Þjóðviljinn - 06.09.1959, Qupperneq 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 6. september 1959
Sýning Flóka
Framhald af 6. síðu.
hann er fyrst og fremst undir
áhrifum frá lífinu og skilur
það á sinn hátt. Eins og marg-
ir miklir listamenn t.d. Goya,
dvelur hann við hryllínginn,
hið ógeðslega sem svo er kall-
að, en hann veit að það er
ekkert til ógeðslegt í list eða
iífinu nema lýgin, lífslýgin,
hálfkákið, undirlægjuháttur-
inn, hræðslan við þá sem ráða,
hin lítilsigldu sjónarmið hins
þægilega borgara sem aldrei
er annað en þægilegur idjót
og stendur gegn hverju því
sem miðar fram. Flóki brýtur
af sér hömlurnar, hann segir
frá því sem hann sér, hann
hefur möguleika til að skapa
mikil listaverk ef allt gengur
að óskum, stórkostlega satíru
og verkefnin eru nóg, hið
sjúklega íslenzka þjóðfélag,
þar sem emámenni og dindlar
skríða um eins og pöddur sem
smámsaman éta upp undir-
stöðuna svo allt hrynur, hér
eru nóg verkefni fyrir lista-
menn og skáld sern ættu að
minnsta kosti að vera sam-
mála um eitt; baráttu gegn
þessu helvíti.
Hér skal ekki rætt mikið
meira um list Alfreðs Flóka,
menn ættu að sk’reppa uppí
Bogasal og sannfærast sjálfir,
list hans er víðfeðm en á þó
eftir að verða enn víðfeðmari,
hún er djörf en á þó eftir að
verða enn djarfari, ég lilakka
til að sjá í framtíðinni risa-
stórar myndir hans, bitrar og
miskunnarlausar, ísmeygilega
háðskar og sannfærandi.
Jóhann Hjálmarsson.
Kandidatamótið
Framhald af 2. siðu.
Friðrik Ólafsson alls hafa teflt
17 skákir við þessa keppinauta
sína. Flestar hefur hann teflt
við Gligoric eða 5.
1 Hastings 1957 vann Glig-
oric, í Dallas sama ár vann
Gligoric sömuleiðis aðra skák-
ina en hin varð jafntefli. í
Portoroz í fyrra sigraði Frið-
rik en Gligoric í Ziirich í sum-
ar þannig að vinningar eru
3y2:1V2 Gligoric í hag.
Við Benkö hefur Friðrik
teflt 4 skákir og hlotið 1)4
vinning gegn 2V2. Benkö vann
fyrstu skákina á Heimsmeist-
aramóti stúdenta hér í Reykja-
vík 1957. Á tveim mótum hér
heima sama ár skildu þeir jafn-
ir, í Hafnarfjarðarmótinu og
Stórmóti Taflfélagsins og loks
varð jafntefli hjá þeim í Port-
oroz.
Við Tal hefur Friðrik teflt 3
skákir og hlotið einn vinning
gegn tveimur. Þeir skildu jafn-
ir á Heimsmeistaramóti stúd-
enta í Reykjavík 1957 og sömu-
leiðis í Portoroz en í Ziirich
vann Tal. Við Fischer hefur
Friðrik teflt tvær skákir, vann
í Portoroz en tapaði í Ziirich.
Friðrik hefur aðeins teflt
eina skák við hvern hinna
keppendanna, við Petrosjan í
Portoroz, Smisloff í Moskvu sl.
vetur og Keres í Zúrich. Hafo
þær skákir allar orðið jafn-
tefli.
Massonite
Trétex
Væntanlegt.
Mars Trading Company,
Klapparstíq 20. — Sími 1-73-73.
China Reconstructs
Kínverskt mánaðarrit á ensku.
I tilefni 10 ára afmælis kínverska lýðveldisins verð-
ur oktoberhefti þessa vinsæla tímarits 60 blaðsíður,
þ.e. 20 blaðsíðum stærra en endranær. Birtast þar
greinar eftir fræga kínverska höfunda og sérfræð-
inga, sem lýsa þróun þessarar 650 milljóna þjóðar
síðasta áratuginn.
Meðal efnisins verða ritgerðir eftir Soong Ching Ling,
ekkju Sun Yat-sen forseta og May Lan-fang heims-
frægan kínverskan leikara. Ennfremur greinar um
kínversk læ'knav’ísindi, íþróttir, fornleifafundi o. fl.
o. fl.
6 blaðsíður með fögrum litprentuðuin myndum auk
fjölda annarra mynda.
Áskriíendur íá ritið mánaðarlega sent beint
frá Kína. Verð árgangsins er kr. 35,00
(Tveir árg. kr. 65.00) sem greiðist við
pöntun.
PANTIÐ BITIÐ STBAX í DAG.
------- PÖNTUNARSEÐILL --------------------------
KÍM, PÓSTHÓLF 1272, Reykjavík.
Sendið mér tímaritið China Reconstructs. Áskriftar-
verið kr ........ fylgir í póstávísun.
Nafn .......................................
Heimili .....................................
SJÓMENN
athugið að til sölu er ca: 45 rúmlesta bátur, smíða-
ár 1948. — Bátur og allur vélbúnaður ný yfirfarinn.
Vél: AIPHA — DIESEL 3ja ára.
Báturinn er fullbúinn til veiða fyrir n.k. vetrarvert'íð
Mjög hagstæð kjör (sama og engin útborgun) fyr-
ir duglega sjómenn, sem vildu gera bátinn út frá
einni af beztu verstöð\®m landsins og leggja aflann
upp hjá seljandanum. Öll aðstaða í landi mjög góð.
Þeir sem óska frekari upplýsinga hringi í 17 - 500
virka daga.
2ja til 3ja herbergja íbúð
óskast sem fyrst. — Má vera í Kópavogi.
Upplýsingar í Gróðrarstöðinni Alaska við Miklatorg,
eftir kl. 1 í dag. — Sími 19 - 775.
VERKTAKAR
Tilboð óskast í lagningu skolpveitu í þorpinu Álafoss.
Útboðslýsingar má vitja gegn kr. 500.00 skilatrygg-
ingu til oddvita Mosfellshrepps að Blikastöðam eða
á Teiknistofu Ásgeirs H. Karlssonar, Vonarstræti 4,
næstu kvöld — kl. 5 til 7.
Tilboðin verða opnuð að bjóðendum viðstöddum í
Félagsheimilinu Hlégarði, Mosfellssveit, laugardaginn.
19. sept. — kl. 4 s'íðdegis.
# '•
Oddviti Mosíellshrepps.
Hafnfirðingar — Hafnfirðingar
Karlakórinn Þresti vantar söngmenn.
Aðallega tssiéra.
Upplýsingar hjá Þórði B. Þórðarsyni
í símum 50- 325 og 50 - 083.
PETROF i
EINKAUMBOÐ-
MARS TRADING COMPANY
KLAPPARSTÍG 20 SÍMI 1 73 73