Þjóðviljinn - 12.01.1960, Page 3

Þjóðviljinn - 12.01.1960, Page 3
Þirðjudagur 12. janúar 1960 Þ J ÓÐ VILJINN — (3 Ábyrgðarlaus og þjóðhœttu- Eeg skrif Morgunblaðsins | Framhald af 1. síðu. skrifar í fyrradag á hinn á- hyrgðarlausasta hátt um við- skiptin við Sovétríkin, og virð- ast þau ummæli hugsuð sem veganesti handa samninga- nefndinni. Ummælin eru i Reykjavíkurbréfi, en sú ritsm'íð hefur jafnan verið talin túlka afstöðu æðstu valdamanna Sjálfstæðisflokksins. Þar er m. a. dylgjað um það að á undan- förnum árum hafj Sovétríkin greitt of hátt verð fyrir ís- lenzkar afurðir! Blaðið segir: „Stjórnir þar eru ekki háðar venjulegum efnahags- lögmálum um kaup sin. Þær geta, ef þeim býður svo við að horfa, af hvaðp, ástæðum sem er, boðið hærra verð fyrir vöruna en aðrir. Stund- um er það hærra verð jafn- að með því að knýja við- semjanda til að kaupa í stað inn vöru með hærra verði en á heimsmarkaði er. Stund- um er ekk; um þetta hirt, heldur annað látið ráða. Á meðan hærra verð er boðið er eðlilegt og raunar óhjá- kvæmilegt að framleiðendur sæki eftir því að selia vöru sína á sl'íkum mörkuðum." | Þessi skrif eru þeim mun á- byrgðarlausari og þjóðhættu- legri sem Þjóðviljanum er kunnugt um það að íslenzkir aðilar. þar á meðal Sölumið- ( stöð hraðfryf'tilnisanna, munu ( fara fram á það í samnin.gun- um að Sovétríkin hækki verð það sem þau greiða fyrir ís- lenzkar afurðir. Það verða Iiæg heimatökin lijá sovézku fulltrú- unum að vitna ;< Morgunblaðið því til sönnunar að heir hafi Rð undanförnu ver'ð látnir greiða of háf»t verð! S'f.k skrif verða vart nefnd annað en skemmdarverk. Viðskipti og sjálfstæði. Einnig dylgjnr Morgunblaðið um það að hætta sé á að sovézk j stjórnarvöld noti viðskiptin til að reyna að hafa áhrif á ’ís- j lenzk'innanríkismál! Ekki getur' Morgunblaðið nefnt neitt dæmi til að styðja þessar ósæmilegu dvlgjur, enda eru staðreyndirn- ar þveröfugar. Við höfum orðið fyrir því að viðskiptaþjóð liefur reyut að nc*!a viðskipti til að kúga okkur. Það voru Bretar — „vinir okkar og bandamenn“ — sem settu löndunarbaiin á íslenzkan fisk 1952 tU þess að reyna að svelta okkur til að falla frá stækkun land- liclginnar. Þá vorii fmð ein- m;'*i viðskiptin við Sovét- ríkin sem gerðu okkur kleift að stauda á rétti okkar, sem trvggðu að við .gátum fylgt sjálfrVæðri stel'nu á þessu sviði. Ofstæki Morgunblaðsins. Enn segir Morgunblaðið i endemisskrifum sínum í fyrra- dag: „Framleiðsluháttum i iöndunum austan járntjalds er hagað svo, að þar eru nú upp- wrnar allar þær vörutegundir, kem með sæmiTcgu móti er hægt að nota hér á landi.“! Þetta eru tilhæfulausar firrur. Við ! getum gert miklu fjölbreyti- 'legri innkaup 'í, sósíalistískl? löndunum en við höfum gert til þessa, og raunar er ný- búið að semja í Sovétríkjun- um um kai'p á vörum sem ekki hafa verið fluttar þaðan áð- ur. Enda gefur það auga leið, að Sovétríkin, sem nú hafa tek- ið forjstu 1 lieiminum á ýms-* um sviðum ta;kni og visinda, i geta boðið okkur f jölbreytileg- j ar vörur sem vel henta; af-; staða Morgunblaðsins er dæmi- gert ofstæki. Þjóðhættuleg skrif. Skrif Morgunblaðsins í fyrra- dag virðast vera birt til þess tins að torvelda viðskipta- samningana við Sovétríkin, enda er augljóst að þau muni gera íslenzku samningamönn- unum mun erfiðara fyrir. Er iðja Morgunblaðsins þeim mun alvarlegra skemmdarverk sem hitt stjórnarblaðið, Alþýðu- blaðið, skýrir svo frá í fyrra- dag: „Mikið verðfall hefur orð- ðð á freðfiski í Bandaríkjunum og er talin hæ'ta á, að það kunni að konia -illa niður á ís- lendinguni. Var flutt út mikið magn af freðfiski héðan í des-( eniber sl. til Bandaríkjanna. Á- stæðan fyrir verðfallinu á freð- fiski í Baiidaríkjuiium er sú, að eftirspurn eflir freðfiski hefur minnkað stórlega undanfarið vegna stóraukinnar eftirspurn- ar eftir kjöti.“ Þegar svo er ástatt ætti Morgunblaðið að hafa annað þarfara að iðja en að reyna einnig að spilla samningum ►ikkar við Sovétríkin með á- byrgðarlausu þvaðri og v’ís- bendingum um það að við liöf- um að undanförnu fengið of hátt verð fyrir afurðir okkar þar eystra! c ■ Afli átta togara Bæjarútgerðar Reykjavíkur á sl. ári nam 34.480 lestum, þar af var ísfiskur, lagður hér á land, 27.372 lestir. Úthaldsdagar togaranna voru alls 2642. Seldi í Cuxhafen Jón ferseti seldi í Cuxhafen í gær 115 lestir fvrir 85.500 mörk. Þorsteinn Ingólfsson aflaði á árinu 4738 lestir, Skúli Magnús- son 4680 lestir, Pétur Halldórs- son 4673 lestir, Þorkell Máni 4643 lestir, Ingólfur Arnarson 4399 lestir, Hallveig Fróðadóttir 3918 lestir. Jón Þorláksson 3839 lestir og' Þormóður goði 3585 lestir. Úthaldsdagar síðarnefnda togarans voru 184, en hinna sjö milli 330 og' 365. Meðalaíli logaranna á úthaldsdag' var röskar 13 lestir. í siðustu viku komu tveir af togurum Bæjarútgerðar Reykja- víkur aí veiðum hér við land: Jón Þorláksson með 125 lestir og Skúli Magnússon með 118 lestir. Sjö togarar BÚR stunda nú veiðar á heimamiðum, en einn, Þormóður góði er á veiðum við Nýfundnaland. Heyhlaða brann Snemma í gærmorgun kvikn- aði í heyhlöðu skólabúsins á Laugarvatni og urðu miklar skcmmdir á henni. Eldsins varð vart um kl. hálf fimm í g'ærmorgun. Komu brátt margir til slökkvistarfa, skóla- fólk og menn af nágrannabæj- um, og tókst að bjarga skepnum úr húsum, sem áföst voru hey- hlöðunni, milli. 60 og 70 naut- gripum og 8 hestum og heíta út- breiðslu eldsins. Miklar skemmdir urðu á hey- hlöðunni og heyi sem í henni var. Kóka kóla og Visir var i feiknalegri geðshræringu á laugardaginn. Hann birti forustugrein sem nefndist Ódrengilegur vopna- burður og þar var sagt að Þjóðviljinn hefði að undan- förnu stundað dylgiur og ærumeiðingar, pólitískt skemmdarstarf, mannorðsnag og' óþverradylgjur. níðskrií og glæpaaðdróttanir, lævís- legar dylgjur, árásar-dylgjur, lúaleg skrif. níðskrif og rekið rýting í bak andstæðinga sinna og með því vakið and- styggð og fyrirlitningu allra góðra manna. Tilefni þessara prúðmannlegu og orðvöru ummæla er það að Þjóðvilj- inn hefur krafizt þess að sömu lög verði látin ná yfir Vilhjálm Þór og aðra menn, þannig að hann verði látinn vikja úr embætti meðan rann- sökuðl er aðild hans að mesta fjársvikamáli sem upp hefur komizt hér á landi. Heimtar Vísir á móti að Vilhjáimur verði látinn sitja sem fastast i embætti sínu því hann sé einn aí beztu mönnum þjóð- arinnar og sé verður fulls trausts. Kunnugir telja full- víst að höfundur þessarar greinar sé Björn Ólafsson, nánasti félagi Vilhjálms, en B.iörn er sem kunnugt er persónulegur hluthafi í Olíu- félaginu h.f. og hefur því átt sinn persónulega eignarhlut á leynireikningi nr. 4138. Hún á auðsjáanlega enn við, spurningin sem drengur- inn bar upp þegar hann sá Vilhjálm Þór og Björn Ólafs- son saman á götu: — Hvor er Kóka og hvor er Kóla? Atti Geir að þegja? Morgunblaðið heldur því fram aí rniklu kappi að Guð- laugur Gíslason þæjarstjóri og þingmaður í Vestmanneyj- um sé vammlaus halur ag vítalaus, enda þótt hann hilmaði yfir, er hann komst að því í marz í fyrra að 105 þúsund krónur vantaði í bæj- arsjóðinn, og gæfi þjófnum kost á að skila þýfinu aftur í von um að ekkert kæmist upp. Fyrir nokkrum dögum var brotizt inn í áhaldahús bæjarins hér í Reykjavík og stolið 20 þúsund krónum, en nú bregður svo við að lög- reglan er tilkvödd í snatri og tilkynningar um verknað- inn birtar í blöðum. Sam- kvæmt kenningum Morgun- blaðsins hefði Geir Hall- grímsson borgarstjóri þó haft fyllsta rétt til að þegja um þetta innbrot og láta eins og ekkert hefði gerzt. En það er kannski ekki sama hver þjóf- urinn er og hvernig hann fer að því að hirða fjármuni al- mennings? — Austri. Myndin er af einum togara Bæjarútgerðar Reykjavíkur. Þorkeli mána, við bryggju hér í hiifninni. Hún var tek- in í fyrravetur, er togarinn var nýkominn af Nýfundna- landsmiðum. Hafmeyjan Framhald af 1. síðu hefur harðri gagnrýni verið beint að ,,listaverki“ þessu og staðsetningu. Þótt höfund- ur þess, fr. Nína Sæmunds- son, hafi sannað, að hún sé ósvikin listakona, sem sé stétt sinni til sóma, er sýnt, að henni hefur brugðizt bogalistin í þetta sinn. Vissu- lega er sjálfsagt, að lista- menn íari inn á nýjar braut- ir í sköpun sinni, en þessi stytta, þessi hryllilegi van- skaplingur, sem er ömurlegt sambland abstraktstefnunnar og hinnar gömlu „réttsköp- unarstefnu“; hlýtur að mis- þyrma fegurðartilfinningu manna og vera bænum og landinu til skammar. Er neínd sú, er sér um uppsetn- ingu listaverka í bænum, ekki vanda sínum vaxin, eða erum við svo örsnauð a£ þeim, að; grípa verði til slíkra óyndismynda? Sé hið síðar- nefnda tilfellið, bendum við á, að betra er að vera án þeirra, heldur en að halda þeim verkum á lofti, sem níða í stað þess að prýða. Að lokum vil ég geta þess, að ólíklegt er, að við mun- um grípa til sliks óyndisúr- ræðis framar. Við höfum á eftirminnilegan hátt vakið at- hysii á andstöðunni gegn slíkum fegrunartilraunumj og er þá tilganginum náð. Virðingarfyllst." Þannig hljóðar þréfið og hef- ur Þjóðviljinn að sjálfsögðu ekki haft neina aðstöðu til að kanna, hvort það er raunveru- lega skrifað af þeim sem fyrir sprengingunni á nýársnótt stóðu. Eins er það skoðun biaðsins sem fvrr. að engar skýringar fái réttlætt spellvirkið. Rannsóknarlögreglan íékk bréfið til athugunar í gær.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.