Þjóðviljinn - 18.02.1960, Blaðsíða 9
•— Fimmtudagur 18. febrúar 1960 — ÞJÓÐVILJINN i— (9
í dag' koma saman í afdal
í fjöllum Kaliforníu rúmlega
1000 snjöllustu vetraríþrótta-
menn frá meira en 30 löndum.
Þeir ganga fylktu liöi undir þjóð-
fánum sínum til að vera við-
staddir hátíðlega opnun áttundu
vetrarólympíuleikanna.
í Squaw Valley hefur verið
byggt voldugt leiksvið fyrir
vetraríþróttamennina, þar seni
þeir næstu dagana sýna listir
sínar í viðurvist 30 til 50 þús-
und áhorfenda daglega. Ólymp-
Ken Henry
íueldurinn. sem fyrir nokkrum
dögum var tendraður í Morge-
dal, vöggu skíðaíþróttarinnar, og
fluttur hefur verið með bifreið-
um, flugvélum, þyrlum og bor-
inn af stúdentum og skíðamönn-
um Bandaríkjanna er um það bil
að koma á dalbrúnina í Squaw
Valley. Um þrjú leytið í dag
(þá er morgun í S. V.) þýtur
hin fræga skíðakona Andrea
Med Lawrence, sem hlaut tvenn
gullverðlaun í Osló 1952, niður
hliðar dalsins með hinn logandi
óJympíueld í hendi, stefnir inn
að leikvanginum þar sem þátt-
takendurnir standa og bíða þess
að hinn olympíski eiður verði
unninn og að varaforseti Banda-
ríkjanna lýsi leikina opnaða. Þar
tekur við kyndlinum úr hendi
A. Mead Lawrence Ken Henry,
sigurvegarinn í 500 m skauta-
hlaupinu í Osió 1952. Hann á að
hlaupa einn hring með kyndil-
inn í hendi umhverfis leiksvaeðið,
þar sem keppendurnir standa og
alþjóða-olympíuneindin, og haida
síðan að hinu ólympska altari
og þar mun hann kveikja ol-
ympíueldinn, sem loga mun
meðan leikirnir standa.
Hugmyndin um vetrar-
ólympíuleiki
Þegar Pierre de Coubertin
endurvakti olympíuleikana 1896,
v
var það gert í anda hinna fornu
leikja, en þá var ekki um að
ræða vetrarólympíuleiki, og er
þeirra hvergi getið í fornum,
grískum sögnum. Það líða sjö
olympíutímabil (Olympíad) og
sjö olympíuleikir fara fram
áður en fyrstu vetrarolympíu-
leikarnir eru haldnir.
Á leikjunum í London 1908 og
í Antwerpen 1920 voru vetrar-
íþróttir á dagskránni, en þær
voru fyrst og fremst settar þar
til þess að draga að áhorfendur
og á þann hátt auka tekjurnar.
Það var ekki gert með það fyr-
ir augum að uppúr því ættu að
korna sérstakir vetrarolympíu-
leikir. í London var keppt í list-
hlaupi á skautum, og dró sú
keppni að sér 2500 manns, sem
greiddu 500 sterlingspund í að-
gangseyri.
Á leikjunum í Antwerpen var
áhuginni greinilega miklu meiri
og nú var annað komið með og
það var ísknattleikurinn, sem
Evrópumenn höfðu kynnzt og
lært af Kanadamönnum, og varð
þegar ákaflega vinsæll.
Á þingi írjálsíþróttamanna
sem haldið var í París 1921 og
þar sem -mættir voru fuiltrúar
frá Noregi, Svíþjóð, Kanada,
Frakklandi og Sviss, kom fram
hugmyndin um að haldnir væru
vetrarólympíuleikir. Var því
haldið íram af sumum, að það
væri mjög æskilegt að þeim yrði
komið á. Þetta gekk svo langt
að þegar á þinginu voru gerð
frumdrög að dagskrá slíkra
leikja.
Þetta hafði þau áhrif að ár-
ið eftir, í júní, ákvað alþjóða-
olympíunefndin að haldnir
skyldu vetrarólympíuleikir í
sambandi við sumarleikina 1924.
Átti það aðeins að vera tilraun,
án nokkurrar bindingar um það
hvað yrði í framtíðinni.
Norrænu leikirnir forleikurinn
Á Norðurlöncjum var löngu
fyrir þann tíma kunnugt um að
keppt var í skíðaíþróttum, bæði
stökki og göngu, og mun það
hafa þekkzt á 19 öldinni en
skautakeppni hófst síðari hluta
19. aldarinnar.
Þessi almenni áhugi varð til
þess að Svíar tóku að efna ár-
lega til keppni, í fyrsta sinn
1901. Keppnisgreinar leikja þess-
ara voru 50 km og 18 km ganga,
..........................IIIIIIIIIII
| SQUAW 1
| VALLEY |
E Dagskráin 18. febrúar: =
5 Árdegis: Opnunarhátíðin. E
= Síðdegis: Skíðastökk — E
E sýning. ísknattleikur. E
rimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiumiiiin
Andrea Mead Lawrence
tviaeppni og stoKK. Þar var
tekið með hraðhlaup á skautum
og Jisthlaup á skautum. Leikir
þessir urðu þegar, .rrygg yin^Eel,-
ir ög fjölménnt rnjög til* þeírra
hverju sinni.
Norrænir íþróttaleiðtogar litu
hugmyndina um vetrarólympíu-
leiki heldur óhýru auga, þeir
voru búnir að taka tryggð við
norrænu leikina og HoJmenkoJl-
enmótið sem fljótt náði miklum
vinsældum. Þeir voru sannfærð-
ir um að hugmyndin mundi
skemma eða eyðileggja þeirra
leiki, sem hefðu náð vinsældum.
Þessi grunur þeirra reyndist
réttur, því að norrænu leikirn-
ir voru síðast haldnir 1926.
Dagskrá olympíuleikanna var
sniðin eftir leikjum þessum og
við bætt ísknattleik. Síðar komu
svo hinar svokölluðu fjallagrein-
ar á skíðum.
Fyrstu leikirnir í Chamonix
í Frakklandi
Fyrstu vetrarleikirnir fóru
íram í Chamonix í Frakklandi
í sniábæ við rætur Mont Blanc-
fjallsins, og er ekki að orðlengja
að leikirnir urðu þegar mjög
vinsælir og aldrei kom íram
orð í þá átt að leggja þá niður.
Á þessum fyrstu leikpum var
keppt í 13 greinum skauta- og:
skíðaíþrótta sem skiptust &
milli göngu, stökks, hraðhlaupa.,
listhlaupa á skautum, bob-sleða-
keppni og ísknattleiks.
Noregur hafði lang'hæsta stig'a-
tölu eða 124,5, Finnland var
annað með 57,5, 3. Bandaríkin-.
29, 4. Austurríki 25, 5. Svíþjóð,.
21, Bretland 20, Sviss 14, Kan-
ada 11, Frakkland 9, Belgía 6,.
Tékkóslóvakía 6 og Ítalía 1 stig-
Næstu leikir fóru fram í St-
Moritz í Sviss 1928. Þriðju leik-
irnir fóru fram í Lace Placid i
Bandaríkjunum. Fjórðu leikirn—
ir voru haldnir í Garmisch.
Partenkirchen í Þýzkalandi, ogL'
þá er fyrst keppt í svigi ogl
bruni karla og' kvenna. Fimmtu.
leikirnir eru svo haldnir 12 ár-
um síðar og þá í St. Moritzv
og voru það fyrstu leikirnir
eftir stríðið. 1952 voru þeir svo>
í Osló í Noregi og' 1956 í Cort—
ina á Ítalíu.
Á leikjunum sem hefjast í dagr
verður í fyrsta sinn keppt i
hraðhlaupum kvenna á skautum.’
og einnig' verður keppt í skíða-
skotfimi, en ger.t er ráð fyrir að>
það verði í fyrsta og' síðasta’.
sinn sem þessi grein verður á'.
ólympíuleikjum, enda full hern—
aðarleg.
Mikið hefur verið deilt um>.
staðinn Squaw Valley, og er*
hann af mörgum talinn óheppi-
legur til svo íjölmenns móts..
tíðarfar ekki eins stöðugt cg:
æskilegt væri.
Um skeið var deilt um það»
hvernig ætti að afla peninga tit
þess að framkvæmdir stöðvuð-
ust ekki. Það er líka talið að»
valið á þessum stað hafi veriðt
skrítin tilviljun, og verður sr.gt.
frá því á morgun.
í dag stendur þó olympíubær-
inn, leikvangus, brautir og ánn-
að sem til þarf svo leikirnir
geti farið fram með fuJlkomnuiU'
Framhald á 11, síðu.
.......................................
Keppnissvæðið í „Dal indíánakonunnar*'
Sqnaw Valley: 1. Tahoc-City — 2, og 3.
skíðastökkpallar og áhorfendasvæði — 4.
bílastæði — 5. olympíuþorpið — 6. skauta-
leikvangur — StKv stórsvigbraut kvenna —
SKv svigbrau>t kvenna — BKv brunbraut
kvenna — StK stórsvigbraut karla — SK
svigbraut karla — BK brunbraut karla,
iiimiiimmiimiiiimiiiimmiimimmimiiiimmiiitmmi
}jl!lijmiiiii;niiiH!)iminuii