Þjóðviljinn - 26.11.1959, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 26.11.1959, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 26. nóvember 1959 — ÞJÓÐyiLJINN — (9 I gæj* var birt hér á ’íþrótta- síðunni frásögn af þingi Frjáls- íþróttasambands Islands. Hér verður haldið áfram frásögn- inni og rakin fleiri atriði úr skýrslu stjórnar FRÍ. I mörg undanfarin ár hefur stjórn FRl stefnt að því að koma á a.m.k. einni lands- keppni árlega. Lengi framan af var ekki hikað við að semja þannig, að Islendingar greiddu bróðurpart alls kostnaðarins við ferðirnar, en brátt varð þó stjórn sambandsins ljóst, að enda. þótt landskeppnir séu nauðsynlegur liður í starfsemi sambandsins má þó ekki kaupa þær svo dýru verði, að starf- semi sambandsins inn á við bíði við það hnekki. Því hefur iengi, en án árangurs, verið reynt að komast að samningum þannig, að Islendingar greiddu sinn hluta kostnaðarins, en meira ekki og helzt væri sam- ið fyrir a.m.k. tveggja ára bil. Þannig hefur verið, 1953— 1959, reynt við Dani, Norð- menn, Finna (B-lið), Svía (B- lið), Spánverja, Belgiumenn, Hollendinga, Austur-Þjóðverja (B-lið) og Pólverja (B-lið), en ekki tekizt þar til nú að ná samkomulagi á jafnréttisgrund- velli. Hér að framan (eins og fram kom í þeim hluta skýrsl- unnar, sem birtur var i gær) hafa verið raktar tilraunir stjórnar FRl til að koma á landskeppni 1959 og enn frem- Róðrarfélag Reykjavíkur hefur hafið vetrarstarfsemi sína. Og er þetta 10. starfsár félagsins. Stjórn félagsins hugsar gott til þessa afmælis árs. Hefur m.a. fengið lærðan íþróttakennara, sem jafnframt er reyndur ræðari, til að þjálfa og kenna á æfingum í vetur. Þeirri nýbreytni hefur verið komið á að sérstakur tími er ætlaður fullorðnum mönnum (Old boys), eem aðeins stunda íþróttina sér til upplyftingar og hressingar. Þessi tími verð- ur í vetur á mánudögum kl. 9.30 e.h. Þar fá „gömlu menn- irnir“ að róa í þar til gerðum róðrarvélum, og gera léttar leikfimisæfingar. Og að lokum geta þeir svo fengið sér hress- andi bað. Aðalæfingatími félagsins er á miðvikudögum kl. 8.45 e. h. Þar fá byrjendur kennslu við ur viðræður formanns FRl við Austur-Þjóðverja. I framhaldi af þeim viðræð- um reit stjórn FRl austur- þýzka frjálsíþróttasambandinu bréf 11. september og gerði á- kveðið tilboð um keppni 1960 og 1961, í höfuðatriðum sem hér segir: Keppnin 1960 verði í Aust- þýzkalandi, eftir Olympíuleik- fyrstu áratökin, og þar fá ræð- arar undirbúning undir átökin næsta sumar. Báðir þessir tím- ar eru í leikfimissal Miðbæjar- skólans. Einn'g verður sérstök á- herzla lögð á útiæfingar um helgar, þegar veður leyfir. Er þá róið á bátum félagsins á Skerjafirði. Er það von félagsins að geta komið upp vel þjálfaðri sveit ræðara, sem hægt verður að serda til keppni erlendis. Síðast liðið sumar var fé- laginu boðin þátttaka í keppni erlendis, en það taldi sig ekki hafa nægilega þjálfaða menn í slíka þolraun, enda kom boðið með litlum fyrirvara. Vetraræfingar félagsins hafa reynzt mjög vel, og eru ræðar- ar mun betur undir sumarið búnir en ella, og fljótari að komast í þjálfun. Framhald á 10. síðu Myndin er af sovéðka fimleikamanninum Pavel Stolboff, se-i ^arð annar livað heiklarstig snertir á Evrópumeistaramótimi, sem háð var í Kaupmannahöfn á liðnu hausti. FRÍ heiðrar 14 menn Árlega veitir stjórn FRÍ ýmsum mönnum heiðursmerki sambandsins fyrir vel unnin störf í þágu frjálsra íþrótta. Á árinu hefur stjórn FRÍ sam- þykkt að veita eftirtöldum mönnum heiðursmerki: GULL: Þórarinn Sveinsson, Eiðum. Framhald á 10. siðu SÖLUUMBOÐ: TILVALIN TIL JÓLAGJAFA Er í sterklegri og fallegri tösku úr ljósu leðri Zig-Zagar, stoppar í, býr tii Gerið pantanir hjá söluumboðum okkar: Einkaumboðsmenn á íslandi: Vilberg & Þorsteinn Laugav. 72, Reykjavík Verzlunin Óðinn Akranesi Verzl. Ari Jónsson Patreksfirði Verzl. Einar Guðfinnsson Bolungavík Verzl. Matthías Sveinsson ísafirði Verzl. Gestur Fanndal Siglufirði Sportvöru- og hljóðfærahús Akureyrar Verzl. Snorrabúð fiúsavík Verzl. Gunnar Jónsson Vopnafirði Verzl. Sigurbjörn Brynjólfsson Lagarfljótsbrú Verzl. Björn Björnsson Norðfirði Pöntunarfélag Eskfirðinga Verzl. Haraldur Eiríksson Vestinannaeyjum Verzl. Stapafell Keflavík Verzl. Jóns Gíslasonar Ólafsvík hnappagöt, festir á tölur. Skrautsaumar.; Örugg verkstaeðisþjónusta. 6 mánaða ábyrgð.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.