Þjóðviljinn - 22.05.1960, Side 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudag'ur 22. maí 1960
Þyrilvængjan hrapaði niður og var nú komin f skot-
færi frá bátunum. Þórður hamaðist sem mest hann
mátti. Hann hafði oft flogið þyrilvængju, en það
var ekki svo auðvelt að hemja þyrilvængju sem var
að hrapa. „Við erum á leið upp aftur“, kallaði Janína
fagnandi. Já, satt var það, en ekki tókst að koma
þyrilvængjunni nema í nokkur hundruð metra hæð.
Skyndilega stöðvaðist hreyfillinn. Skyldi einhver kúl-
an hafa hitt hreyfilinn ? Þórður reyndi að koma
honum aftur í gang, en það tókst ekki“. Spenntu
beltið kallaði hann til Janínu. Hann varð að nauð-
lenda.
Fyrir nokkru var sótt um
leyfi bæiaryfirvalda til starf-
rækslu lítils golfvallar að Lauga-
vegi 95. Að fenginni umsögn
umferðarnefndar bæjarins synj-
aði bæjarráð um leyfið á fundi
sínum sl. þriðjudag.
Leiðir allra sem ætla að
kaupa eða selja
BÍL
liggja til okkar.
BÍLASALAN
Klapparstíg 37.
Sími 1-90-32.
Ihrar OroPönd
hiýfír ¥ÍSnr-
kemnmgu
Menntamálaráð hefur veitt
Ivari Orgland sendikennara við-
urkenningu — 10 þúsund krón-
ur —, fyrir bókmenntastörf, eink-
um kynningu hans á íslenzkum
skáldskap í Noregi. Svo sem
kunnugt er, hafa þegar komið út
á nýnorsku þrjú söfn Ijóðaþýð-
inga Orglands, ljóð Stefáns frá
Hvítadal, Davíðs Stefánssonar og
Tómasar Guðmundssonar. Fjórða
safnið, Ijóð eftir Stein Steinarr,
mun koma út á þessu ári. Þýð-
ingarnar hafa hlotið mjög lof-
samlega dóma.
Þá hefur Ivar Orgland samið
stórt rit um Stefán frá Hvítadal,
ævi hans og skáldskap. Mun hluti
þess, ævisaga Stefáns, brátt
koma út á islenzku hjá Bókaút-
gáfu Menningarsjóðs.
Ivar Orgland er nú á förum til
Noregs eftir nær áratugs störf
áfslandi.
UNESKO heiðrar
miimiiigo dr.
Zamenhofs
S.l. ár voru 100 ár liðin frá
fæðingu dr L. L. Zamenhofs,
höfundar alþjóðamálsins esper-
anto. Var þess minnzt af esper-
antistum og öðrum fylgjendum
alþjcðamálsstefnunnar víðsveg-
ar um heim á margvíslegan
hátt, m.a. með útgáfu merkra
bóka og margháttaðri kynningu
á verkum og ævi dr. Zamen-
hofs. Nú hefur aðalforstjóri
Menningar- og vísindastofnun-
ar S. Þ., hr. René Maheu, sent
öllum ríkisstjórnum þátttöku-
ríkjanna og öðrum þátttöku- •
samtökum bréf þess efnis, að 1
framkvæmdanefnd Unesko hafi ,
einróma samþykkt á 55. fundi
sínum 27. nóv. 1959, að minn- \
ing dr. Zamenhofs skuli heiðr-
uð á vegum stofnunarinnar á
þessu ári, 1960, sem eins af
mestu velgjörðarmönnum mann
kynsins. Þessi ákvörðun æðstu
heimsstofnunar í menningar-
málum er hin mesta opinbera
viðurkenning sem dr. Zamen-
hof og verki hans, alþjóðamál-
inu esperanto, hefur nokkru
sinni h'ötnazt. — Esperanto á
nú viðast hvar um heim sívax-
andi fylgi að fagna, því að sí-
fellt eykst þörfin á einu hlut-
lausu adþjóðamáli, sem allir
geti lært á tiltölulega skömm-
um tína. Bóka- og blaðaútgáfa
á esperanto eykst hröðum
skrefum og hafa miklar og
sjálfstæðar bókmenntir þegar
myndazt á málinu.
Eins og fellibylur
Bæjarbíó í Hafnarfirði sýn-
ir þessa dagana þýzku
kvikmyndina „Eins og fellibylur“. Myndin er byggð á sögu sem
margir munu vafalaust kannast við því að hún birtist á sínum
tíma sem framhaldssaga í danska vikublaðinu Familie-Journal.
Aðalhlutverkið ,í myndinni leikur hin kunna leikkona Lilli Palm-
er, en aðrir helztu Ieikcndur eru Willi A. Kleinall og Ivan Desny
Bafsuðuhjálmur
Bafsuðukapall
Eafsuðuþráður
= HÉÐiNM =
Vélaverzlun
Seljavegi 2, simi 2 42 60
Myndi? til
tækiíœrisgjaía
Myndarammar
Hvergi ódýrari
InnrömmunarsSofan,
Njálsgötu 44
Hafnarfjarðar
(Börn fædd 1953 sem eiga að hefja nám næsta
skólaár í barnaskóla Hafnarfjarðar komi í skólann
á morgun — mánudaginn 23. máí — kl. 1.30 e.h.
Mœðm&Gqmmn
er í dag
Blómaverzlanir eru opnar frá kl. 10 til 14.
Felag blómaverzlana
Verðlaun fyrir
ritgerðir skóla-
barna nm omferð
Umferðarnefnd Reykjavíkur
heíur tekið upp þann hátt að
hafa ritgerðarsamkeppni í öll-
um 12 ára békkjum barnaskól-
anna í Reykjavík um umferðar-
mál og veita síðan verðlaun fyr-
ir beztu ritgerðirnar. Efnið að
þessu sinni var um gangandi
fólk í umferðinni og var ákveðið
að veita pilti og stúlku frá
hverjum skóla verðlaun, sem að
> þessu sinni voru svefnpokar.
Börnin sem verðlaunin hlutu
eru: Anna Sigríður Zoega, 12 ára
E, Miðbæjarsk., Skúli B. Árna-
son, 12 ára D, Miðbæjarsk., Ásta
Sigurðardóttir 12 ára F, Austur-
bæjarsk., Arnþór Óskarsson 12
ára F, Austurbæjarsk., Bryndís
fsaksdóttir 12 ára F, Breiðag.sk.,
Magni S. Jónsson 12 ára F,
Breiðag.sk., Inga Hersteinsdóttir
12 ára G, Laugarnessk., Þorgrím-
ur Gestsson 12 ára G, Laugar-
nessk., Laufey Steingrímsdóttir
12 ára J, Melask., Jón Torí'i Jón-
?sson 12 ára J, Melask., Unnur
Gunnarsdóttir 12 ára C, Lang-
holtssk., Kolbeinn Sigurðsson 12
ára A, Langholtssk.
hópur þeirra þrauzt inn í bústað
Kishi forsætisráðherra í grennd
við þinghúsið og hrópuðu þeir:
Niður með Syngman Rhee Jap-
ans! Lögreglan dreifði mann-
fjöldanum með táragasi.
í gær urðu aftur róstur í
Tokio. Þingmenn sósíalista
ruddust þá inn í bústað Kishis,
en hann neitaði að tala við þá.
Undanfarna daga hafa vcrið
stöðugar róstur í Tokio, höfuð-
borg Japans. Tugbiisundir manna
hafa mótmælt liinum ný.ja her-
stöðvasamningi Bandaríkjanna
og Japans sem neðri deild jap-
anska þingsins fullgilti á fimmtu-
daginn.
Þingmenn sósíalista höfðu
reynt að koma í veg fyrir at-
kvæðagreiðsluna með því að loka
forseta deildarinnar inni í skrif-
stofu sinni, en lögreglan var þá
kvödd á vettvang. Sósíalistar
voru ekki viðstaddir atkvæða-
greiðsluna.
í fyrradag söfnuðust um 20.000
manns fyriv framan þinghúsið
í Tokio til að mótmæla her-
stöðvasamningnum og voru stúd-
ent.ar þar fremstir í flokki. Stór