Þjóðviljinn - 25.03.1960, Side 10
'O) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 25. marz 1960
IIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIMIIlllllllllllllllllllllllllllllillMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlllllllllllllll
Ljúffengt hcrfrakex
Þetta fallega. stökka hafra-
kex geymist mjög vel og er
]}ví tilvalið að fylla kökukass-
ann með því og eiga þar til
óvænta gesti ber að garði.
250 gr hveiti, 25 gr fínt
haframjöl, 250 gr smjör-
líki, 65 gr sykur, 1 slétt-
full teskeið hjartasalt, 1
egg, M dl köld mjólk.
Blandið hveiti, haframjöii,
sykri og hjartasalti ásamt lin-
uðu smjöriíkinu saman við.
Þeytið eggið saman við mjólk-
ina og bætið því saman við.
Hrærið deigið vel saman í
fati. Hnoðið þvínæst á borði
og geymið á köldum stað ca.
1 klukkustund.
Fletjið deigið mjög þunnt
út og gatið með gaffli. Mótið
kringlóttar kökur undan glasi
eða ferköntuðu móti. Bakið
kexið á vel smurðri plötu í
200 stiga heitum ofni í ca. 10
mínútur. Látið þær verða
kaidar á kökurist, áður en
þær eru settar í þéttan köku-
kassa.
heimilisþáttur
Hreinsað oq pressað
Föt, sem hafa verið hreins-
uð úr benzíni, má ekki
pressa, fyrr en benzínið er
gufað upp. ÞvegnaV flíkur á
að pressa rakar, þurrar fiíkur
á að bursta með rökum
bursta, áður en pressaðar eru.
Þegar flíkur eru pressaðar á
rétta borðið, á ævinlega að
leggja rakan klút ofan á
flikina og pressa í gégnum
hana.
Drengjatreyjur (blússur) á
að pressa á röngunni. Á karl-
mannsjökkum á i'yrst að
pressa ermarnar. síðan jakk-
ann sjálfan, en síðast krag-
ann. Fyrst er pressað á röng-
unni en síðan á réttunni.
Buxur eru ævinlega pressað-
ar á rétta borðið. Er fyrst
pressaður efri hlutinn. frá
líningum niður fyrir vasa, en
síðast skáimarnar. •*
Pils eru pressuð á röng-
unni. Kápur skal alltaf pressa
á réttunni. Þegar föt hafa
verið bætt, verður að pressa
bótina vandlega. fyrst á röng-
unni en síðan á réttunni.
Klæðilegrur kjóll úr röndóttu
ullarjersey.
í IIMIMMMMIIIIIIMIIMIIMIIMIIIIMIIIIMIIIIIIIIMIIIIIIMIMIIIMIIIIMMM1111 MIIMMIIilMIIIIIMIMIIIIIIIIIIMIIIMMM IIIIIMIIMMMIIMIIMMIIIIMIIMIIIIIMIIIIIIIMIIIIIIIMM
SAMKVÆMT !
LÖGUM
UM
SÖLUSIÍATT
» i
IIÆKKA
ALLAR
Barnceska á öldinni sem leið
Framhald af 7. síðu.
Húsavík
Lengra var rabb okkar um
æsku Þórðar ekki komið,
kvöldið sem fundum okkar
bar saman, og næstu daga
heimtuðu gamlir vinir tíma
Þórðar ailan, en svo hélzt
hann ekki við lengur í heim-
boðunum vegna netanna sem
biðu óhnýtt fyrir norðan —og
rauðmagans sem var geng-
inn á miðin. En áður en við
færum að ræða um æsku
Þórðar spurði ég hann frétta
af atvinnu og afkomu manna
á Húsavík -— en þar hefur
Þórður búið síðan 1906.
— Atvinnulífið hefur verið
í góðu lagi síðustu árin, seg-
ir Þórður. Mikill fjöldi af
ungum mönnum stundar þar
sjó, einnig á trillubátum, og
nú síðustu árin hefur afkoma
þeirra verið góð. Það sést
m.a. á því að mikill meiri
hluti af þeim mönnum sem
eru að byrja að búa byggja
sér hús, margir mjög mynd-
arleg einbýlishús. Þeir vinna
mikið, en það er ekki annað
að sjá en þetta gangi vel hjá
þeim.
Einn hópur manna á Húsa-
vík stundar töluvert mikla
tómstundavinnu, en svo kalla
ég f járræktina þar. Þessi tóm-
stundavinna er illa liðin af
þeim eem litið istunda fram-
leiðslu, þeim er illa við að
hafa lifandi pening í þorpinu.
Mér sýnist á öllu að þar sé bú-
ið að stofna fegrunarfélag, —
en ekki veit ég hverjir eru í
því!
— Húsavík hefur verið
snotur bær.
— Já Húsavík er snyrtileg,
og það hefur margt verið lag-
að þar í seinni tíð. En gamla
fólk'ð margt vill einhvern bú-
stofn, geta bjargað sór sjálft.
Meðan ekki er búið að
teljum við þennan smábúskap
eiga rétt á sér.
— Húsavík er alltaf að
stækka ?
— Já, hún stækkar óðum,
íbúatalan er nú komin upp í
1400 manns. Það eru 10-12
íbúðarhús í smíðum árlega.
Túnrækt var svo mikil á
Húsavík að dagslátta var orð-
in á hvert nef, og þá var
Húsavík mest ræktaða þorp-
ið á landinu, en frekar hefur
dregið úr ræktun síðan at-
vinnan varð öruggari en áð-
ur fyrr. Það er og hefur ver-
ið sjórinn sem ber Húsavik
uppi.
— Fæst þú við búskap
lika?
— Ég hirði mínar 20 kind-
ur og á veturna er ég alltaf
að bæta net og má eiginlega
ekki vera að því að eyða tím-
anum svona i eintómt kjaft-
æði og heimboð hjá kunningj-
unum. Á vorin stur.da ég
hrognkelsaveiðar — og þær
eru byrjaðar.
— Þú ert ekkert á því að
setjast í helgan stein þótt þú
sért kominn yfir áttrætt?
—- Nei, mér finnst sjálf-
sagt að vinna meðan manni
er gefin orka til þess, og það
er mín reynsla að vinna sé
bezta heilsumeðalið fyrir
manninn, bæði andlega og lík-
amlega. ,
— Liklega er mikið rétt í
því.
— Já, og af því ég naut engr-
ar menntunar í æsku tel' ég
mömmu gömlu — náttúruna
—- betri kennara en alla aðra.
Menn forsóma of mikið, bæði
ég og aðrir, að lesa stóru
bókina þá. Hún er vandlesin,
en mikið má af henni læra.
— Og hvernig likar þér
svo við tilveruna eftir átta
áratuga starf og strit?
— Maður verður að beita
sínum hlut. Það er hart að
þurfa að búa í slíkum heimi.
En mín reynzla er samt að
maðurinn sé góður. Ég hef
'hitt mjög fáa menn sem ekki
eru í eðli sínu góðir.
— En af hverju eru þeir
þá svo vondir sem raun ber
oft vitni um?
— Það er haft fyrir þeim,
og þeir Iiafa ekki sjálfstæði
til að fylgja sínu góða inn-
ræti — ef þeirra eiginhags-
munir banna það. Nú orðið
er refsháttur og allskonar
óorðheldni og ómennska höfð
fyrir fjöldanum.
— Hverjir gera það?
— Það má fyrst nefna
valda - og ráðamenn og ýmsa
stjórnmálamenn. Þetta er
mitt sjónarmið, mín lífs-
reynzla. Ég held það sé i
þessu efni alltof ríkt í með-
vitund manna máltækið
gamla: Hvað höfðingjarnir
hafast að hinir ætla sér leyf-
ist það.
— Segðu mér, er íhaldið í
nokkrum uppgangi á Húsa-
vík ?
— Nei! Ihaldið á Húsavík
er aðallega gamlar konur,
komnar að þvi að deyja — og
við ætlum okkur ekki að ala
neitt ihald upp í skarðið.
J.B.
Kjörgarður
Laugavegi 59
Crvalið mest
Verðið bezt
Karlmannafatnaður
allskonar
Últíma
Orð og gerðir
Framhald af 7. síðu.
eins og opin kvika í brjóst-
um forsvarsmannanna. Þess
vegna er ekki hægt að tala um
hernámið eins og önnur mál,
sem skoðanir kunna að vera
skiptar um. Forsvarsmenn
hernámsins eru ekki til við-
tals. Siðspilling sú, sem af
hernáminu stafar er aðeins
ein röksemd fyrir því, að her-
inn verður að fara. Hún er
meira að segja ekki höfuð-
röksemd. Svo stórt er það
mál, sem ekki fæst rætt.
Hins vegar má tala um tób-
aksbindindi.
Stefán Jónsson.
íferóftir
Fraiflhald af 9. síðu.
íþróttavellirnir eiga bvi að
vera staður, bar sem byrjandian,
hinn sigrandi afreksmaður og
hinn aldraði maður sem vill
halda sér við, hafa jafnan rétt
að koma og taka þátt í æí'ing-
um og leik, og fá hluta af gæð-
um íþróttanna.
Hlutverk íþróttanna s»m í-
þróttafólögin hafa tekið upp á
arma sína er mjög þýðingarmi’’:-
ið. Það tekur að sér að i.okkru
leyti uppeldi æskunnar, tekur að
sér að móta hana meira og
minna einmitt á þeim árum sem
hún er opnust fyrir áhriíum.
Trúlofunarhrmgit Steln
uririKir. Hálsmen. M oi
18 kt. guli.
*////. ‘J-'/S'
tryggjar betxtr atvimruhorfur klóm og kjáfti til að haldá
VÖRUR
1. APRlL
UM
3%
VÖRUR
0KKAR
E R U
ENN
- I
A
J
GAMLA
i
VERÐINU