Þjóðviljinn - 08.01.1960, Page 12
Njasalandsmenn biðja þlÚÐVILIIHN
íslendinga liðsinnis
Heita á alþingismenn oð beita sér fyrir
oð ísland kœri ofbeldisverk Breta
Föstudagur 8. janúar 1960 — 25. árgangur — 5. tölublað
Forustumenn þjóðfrelsishreyfingar Njasalands hafa
farið þess á leit við Alþingi að ísland kæri ofbeldisverk
Breta í þessari Afríkunýlendu fyrir Mannréttindadómstóli
Evrópu,
Eins og alkunnugt er tók
brezka nýlendustjórnin í Njasa-
landi sér alræðisvald í fyrra og
beitti því til að fangelsa án
dóms og laga forustumenn
þjóðfrelsishreyfingar Afríku-
manna, þar á meðai dr. Hast-
ings Banda, foringja Þjóð-
þingsflokks Afríkumanna í
Njasalandi.
Bannsókn virt að vettugj
Þessar aðfarir vöktu sl’íka and-
úð í Bretlandi að ríkisstjórn 'í-
haldsmanna sá sér ekki annað
fært en skipa rannsóknarnefnd
til að kanna hvað hæft væri
í staðhæfingum Armitage land-
stjóra um að Afríkumenn hefðu
undirbúið ihryðjuverk og hand-
tökurnar hefðu verið nauðsyn-
legar til að !koma í veg fyrir
þau. Nefnd undir forsæti brezka
dómarans Devlins komst að
þeirri niðurstöðu að landstjór-
inn hefði engar sannanir fyrir
sakargiftum sínum. Brezka
stjórnin neitar að'taka þessa
niðurstöðu til greina, og dr.
nokkurrar máisrannsóknar
eða formlegra sakargiEa.
Island getur kært i
I bréfi sem Kanyama Chiume
og Orton E. Chirwa, fulltrúar
þjóðfrelsishreyfingar Njasa-
lands í London, hafa sent 'ís-
lenzkum alþingismönnum er
bent á að hér geti Alþingi Is-
lendinga orðið að liði. Afrit af
bréfinu hefur verið sent Þjóð-
viljanum og ýmsum Islending-
Framhald ó 2. síðu.
Leíðtogar V-Þýzkalands
tera þyngstu ábyrgðlna11
Gyðingahatrið sem blossaði upp í Vestur-Þýzkalandi
á jólunum og síðan hefur breiðzt út einsog eldur í sinu
um flestöll vesturlönd, hefur flett ofan af núverandi
valdamönnum vesturþýzkum.
eða fá þær aftur. Þessir
Hastings Banda
Flest blöð heims gera sér
þennan ófögnuð að umtalsefni.
Ritstjóri Stockholms-Tidningens,
málgagns sænsku verkalýðsfé-
laganna, Victor Vinde, sem er
einn kunnasti blaðamaður á
Norðurlöndum segir þannig í
blaði sínu:
„Leiðtogar Vestur-Þýzkalands
og væntanlega einnig Austurríkis
bera hina þyngstu ábyrgð á því
sem nú á sér stað. Þeir hafa
látið fjölda nazista halda liinum
valdamestu stöðum þjóðfélags-
Ekkert seamkomulag milli L.Í.Ú.
og Fiskimannafélag s Færeyfa
Eins og undanfarin ár hefur L.Í.Ú. leitað eftir að fá' ekkert
færeyska sjómenn á íslenzka flotann eftir því sem með hendi
þarf, en ekki hafa enn náðst samningar milli Fiski-
mannafélagsins í Færeyjum og L.Í.Ú. um kjör færeyskra
sjómanna.
samkomulag er fyrir
Þjóðviljinn fékk þessar upp-
lýsingar í gær hjá Sigurði Eg-
Banda og félögum hans er ilssyni, framkvæmdastjóra
enn haldið # fangelsum án Landssambandsins. L.I.tJ bauð
Viðræður senn hafnar um við-
skipti Islands og Sovétríkjanna
Viðræður um nýja viðskiptasamninga milli íslands og
Sovétríkjanna munu hefjast innan fárra daga í Moskvu.
Munu íslenzku fulltrúarnir,
8em þátt taka í samningavið-
ræðum þessum, væntanlega
halda utan strax eftir helgina.
Hendrik Sv. Björnsson, ráðn-
neytisstjóri utanríkisráðuneyt-
isins, s'kýrðj Þjóðviijanum svo
frá í gær, að ekki væri að
fullu gengið frá skipan íslenzku
samninganefndarinnar. For-
maður hennar yrði sendiherra
Islands 'í Sovétríkjunum, Pétur
Thorsteinsson. en auk hans
myndu eiga sæti í nefndinni
fulltrúar innflytjenda og út-
flytjenda. Sagði Hendrik að
utanríkisráðuneytið myndi
senda út fréttatilkynningu um
væntanlegar samningaviðræður
einhvern næstu daga.
Þjóðviljinn hefur fregnað
að auk Péturs sendiherra Thor-
steinssonar muni eftirtaldir
menn eiga sæti í íslenzku samn-
inganefndinni: Hendrik Sv.
Framhald á 9. siðu
færeyskum sjómönnum sömu
kjör og íslenzkir sjómenn hafa,
en Fiskimannafél. krefst þess
að færeyskum sjómönnum verði
tryggð óskert kjör út alla ver-
tíðina. Þá vil] fis'kimannafélag-
ið ekki ráða sjómennina út alla
vert'íðina, og sé þeim frjálst
að láta afskrá sig af íslenzk-
um skipum, ef gerðar verða
breytingar á gengi íslenzku
krónunnar. Þessar tvær megin-
kröfur Fiskimannafélagsins
stafa fyrst og fremst af ótta
þess og fólks 'í Færeyjum við
það að gengi íslenzku krón-
unnar verði fellt, meðan á ver-
tíð stendur og kjör sjómanna
þannig skert til muna. L.Í.Ú.
hefur hins vegar neitað að
tryggja kjör sjómanna gegn
slíkum ráðstöfunum og hafa
samningar strandað á því.
L.I.Ú. hefur ekki leitað til
ríkisstjórnarinnar um milli-
göngu í þessu máli, né farið
þess á leit við hana að hún
tryggði færeyskum sjómönn-
Um óbreytt kjör út vertíðina.
Ekki liggja fyrir nákvæmar
upplýsingar um hve marga sjó-
menn vantar á flotann, en tal-
ið er að þeir séu um 900.
ýi Óðinn
afhentnr
Óðinn, varðskipið sem verið
hefur í smíðum fyrir íslendi-
inga í Álaborg, verður afhent
Landhelgisgæzlunni í dag.
Pétur Sigurðsson, yfirmaður
Landhelgisgæzlunnar, tekur á
móti skipinu, en skipherra
verður Eiríkur Kristófersson. I
, dag og á morgun verður nýi
Fiskimannafélagið hefur. óðinn í reynsluferðum, og
bannað meðlimum sínum að skipinu verður siglt heim um
ráðast á 'íslenzk s'kip, meðan miðjan mánuðinn.
ms
nazistar eru nú dómarar. lög-
reglustjórar, lögmenn, embættis-
menn og jafnvel ráðherrar. Þeir
skrifa líka í blöðin með lýðræð-
isgrímu fyrir andlitinu og þykj-
ast stórhneykslaðir á ávirðing-
um Stalíns og Krústjoffs, en
þegja sem steinar um þá sví-
virðu sem þeir áttu þátt í að
kerfisbinda í þriðja ríkinu“.
Síðar í greininni segir Vinde:
„Eldri kynslóðin (í Vestur-
Þýzkalandi) er nefnilega gyð-
ingahatarar að verulegu leyti og
það er hún sem mótar viðhorfin.
Hvernig getur háttsettur emb-
ættismaður, lögregluforingi eða
ritstjóri ráðizt af sannfæringu
gegn gyðingahatri, hafi hann
fyrir riokkrum árum klappað
Julius Streicher eða Josef Göbb-
els lof í lófa. Það er ekki hægt að
bæta fyrir það með því að borga
eftirlifandi ættingjum fórnar-
lamba gasklefanna nokkrar
milljónir marka eða með því að
handtaka nokkra tugi unglinga
og dæma þá í fangelsi.
Framhald á 1C. síðu.
Kvikmyndin
um Speidel
I kvöld kl. 9 verður
kvikmyndasýning á vegum
ÆFK í salnum (niðri) í
Tjarnar.götu 20. Kvik-
myndin f jallar um nazista-
og Natoforingjann Speidel
og verða fluttar með
henni skýringar. Mynd
þessi hefur vakið mjög
mikla a'ihygli þar sem liún
hefur verið sýnd og á hún
ekki sú'zt erindi til fólks
núna, þegar gyðingaof-
sóknir og nazistaáróður
blossa upp um allt Vest-
ur-Þýzkaland á nýjan
leik.
IIIMIIIIIIIIIIIimilllllllllllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIllllllllllllIIIIIIIIIIIIIIhlllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIllllllIIIIIIIIIIIIlllIIIICllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIEIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIiIIIItllEIIIIIIIIIIIIIII
Á peysufatabalii í Breiðfirðingcbúð
I fyrrakvöld var fréttamönn-
um boðið að líta inn í Breið-
firðingabúð á peysufataball, er
húsið hafði efnt til á þrettánd-
anum. Á ballinu var margt
fólk og mikið fjör og heldur
en ekki þytur í pilsum peysu-
fatakvennanna, er herrarnir
sveifluðu þeim um gólfið í
dansinum. Að vísu voru peysu-
fatadömurnar ekki mjög marg-
ar, en piltarnir virtust alls ó-
feimnir að bjóða þeim upp og
virtust kunna þessari ný-
breytni vel.
Forstjóri Breiðfirðingabúðar,
Sigmar Pétursson, sagði, að
þetta væri annað peysufata-
ballið, sem húsið efndi til. Hið
fyrra var fyrsta desember.
Kvað hann það ætlun sína að
halda þrjú s!ík böll á vetri og
i veröur það siðasta á konudag-
inn. Sagði Sigmar að með þessu
vildi hann gera sitt til þess að
viðhalda þessum skemmtilega
búningi. Hins vegar væru það
fáar ungar stúlkur, sem ættu
peysuföt og það væri dýr
klæðnaður.
Sigmar Pétursson hefur nú
rekið Breiðfirðingabúð í 15
mánuði. Leigir hann húsið til
ýmssa félaga fyrr skemmtanir
fjögur kvöld i viku, en þrjú
kvöM hefur hús;ð sjálft böll.
Þá eru alltaf leiknir gömlu
dansarnir og stjórnar Helgi
Eysteinsson þeim. Hljómsveit
Árna Elvars leikur fyrir dans-
inum og með henni syngur ung
söngkona, Sigrún Ragnarsdótt-
ir.
Á myndunum sjást piltarnir
sveifla peysufatadömunum um
gólfið í Búðinni.