Þjóðviljinn - 08.12.1959, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 08.12.1959, Blaðsíða 12
Guðmundur í. Guðmundsson lýsir yfir á Alþingi: Engin fækkun fyrirhuguð í r bandaríska hernum á Islandi Aðeins rætt við bandaríska sendiherrann hér um breytingar á „skipulagningu“ og „samsetningu66 liðsins í svari við fyrirspurn frá Einari Olgeirssyni lýsti utan- xíkisráðherra Guðmundur í. Guðmundsson því yfir á Al- þingi í gær að engin fækkun sé fyrirhuguð í bandaríska hernum á íslandi. Áður en gengið var til dag- skrár á fundi neðri deildar í gær kvaddi Einar Olgeirsson sér hljóðs og spurði utanríkisráð- herra hvort réttar væru þær fregnir að til stæði að fækka Bezti síld- veiðidagur áhaustiuu Siinniidagurinn var bezti síldveiðidagurinn hér við suðvesturlandið á þessu hausti. Komu þá 90 bátar til 5 verstöðva nieð sam- tals 14.400 tunnur. Til Akraness komu 16 bátar með 3200 tunnur, 26 bátar til Keflavíkur með 3Í500 tunnur, 16 bát- ar til Sandgerðis með 2800 tunnur, 18 bátar til Grindaxíkur með 2800 tunnur og 14 bátar til Hafnarfjarðar með 2000 tunnur. I fyrrinótt og í gær var veiði bátanna misjafnari. Forsætisráðherra verður sér til skammar Forseti neðri deildar Al- þingis, ÍBenedikt Gröndal sló í bjöllu sína svo söng I, til að vít'a forsætisráðherra Ólaf Thórs, er hann á fundi deild- arinnar J gær tók að gjamma fram í ræðu Einars Olgeirs- * sonar og skildist það eitt í rausi Ólafs að hann værj að tala eitthvað um Ungverja- land. Var svo að sjá að Ólafur fokreiddist forseta fyrir þessa sjálfsögðu áminningu og óð hann upp að forsetapalli og hreytti ónotum í Benedikt, sem tæpast eru eftir hafandi. Kosíð í Norð- urlandaróð Neðri deild kaus á fundi sínum í gær þrjá menn 'í Norðurlandaráð, Komu fram tveir listar, og voru kosnir án atkvæðagreiðslu af a-lista Gísli Jónsson og Sigurður Ingimundarson en af b-lista Einar Olgeirsson. Varamenn voru kosnir með sama hætti Matthías Matthiesen og Birg- ih Finnsson af a-lista og Hannibal Valdimarsson af b- lista. Efri deild hafðu áður kos- ið Magnús Jónsson og Ásgeir Bjarnason í ráðið. í bandaríska hernum á íslandi um 1300 manns, eins: og frá hafi verið skýrt í útvarpsfregn. Spurði Einar hvort hér væri um það að ræða að ríkisstjórnin væri að byrja að losa íslendinga við hersetuna eða hvort hér væri um einhliða ákvörðun Banda- ríkjastjórnar að ræða. Hvort íslendingar mættu ef til vill vænta þeirra gleðilegu tíðinda að Bandaríkjaher færi senn allur af íslenzkri grund. Engin fækkun Guðmundur í. Guðmundsson iátnrinn V.b. Páil Þorkelsson, sem Slysavarnafélagið lýsti eftir á laugardagskvöldið, fannst eftir nokkra leit á reki und- an suðui’Iandinu. Hafði vél bátsins bilað. Báturinn var dreginn til Vestmannaeyja. utanríkisráðherra svaraði, og sagði að fyrir örfáum dögum hefðu farið fram viðræður ís- lenzku ríkisstjórnarinnar og bandaríska sendiherrans hér um skipulagningu bandaríska liðsins á íslandi. En ekki hefði verið um það rætt ,,að draga úr vörnum landsins á nokkurn hátt“ eða fækka í herliðinu. Hefði ein- göngu verið rætt um skipulagn- ing'u liðsins sjálfs og samsetn- ingu. Annars hefði ríkisstjórn- inni enn hvorki gefizt tóm til að ræða málið né athuga það sem skyldi. Ráðherrann ítrekaði að alls ekki væri um fækkun eða brott- för ,,varnarliðsins“ að ræða held- ur einungis um breytta skipun þess og samsetningu. Hættulegri vopn? Einar iýsti vonbrigðum sinum með svar utanríkisráðherra, menn hefðu getað ætlað að Bandaríkjastjórn ætlaði að átta ’sig fyrr en íslenzka ríkisstjórnin á því hve óþörf og hættuieg her- setan hér er. Framhald á 9. síðu þlÓÐVIUINIÍ Þiiðjudagur 8. desember 1959 — 24. árgangur — 270. tbl. Jóhannes Weinberg skipstjóri í brúnni Vesturipkur verk- ® * i S.l sunnudag kom vesturþýzki verksmiðjutogarinn Island BX 661 frá Bremerhafen inn á höfnina hér í Reykja- vík til þess að fá gert við ratsjána, sem hafði bilað. Togarinn er eign útgerðarfé- lags Ludvvig Jensen, en hann er ræðismaður íslands í Brem- erhafen.. Skipstjóri á togaran- um er Johannes Weinberg og náði fréttamaður Þjóðviljans tali af honum um borð í skip- inu síðdegis í gær, og fékk hjá honum helztu upplýsingar um skipið. Togarinn er smíðaður í Bremerhafen og var hann tek- inn í notkun í október það ár, en Wein-befg hefur verið skip- stjóri á honum frá ' byrjun. Togarinn er 850 brúttólestir að stærð og í honum er fiski- mjölsverksmiðja, sem getur framleitt allt að 4 tonn af fiski- mjöli á dag úr þeim fiskúr- gangi, er til fellur. Tog'arinn veiðir einkum í ís, en fer 1—2 túra á ári til saltfiskveiða. Vinnuskilyrði eru mjög góð um boi’ð í skipinu og er byggt yfir hann gott skjól að fram- an, en annars er aflinn að mestu unninn undir dekki. Á- Framhald á 11. síðu. Vesturþýzki verksmiðjutogar- inn ísland í Keykjavíkurhöfn í gær Stóreignaskatt- Gulmundar ur í gærmorgun kvað réttur upp dóm í síðari hluta stóreignaskattsmáls Guðmundar Guðmunds- sonar og Trésmiðjunnar Víðös li.f. Var liéraðsdóm- urinn staðfestur með skírskotun til forsendna, en samkvæmt honum var fjármálaráðherra f.h. rík- issjóðs gert rétt að sækja Guðmund og' hlutafélagið til greiðslu skatts á stór- eignir að fjárhæð samtals 427 þús. krónur. Af þeirri fjárhæð skyldi Trésmiðj- an Víðir h.f. greiða 89 þús. krónur. Einn dómenda í Hæsta- rétti, Kristján Kristjáns- son borgarfógeti, skilaði- sératkvæði og mun vænt- anlega skýrt frá því í blaðinu síðar. Nauðsyn lagasetningar er auðveldi - amstarf neytenda og bænda Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekki fella bráðabirgðalögin Þegar bráðabirgðalög Alþýðuflokksstjórnarinnar um bú- vöruverðið kom loks á dagskrá neðri deildar í gær á síð- asta fundi hennar fyrir þingfrestun, lagði Einar Olgeirsson fram rökstudda dagskrá er miðaði að fullnaðarafgreiðslu málsins á fundinum. Var hin ,,rökstudda dagskrá11 Einars á þessa leið: „Þar sem deildin álítur ó- hjákvæmilegt að ríkisstjórnin undirbúi nú þegar og leggi fyr- ir Alþingi frv. til laga um breptingu á lögunum um fram- leiðsluráð, er 1. tryggi að bændnr fái greitt við afhendin.gu vara sinna verð, er iniðist við, að tekj- ur þeirra séu sambærilegar við ‘tekjiir annarra vinnandi stétta fyrir sambærllega vinnu, — og 2. ákveði( að þeim, er annast dreifingu og vinnslu iand- búnaðarvaranna sé greidd ákveðin upphæð á einingu í vinnslu- og dreifingar- kosínað, og sé sú upphæð ákveðin af verðlagseftirliti, er tryggi að inilliliðakostnað- ur fari ekkj fram úr því, sem liæfilegt er, — og 3. ‘íryggv ennfremur, að kostn- aður við hu.gsanlegar verð- Iagsuppbætur á útfluttar landbúnaðarafnrðir verði ekki lagður ofan á verð þeirra landbúnaðarvara, sem seldar eru á innanlands- markaði, tekiir deildin fyrir næsta mál á dagskrá. Þingflokkarnir ræða tillögurnar Þegar er tillögur Einars komu fram óskaði forsætisráð- herra eftir klukkustundar fund- arhléi og 'hófust fundahöld í þingflokkunum um tillögurnar. Framhald á 5. síðu Kveiifélag sósíalista heldur kvöldvöku i kvöld þriðjudaginn 8. þ.m. kl. 8,30 ’í Tjarnargötu 20. Til skemmtunar: Félagsvist. Söngur. Upplestur. Félagskonur! Fjölmenn- ið og takið með j'kkur gesti.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.