Þjóðviljinn - 19.11.1959, Side 1
Miðstjórn Alþýðuflokksins gafst
nppá einróma ákvöðrnn sinni!
Emil Jónsson biÓst lausnar i dag en Ólafur Tbors
kynnir hina nýju rík isst'iórn sina á morgun
Geislavirk úr- -
gangsefni í sjé
Hafrannsóknafræðingar í
Sovétríkjunum segja í nýbirt-
um niðurstöðuskýrslum sínum.
að það svæði sé ekki til á
hafsbotni, þar sem ekki séu
einhverjir straumar og hreyf-
ing. Muni þetta valda því að
úrgangsefni frá kjarnorkuver-
um leysist upp á hafsbotni og
geta þau hvenær eem er
streymt upp á við og upp á
yfirborðið.
Segja vísindamennirnir, að
Strontium 90 og önnur banvæn
geislavirk efni muni samlagast
svifi í sjónum, sem ýmsar fisk-
tegundir lifa á, og þannig geti
mönnum stafað mikil hætta af
því að úrgangsefnum úr kjarn-
orkuverum sé veitt út í sjó.
Síðdegis í gær gafst miðstjórn Alþýöuflokksins al-'í>
gerlega upp á fyrri kröfu sinni um helmingaskipti á
ráðherrastólunum, afturkallaði fyrri samþykkt sína og
féllst á að Sjálfstæðisflokkurinn fengi 4 ráöherra, Alþýðu-
flokkurinn 3. Búizt er við að ríkisstjórn Emils Jóns-
sonar biðjist lausnar í dag, forseti feli síðan Ólafi Thors
að mynda stjórn og hann kynni hana á föstudag, er
Bretar lofa Adenauer áfram-
haldandi vígbúnaði í Evrópu
Adenauer heldur burt frá London í dag
þing kemur saman.
. Eins og skýrt var frá hér í
blaðinu í gær hófst miðstjórnar-
fundur i.Alþýðuflokknum í fyrra-
kvöld, og hafði mikið verið
reynt til þess að fá miðstjórn-
armenn til að breyta ákvörðun
sinni um jafnmarga ráðherra
ílokkanna. Ýmsir höfðu þá þeg-
ar guggnað, en engu að síður
urðu umræður miklar og lang-
ar; og stóð fundurinn til kl.
að ganga tvö. Ekki þótti þá ráð-
)egt að ganga til atkvæðagreiðslu,
og .var nýr fundur boðaður kl.
2 í gær. Á þeim fundi var skýrt
frá því að Sjálfstæðisflokkurinn
héldi fast við sitt og myndi
ekkert verða úr stjórnarmynd-
un ef miðstjórn Alþýðuflokksins
stæði við ákvörðun sína. Gafst
þá miðstjórnin upp skilyrðis-
laust, samþykkti að Sjálfstæðis-
flokkurinn fengi meirihluta í rík-
isstjórninni — og hafði ekkert
upp úr krafsinu annað en að
vekja spaug og hlátur bæjarbúa.
Kosningar í Marokkó
Múhameð V. kóngur í Mar-
okkó, tilkynnti í gær, að
fyrstu almennu kosningarnar í
Marokkó frá því landið hlaut
sjálfstæði árið 1956, myndu
verða haldnar í maímánuði n.
k. Konur hafa kosningarétt til
jafns við karla.
Ólaíía tekur við af Emilíu
Ríkisstjórn Emils Jónssonar
mun segja af sér í dag, og for-
seti þá fela Ólafi Thors stjórn-
armyndun, en hann mun kynna
Alþingi stjórn sína á föstudag.
Ráðherrar verða þeir sem Þjóð-
viljinn hefur áður skýrt frá:
Ólafur Thors, Bjarni Benedikts-
son, Gunnar Thoroddsen og Ing-
ólfur Jónsson frá Sjálfstæðis-
flokknum, en Emil Jónsson,
Gylfi Þ. Gíslason og Guðmund-
ur í. Guðmundsson frá Alþýðu-
flokknum. Enn mun ekki búið
að ganga frá verkaskiptingu í
smáatriðum milli ráðherra, þótt
verkaskipting milli flokkanna sé
ákveðin að fullu.
i
Orðnir þjálfaðir
Það er táknrænt að ferill hinn-
ar nýju stjórnar skyldi hefjast á
því að Sjálfstæðisflokkurinn
svínbeygði miðstjórn Alþýðu-
flokksins og neyddi hana til að
éta ofan í sig einróma ákvörðun
á hálfum öðrum sólarhring. Mun
miðstjórnarmönnum lítt hafa
svelgzt á, enda voru þeir fyrir
kosningar í sumar búnir að éta
ofan í sig alla fyrri stefnuskrá
Alþýðuflokksins, þannig að ekki
hefur munað um smávegis á-
bæti.
Adenauer, kanzlari Vestur-
Þýzkalands og Macmillan for-
sætisráðherra Bretlands héldu
áfram viðræðum sínum í gær,
og sömuleiðis utanrikisráð-
herrarnir Brentano og Lloyd.
I tilkynningu um viðræður
þessar segir að ráðherrarnir
hafi rætt fyrst og fremst um
afvopnunarmálin og einnig um
fund æðstu manna austurs og
vesturs, og hvernig leiðtogar
vesturveldanna geti bezt búið
sig undir slíkan fund. Þá var
og rætt um ástand í verzlun-
armálum Vestur-Evrópu.
Sérfræðingur brezka út-
varpsins í utanríkismálum seg-
ir að Lloyd hafi gefið Bren-
tano tryggingu fj'rir því. að
brezka stjórnin hafði ekki
gert neinar áætlanir um að
ilraga úr vígbúnaði í Evrópu.
Er Brentano sagður leggja á
það mikla áherzlu að vestur-
veldin fallist ekki á að minnka
herstyrk sinn í Vestur- og Mið-
Evrópu. Þá segir brezka út-
varpið að ráðherrarnir hafi
Á níunda tímanum í gær-
morgun vildi það slys til við
Laugaland, að maður, Hjálmar
Eyþórsson frá Blönduósi, sem
var að leysa hey af bíl féll aft-
ur yfir sig og fótbrotnaði. Mað-
urinn var fluttur í slysavarð-
stofuna.
orðið sammála um að það væri
nauðsynlegt fyrir veeturveld-
in að hafa á takteinum áætlun
um algera afvopnun áður en
æðstu menn þeirra setjast að
samningaborðinu með Krúst-
joff. Eining ríkti um það með-
al ráðherranna að halda fund
æðstu manna ekki fyrr en síð-
ari hluta apríl.
Á fundi stjórnmálanefndar
Ahsherjarþingsins í gær, lýsti
fulltrúi Indlands yfir fylgi sínu
við ályktunartillöguna um að
banna skuli allar frekari til-
raunir með kjarnorkuvopn.
Skal það bann gilda þar til
samkomulag hefur náðst á Genf-
arráðstefnu kjarnorkuveldanna
þriggja um bann við tilraunum
með kjarnorkuvopn.
Fulltrúar Japatis, Lýbiu og
Kúbu lýstu einnig yfir fylgi við
tillöguna. Hafa þá samtals 23
ríki lýst yfir fylgi við tillöguna,
Sá tími nálgast óðfluga þegar
mannaðar cldflaugar verða
sendar upp í háloftin og
látnar fara á braut umhverfis
jörðina, og síðar enn lengra
út í gcimiun. Áður en slíkar
ferðir hefjast verður þó að
vinna mikið undirbúnings-
starf, og gera þrotlausar til-
raunir í þessu skyni. M. a.
verður að þjálfa væntanlega
geimflugmenn á jörðu niðri
og láta þá venjast þeim skil-
yrðurn sem þeir mæta í há-
loftunum. Myndin, sem tekin
er í Sovétríkjunum, sýnir
geimflugmenn í fullum her-
klæðum í eldflaugastjórn-
klefa.
og íer þeim stöðugt fjölgandi.
Þau riki eru aðallega í Asíu og
Afríku.
Geníarráðstefnan um bann við
tilraunum með kjarnavopn hefstj
aftur í dag eftir nokkurra daga
fundarhlé.
Lýðveldisbandalagið á Kýp-
ur hefur hótað að bjóða fram
á móti Makaríosi í forsetakosn-
ingunum, ef liann lofar ekkt
að þingið skuli velja ráðherra
í stjórn. , i
í fyrrakvöld komu söngmennirnir Deep river boys til Reykja-
víkur með Viscount f'Iugvél Flugfélags íslands. Þessi vinsæli
kvartett sem margir þekkja hér vegna söngs á hljómplötum,
mun koma fram á skemmtunum Björgunarsveitar skáta á-
samt ’ innlendum listamönnumi. Á myndinni eru söngmennirnir
Deep river boys ásaint umboðsmanni sínum. (Ljósm. Sv. Sæm.)
Stöðugt fleiri ríki vilja banna
allar tilraunir með kjarnavopn
Fulltrúi Indlands lýsir yfir stuðningi
við tillögur um bann við slíkum tilraunum
Tillaga sú, sem allmörg Afríku- og Asíuríki hafa boriö
fiam á allsherjarþinginu hlýtur stööugt meira fylgi með-
al aöildarríkja Sameinuöu þjóöanna.