Þjóðviljinn - 29.09.1959, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 29. september 1959
Stjömubíó 10 ára
í dag, þriðjudaginn 29.
september 1959, eru liðin
rétt 10 ár síðan Stjörnubíó
í Reykjavík tók til starfa.
Af því tilefni hafði kvik-
myndaþáttur Þjóðvitjans
sem snöggvast tal af Hjalta
Lýðssyni, sem verið hefur
framkvæmdastjóri bíósins
frá upphafi.
■Jr Um 50 myndir árlega
— Já, Stjörnubíó er orðið
10 ára, og bjuggust víst fá-
ir í fyrstunni við að kjöt-
kaupmaðurinn ætti eftir að
geta haft með höndum fram-
kvæmdastjórn kvikmynda-
húss svo lengi, segir Hjalti
og brosir. (Hann var nefni-
lega einn af umsvifamestu
kjötkaupmönnum bæjarins
um árabil áður en hann
réðst í það starf, sem hann
hefur nú stundað um ára-
tugsskeið.
— Hvað er Stjörnubíó bú*
ið að eýna margar kvik-
myndir á þessum 10 árum?
•— Nákvæma tölu sýning-
armynda get ég ekki gefið
án frekari athugunar, segir
Hjalti, en láta mun nærri
að frumsýndar séu um 50
kvikmyndir í bióinu árlega,
svo að hei'dartala sýndra
mynda frá upphafi ætti þá
að vera í kringum 500.
Fyrsta kvikmyndin, sem
Stjörnubíó sýndi, var ensk
og kölluð á íslenzku Karl
Skotaprins, en aðalleikend-
urnir í henni- voru David
Niven og Margaret Leig-
thon. Síðan hefur bíóið sýnt
myndir af fjölmörgum þjóð-
ernum, langflestar banda-
rískar, en ei^rnig margar
franskar, enskar, sænskar
og þýzkar myndir, svo og
danskar, norskar, sovézkar,
mexíkanskar, brasilískar og
tékkneskar kvikmyndir, auk
þeirra mörgu mynda sem
kvikmyndagerðarmenn frá
fleiri en einni þjóð hafa haft
samvinnu um að gera.
Margar góðar myndir
Eigendur og stjórnendur
„Frumskógasagan“, hin fræga verðlaunamynd Svíans Arne
Sucksdorf verður sýnd í Stjörnubíói bráðlega. Vonandi
kunna fleiri að meta hana en „Ævintýrið mikla“ eftir sama
liöfund.
„Síðasta brúin“ er ein af merkustu kvikmyndunum, sem
Stjörnubíó hefur sýnt. Hér fyrir oifan: María Schell í
einu atriði myndarinnar.
kvikmyndahúsa eru oft sak-
aðir um að sýna fleiri léleg-
ar myndir en eðlilegt megi
teljast. Á eú gagnrýni oft
rétt á sér, en um leið ber
þá líka að viðurkenna að
fjölmargar góðar kvikmynd-
ir-eru árlega. teknar til sýn-
inga, enda þótt fæstar þeirra
séu sýndar nema örfáa daga.
Stjörnubíó hefur á 10 ára
starfsferli sínum sýnt marg-
ar eftirminnilegar myndir;
nægir að nefna nokkur nöfn,
sem vafalaust er mörgum
lesandanum minnisstæð: Ger-
vais, franska verðlauna-
myndin, og Síðasta brúin, af-
burðagóð au-sturrísk-júgö-
slavnesk mynd, en í báðum
þessum kvikmyndum lék
Maria Schell aðalhlutverkið.
Brúin yfir Kwai-fljótið,
Óskars-verðlaunamynd árs-
ins 1957 með Alec Guinness
í aðalhlutverki, er enn í
fersku minni; einnig banda-
ríska myndin Héðan til ei-
lífðar með Burt Lancaster,
Á eyrinni með Marlon Bran-
do, brasilíska myndin Stíga-
maðurinn (O’Cangaceiro),
Sölumaður deyr, bandarísk
mynd með Fredrich March í
aðalhlutverki gerð eftir sam-
BÆJARPOSTURINN
Skrípaleikur Sjálfstæðisflokksins — Sjálfstæðis-
neytendur og Sjálfstæðisframleiðendur.
SKRÍPALEIKUR mikill hefur
nú verið uppfærður í Morg-
unblaðinu og Tímanum, og er
efni hans ný bráðabirgðalög
um verðlag á landbúnaðarvör-
um. Eins og kunnugt er, vildu
hændur fá hækkun á fram-
leiðsluvörum sínum, en slíkt
taldi ríkisstjómin að mundi
eyðileggja „bjargráð“ hennar
á s.l. hausti, og setti því lög,
sem banna allar hækkanir
fyrst um sinn. En nú standa
kosningar fyrir dyrum, og 1-
haldið og Framsókn slást um
atkvæði bændanna, þess
vegna hnakkrífast málgögn
þessara flokka um það, hvor
sé meiri bændavinur. Morgun-
blaðið segir, að Framsókn
sýni hvað hún sé þrælslega
innrætt í garð bænda með af-
stöðu sinni til bráðabirgðalag-
anna, einhver munur eða við
Sjálfstæðismenn! Tíminn seg-
ir hins vegar, að Sjálfstæðis-
flokkurinn sé meðábyrgur um
setningu laganna og vilji
bændum allt það versta. Nú
er þ-að vitað, að ríkisstjórnin
situr að völdum með fulltingi ANNARS VEGAR er sem sé
Sjálfstæðisflokksins, og með óttinn við að tapa bænda-
tilstyrk hans og fyllsta sam-
þykki voru „bjargráðin" sett
í fyrrahaust, en tilgangur
þeirra laga var sagður sá, að
stemma stigu við verðbólgu
og dýrtíð og koma í veg fyr-
ir verð- og kauphækkanir. Með
fyllsta samþykki Sjálfstæðis-
flokksins var allt kaupgjald
lækkað stórlega, en því lofað
á móti, að verðlag skyldi hald-
ast óbreytt eða lækka. Við-
brögð stjórnarinnar við kröfu
framleiðenda um hækkun á
framleiðsluvörum eínum núna,
eru því í samræmi við fyrri
atkvæðum, hins vegar óttinn
við að tapa neytendaatkvæð-
um, og þá er skrípaleikur
færður upp, fuiltrúar flokksins
meðal neytenda og framleið-
enda látnir halda fram and-
stæðum skoðunum á málinu,
hvorir tveggja með miðstjórn
flokksins að bakhjarli. —
Bændur eiga rétt á hækkuðu
verði lanidbúnaðarvara, segja
Öjálfstæðisfulltrúar framleið-
enda; verð landbúnaðarafurða
til neytenda má ekki og á ekki
að hækka, segja Sjálfstæðis-
Framhald á 11. síðu
nefndu leikriti Arthurs Mill-
er, Fanginn með Alec Guinn-
ess, Uppreisnin á Caine með
Humphrey Bogart, Þetta
getur allstaðar skeð (All the
King’s Men)- með Broderic
Crawford, Sbógarferðin með
þeim Wiliiám Holderi og Kim
Novak í aðalhlutverkpm,
ráðstafanir hennar, en við-
brögð hins raunverulega
stjórnarflokks, Sjálfstæðis-
flokksins, eru í beinni mót-
sögn við aðild hans að efna-
hagsráðstöfunum stjórnarinn-
ar í fyrra. Og Sjálfstæðis-
flokkurinn lætur fulltrúa sína
í neytendasamtökunum mót-
mæla hækkuðu verði landbún-
aðarvara, en fulltrúar flokks-
ins í framleiðsluráði krefjast
hækkunar á þessum vörum.
Fædd í gær með Judy
Hollyday, Eldur í æðum,
mexíkanska myndin með
Pedro Armendariz í aðal-
hlutverki, Fórn hjúkrunar-
konunnar, frönsk mynd með
þeim Gerard Philipe og Mic-
hele Morgan, Ueynilögreglu-
presturinn (Father Brown)
gamanmyndin brezlía með
Guinness í aðalhlutverki,
Itekkjan með Rex Harrison
og Lilli Palmer, sænska
myndin Fröken Júlía með
Anitu Björk í titilhlutverki,
Kontakt norska myndin sem
sýnd var nýlega, Haustlauf,
amerísk, og svo mætti leng-
ur telja, en verður ekki gert;
aðeins skal getið fáeinna
tónlistarmynda sem Stjörnu-
taginu og María Rökk í að-
alhlutverki og rokkmyndin
Rock around the Clock.
Barnamyndir hefur Stjörnu-
bíó einnig sýnt og þessar
orðið vinsælastar: Heiða,
Heiða og Pétur, Lína lang-
. sokkur. Þá sýndi bíóið þrí-
víddarmyndir meðan þær
voru í tízku.
Draumgyðjan mín
vinsælust
— Hvaða myndir hafa ver-
ið bezt sóttar?
— Draumgyðjan mín,
svarar Hjalti, er sennilega
bezt sótta kvikmyndin sém
sýnd hefur verið í Stjörnu-
bíói, en aðrar vinsælar
myndir eru La Traviáta,
Stúlkan við fljótið, Rock
around the Cloclt og Brúin
yfir Kwai-fljótið svo nokkr-
ar séu nefndar. Barnamynd-
irnar hafa líka verið einkar
vinsælar.
— Minnsta aðsókn
— Ævintýrið milda, hin
stórfenglega dýralífsmynd
Svíans Arne Suckdorfs, er sú
myndin sem fæstir áhorfend-
ur sáu.
■fc Myndirnar sem koma
—■ Hvað er framundan?
— Af þeim kvikmyndum,
sem væntanlegar eru í
Stjörnubíó, má nefna 1984,
bandaríska mynd sem gerð
er eftir samnefndri skáld-
sögu George Orwells, Bon-
jour Tristesse sem byggð er
á metsölubók Francoise Sag-
an með þau Frank Siri-
atra og Ritu Hayworth í að-
alhlutverkum, Ég og hers-
höfðinginn með Danny Kay;
ennfremur er að geta sænsku
myndarinnar Sigrúh á Sunnu
hvoli og frönsku myndarinn-
ar Les Bijoutiers du Clair
Lune, Zarak, hinnar umtöl-
uðu myndar með Anitu Ek-
berg og Victor Mature, Eld-
ur undir niðri með Ritu Hay-
worth og Jack Lemmon,
Sagan um Ester Costello
með Joan Crawford, Síðasta
húrrahrópið með Spencer
Tracy (leikstjóri JohnFord),
Jeanne Eagle, mynd um ævi
leikkonunnar frægu með Kim
Novak, Rokkum!, rokkmynd
þar sem Paul Anka kemur
m.a. fram, Ut av Mörkéi,
norsk mynd. Síðast en ekki
„Stúlkani við fljótið“ er ein þeirra kvikmynda, sem lengst
hafa verið sýndar í Stjörnubíói og flestir hafa séð. Aðal-
leikendurnir I henni: Sophia Loren og Rik Battaglia.
bíó hefur sýnt: Óperumynd-
irnar La Traviata og Brúð-
kaup Figarós, Réttu mér
hönd þína, austurrísk mynd
um ævi Mozarts, Draumgyðj-
an mín með tónlist af léttara
sízt skal getið sænsku lit-
myndánna Frumskógarsaga
(Djungelsaga) og 1 frum-
skógum Brasilíu, en þær eru
teknar í Inidlandi og Suður-
Ameríku.