Þjóðviljinn - 19.09.1959, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 19.09.1959, Blaðsíða 10
2)' — ÓSKASTUNDIN er^-.. ..... —.... i OTLAGÍNN Það hefur oft verið óskað eftir því, að við birtum dægurlagatextann ÚTLAGANN, eft- ir Jón Sigurðsson. Gjörið svo vel, hér kem- ur óskatextinn. Upp undir Eiríksjökli á ég í helli skjól. Mundi þar mörgum kólna, mosa er þakið ból. Útlagi cinn í leyni alltaf má gæta sín. Bjargast sem bezt í felum breiða yfir ;porin mín. Ungur ég fór til fjalla, flúði úr sárri nauð. Úr hreppstjórans búi hafði ég hungraður stolið sauð. En hann átti hýra dóttur sem hotfði ég tíðum á. Nú fæ eg aldrei aftur ástina tnína’ að sjá. Stundum mig dreymir drauma dapurt ei líf mitt þá. Aldrei rnun litill lófi leggjast á þreytta brá. Ef til vill einhverntíma áttu hér sporin þín. Grafðu i grænni lautu gulnuðu beinin mín. SKOLINN ER BYRJAÐUR 1 REYKJAVIK Hestur: Ina Dagbjört 9 ára, sem á heima í Sel- dal í Norðfjarðarsveit, sendi okkur þessa mynd af hryssunni Stjörnu. Hún getur þess fð Stjarna eigi folald, en það er ekki með á mynd- inni. Enda er ekki hlaup- ið að því að fá folalds- tryppi til að standa kyrrt meðan það er teiknað. ína Dagbjört sendi okkur líka mynd af kúnni Drottningu, þá mynd birtum við seinna. Við sendum ínu kveðju með þakklæti fyrir mynd- irnar. Beggi níu ára gamall Reyk j avíkurdr engur teinkaði þessa mynd af síldarbátum, sem eru á leið til Siglufjarðar með fullfermi. Það er svo sem auðvitað að afla- kóngurinn Víðir II er j með á myndinni. Fyrsta september byrj- aði skólinn að venju. Það eru 7, 8 og 9 ára börn sem sækja skóla í sept- embermánuði, en 1. októ- ber byrjar svo skólinn fyrir alvöru. Vissulega er gaman í skólanum og börnin koma full eftir- væntingar á haustin reiðubúin að troða koll- ana fulla af vísdómi. Stundum reynir á þolrif- in, þegar lítill lærdóms- maður á að svara flókn- um spurningum, sem kennarinn leggur fyrir hann á prófum. Mönnum verður þó ekki svarafátt. — Kona Kólumbusar var víst Kólumbía. — Neró var grimmur harðstjóri, sem kvaldi veslings þegnana sína með því að spila á fiðlu fyrir þá. — Malajar eru venju- lega brúnir og búa í Malaríu. — íbúar Egyptalands eru kallaðir múmíur. — Faðir hans var mið- alda maður. — Budda lifði venju- legu lífi með konum og börnum, þangað til hann ' var um þrítugt. Þá fór hann að heiman til að leita hamingjunnar. — Syndaflóðið var á- kveðið af því, það var svo mikið af skítugu fólki. — Fólkið ætti að fara í bað einu sinni á sumri ÖSKASTUNDIN — :« , og ekki alveg eins offl á vetri. — Beindagrind er mað- ur, sem hefur hvorki kjöjS- né skihn. — Hryggurinn er löng beinaröð. Höfuðið situn efst, en þú neðst. — Kviðurinn eh skammt fyrir sunnan rif-i beinin. HVER LIKIST ÞER? Á myndinni sérðu 8 andlit sem sýna ólík skapbrigði; Gleði, ákvörð- un, reiði, sorg, áhyggjur, hræðslu, mont og undrun. Reyndu að finna hvað á við hverja mynd, og svo hver þeirra líkist þér mest. Þú getur látið vini þína spreyta sig á þessu, það má ekki taka lengri tíma en hálfa mínútu. Lausnin er: i hræðsla* 2 áhyggjusvipur, 3 gleði,- 4 mont, 5 sorg, 6 á- kvörðun, 7 undrun, tt reiði. 20) — ÞJÓÐiVILJINN — Laugardagur 19. september 1959 Halldér Helgason 85 ára Framhald af 7. síðu. mæli, en hann er einn þeirra, sem afsannar það. Kyrrlátari maður og friðsamari er naum- ast til. Mér þætti trúlegt, að aldrei hafi hann átt persónu- legan andstæðing. Fyrir per- sónulega kynningu á hann á hverjum bæ í umhverfi sínu virðingu og vináttu allra. Þar munu því allir biðja honum blessunar x dag. Þetta veit hann auðvitað sjálfur, enda er ég ekki sérstaklega að segja honum það. Og þó, — iþó er ég einmitt að segja hon- um, að ég veit það líka. Það er ekki til skemmtilegra um- ræðuefni á afmælisdegi manns en elskulegar staðreyndir um hann sjálían. StefAn Jónsson. KJÖT 0GSLÁTURÍLAT nýkomin í ýmsum stærðum SlS afurðasalan Símar 3- 26 -78 og 1-70-80 SKðLASTJÓRASTAÐA VIÐ VERKSTJÓRASKÓLA Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna heíur í hyggju að stoínsetja verkstjóraskóla og óskar að ráða skólastjóra með háskóla- menntun Væntanlegum skólastjóra verður gefinn kostur á sérmenntun erlendis. Kjör samkvæmt samkomulagi. Skriílegar umsóknir óskast sendar fyrir 20. október ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf. Upnlvsinrrar um starf þetta verða ekki gelnaz I Erlend líðindi r Sölnmiðstöð Hraðfrystihúsanna Framhald af 6. síðu. Bandaríkjamenn séu á förum. Spánverjar eru þegar búnir að fækka setuliði sínu úr 60.000 manns í 11.000 og eftir nokkrar vikur á brottflutningnum að vera að mestu lokið. Gera má ráð fyrir að fleira en tillits- semi við Frakka vaidi því að Bandaríkjastjórn kýs að hafa sem hljóðast um samninginn við Marokkómenn. Loforðið um brottför frá Marokkó ónýtir nefnilega gersamlega helztu röksemdina sem Bandaríkja-'®’ menn og málpípur þeirra hér á landi og annarsstaðar beita nú- orðið til að réttlæta bandaríska nersetu og þó alveg sérstaklega bandarískar flugstöðvar. Stag- azt er á því að friður í heim- inum sé undir því kominn að herstöðvakerfið sé óskert; ,,eng- inn hlekkur í varnarkerfinu má bila“, eins og það er orðað. Með brottför bandaríska flug- hersins frá Marokkó hverf- ur enginn smáræðis hlekkur úr bandaríska flugstöðvakerfinu. Því hefur verið marglýst yfir í Bandaríkjunum, að flugstöðv- arnar þar séu einhverjar þær allra mikilvægustu sem Banda- ríkjamenn hafa í öðrum lönd- um. Sérstök áherzla hefur ver- ið lögð á að þær séu örugg- ar fyrir sovézku herhlaupi vest- ur Evrópu. Hernaðarþýðingu Marokkó í augum bandarísku herstjórnarinnar má marka af því að ekki var látið nægja að hafa þar eina flugstöð heldur komið upp fjórum. Fordæmi Marokkómanna sýnir, að engri þjóð er ofætlun að losna við bandarískar herstöðvar úr landi sínu, ef hún aðeins kem- ur fram af einurð og festu. M. T. Ó. M.s. Henrik Daniea fer frá Kaupmannahöfn 25. sept. til Færeyja og Reykjavíkur. S'kip- ið fer frá Reykjavík 5. okt. til Færeyja og Kaupmanna- hafnar. Skipaafgreiðsla Jes Zimsen TERYLE skyrtan N E □ oubie Tw COLLAR—ATTACHED SHIRTS Fæst hjá okkur HERRADE I L D Austurstræti 14 — Sími 1-2-3-4-5. Skrifstofur vorar og vörugeymslur eru fluttar að VATNSSTÍG 3 i ARNl QESTSSON Vatnsstíg 3 Sími 17930

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.