Þjóðviljinn - 19.11.1959, Side 9

Þjóðviljinn - 19.11.1959, Side 9
Fimmtudagur 19. nóvember 1959 — ÞJÖÐ'VILJINN — (9 Frá sundmóti Ármanns í Sundhöll Reykjavíkur í fyrrakvöld: Austur-þýzku karlarnir iinnu „sérgreiuar64 sínar Þetta Ármannemót var skemmtilegt og miðað við að þetta er fyrsta mótið á keppn- istímabilinu hér náðist góður árangur í mörgum greinum. Skemmtilegasta keppnin var að sjálfsögðu þegar Ágústa Þorsteinsdóttir lagði til einvíg- is við hina ágætu og vaxandi eundkonu frá Austur-Þýzka- landi Gisela Weiss í 200 m skriðsundi. Fyrstu 25 m eru þær jafnar en eftir 50 m er Weiss aðeins á undan. Þegar þær snúa við eftir 75 m eru þær að kaþla jafnar, en nú er það Ágústa sem tekur forustuna og dregur stöðugt sundur með þeim og eftir 175 m er Ágústa orðin nokkrum metrum á undan en þá tekur Weiss mikinn sprett og dregur nú saman með þeim aftur. En hún hefur tekið sprettinn of seint, Ágústa læt- ur engan bilbug á sér finna og hún heldur forustunni í mark og lýkur sundinu á nýju íslandsmeti 2.28.6. Weiss var líka undir gamla íslenzka met- inu, tími hennar var 2.29.0. Ágústa átti gamla metið og var það 2.33.0, svo að þetta var ekkert smáafrek. Tími Guðmundar Gíslasonar í 100 m skriðsundinu var líka mjög góður eða aðeins 3/10 úr sek. frá meti hans, 58.5. Þjóðverjinn vann á tímanum 58.1. Guðmundur var á und- an á tveimur fyrstu snúning- unum og á 75 m voru þeir jafnir, en Wiegand átti betri endasprett. Er hann eins og Guðmundur skemmtilegur sund- maður. Guðmundur náði ekki eins góðum árangri í 100 m bak- sundi, enda tæpast búinn að jafna sig eftir 100 m skrið- sundið. Þjóðverjinn Dietze vann þetta sund með yfirburð- um og glæsilegum endaspretti. Landi hans Wiegand kom með í keppni þessa og varð ann- ar á ágætum tíma 1.07.4. Guð- mundur varð þriðji á 1.11.2. Konrad Enke sýniii að hann er frábær sundmaður, þó hon- um tækist ekki að ná sínu bezta, var hann í sérflokki og synti langt undir meti Sigurð- ar Þingeyings. Tími hans er 2.41.3 en Evrópumet hans er 2.38.6 mín. og var það sett í 50 m laug. Keppni við hann kom aldrei til greina frá okk- armönnum en keppnin þeirra í milli var ákaflega hörð, jöfn og tvísýn. Áttust þar við Sig- urður af Akranesi Einar Kristinsson og Hörður úr Keflavík. Sigurður hafði lengst af forustuna af þeim þremur, og munaði nokkru, en er á sundið leið drógu þeir Einar og Hörður á hann og eru all- ar likur til að báðir hafi byrj- að endasprettinn of seint, en Sigurður kom 1/10 úr sekúndu á undan Einari í mark og Hörður 1/10 þar á eftir. Flestum mun hafa komið á óvart að Pétur Kristjánsson skyldi vinna 50 m flugsund en hann vann það á góðum tíma eða aðeins 5/10 sek. frá meti sínu. Wiegand varð annar, en hann brá sér í þetta sun.d sér til ,,gamans“ en var . ekki skráður. Efnilegt sundfólk frá Akureyri Á móti þessu yoru nokkrir ungir sundmenn frá Ákureyri og voru þeir ekki af lakari endanum. I 100 m bringusundi drengja vann drengur frá Ak- ureyri, Júlíus Björgvinsson á allgóðum tíma eða 2.23.8. Björn Þórisson vann 50 m skriðsund drengja á ágætum tíma 27.8 sek., og stóð keppn- in þar milli hans og beztu drengja hér, og má þar nefna Sigmar Björnsson og Þorstein Ingólfsson. Tími Björns er meðal 10 beztu til þessa. Tveir aðrir piltar frá Akur- eyri tóku einnig þátt í sundi þessu og voru um 30 sek. og tveir fyrstu í sínum riðli. Ein stúlka keppti í 50 m skriðsundi telpna, Erla Hólm- steinsdóttir, og byrjaði hún vel, var jöfn hinni ágætu Hrafnhildi Guðmundsdóttur á 25 m en við snúninginn rann hún til og missti alla ferð, en varð þó í öðru sæti. Hefði ver- ið gaman að sjá þær í enda- spretti og jöfnum snúningi. Var skemmtilegt að komast í kynni við þetta efnilega sund- fólk og vonandi á það eftir að setja svip á fleiri mót. Þess má geta að Helga Haralds- dóttir frá SRA, varð 3. í 100 m bringusundi kvenna, og var það vél gert. Hún er einnig snjöll í frjálsum íþróttum. Virðist sem þetta nafn allt frá fornu varpi ljósi á íþróttir, og þá ekki sízt sund, en þar hafa þjár nöfnur komið við sögu. Hún Sigrún frá Hafnarfirði setti líka sannarlega svip á 100 m bringusundið og keppni hennar og Hrafnhildar var á- kaflega skemmtileg og tvisýn allan tímann, og endaði með jöfnum tíma, en Hrafnhildur var sjónarmun á undan. Var þetta mjög vel gert hjá Sig- rúnu. Sem sagt skemmtilegt kvötd með óvæntum atburðum og góðum gestum. Á undan keppninni ávarpaði formaður Ármanns gesti og aðra keppendur, og skiptust þeir á fánum hann og farar- stjóri austurþýzku sundmann- anna, Gerhard Lewin, og flutti hann einnig stutt ávarp. Úrslit í einstökum greinum: 100 m skriðsund karla: Frank Wiegand A-Þ. 58.1. Guð- mundur Gíslason ÍR 58.5. Er- lingur Georgsson SH 1.06.3. Fyrsti íslendingurinn í sundi þessu fékk bikar fyrir afrekið. Var hann á sínum tíma gef- inn fyrir keppni í skautahlaup- um og vann Sigurjón Péturs- son frá Álafossi hann á þeim tíma. Nú hafa aðstandendur Sigurjóns ráðstafað honum til bezta íslenilings í 100 m skrið- sundi, og hlaut Guðmundur Ól- afsson hann að þessu sinni. Frarnhald á 10 síðu Þetta er Evrópumethafinn í 200 metra bringusundi, Kon- rad Enke, sem sigraði með yfirburðum í fyrrakvöld. Handknattleiksmeistaramót Reykjavík ur: KR hefur forustuna í meistcsr® flokkum karla og kvenna Handknattleiksmót Reykja- víkur hélt áfram á sunnudags- kvöldið og var leikið í meist- araflokkum kvenna og karla. í meistaraflokki kvenna fóru fram tveir leikir: Ármann — Valur og KR — Víkingur, og voru báðir leikirnir skemmti- legir, þar eð „stóru“ félögin Ármann og KR urðu bæði að heyja baráttu til að bera sig- urorð af andstæðingum sín- um. M.fl. kvenna: Ármann sigraði Val 8:5 Leikur Ármanns og Vals varð mun skemmtilegri, en við var búizt, einkum þó síðari hálfleikurinn. I hálfleik stóðu leikar 5:1 fyrir Ármann, en í síðari hálf- leik náðu Valsstúlkurnar sér á strik og tókst að vinna hálf- leikinn með 4:3. en forskot Ármanns frá fyrri hálfleik nægði til sigurs 8:5. I liði Ár- manns voru beztar Sigríður Lúthersdóttir og markvörður- inn (Ruth), en í Valsliðinu Sigríður Sigurðarídóttir. Ann- ars er Valsiiðið skipað mjög jafngóðum einstaklingum. Víkingur veitti KR mótspyrnu Árangur Víkingsstúlknanna gegn KR kom mjög á óvart. Meiri hluta leiksins voru þær annað hvort jafnar KR eða 1 eða 2 mörkum á eftir. Víking- ur byrjaði að skora. en KR tókst að ná 3:1, og leit nú út fyrir að KR hefði náð und- irtökunum, en svo var þó ekki, því Víkingar „kvittuðu" 3:3. Rétt fyrir hálfleik skor uðu KR-ingar 4:3. Um miðjan síðari hálfleik stóð 6:6, en þá tókst KR að ná leiknum í sínar hendur og sigruðu með 9:6. I liði KR voru beztar Gerða Jónsdóttir og Perla Guðmundsdóttir. Vík- ingsliðið er skipað jöfnum ein- staklingum, en beztar í leik þessum voru Rannveig Lax- dal og Ingibjörg Pétursdóttir. Meistaraflokkur karla: Víkingiir vann Þrótt 7:6 I meistaraflokki karla átt- ust fyrst við lið Víkings og Þróttar. Leikur þessi var í einu og öllu eins og fyrri leik- ir þessara félaga, þ.e. fram úr hófi rólegur og lognmollulegur. Enda þótt markatalan hafi gefið upp spennandi leik var rauninni þó allt önnur, þvi leik- urinn var eins leiðinlegur og einn leikur mest getur verið. Víkingur hafði eitt mark yf- ir í hálfleik 5:1. I síðari hálf- leik tókst báðum aðilum að skora tvisvar, og sigraði Vík- ingur því með 7:6. Bæði liðin áttu sem fyrr seg- ir lélegan leik; það er þó eink- um Þróttur, sem veldur von- brigðum með tveimur síðustu leikjum sínum, þar eð menn voru farnir að tengja miklar vonir við Þrótt sem góðan harídknattleiksflokk, eftir sig- urinn yfir ÍR. ÍR vann Fram í spennandi lcik 12:9 Von manna um fjörugan lék Fram og IR brást ekki að þessu sinni. Framarar tóku forystuna, en Hermann Samúelsson „kvitt- aði“ fyrir ÍR, Fram nær 2:1, ÍR skorar 2:2. Framarar skora nú tvisvar. 4:2, en Gunnlaug- ur Hjálmarsson minnkar for- skotið 4:3 fyrir Fram. Rétt fyrir hálfleik skora báðir sitt hvort markið, 5:4. I byrjun síðari hálfleiks ná iR-ingar jafntefli 5:5, en Karl Bene- diktsson nær forystunni fyrir Fram 6:5, en Matthías jafnar enn fyrir ÍR 6:6. Sjöur.da mark Fram skorar svo Guðjón mjög glæsilega eftir að hafa skotið í stöng og náð boltan- um aftur á línu. 8:6varstaðan fyrir Fram eftir að þeir skor- uðu úr vítakasti, en Gunnlaug- ur og Matthías jafna fyrir ÍR með góðum skotum, og Pétur skorar glæsilega af línu, og I.R-igar ná nú forystunni í fyrsta sinn í leiknum. Gunn- laugur Hjálmarsson kemst nú loks í gang svo um mun?’\ skorar 10. 11. og 12. mark ÍR með glæsilegum skotum. Rétt undir lokin var Fram dæmt vítakast, sem þeir skoruðu ör- ugglega úr og lauk leiknum því með sigri IR 12:9. Leikurinn var skemmtilegur og allvel leikinn. Lið IR lék nú ekki nándar nærri eins hratt og gegn Ármanni á dcg- unum, enda var hraðinn þá meiri en liðið ræður við í þeirri æfingu sem það er í. Beztu menn IR voru Pétur, Matthías og Gunnlaugur. Einn- ig sýndu Hermann og Böðvar í markinu ágætan leik. 1 liði Fram var beztur Guðjón Jóns- son. Framarar sýndu ágætan leik, en voru óheppnir með skot sín. Vahir kom 4 óvænt í leiknum við KR Leikur Vals við KR kom mjög á óvart, þar eð birzt var við nokkrum vfirburðum KR. KR-ingar höfðu yfir í hálfle’k 6:3. I byrjun síðari hálfleiksins var forskotið Framhald á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.