Þjóðviljinn - 22.05.1960, Síða 5

Þjóðviljinn - 22.05.1960, Síða 5
Suimudagur 22. maí 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (5 Iíilómetra eftir kílómetra teygja baðstrendu rnar sig með mjúkum sandi og miklu aðgrynni. Eystrasaltsvikan ÁœfluB þátftaka 80 manna hóps frá íslandi Eystrasaltsvikan 1960 verður haldin dagana 3.—10. júlí í Rostock-héraði í Austur-Þýzka- ' landi. íslendingum er boðið að taka þátt í henni og megum við senda um 80 manna hóp íil hátíðahaldanna. Öllum er heimil þáttaka, eldri sem yngri. ■ SKÓGUR OG BAÐSTRÖND Þetta er í þriðja sinn, sem skipulögð verður þátttaka héð- an í Eystrasaltsvikunni. Nokkuð hefur verið sagt frá hinum fyrri hér í blaðinu, en þær hafa þótt takast með ágætum og hafa þátttaker.dur héðan einróma lokið lofsorði á skipulag og framkvæmd vikunnar. Þeim, sem farið hafa á æskulýðsmótið, en það er haldið í tjaldbúðum við baðströndina nokkru fyrir austan Rastock, hefur orðið dvölin. þar óg’evmanleg. Um- hverfið er þarna mjög sérstætt og fagurt, hávaxnir skógar bylgjast um hæðadrög og dali og teygja sig víða allt til sjávar, en er kemur út úr skógarþykkn- inu bla'.ir við gulhvít bað- ströndin. Eystrasaltsströndin er ein bezta ., baðströnd Evrópu Stór hluti strandlengju Austur- Þýzkalands er ein samfelld bað- strönd, þakin gulhvítum, fíngerð- um sandi, sjórinn 18—20 stiga heitur. Mörg verkalýðsfélög og önnur samtök austur-þýzkrar alþýðu eiga þarna félagsheimili, þar sem meðlimir þeirra geta dvalið í sumarleyfi sínu gegn ótrúlega vægu gjaldi. Fjölmörg hótel og hressingarheimili fyrir aðra sumargesti eru einnig þarna. Q MIKIL ÞÁTTTAKA Eystrasaltsvikan í sumar verð- ur með svipuðu sniði og und- anfarin ár. Þátttaka og fjöl- breytni hátiðahaldanna hefur raunar vaxið ár frá ári en í ár verða þau mun stærri í sniðum en nokkru sinni fyrr. Búast ; Þjóðverjar við yfir 5000 gestum j frá Norðurlöndunum einum, en i auk þess koma stórir hópar frá j Sovétríkjunum, Póllandi, Vest- j ur-Þýzkalandi svo og frá hinum i ýmsu héruðum Austur-Þýzka- : lands. í Rostock og víðar verða I geysifjölmenn íþróttamót. Keppa þar margir beztu íþróttamenn álfunnar í hinum fjarskyldustu j íþróttagreinum — allt frá frjáls- j um íþróttum og knattspyrnu til : kappróðra, sunds og hjólreiða. Þá verður efnt til listaverka- sýninga, sýndir þjóðdansar og aðrar þjóðlegar listir hinna i ýmsu þátttökuþjóða. Margir heimsfrægir listamenn heim- sækja Eystrasaltsvikuna, hljóð- færaleikarar, söngvarar, leikarar o. fl. T. d. koma flokkar frá Leningrad-ballettinum, Gdansk- | óperunni, leikhópar frá Malmö- leikhúsum og „Junges Teater“ í Hamborg, svo að eitthvað sé nefnt. Þátttakendur fá ókeypis að- göngumiða að dagskráratriðum eftir eigin vali. gg TIL SKEMMTUNAR OG FRÓÐLEIKS Meginhluti þátttakenda mun búa í hótelum og hressingar- heimilum nema þeir, sem fara á Fólki á öllum aldri gefst kostur á þátttöku í hátíðahöldumim við Eystrasalt Islenzka undirbúnings- nefndin tekur á móti tilkynningum um þátttöku æskulýðsmótið og munu búa í tjaldbúðum, eins og áður segir. Verða þær í Graal-Muritz, kyrr- látum og fögrum smábæ skammt austan við Rostock. Alla dagana verður eitthvað til skemmtunar. Á daginn verð- ur farið í sjóinn, legið á strönd- inni eða farið i stuttar kynnis- ferðir um nágrennið, heimsóttar verksmiðjur, samyrkjubú ,skipa- smíðastöðvar o. fl. Yfirleitt ,mun þátttakendum Eystrasaltsvik- unnar verða gefinn góður kost- ur á að kynna sér uppbyggingu hins nýja þjóðfélags sósíalism- ans í Austur-Þýzkalandi og hina hraðfleygu þróun landsins til aukinnar tækni, betri og jafn- ari lífskjara. Gefst þeim, sem leikið hefur forvitni á hvað sé satt og hvað ósatt af öllu því, sem sagt hefur verið um hin umdeildu ríki sósíalismans, hér alveg einstakt tækifæri til að kynnast þróuninni í einu þeirra af eigin raun. Á kvöldin verða útisamkomur, dansleikir við baðströndina, leiksýningar og annað til skemmtunar. jjjgj KOSTNAÐUR O. FL. Þátttökugjald fyrir þá, sem héðan fara verður um 7.500,00 kr. E.r þar allt innifalið: flug- far til Kaupmannahafnar, ferð með lest til Rostock, viku dvöl og uppihald á hóteli (í tjald- búðunum fyrir þá, sem taka þátt í æskulýðsmótinu) -— og heimferðin sömu leið. Sett hefur verið á laggirnar sérstök undirbúningsnefnd til að sjá um þátttöku héðan frá ís- landi í Eystrasaltsvikunni. Eiga sæti í henni þeir Ingi R. Helga- son, lögfr, Guðmundur Magn- ússon, verkfr. og Björgvin Saló- monsson. Þátttöku ber að tilkynna á skrifstofu nefndarinnar Tjarn- argötu 20, sími 17513 — opið alla virka daga frá kl. 10—19, sunnudaga kl. 16—17 — og eru allar nánari upplýsingar veittar þar. Utanáskrift á bréf til nefndarinnar er: Eystrasaltsvik- an, Tjarnargötu 20 Rvík. Áburðarverksmiðjan Framhald af 1. síðu heimilt að afskrifa um 3 millj- ónir. Undir þeirn lið er því falinn gróði sem nemur um 7 milljónum krcna. Auk þess er svo bókfærður ágóði sem nem- ur 4 milljónum, þannig að heildargróðinn á árinu er 11 milljónir, þegar búið er að af- skrifa að fullu og standa við allar skuldbindingar. 9 Kauprán kratastjórn- arinnar V2 milljón Það er athyglisvert að þetta mikla gróðafyrirtæki fékk einn- ig í sinn hlut ágóðann af kaup- ráni Alþýðuflokksstjóinarinnar 1959. Kauplækkunin hjá starfs- 'mönnum Áburðarverksmiðjunn- ar einum nam það ár um það bil hálfri milljón króna. Munur- inn verður þó miklu stórfelld- ari í ár- Áburðarverðið er hækkað til mikilla muna með gengislækkunarlögunum, en kaupgjaldið á að haldast óbreytt. Samkvæmt þvi yrðu kaupgreiðslur til verkafólks miklu minni hluti af reikning- um fj'rirtækisins á þessu ári en í fyrra. • Fjórðungur sölu- verðsins gróði Tekjur Áburðarverksmiðjunn- ar af seldum áburði námu á sl. ári 34 milljónum króna, en sé einnig reiknað með birgðaaukn- ingu nam verðmæti framleiðsl- unnar 46 milljónum króna. Er ekki að efa að bændum, sem. hafa verið látnir greiða þetta verð og eiga nú að greiða m u n hærra verð eftir geng'slækk- unina, þyki gróði Áburffar- verksmic junriar mjög athygl- isverður. Verðið í fyrra hefur verið miðað við það að fjórð- ungur þess yrði hreinn hagnað- ur. Er augljcst að verksmiðjan gæti lækkað áburðanærðiff talsvert, enda átti það að vern einn tilgangurinn með stofnua hennar. • Hægt að hækka kaup og lækka verð Dæmið af áburðarverksmiðj- unni er einkar gott svar við þeim áróðri stjórnarblaðannx að kaupgjald megi fyrir enga muni hækka ef atvinnurekstur- inn eigi að standast. Áburðar- verksmiðjan gæti hækkað kaup verkafólks til mikilla muna og samtímis lækkað áburðarverð til bænda, án þiess að það bitn- aði á nokkurn hátt á rekstri fyrirtækisins, leiddi til þess að það þyrfti á aðstoð að halda eða stuðlaði að nýrri verðbólgu. Sama mun að segja um ö'l meiriháttar fyrirtæki á Islancli önnur. Framh. af 12. síðu vega og brúa og skipulag þorpa hefur farið eftir ákvörðunum hernámsliðsins- Jafnvel þótt augljóst væri að þarfir her- námsliðsins stönguðust á við hagsmuni ísiendinga, var her- námsliðið látið ráða. Sjálf vega- gerð ríkisins, sem þingmenn eru að burðast við að fela ein- stök verkefni á fjárlögum, virðist hafa lotið ákvörðunum hernámsliðsins. beygt sig undir Eiseisliowei9 Framhald af 12. síðu. Bandaríkjaforseti taldi sérstaka ástæðu til að gefa einræðisherra Spánar þessa einkennilegu skýrslu. Margt bendir til þess að njósnamálið og úrslit Parísar- fundarins muni reynast repúblik- önum erfitt viðureignar í kosn- ingunum í Bandarikjunum í haust. Þingmenn demókrata hafa boð- að fyrirspurnir á þingi um njósnamálið og þá ákvörðun bandarísku stjórnarinnar að boða til skyndiæfingar á öllum flug- stöðvum Bandarikjanna einmitt þegar stórveldafundurinn var að hefjast. Blaðið Washington Post sagði í fyrradag að Bandaríkja- menn gætu ekki fagnað Eisen- hower við heimkomuna sem „sigrandi hetju. Hann og banda- ríska þjóðin með honum hafa beðið auðmýkjandi ósigur“. Adlai Stevenson, forsetaefni demókrata í tvennum kosningum, sagði í Chicago að „meðan repúblikanar væru við völd væri engin leið að gera þá samninga við Sovét- ríkin sem skipta öllu máli fyrir Bandaríkin“. vilja þeirra við ákvarðanir um það hvar ætti að leggja vegi og brýr. • Bætur fyrir mis- heppnað hermang Og Ingólfur Jónsson skipu- lagði Hellu og kaupfélagshús sín í samræmi við fyrirætlanir Bandaríkjanna. Hann hefur ef- laust haft mikil áform um það að hagnast sérstaklega á við- siciptum við hernámsliðið og hagað byggingum sínum sér- staklega í samræmi við það. Allar þær vonir runnu út í sandinn, þegar hernámsliðiff hætti við áform sín, og brúin var byggð eins og íslendingum hentaði. Kröfur Ingólfs Jóne- sonar voru þannig bótakröfur fyrir misheppnað hermang, og bæturnar hefur I'.gólfur feng- ið. Fara nú ekki Vilhjálmur Þór og Skúli Thorarensen í mál og heimta bætur vegna þess að þeir gátu ekki hagnýtt jarðakaup sín á Rangársandi til hermangs, eins og þeir ætl- uðu sér? Rósir afskornar. (gróðrarstöðin við Miklatorg). StMAR 1-97-75 og 22-822.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.