Þjóðviljinn - 30.10.1959, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 30.10.1959, Blaðsíða 9
Föstudagur 30. olctóber 1959 ÞJÖÐVILJINN — (9 sagði íormaður ÍBR við setningu Reykja- víkurmótsins í handknattleik Reykjavíkurmótið í handknatt- leik var sett á miðvikudags- kvöldið á Hálogalandi, og fram- kvæmdi formaður IBR þá at- höfn með stuttri ræðu. Gat hahn þess að á móti þessu væru leikn- ir um <80 leikir og að um 50 flokkar tækju þátt í því. Samta-ls myndu því um 500 manns koma sem þátttakendur í mótinu. Þetta sýndi hinn mikla áhuga fyrir þessari íþrótt sem stöðugt ætti miklu fylgi að fagna og væri á framfarabraut. Við þetta tækifæri gat Gísli þess að þegar væri hafist handa um byggingu nýrrar íþróttahall- ar þar sem gólfstærð yrði 20x40 m. Kvað hann að byggingar- nefn'din hefði fullan hug á að flýta verkinu svo að húsið geti komið sem fyrst í notkun. Sagð- ist hann gera ráð fyrir að eftir 3 ár yrði hægt að keppa í þessu nýja húsi. Því má bæta hér við fyrir handknattleiksmenn sérstaklega og raunar alla íþróttaunnendur, að þetta er góð frétt, og von- andi stenzt þessi þriggja ára á- ætlun. Það kann að þvkj a frá- leit skoðun að þrátt fyrir hið nýja fyrirhugaða íþróttahús, geta hvorki handknattleiksmenn né ýmsir aðrir íþróttamenn misst hið „garnla" Hálogaland, og von- andi verður því leyft að standa á meðan það getur. Það mun koma á daginn að það þarf á því að halda bæði til æfinga og ekki síður til keppni í ýms- um greinum og flokkum. Þetta er sérstaklega nauðsyn- legt þar sem farið hefur verið inn á þá óheillastefnu að banna einstökum félögum að hafa á- horfendasvæði við íþróttasali sína. Á þetta hefur verið minnzt hér fyrir nokkuð löngu síðan og munu margir vera að skilja það betur og betur að síðar mun þetta vera það sem koma átti fyrst og verður það ekki rifj- að upp hér aftur. EM-kvikmyndin í Nýjabíói Kvikmyndin frá Evrópa- meistaramótinu í frjálsum í- þróttum, sem haldið var í Stökkhólmi í fyrra, verður sýud í Nýja bíói á morgun kl. 2 e. h. Mynd þessi er þýzk, með enskum texta, og svipar að mörgu leyti til hinnar víðfrægu Olympíumyndar frá Berlíhar- leikunum 1936, sem kunnugir telja langbeztu kvikmynd sinn- ar tegundar. Auk spennandi úrslitakeppni í 27 greinum karla og kvenna er þarna brugðið upp skemmti- legum svipmyndum frá æfing- um meistaranna og eru sumar þeirra kryddaðar ýmsum spaugilegum atvikum. Mikið af myndinni er tekið í svokallaðri „slow motion“ og ^ramhald á 8. síðu. Kvennaflokkur: Valur vann Þrótt 7:3 Fyrsti leikur kvöldsins var á milli Þróttar og Vals í meistara- flokki kvenna. Til að byrja með var leikurinn alljafn því í hálf- leik stóðu leikar 2:1 fyrir Val. í síðari hálfleik tóku Valsstúlk- urnar örugglega forustuna, og voru mun marksæknari og höfðu betra lag á því að brjótast í gegn, vörn Þróttar var líka of opin; þannig að Valsstúlkurnar fóru svo í gegn að þrjú mörkin voru t. d. skoruð af línu. Vörn Vals var mun „þéttari" og við það bættist að* Þróttar- stúlkurnar- gerðu -ekki hógar til- raunir til að nota þær opnur sem komu, þær skutu ekki nóg. Þær virðast heldur ekki vera í þjálfun, hvorki hvað úthald snertir eða hvað öryggi snertir í sendingum. Sjláfsagt hefur það sín áhrif á liðið að Helga Emils- dóttir er ekki með og er það stórt skarð fyrir skildi. Lið Þróttar er sambland af eldri og yngri konum og fer það vel saman ef báðar eru í þjálf- un. Þróttur „brenndi af“ 2 víta- köst og talar það sínu máli. Valsstúlkurnar sem allar eru ungar, eru í stöðugum þroska, og ef þær halda vel saman getur Valur eignast þar gott hand- knattleikslið með tímanum. Enn skortir á öryggi í send- ingum, og kraft, en þær hafa oft nokkuð góðan skiining á samleik. Dómari var Daníel Benjamíns- son. Meistaraflokkur karla: Ármann vann Þrótt 1.4:10 Fyrsti leikurinn í meistara- flokki karla í mótinu var á milli Þróttar og Ármanns. Leit út til að byrja með að þar yrði mikill munur því eftir 7 mín. höfðu Ármenningar skorað 5 en Þróttur aðeins 1. En Þrótti tókst að minnka bilið og í hálf- leik stóðu leikar 7:4 fyrir Ar- mann og litlu síðar stóðu leikar 9:6, en þá tóku Ármenningaí sprett og skoruðu 4 mörk í röð, og var við því búizt að Þróttur mundi ekki getað svarað, en þeir áttu svolítið eftir og skora 3 mörk í röð, en lokatölurnar urðu 14:10. Að vísu geta Þróttarar þakkað Þórði í markinu að mun- ur varð ekki meiri því hann varði oft með mikilli prýði og er tvímæialaust eitt mesta mark- mannsefni hér nú. Þróttur er ekki í æfingu og alltof margar sendingar fóru forgörðum fyrir ónákvæmni. í þessum ungu mönnum sem Þróttur teflir fram er góður efniviður, sem á að geta náð árangri. Ármenningar eru sýnilega í mun betri þjálf- un, en þeir fengu ekki nóg út úr leik sínum, og hefðu átt að ná meiri tökum á leiknum, þótt sigur þeirra væri aldrei í hættu. Dómari var Óskar Einarsson. KR ^slapp" með 12:11 fyrir Víking! Fáa mun haf órað fyrir því að KR mundi aðeins ná einu marki yfir á móti Víking, og virðist sem Víkingur hefði unn- ið ef leikurinn hefði verið svo- lítið lengri, og síðari hálfleik unnu Vikingar. Þegar leikar stóðu líka .5:1 nokkru fyrir leikhlé mun al- mennt hafa verið búist við því að um „burst“ yrði að ræða, en í hálfleik stóðu ieikar 5:2. í síðari hálfleik komst meira fjör í þetta, en þó er það ekki fyrr en um miðjan síðari hálf- leik sem Víkingar fara að láta verulega að sér kveða og stóðu leikar þá 10:5 fyrir KR, en eftir það gera Víkingar 6 mörk en KR 2. Sennilega hefur KR ekki tekið Víking nógu alvarlega, og þeir komið sterkari en búizt var við. Vafalaust getur KR meira en þeir sýndu í þessum leik. Fjar- vera Þóris og Þorbjörns hefur iíka haft sín áhrif, og liðið ekki búið að finna menn sem falla eins inn í það og þeir gerðu, en þeir munu hættir keppni. Hörður Felixson var heldur ekki með, en hann hefur verið stoð varnarinnar sérstaklega, en hún opnaðist illa er á leið. Við það bættist að Guðjón varði ekki eins og oft áður. Valur—Fram 11:11 Valur byrjaði þetur og um skeið stóðu ieikar 4:1 fyrir Val, og virtist að Valsmenn myndu ná öruggum tökum á leiknum, en svo varð þó ekki. Fram sótti sig er ó leið og jafnaði smátt og smátt bilið, og munaði aðeins 2 mörkum — 8:6. Hélt það á- fram þar til þeir höfðu jafnað 10:10 nokkru fyrir leikslok. Valur komst þó yfir 11:10 en Fram jafnaði á síðustu mínútunni. Hvorugt liðanna er komið í æfingu og voru sendingar óná- kvæmar, og hraði ekki mikill, og til þess að draga úr leikandi sendingum og of miklum hráða voru menn að ,;stinga niður“, „bremsa“ í tírha og ótíma og gerði Fram þó meir að því. Var satt að segja byrjenda- bragur á leiknum eins og raun- ar á flestum leikjum kvöldsins og öll einkenni þess að þetta væri að byrja. Að sjálfsögðu verður gaman að fylgjast með framvindu leikja og liða og eftir þetta fyrsta kvöld verður erfitt að spá um það hvaða félag verður Reykja- víkurmeistari að þessu sinni. ÍR sat yíir að þessu sinni. Dómarar heldur ekki í æfingu Dómarar kvöldsins voru Daní- el Benjamínsson, Óskar Einars- son, Stefán Hjaltested og Magn- ús Pétursson. Magnús komst næst því að vera í „æfingu", en ótrúlega margt fór framhjá þeim af brotum bæði stórum og smá- um, en þetta lagast sjálfsagt þegar meiri æfing kemur. Ekki getur það talist hressileg eða íþróttamannsleg staða hjá dóm- ara að vera með hendi stöðugt djúpt í vasanum við dómara- störfin. Það á heldur ekki við að dómari komi á „blánkuðum" götuskóm og allt að því „sel- skaps“-klæðnaði til dómarastarfa. Þeir eru þó þátttakendur í sýn- ingunni og það þarf að vera samræmi í hlutunum. Fimmti flokkur Víkings í knattspyrnu Hér birtist mynd af knatt- spyrnuliði Víkings í fimmta flokki, en það var sigursælt í sumar, eins og getið var hér á íþróttasíðunni fyrir nokkr- um dögum. Leikmenn í aft- ari röð frá vinstri eru: Pétur Jónsson fyrirliði, Ólafur Þor- steinsson, Einar Magnússon, Bragi Guðmundsson, Örn Guðmundsson og Egill Ein- arsson. Fremri röð frá vinstri: Bjarni Magnússon, Jón Þór- arinsson, Þorbjörn Jónsson, Þórður Haraldsson, Ómar Kristjánsson og Magni Jóns- son. Lengst til vinstri í aft- ari röð er þjálfarinn Eggert Jóhannesson, til hægri er Magnús Thjell. Á myndina vantar þá Helga Guðmunds- son og Jónas Bergmann. (Ljósm. Guðjón Einarsson). ÞJÓÐVIUANN vantar unglinga til blaðburðar í eítir- talin hveríi: .] Kássnes — Blönduhlíð. ] Talið við afgreiðsluna sími 17-500 Sendisveinn óskast. ÞJÓÐVILJINN.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.