjarðarins. Einn
vélbátur slitnaði þar upp og
trillubátur sökk.
Útihát-íðahöldin á þjóðhátíðar-
daginn féllu niður víðast hvar
um landið nema hér í Reykja-
vík. Hér fóru hátíðahöldin fram
samkvæmt áætlun, þrátt fyrir
kuldann, og voru göturnar fullar
af kátu og harðfengu fólki langt
fram yfir miðnætti, eins og sést
á myndum frá þjóðháíðinni á
öðrum stað^ í blaðinu.
Lár»is Rist
Kosningaskrif-
stofur Alþýðu-
bandalagsins
Kosningaskrifstofur Al-
þýðubandalagsins eru á
eftirtöldum stöðum utan
Reykjavíkur:
Hafnarfjörður: Góðtempl-
aralmsið, sími 50273. —
opin kl. 4—10 daglega.
Kópavogskaupst.: Hlíðar-
vegur 3, sími 22794.
Akranes: SUagabraut 8,
sími 201 — opin kl.
1—10 e.h.
ísafjörður: Skátaheimilið,
sími 282. — Opin kl.
5_7 0g 8—10 e.h.
Sigluf jörður: Suðurgata
10, sími 210.
Akureyri: Hafnarstræti
88, sími 2203. — Opin
allan daginn.
Vestmannaeyjar: Báru-
gata 9, sími 570.
Keflavík: Ivirkjuvegur 32,
sími 372.
Selfoss: v/Tryggvatorg,
sími 143.
Húsavík: Hringbraut 13,
sími 55 — opin kl.
G—10 síðdegis.
«>-
Lárus Rist áttræður
Föstudagur 19. júní 1959 — 24. árgangur — 126. tölublað.
Bryndís Pétursdóttir flutti ávarp fjallkonumiar af svöium Al-
þ/ngisliússins á 15 áha afmajli lýðveldisins 17. júní, hér sést
hún sem fjallkonan í garði Alþingishússins.
Sýnir Tannhvassa
tengdamóður í
101. skipti
Um þessar mundir eru liðin
30 ár frá því Leikfélag Reykja-
víkur hóf leikferðir út um
lanid. Það slær að sjálfsögðu
ekki slöku við nú fremur en
endranær og sýnir Tannhvassa
tengdamóður í Vestmannaeyj-
um í 101. skipti.
Leikfélagið hefur sýnt Tann-
hvassa tengdamömmu í 100
skipti. Nú hyggst það hafa 2
sýningar í Vestmannaeyjum en
fara síðan eftir helgj til Norð-
ur- og Austurlands og sýna
hana þar. — Verður nánar sagt
frá leikförinni eíðar.
Lárus Rist, hinn landekunni
íþróttafrömuður er 80 ára í
dag. Hann varð fyrst lands-
frægur fyrir Oddeyrarsund sitt,
sund sitt yfir Eyjafjörð sjó-
klæddur. Mestan hluta ævinnar,
allt frá unga aldri helgaði
hann íþrótta- og líkamsræktar-
málum á Akureyri, en á full-
orðinsaldri fluttist hann suður
til Hveragerðis, settist þar að,
byggði sundlaug í Laugaskarði
og gerðist þar forustumaður
Eldur í vélbáti
1 gærmorgun var slökkviliðið
kvatt að vélbátnum Hörpu SH
90, sem lá við Grandagarð.
Hafðj kviknað í káetu bátsins
en eldurinn var fljótlega slökkt-
ur og urðu skemmdir litlar.
um sundmál. Störf Lárusar
Rists í þágu íþrótta hafa ekki
miðað að því fyrst og fremst
að þjálfa methafa, heldur hinu
að ala upp hrausta menn, and-
lega og líkamlega.
Á þjóðhátíðardaginn, 17.
júní, var fyrirhugað að afhjúpa
í Hveragerði myndastyttu af
honum við sundlaugina, í til-
efni af afmæli hans, en þar sem
myndin er steypt úti í Kaup-
mannahöfn og ekki komin það-
an, varð að fresta því.
Þjóðviljinn færir hinum sí
unga, forustumanni um fjölda
framfaramála, Lárusi Rist,
beztu hamingjuóskir á áttræðis-
afmælinu og þakkar fyrir af-
burðagotl ævistarf.
Togarinn Elliði skemmist af eldi
Viðgerð mun taka hálfan mánuð
Siglufirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
í fyrrakvöld var slökkvilið Siglufjaröar kvatt að vél-
bátnum Særúnu frá Siglufirði. Meðan það var að
slökkva í bátnum var það kvatt að togaranum Elliða
og’ skemmdist hann svo að viðgerð mun taka hálfan
mánuð.
1 Særúnu hafði kviknað í lúk-
ar út frá eldavél og gekk greið-
lega að slökkva og urðu
skemmdir ekki miklar. Meðan
slökkviliðið var í Særúnu var
það kvatt að togaranum Elliða
sem lá úti við Öldubrjót og var
að losa fullfermi af karfa, sem
hann hafði fengið á Nýfundna-
landsmiðum. Ekki var verið að
vinna við skipið þegar eldurinn
kom upp. Þegar slökkviliðið
kom að togaranum var tölu-
verður eldur uppi í káetu skips-
ins, sem fljótlega tókst þó að
slökkva. Allmiklar skemmdir
urðu á innréttingu og er talið
að viðgerð muni taka hálfan
mánuð.
Finnbogi Rútur Valdimarsson
------------------
Kiósendafundur Alþýðu-
bandalagsins í Kópavogi
Alþýðuþandalagið í Kópavogi hoðar til kjósenda-
fundar í Félagsheimil/nu í kvöld.
Allir stuðningsmenn Alþýðubandalagsins eru vel-
komnir á fundinn meðan liúsrúm leyfir.
Hveríisstjórafundur Alþýðu
bandalagsins á föstudaginn
Hverfisstjórafundur Alþýðubandalagsins
verður haldinn í dag 19. júní klukkan
8,30 e.h. í Iðnó niðri. Hætt verður um al-
þingiskosningarnar 28. júní 1959.
Hverfisstjórar eru beðnir að fjölmenna á
fundinn.
Alþýðubandalagið.
er í Tjarnargötu 20.
Opin alla virka daga kl. 9—22, og sunnudagn klukkan
1.30—6.30 síðdegis. — SÍMAR:
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla: 2 35 15.
Kjörskrár af öllu landinu: 2 35 09.
Kosningasióður: 2 37 63.
Almennar upplýsingar: 1 75 11
og 2 34 95.
Framkvæmdastj óri Alþýðubandalagsins:
1 75 12.
UTANKJÖRFUNDARATKVÆÐAGREIÐSLA stendur yfir.
Kosið er í Melaskólanum, 1. hæð, gengið inn úr portinu.
Kosning fer fram alla virka daga frá kl. 10—12 fli., og
2—6 og 8—10 e.li. Á sunnudögum kl. 2—6 e.h.
TILKYNNIÐ skrifstofunni um þá stuðningsmenn Alþýðu-
bandalagsins, sem dvelja erlendis eða kunna að vera fjar-
verandi á kjördegi.
IIAFIÐ samband við skrifstofuna, sem veitir allar npp-
lýsingar varðandi kosningarnar.
Sendið framlög ykkar í kosningasióð fil skrifstofunnar Tjarnargötu 20.