Þjóðviljinn - 29.09.1959, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 29. september 1959 -— ÞJÓÐiVILJINN — (11
VICKI BAUM:
MTT
sérstakt. Meðan ég kraup þarna innan um kjötið í kæli-
klefanum og beið þess að komið vrði okkur til bjargar,
spurði ég guð og sjálfa mig hvað vrði um okkur ef feg-
urð Marylynns eyðilegðist. Ég fékk ekkert svar við þeirri
spurningu.
Bess þagnaði skyndilega, því að hún var komin út á
hálan ís. Hún var komin inn í vítahring. Það var sama
hvar hún byrjaði, alltaf var hún'komin að atburðunurn
frá í gærkvöld. Þá hafði hún líka spurt sjálfa sig, hvern-
ig hún gæti haldið áfram án iMarylynns og þegar hún fékk
ekkert svar, greip hún byssuna. Hún titraði núna, alveg
eins og hún titraði fyrir sex árum, þegar hún starði á
skaðbrennt andlitið á Marylynn. í gærkvöld hafði hún
líka beygt sig yfir máttvana líkamann og óskað þess að
það væri hún sjálf sem þarna laegi.
Fangelsishjúkrunarkonan var ekki sérlega áhrifagjörn
en nú var hún hrifin.
— Þér hefðuð sannarlega átt skilið björgunarverðlaun,
góða mín, sagði hún með aðdáunarhreim í röddinni.
— Ég gerði víst allt of mikið úr sjálfri mér áðan. Það
var, engin hetjudáð að draga Marylynn og sjálfa mig
inn í þennan kæliklefa. Það seml, á eftir kom var miklu
erfiðara. Ég var gersamlega úttauguð. Ég þráði ekkert
heitar en leggjast út af og missa meðvitund. En ég vissi
að það mátti ég ekki. Ég vissi að ég varð að halda vörð
um Marylynn og það gerðj ég. Það er það eríiðasta sem
ég hef gert á æfinni. Allar þjáningarnar og uppskurðirnir
á eftir voru barnaleikur hjá því. Mér fannst eins og heilt
ár liði áður en þeir fundu okkur og enn fleirf ár í sjúkra-
bílnum. Þegar þar var komið, var ég orðin eins og frosið
kjötstykki, en þ>að leið ekki einu sinni yfir rrug meðan
við biðum í hinni óendanlegu röð af sjúkrabörum og
ekki heldur þegar þeir báru Marvlynn inn á skurðstof-
una. Ég er hreykin af því ennþá. Ég átti ekki mikið þrek
eftir, en þó nóg til þess að berjast við læknana og ég
sigraði. Ég tók ekki í mál að dauðþreyttir og skelfdir
sjúkrahúslæknarnir snertu við henni. Ég æpti og öskraði
og leyfði þeim ekki að skera hana í parta og sauma hana
saman og eyðileggja andlitið á henni um alla eilífð. Ég
krafðist þess að kallað væri á dr. Wieselfinger. Þér vitið
kanpski að hann er einn hinna fremstu í plastiskum
skurðaðgerðum og til allrar hamingju fyrir okkur var
hann einmitt um þessar mundir í leyfi í Florida. Þótt
ég hafi ef til vill gert marga skyssuna um dagana, þá
er hreykin af sjálfri mér þessa nótt Það var ekki fyrr
en dr. Wieselfinger var kominn á ’ættvang að ég lét það
eftir mér að falla í öngvit og ég var meðvitundarlaus í
sautján klukkustundir. Eða kannski hafa þeir deyft mig
vegna þess að þeir voru hræddir við mig.
:— Ég kannast við yðar manntegund, sagði fangelsis-
hjúkrunarkonan með alla sína lífsreynslu. Þér þurfið
alltaf að leggja áherzlu á yðar eigíð kaldlyndi — en þér
eruð ekki nærri eins kaldlynd og þér haldið. Og svo verð-
ur sprenging. Þegar þér hugsið um allt sem þér hafið
gert fyrir þessa ÍMarylynn. . . .
— Nei, nei, ég hef ekki gert,neitt sérstakt fyrir hana.
Við áttum alltTsámeiginlega,
— Það má vera. En hún hlýtur að hafa gert eitthvað
meira en lítið, fyrst yður langaði til að ganga af henni
dauðri. Hvað gerði hún eiginlega? Reyndi hún að stela
frá yður kærastanum?
— Ég hef aldrei átt neinn kærasta sem hægt væri að
stela frá mér.
— Ekki það? Þér ætlið þó ekki að segja mér að falleg
og gáfuð kona eins og þér hafi farið á mis við alla
rómantík. Já, þarna sjáið þér, nú getið þér hlegið. Og
það kemur svolítill roði í kinnarnar, sagði hjúkrunarkorí-
an ánægð, þegar Bess roðnaði lítið eitt.
— Þökk fyrir .vinsemdina, sagði hún. Það segja svo sem
nógu margir að ég sé skynsöm, en færri hafa sagt að ég
væri falleg. ,
— Nú er allt annað að sjá yður. Ég vissi að það væri
betra fyrir yður að tala um þetta. Líður yður betur núna?
— Ég veit það varla. Það er næstum eins og að vakna
af svæfingu eftir uppskurð. Maður er enn stirður og
syfjaður, en sársaukinn er að byrja að gera vart við sig
— Ég má víst ekki. segja þetta við yður, en ég ráðlegg
yður að útvega yður verjanda hið bráðasta. Ég er viss
um að duglegur málaflutningsmaður gæti gert sér mat
úr þessum krampaköstum og það sem þér urðuð að reyna
í brunanum, og þér slyppuð .vel fyrir kviðdómi. Ég hef
heyrt að Dale Corbett hafi hvað eftir annað boðizt til að
taka mál yðar að sér. Og hvað sem annars má um hann
segja, þá er hann duglegur málafærslumaður.
Bess fékk samstundis gamla þrjózkulega kuldasvipinn
og hún lokaði sig inni í skel sinni.
— Nei, þökk fyrir, systir, sagði hún, svo kuldalega að
það jaðraði við ósvífni. Ég kæri mig ekki um neinn
verjandi og ég kæri mig ekki um að sleppa vel.
Hjúkrunarkonan yppti öxlum og reis á fætur. Henni
var dálítið misboðið.
— Jæja, jæja, þér um það, góða mm, sagði hún, ég
má víst ekki sóa lengri tíma í yðm. Eiymlega kom ég
aðeins hingað til að afhenda töskuna Það kom blökku-
kona með hana hingað.
Connie, hugsaði Bess, og allt í einu fanu him notalegan
þef af geri, kanil og mat í tandurhreinu eldhúsinu hjá
Connie.
— Sagði hún nokkuð? spurði hún lágt.
— Hún sagðist hafa látið allt niður sem þér þyrftuð
með fyrst'u dagana og þér ættuð að fara í blágræna kjól-
inn og fága neglurnar til að komast i betx-a skap. Og svo
sagði hún: „Guð blessi hana‘ og hún sagðist biðja fyrir
ykkur báðum.
Fangelsishjúkrunai'konan lagfærði á sér kjólinn, kippti
í lífstykkið og gekk í áttina til dyra. Þá fyrst áttaði Bess
Poker sig á því sem lá að baki orðu Conniar.
Bess Poker hafði verið eins og svefnengill alveg fram
að þessu. Allt í einu var eins og augu hennar opnuðust
og hú’n sá veruleikann sem eitthvað í huga hennar hafði
reynt að hylja fyrir henni sjálfri. Römm fangelsislyktin
— sótthreinsunarlyf, þvottaefni, svitalykt — rauk upp í
nef hennar eins og lyktarsalt og hugsanir hennar skýrð-
Bæjarpósturinn
Framhald af 4. síðu
fulítrúar neytenda; og verður
ekki ofeögum sagt af heil-
indum Sjálfstæðisflokksins í
kosningabaráttunni!
. sparið yður iúaup á miili margra. verzlana1
i|$) -A'tstimstiséti ’
(Q|| | ffislj
sIoíuf utan
Eeykjavlar
A K U R E Y R I
Alþýðubandalagið á Akur-
eyri hefur opnað kosninga-
skrifstofu að Hafnarstræti
88. Sími skrifstofunnar «r
2203. Skrifstofan er opin kl.
1—10 síðdegis alla daga
KÖPAVOGUR
Alþýðubandalagið í Eeykja-
neskjördæmi hefur opnað
kosningaskrifstofu að Hlíð-
arvegi 3 í Kópavogi. Sími
22794. Skrifstofan er opin
alla virka daga kl. 4—6 síð-
de,gis.
HAFNARFJÖRÐUR
Alþýðubahdalagið í Eejiija-
neskjördæmi hcfur opnað
kósningaskrifstofu í Góð-
templarahúsinu i Hafnarfirði
Sími 50273. Skrifstofan er
opin dagiega kl. 4—7 síð-
degis.
V E S T M A N N A -
E Y J A R :
Alþýðubandalagið liefur opn-
að kosningaskrifstofu að
Bárugötu 9. Sími: 570. —
Skrifstofan er opin daglega
'rá 5 til 7 og 8.30 til 10.30
síðdegis.
Hentugur austan-
tjaldsbúningur
Það hefur mikið verið gert
af því að sproksetja kvenfata-
tízkuna i Sovétrikjunum, en
þrátt fyrir öll okkar „fínheit"
gætum við víst allar verið
þekktar fyrir að ganga í þess-
um hentuga og snotra bún-
ingi sem sýndur er á mynd-
inni Hann er engan veginn
óalgengur á götum stórborg-
anna í Sovétríkjunum og er
bæði smekklegur og þægilegur
Marrar í skónum?
Það er alltaf hvimleitt þegar
marrar í nýjum skóm en þó
er áuðvelt að losna við marrið.
Ástæðan til þess er sem sé
ekki endilega að skórnir séu
óborgaðir, heldur eru sólarn-
ir látnir standa yfir nótt í
fati með línolíu.
fíeilræði
Ef þið notið sama alúmin-
íumskaftpottinn i hvert sfcipti
sem þið sjóðið egg — og það
gera sjálfsagt flestar — verð-
ur hann fljótlega dökkur og
ljótur. En næst þegar þið sjóð-
ið egg skuluð þið hella mat-
skeið af ediki í yatnið, og þeg-
ar eggið er soðið, komizt þið
að raun um að skaftpotturinn
er aftur orðinn hreinn og fal-
legur. Og eggið hefur ekki haft
slæmt af meðferðinni.
Vitið þið . . .
- að það er auðveldara að
þeyta eggjahvítur ef ögn af
sítrónusafa er sett samanvið
þær?
C&IDOGLER HF i
r— - - -
He£ kennt dans
í f jörutíu ár
þekki danslistina út og
inn.
Því ætti ekki unga
stúlkan að leitá til mín
í dag eins 'og
mamman og animan
gerðu á sínum tíma.
ALLTAF TIL 1 TCSKIÖ
Sigurður í
Guðmundsson,
Laugaveg II (efstu hæð)]
Sími 15-982.