Þjóðviljinn - 30.10.1959, Blaðsíða 5
Föstudagur 30. október 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Meiri kiarnorkusprengixigar,
Eieimtar Melson Hookeieller
Fundir um bann v!S kjarnorkufi/raunum að
hefjasf aftur i Genf eftir 2 mánaSa híé
Einn af auðugustu mönnum Bandaríkjanna, sem hef-
ur augastað á forsetaembættinu í kosningunum að ári,
hefur krafizt þess að Bandaríkjastjórn hefji kjarnorku-
sprengingar á ný.
Olíumilljónarinn Nelson
'Rockefeiler, sem í fyrra var
kosinn fylkisstjóri New York,
sagði í sjónvarpsviðtali, að
hann áliti að Bandarikjamenn
ættu hið fyrsta að byrja aftur
að sprengja 'kjarnorkusprengj-
ur í tilraunaskyni.
stöðu að unnt sé að búa svo
um hnútana eð ekki verði far-
íð í kringum bann við kjarn-
orkusprengingum í andrúms-
loftinu og úti í geimnum.
iSovétríkin hafa lagt til að
bann við tilraunasprengingum
verði sett á grundvelli þeirra á-
litsgerða, en Vesturveldin telja
sig ekki enn hafa fulla vissu
fyrir að eftíríitskerfið nægi til
að koma upp um minniháttar
sprengingar djúpt í jörðu.
Segjast þau ekki vilja binda
sig í neinu fyrr en nýr sér-
fræðingafundur hafi krufið það
mál til mergjar.
Rockefeller hefur svo gott
sem lýst yfir, að hann ætli að
Félös miffra nazista starfa
víða í Vestur-Þýzkalandi
Aðvörun írá Æskulýðssambandi landsins
Stjórn Æskulýðssambands Vesturþýzkalands hefur lýst
yfir óánægju sinni vegna útbreiðslu nazismans í landinu,
og hvatt til baráttu til að afnema skipulögð æskulýðsfé-
lagasamtök, sem stofnuð hafa verið af þeim í Vestur-
Starfsstúlkur í nærfataverksmiðju í London ganga um
götuna útifyrir skrifstofum fyrirtækisins, A. & J.
Woolf, til að mótmæla verkbanni. At\únnurekendur
sögðu upp 100 mönnum af starfsliðinu, og kváðust ekki
hafa geymslurúm fyrir meiri framleiðslu.
Hjákonan og eiginkonán deila
um arf eftir Errol Flynn
Brösug kvennamál ætla að fylgja kvikmyndaleikaran-
um Errol Flynn útyfir gröf og dauða.
Nelson Rockefeller
keppa við Nixon varaforseta
um forsetaframboðið af hálfu
repúblikanna í forsetakosning-
unum næsta haust.
Friðarsprengingar.
„Við höfum ekki efni á að
dragast afturúr í fullkomnustu
aðférðum við beitingu kjarn-
orkubúnaðar,” sagði Rockefell-
er. „Eg held að við eigum að
halda áfram, vegna þess að
aldrei hefur annað vakað fyrir
okkur með þessu en að varð-
veita friðinn í heiminum".
Undanfarið ár hafa tilraunir
með kjarnorkuvopn legið niðri
scamkvæmt þegjandi sam'komu-
lagi kjamorkuveldanna. Til-
raunum var hætt um leið
og fulltrúar þeirra komu sam-
an til að reyna að semja um
bann við tiiraunum með kjarn-
orkuvopn
Að renna út.
Vesturveldin hafa lýst yfiv
að þau muni ekki hefja kjarn-
orkusprengingar á ný á þessu
ári, en ekkert er vitað um
hvað þaú hyggjast fyrir eftir
það. Sovétstjórnin hefur 'lýst
yfir, að hún muni ekki hefja
tilraunir með kjarnorkuVopn
að fyrra bragði.
Nú er ráðstefnan um bann
við kjarnorkusprengingum í
þann veginn að koma saman á
ný í Genf eftir langt hlé. Þar
munu Vesturveldin halda fast
við kröfu sina um að enn ein
sénfræðingaráðstefna verði
kvödd saman, í þetta skipti til
að fjalla um eftirlitskerfi neðan
jarðar Sérfræðingar hafa
þegar komizt að þeirri niður-
þýzkalandi.
Svo mikil brögð eru orðin
að því að nazistahópar láti að
sér kveða, að menningarmála-
ráðherrann í Neðra-Saxlandi,
Voigt hefur séð sig tilneyddan
að skora á kennarana í fylk-
inu að vinna gegn þessum ó-
fögnuði. Á fundi með öllum
skólaráðum í fylkinu sagði
ménningarmálaráðherrann að
„skólaæskan væri enn á ný
orðin meira og minna ofurseld
lyga- og hatursáróðri nazista".
Voigt sagði að nú orðið
kæmu út fjölmörg fasistísk
blöð og tímarit, og næmi upp-
lag þeirra ekki minna en 40000
eintökum. Blöð þessi skora á
ungt fólk að ganga í samtök
ungnazista, sem heita ýmsum
nöfnum svo sem: „Stormsveit
hinna ungu“, „Æskulýðsher-
flokkur", „Bismarck-æskan“,
„Stálhjálma-æskan“ og „Vík-
inga-æskan“. Auk þessa hafa
nazistískir stúdentar stofnað
með sér „Bandalag þjóðernis-
sinnaðra stúdenta", sem stárf-
ar í flestum háskólum Vestur-
Þýzkalands. 1 öllum þessum fé-
lögum og blöðum er rekinn á-
róður fyrir nazistískum hug-
myndum og stefnumálum, eins
og gert var á Hitlers-tíman-
um.
Edmund Duda formaður
vesturþýzka Æskulýðssambands
ins, liefur skýrt frá því, að í
félögum ungnazlsta séu um
40.000 manns, og séu þeir un.d-
ir stjórn gamalkunnra nazista.
Duda segir að margt af þessu
unga fólki séu rómantískir hug-
sjónamanna, sem trúi á ofur-
mennskukenningar Hitlers.
Önnur æskulýðssamtök eiga
ekki aðeins að vinna að því
að uppræta þessi félög, sagði
Duda, heldur fá alla meðlimi
þeirra til að snúa af þessari
hættulegu braut.
Ritari æskulýðssambandsins,
Heinz Westphal, sagði við
sama tækifæri, að félagssam-
tök nazistaherforingja og ann-
arra slíkra, sem væru leyfðir
af stjórnarvöldunum hefðu
haft mikil áhrif á það að slík
ungfasistafélög voru stofnuð,
Félögum gömlu nazistanna fer
stöðugt fjölgandi og mörg
þeirra hafa stofnað æskulýðs-
deildir innan sinna samtaka,
þar sem markvisst er unnið að
því að ala unglingana upp í
anda nazismans.
Krossfesting
í Þýzkalandi
Hálfsjötugur skósmiður, Georg
Krausert, fannst á sunnudaginn
látinn; negldur upp á vegg í her-
bergi við hliðina á verkstæði
■ sínu í vesturþýzku borginni
Frankfurt. Lögreglan telur að
vera megi að ■illræðismennirnir
hafi gert útaf við Krausert áður
en þeir krossfestu hann á vegg-
inn. Yfirvöldin hafa ekki hug-
mynd um, hvar leita skal ill-
virkjanna.
ára gömul, var ekkja Timkens
þess sem fann upp rúlluleguna
og safnaði of fjár á hagnýt-
lngu þeirrar uppfindingar.
Lokaði sig inni.
Eftir lát manns síns 1949
hætti e'kkja hans að umgang-
ast annað fólk og lokaði sig
inni í sölum sínum. Þar var
aldrei tekið til og úrgangur
og skarn hrúgaðist upp innan-
um forláta veggtjöld frá mið-
öldum, dýrindis húsgögn og ó-
metanleg listaverk
Komnar eru fram tvær erfða-
skrár eftir Flynn. í annarri á-
nafnar hann eiginkonu sinni,
leikkonunni Patrice Wymore,
mestallar eigur sínar, en hin
erfðas'kráin er hliðholl Beverly
Aadland, sem var fylgikona
Flynns síðustu árin sem hann
lifði og var hjá honum þegar
hann dó skyndilega af hjarta-
bilun fyrir þrem vikum.
Fjögur börn af þrem
hjónaböndum.
1 s'íðustu viku var erfðaskrá
Flynns birt í skiptaréttinum í
New York. Hún er dagsett
1954, og þar eru Patrice Wy-
more og börnunum fjórum sem
Flynn gat í þrem hjónabönd-
um sinum ánafnaðar eigur
kom í ljós að þykkt lag af
ryki og 'sóti huldi málverk eft-
ir Rembrandt, Rubens og Titian
og höggmyndir sem virtar eru
á milljónir dollara.
David Guyer, frændi frú
Timken, fann hana látna þegar
hann hugðist líta inn til henn-
ar. Eftir lát manns síns hafði
hún sagt upp öllu þjónustu-
fólki sínu og sökk ásamt lista-
fjársjóðunum sem þau hjón
höfðu safnað dýpra og dýpra í
óþrif og vanhirðu.
hans, sem taldar eru nema um
100.000 dollurum.
Nú hefur skiptarétturinn
fengið annað plagg frá Beverly
Aadland, sem lék smáhlutverk
í kvikmyndum milli þess sem
hún fylgdi Flynn á ferðalögum
hans. Hún ihefur þótzt vera
17 ára, en skilríki sem hún
lagði fram um leið sýna aö
hún er 23 ára.
Óundirrituð.
Plaggið sem Aadland hafði
undir höndum er óundirrituð
erfðaskrá Flynns, dagsett á
Kúbu fyrir 10 mánuðum. Þar
ánafnar hann Aadland þriðj-
ung eigna sinna, og tekur
fram að ef þeim verði sonar
auðið skuli mennta hann í
Trinity College í Dublin.
Löigfræðingur eiginkonu
Flynns, sem löngu var búin að
slíta samvistum við hann
kveðst muni leitast við að
sanna að rithönd Flynns sé
ekki á erfðaskránni sem hjá-
kona hans hefur lagt fram.
Hnsmóilir
vaiifit 12 iaiilS|-
óiiii* i geíraiiia
Ensk húsmóðir, Esther Bain-
bridge að nafni, hefur unnið
267.689 sterlingspund í knatt-
spyrnugetraun. Vinningsupphæð-
in samsvarar um tólf milljónum
íslenzkra króna á skráðu gengi.
Vinningurinn kom fimm vik-
um eftir að frú Bainbridge mynd-
aði getraunafélag með sex mönn-
um öðrum. Hvert um sig lagði
níu krónur í púkkið í viku
hverri, en húsmóðirin var skrif-
I uð fyrir öllu saman.
Millj ónaraekkj a dó ein-
sömul innanum skarni
þakta listafjársjóði
Frú Lilian Timken fannst á mánudaginn látin innan-
um ómetanleg listaverk óg dasmafá óþrif 1 24 herbergja
íbúð sinni við Fifth Avenue í New York.
Frú Timken, sem varð 78 Þegar menn tóku að kanna
húsakynnin á mánudagin,n