Þjóðviljinn - 13.04.1960, Blaðsíða 1
imiiiiiiimiuiimiimiiimiiiiiiiiiimi)
| Próflestur |
I er hafinn I
Miðvikudagur 13. apríl 1960 — 25. árgangur 87. tölublað
Danir og Norðmenn svíkja enn heit
sin um stuðning við tólf milur
Bandarikin fara hamförum i Genf - Bretar gera sér
enn vonir um samninga WS islenzk stjórnarvöld
Á annað hundrað stúdents-
efni kvöddu Menntaskólann
með viðeigandi viðhöfn í
gærmorgun ogr hófst þar
með fimm vikna upplestr-
arleyfi þeirra fyrir próf.
Myndirnar voru teknar
framan við skólann við
þetta tækifæri: Piltarnir í
hópi „dimittenda" köstuðu
yfirhöfnum sínum í loft
upp til aukinnar áherzlu
húrrahrópunum, — og
námsmeyjarnar sem eftir
eru í skólanum höfðu sýni-
lega gaman að. — Á 12.
síðu er nánar sagt frá
„dimission“. (Ljósm. Sig.
Guðm.).
Enn fara Bandaríkin hamförum á sjóréttarráöstefn-
unni í Genf til þess að reyna aö tryggja tillögu sinni
um skerðingu á 12 mílna fiskveiöilögsögu samþykki.
F.ru Bandaríkin nú búin að kaupa Dani — sem enn
reynast drengir góðir og vinfastir — til fylgis viö tillög-
■una; sömuleiðis Norðmenn.
Augljóst er að úrslitin geta oltið á örfáum atkvæðum
ao lokum, jafnvel einu atkvæöi. Afstaða íslands getur
því ráðið úrslitum.
Bandaríkin nota það mjög í
áróðri sínum bak við tjöldin í
Genf að jafnvel íslendingar muni
að iokum sætta sig við tillög-
una um sögulegan rétt til veiða
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIÍIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIII
i ísland gegn til- I
| löguUSAog 1
| Kanada |
~ A síðdegisfundi haí'réttar- =
= ráðstefnunnar í Genf í gær, ~
= flutti Guðmundur í. Guð- =
= mundsson ræðu. Hann =
= sagði að ísland myndi =
= greiða atkvæði gegn tillögu =
= .Kanada og Bandaríkjanna =
= um skerta 12 sjómílna fisk- =
= veiðilögsögu. =
= Utanríkisráðherra sagði =
= að íslendingar mundu =
= ..styðja hverja þá tillögu, =
= sem trygg'ði í raun nægi- =
= lega fiskveiðilögsögu í =
= hvaða formi sem hún væri“. =
= Hinsvegar leiddi hann enn =
= hjá sér að iýsa yfir afdrátt- =
= arlausum stuðningi við þær =
= tiilögur, sem fela í sér kröf- =
= ur íslendinga, t.d. 18 þjóða =
= tiilagan, er kveður á um =
= ailt að 12 sjómílna land- =
= helgi og 12 sjómilna ó- =
= skerta fiskveiðiiögsögu. =
= Sjá nánar á 12. síðu. =
1111111!!111111111111111111111111111111111111|Ti
á heimamiðum annarra þjóða.
Þessum áróðri ber íslendingum
að svara með því að taka nógu
einarða afstöðu gegn þessari til-
lögu, og íslenzka sendinefndin
hefur á valdi sínu að kveða til-
löguna niður með nógu afdrátt-
arlausri afstöðu. Fulltrúum ís-
lands ber að lýsa yfir skýrt og
skorinort í Genf:
1» íslendingar munu aldrei
semja við nokkra þjóð um
svæði innan 12 mílna mark-
anna.
2 .
“• Islendingar munu ekki
sætta sig við bandarísku til-
löguna, jafnvel þó hún fái
tvo þriðju atkvæða, nema all-
ar aðrar þjóðir heims liafi
gert það áður, því engin þjóð
á eins mikið í húfi hvað fisk-
veiðar snertir og fslendingar.
i
Danir og Norðmenn
svíkja enn
Áður. en Genfarráðstefnan
hófst lýstu bæði Danir og Norð-
menn yfir því að þeir væru
fylgjandi 12 mílna fiskveiðilög-
sögu. Bandaríkin hafa nú feng-
ið bæði þessi ríki til stuðnings
við tillögu sina. Þegar hefur ver-
ið gengið frá leynisamningi við
Framhald á 2. síðu.
Ríkisstarfsmenn krefjast samnings-
réttar og víta Sigurð Ingimundarson
Starfsmannafélag ríkisstofnana
hefur vítt Sigurð Ingimundarson,
formann Bandalags starfsmanna
rikis og bæja. fyrir að hann
skuli hafa gengið í berhögg' við
hagsmuni launþega með því að
greiða á Alþingi atkvæði með
gengislækkunarlögum ríkis-
stjornarinnar, þar sem meðal
annars var afnuminn réttur
launafólks til vísitölubóta á
kaup. Víturnar voru samþykktar
á aðalfundi Starfsmannafélags-
ins ö. apríl. Þar var eins og
áður hefur verið skýrt frá hér
í blaðinu kjörin ný íélagsstjórn
og fjórtán aðalfulltrúar til þings
B.S.R.B. Stjórnina skipa Páll
Hafstað formaður, sem var end-
urkjörinn, og meðstjórnendur
Einar Ólafsson, Árni Halldórs-
son, Eysteinn Þórðarson, Sigurð-
ur O. Helgason, Hulda Bjarna-
dóttir og Kristinn Helgason.
Fundurinn samþykkii : meðal
annars eftirfarandi tiliogu:
„Aðalfundur SFR 1960 skorar
á Alþingi og ríkisstjórn að gera
ráðstafanir til að veita ríkis-
starfsmönnum nú þegar samn-
ingsrétt um kaup og kjör til
jafns við aðra launþega.
Aðalfundurinn vekur sérstaka
athygli á því, að með ákvæðum
23. gr. laga nr. 4, 20. febrúar
H
H
H
M
a
1960 um efnaliagsmál. voru vísi-
töluuppbætur á laun afnumdar
og urðu ríkisstarfsmenn þar með
1 gersamlega varnarlausir gegn
dýrtíð. Vill fundurinn sérstak-
lega víta þá óskiljanlegu afstiiðu
formanns B.S.Il.B. að veita slik-
um aðgerðum samþykki sitt á
Alþingi. Telur fundurinn, að
lilutur ríkisstarfsmanna verði
ekki réttur nema með samnings-
rétti í einni eða annarri mýnd‘‘.
■
■
a
■
H
■
■
H
H
H
H
n
■
IV
■ I