Þjóðviljinn - 03.04.1960, Side 12
■>
►
í
í
í
\
*
í
i
Heira Ijós - betra Ijós er
kjörorð „Ijósvikunnar"
í dag hefst svonefnd „ljósvika“ Ljóstæknifélags ís-
lands. Er tilgangur hennar sá, aö örva sem flesta til á-
iaka á sviöi bættrar lýsingar og aukinnar fræöslu um
iyrirkomulag og meöferö lampa.
þiðnviuiNN
Sunnudagur 3. apríl 1960 — 25. árgangur — 79. tölublað
Dýrtíðin flæðir yfir en
Tryggingarnar hafa ekkert greitt í Seltjarn-
arneshreppi á þessu ári
Meö hverjum degi sem líöur koma fram nýjar verö-
hækkanir á brýnustu lífsnauðsynjum, en samtímis drag-
ast sumstaðar úr hömlu greiöslur Almannatrygginganna
til þeirra sem viö þrengstan efnahag búa.
Fullvinnandi fólki ofbýður dýr-
tíðin, en hvað skal þá segja um
gamla fólkið og öryrkjana, sem
ekki hafa annað fyrir sig að
tryggingunum eru fjórðungi
lægri en í Reykjavík og öðrum
kaupstöðum. Mikið var reynt til
o f A Vmnfii iri tvmnfQrn
Félagið mun beita sér þessa
dag'ana fyrir flóðlýsingu nokk-
urra bygginga, einkum við Aust-
urvöll. Einnig verður stytta Jóns
Sigurðssonar lýst með bráða-
birgðaljóskösturum. Þá væntir
félagið þess að eigendur verzl-
ana í miðbænum vandi glugga-
lýsingu sína sérstaklega þessa
viku og hyggst það veita verð-
láun fyrir bezt lýsta gluggann.
N.k. laugardag verður svo stofa
í lýsingartækni. sem Ljóstækni-
ffélagið og rafmagnsdeild Vélskól-
ans starírækja opin almenningi
til sýnis.
Gestur ársfundar L.f.
Ársfundur Ljóstæknifélags fs-
lands verður haidinn n.k/þriðju-
dag. Til hans hefur verið boðið
formanni sænska ljóstæknifé-
lagsins, Ivar Folcker, en hann
er jafnframt nýkjörinn forseti al-
þjóðaljóstæknisambandsins. Mun
Folcer flytja aðalerindi fundar-
ins, en auk hans munu flytja er-
indi þeir Jón Á. Bjarnason raf-
magnsverkfræðingur, Jón Sætran
raffræðingur, Skúli Norðdahl
arkitekt og Þórcýir Runólfsson
öiyggismálastjóri. Þá verða
farnar ýmsar skoðunarferðir.
Skoðuð verður lýsing innanhúss,
kennslustofa í lýsingartækni,
framleiðsla lampabúnaðar og
ýmis útilýsing. Sýnd verður kvik-
mynd um lýsingu.
Milli 150 og 160 félagar
Ljóstæknifélag íslands var
stofnað haustið 1954, en félagar
eru nú milli 150 og' 160. þar af
allmargar stoínanir og ýmis fyr-
irtæki. Flestir meðlima eru raf-
virkjar, rafmagnsverkfræðingar
og raffræðingar, nokkrir arki-
tektar. læknar. kennarar o.fl. Fé-
lagið beitir sér fyrir aukinni
þekkingu á öllu því er ljós .varð-
ar, s.s. starfsemi augans, áhrif-
um ljóss og lita, notkun allra
teg'unda lampa, fyrirkomulagi
lýsingar innanhúss og utan. Það
stendur í sambandi við erlend
ljóstæknifélög og fylgist með
nýjungum á sviði ljóstækninnar.
sem er ört vaxandi tæknigrein
og mjög yfirgripsmikil.
Félagið væntir stuðnings allra
landsmanna í þeirri viðleitni
sinni að bæta lýsingu hér á
landi til verndar sjóninni, auk-
ins öryggis, bættra vinnuafkasta,
aukins hreinlætis, meiri fegurðar
í híbýlum og á vinnustöðum.
Kjörorðið er: Meira Ijós —
betra Ijós!
STUTT
MYNDA-
SAGA FRÁ
REYKJA-
/ÍKURHÖFN
1) Það getur verið skeninAi-
legt að fylgjast með veið-
um hinna strákanna. 2)
En skemmtilegast er þó að
fá að reiuia færinu. 3) Æ,
hver skrambinn,. nú ílæktist
línan um löppina! —
(Ljósm.: Þjóðv.)
Rafmagnslaust í
Hlíðonum
Laust eftir hádegi í gærdag
varð rafmagnslaust í öllum
Hlíðunum allt að Háaleitisvegi.
Talið var að háspennulína hefði
skorizt í sundur við uppgröft. Á
fimmta tímanum í gærdag var
e'kki enn búið að gera við bil-
unina en unnið var að viðgerð-
inni allan seinnihluta dagsins.
Sýning
Jóhannesar
Málverkasýning Jóhannesar Jó-
hannessonar að Týsgötu 1 hefur
nú staðið yfir í viku og hafa 3
myndir selzt. Sýningin verður op-
in í dag og næstu daga.
leggja en bætur almannatrygg-
inganna?
Það minnsta sem hægt er að
krefjast er að það fólk fái bæt-
ur sínar greiddar refjalaust, en
á því hefur nú orðið misbrest-
ur hér í næsta nágrenni Reykja-
víkur.
1000 krónur fyrir hjón ' á
mánuði
í gær kom til Þjóðviljans
aldraður maður úr Seltjarnar-
neshreppi, sem skýrði frá því að
þar væri ekki enn farið að
greiða neinar bætur frá trygg-
ingunum á þessu ári. Maður
þessi er örvrki og kvæntur. Þau
hjón.hafa fengið 1000 krónur á
mánuði frá tryggingunum. Geta
má nærri hvernig heilsulausum
hjónum gengur að lifa á því.
Þjóðviljinn fékk þetta staðfest
hjá tryggingaumboðinu á skrif-
stofu sýslumanns Gullbringu- og
Kjósarsýslu. Sá sem varð fyrir
svörum kvað það ekkerl óvenju-
legt að dráttur yrði á greiðslum.
Fé bærist ekki það ört frá
Tryggingastofnun ríkisins að
unnt væri að inna greiðslur af
hendi um allt umdæmið á gjald-
daga, sem var 15. marz. Greiðsi-
ur frá tryggingunum fara fram
ársfjórðungslega á öðru verð-
lagssvæði. Vonir standa til að
peningar komi næstu daga svo
að greiðslur geti farið fram í
Seltjarnarneshreppi, var sagt hjá
tryggingaumboðinu.
Seltjarnarneshreppur telst s:em
sagt til annars verðlagssvæðis,
þar sem allar bætur og laun frá
tryggingalaganna á Alþingi nú
undanfarið, en rikisstjórnin lagð-
ist eindregið gegn því að landið
yrði allt gert eitt verðlagssvæði.
Allir viðurkenna þó að verð-
lagssvæðaskiptingin er hróplegt
ranglæti, eins og bezt sést á
Framhald á 5. síðu
Dr. Hastings Bantla
Dr. Banda laus
úr fangelsi og
viðræður hafnar
Dr. Hastings Banda. leiðtogi
þjóðfrelsishreyfingar Njasalend-
inga, var látinn laus úr fangelsi
i fyrradag, en hann hefur verið
fangi brezku nýlendustjórnarinn-
ar í rúmt ár. Hann hóí þegar
viðræður við Macleod, nýiendu-
málaráðherra Breta, sem staddur
er í Njasalandi og Armitage
landstjóra. Hann flutti einnig út-
varpsávarp og skoraði á landa
sína að gæta stillingar og
kvaðst vongóður um að brátt
myndu hefjast samningar um
nýja stjórnarskrá fyrir nýlend-
una.
Sýningu Valtýs
lýkur í dag
í dag' klukkan 10 siðdeg'is lýk-
ur sýningu Valtýs Péturssonar í
Listamannaskálanum. Aðsókn
heíur verið góð að sýningunni og
11 myndir selzt
Verðhækkanir
Framhald af 1. síðu
8,8% hækkun söluskatts í tolli.
Söluskattur hefur þegar lagzt á
allar búvörur nema nýmjólk,
líka fiskinn og aðrar nauðsynjar,
sem aldrei áður hafa verið skatt-
lagðar.
Því hærri tekjurf þeim mun meiri skattalækkun!
Tekjuskattslækkun ríkisstjórnarinnar er með þeim hætii
að menn fá þeim mun meirí ívilnanir sem þeir hafa hærri
tekjur og eru auðugri. Á sama tíma og fólk með almennar
launatekjur fær eftirgjöf sem nemur 1—2 þúsundum, fá auð-
menn tugi þúsunda eftirgefna — og þessa stórfelldu eftir-
gjöf hjá auðmönnum toorgar almenningur að sjálfsögðu i
söluskattinum, Hér fara á eftir tvær töflur sem sýna dæmi
úm breytingarnar á tekjuskattinum:
HJÓN ME» 3 BÖRN
Nettótekjur Skattur samkv. Skattur samkv. Lækkun
kr eldri lögum kr. nýja frv. kr. kr.
60.000 940,— 0 940,—
70.000 1.568,— ' 0 1.568,—
100.000 5.730,— 0 5.730,—
130.000 14.370,— 2.500,— „ 11.870,—
160.000 24.340,— 7.500,— 16.840,—
190.000 34.960,— 14.500,— 20.460,—
220.000 46.960,— 24.000,— 22.960,—
.250.000 , 5R.960, ° , 34.500, - ,24.460,—
HJÓN MEÐ 6 BÖRN
Nettótekjur Skattur samkv. Skattur samkv. Lækkun
kr eldri lögum kr. nýja frv. kr. kr.
60.000 260,— 0 260,—
70.000 638,— 0 638,—
100.000 2.860,— 0 2.860,—
130.000 10.050,— 0 10.050,—
160.000 20.210,— 2.500,— 17.710,—
190.000 29.170,— 7.500,— 21.670,—
220.000 40.480,— 14.500,— 25.980,—
250.000 52.480,— 24.000,— 28.480,—
Stór barnafjölskylda með almennar launatekjur losnar
þannig við 260—638 kr. í tekjuskatt (en verður í stað-
inn að borga söluskatt af öllum nauðsynjum sínum í við-
bót við gengislækkunina). En stórtekjumaðurinn losnar við
10.000—30.000 kr. og þaðan af meira. Og f jölskyldubætur eru
jafnháar til hátekjumannsins og hins sem er á Dagsbrún-
arkaupi. '