Þjóðviljinn - 22.05.1960, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 22.05.1960, Blaðsíða 9
3T^4f7=|5S> m WBS i§5 sfi *K ígf m ÉSÍ |P Eha. !g gs EE SH 35i 2J15 ai m i m ltn£ m wSSI i m tixsx rxi::'. 'ZZ.. *Sni li ÍÉJÍa iIÍÍ 5Hr teitf, é thsnf" í-öirl Ritstjóri: Frímann Helgason Þessi mynd var tekin við mark blaðaliðsins meðan stóð á kappleiknum á Lau.gardalsleikvangi s.I. fimmtudagskvöld. (Ljósm. Þjóðv. A.K.) Reykjavíkurmótinu í knatt- spyrnu 1960 lýkur á morgun Sunnudagur 22. maí 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (9 Félagsmál, fimmta grein: g sem fjölskylda Enn eru eflir tveir leikir í Reykjavíkurmótinu, os fer ann- ar þeirra frani í kvöld én liinn annað kvöld. í kvöld keppa Þróttur og Val- Ur, og getur það orðið jafn leik- ur, ef dæma skal eftir frammi- stöðu félaganna á þessu móti. Valur hefur átt misjafna ieiki. byrjaði vel gegn KR, en síð- an ekki söguna meir. Vafalaust getur liðið meira en það hefur sýnt í leikjunum við Víking og Fram. Þ.róttur hefur komið á óvart i mótinu, fyrst og fremst í ieik sínum við Fram, og eins við KR, og ef til vill ekki sízt í leik sínum á Akureyri. Að U dugaeðadeyja í Brasilíu taka menn knatt- spyrnuna mjög alvarlega, og láta sér ekki í léttu rúmi liggja hvernig frammistaðan er. Það kom fyrir í Brasilíu nú fyrir skömmu að markmaður í iiði einu, Sylvio Lopez Fereirra að nafni, stóð sig ilia í leik. Hann tók sér þetta svo nærri að hann gat ekki við unað, fékk sér skammbyssu, beindi hlaupinu að höfði sínu og stytti sér aldur. visu mun Baldur Ólafsson (Bill) ekki leika með vegna meiðsla, sem hann fékk á Akureyri, og óvíst um Ómar Mag'nússon, sem einnig meiddist þar. Eftir því sem bezt verður vit- að teflir Vaiur fram bezta iiði sínu, og ætti að verða líkiegri sigurvegari, en eins og fyrr seg- ir getur leikurinn orðið jafn. Tekst Fram að stöðva KR Úrslitaleikurinn að þessu sinni verður á milli KR og Fram, þó ekki sé útilokað að félögin geti orðið jöfn. Fram náði góðum ieik á móti Val, en það var ekki al- veg að marka, vegna þess að Val- ur átti sérlega slakan leik þá. Annars hefur Fram-liðið verið misjafnt í vor, því getur líka skeð að það nái ekki sínu bezta. Margir hafa þó trú á því að lið- ið sé nú loks að ná sér upp eins og það er kallað. Getur leikurinn við KR or.ðið nokkurs konar þol- raun Framliðsins að því ieyti. KR-liðið hefur líka verið mjög misjafnt og það hefur ekki sýnt nærri eins góða leiki í vor og það gerði s.l. haust. KR nægir jafntefli til þess að vinna mótið. Leikur þessi getur því farið alla vega. Fékk silfur- blístru Það þykir mikill heiður að vera settur dómari á Wembiey þegar úrslitin fara fram í bik- arkeppninni. Þetta heiðursstarf urn daginn var faiið dómara að nai'ni Levin Howley frá Middles- brough. Er hann yngsti dómari sem dæmt hefur í bikar-úrslitum, 36 ára gamall. Hann hefur aðeins dæmt í ensku deildakeppninni í 6 ár. Howley byrjaði að dæma á stríðsárunum, en þá var hann í sjóhernum og á herskipinu Nel- son. Nelson hafði sérstaka knatt- spyrnudeild með 16 knattspyrnu- liðum, en Howiey var eini dóm- arinn um borð, svo hann fékk mikla reynslu á þeim árum. Þegar tilkynningin kom um það að hann ætti að dæma úr- . slitaleikinn var haíin fjársöfnun í Yorkshire, og fyrir söfnunar- féð var ákveðið að kaupa silf- urblístru handa Howley. Laugar- daginn sem úrslitin fóru fram notaði hann silíurblístruna til þess að gefa mer.ki um upphaf leiksins en síðan notaði hann sína venjulegu blístru. íþróttafélag á að vera eins og stór fjöiskylda, þar sem hver skilur annan og vill aðstoða, þegar þess er þörf. Fjölskylda, sem vill vinna í einlægni að mál- efnum sínurn, verja heiður sinn og' auka eftir þvi sem hægt er. Hlutverk foreldranna verður í höndum félagsstjórnarinnar. Hún þarf að þekkja börn sín og vita hvað þau vanhagar um á hverj- um tíma. Það er því nauðsyn- legt að stjórnin þekki félagana, og þá er það ekki sízt nauðsyn- legt fyrir formanninn að þekkja og kunna skil á félagsmönnunum eftir því sem hægt er og í hans valdi stendur. Þetta gildir jafnt þótt félögunum sé skipt niður í deildir. Þar eru það deildarstjór- arnir sem taka að sér foreldra- staríið. Það kann nú að þykja nóg að stjórnin fylgist með félögunum meðan þeir eru innan félagsag'- ans og í starfi þa.r. En ef vel á að fara er nauðsynlegt að fylgj- ast með þeim iíka utan vallar og beinna áhrifasvæða félaganna sjálfra. Það gildir sama þar og á góðu heimili, að því betra sem sam- bandið er á milii foreldranna og barnanna þeim mun betra heim- ilislíf og heimilisbragur. Betri á.rangur, hvort sem um er að ræða keppni á leikvelli eða störf í þágu félagsins. e e• ~ Það er iíka nauðsynlegt að stjórnin geri sitt ítrasta til þess að halda þessu sambandi. Til þess að það megi takast, þarf stjórnin að láta félagana fylgj- ast vel með því sem hún vinnur að og er að gerast. Það gerist bezt með því að efna til funda- halda með þeim og' gefa þar skýr- ingar, svara fyri.rspurnum, og eins til þess að fá ráð og bend- ingar. Það er oft ráðandi sá skilningur að frá félagsmönnum eigi ekki ábendingar að koma, allt slíkt eigi stjórnin að ábyrgj- ast, en þetta er mikill misskiln- ingur. Frá félagsmönnum geta alveg eins komið góðar ráðlegg- inga.r og ábendingar. Stjórnendur geta líka náð furðuvel til félaganna ef þeir nota tilkynningaspjöld í félag's- heimilunum og skýra þar frá þvi sem á að gerast og til stend- ur. Slíkar tilkynningar þurfa að berast stöðugt, því að alltaf er Til liggur leiðin eitthvað um að vera. Það undii’- strikar það lif sem þarf að vera iðandi í félaginu, og það geiur félögunum meiri trú á stjórnina, og óafvitandi eru þeir íúsari og telja sjálfsagðara að vinna með henni. Með slíkum tilkynningum til félaganna eru meiri líkur tii þess að allt gangi snurðulaust, og fé- iagið og störf þess renni áfram, eins og vei smurð vél. Takist félagsstjórninni að ná þessu sambandi við félaga sína, eru miklar líkur til þess, og i rauninni vissa fyrir þvi. að þcir vilja fylgja nákvæmlega ábend- ingum og ákvörðunum stjórnar- innar. Þeir taka með meiri al- vöru þátt í þvi starfi sem þeim er falið, og eru grundvallandi fyrir félagið. Það ætti einnig að ieiða til þess að þeir hlýði betur fyrir- liðanum á leikveili, þeir virða dóma dómarans og samheldni á leikvelli verður einlægari. Þetta getur líka komið fram í drengi- legri leik gegn mótherjunum. Þetta heimilislíf er sem sagt hyrningasteinn undir þá uppe'.d- islegu hlið íþróttalífsins sem svo oft er um rædd, og taiin vera það sem fyrst og fremst gefur íþróttahreyfingunni gildi, og þeir sem lengst hugsa kalla hugsjón íþróttanna. Dýr f ramlína Það er ekki ofsögum af þv£ sagt hvað: toppliðin á Spání leggja mikið fé í leikmenn sem þau eiga, og gott dæmi um það- er t.d. meistaraliðið Barcelona sem um daginn tapaði fyrir Rcal Madrid í Evrópukeppninni. í þeim leik lék Barcelona með framlínu sem var talin yfir '10 milljónir króna virði. Þessa upp- hæð liefur félagið orðið að gi-eifa, fyrir leikmennina eða viljað fá fyrir þá ef það seldi þá til annarra félaga. Það er engin smáupphæð, yfir 30 milljónir fyrir 5 leikmenn. Hvað segia. menn svo þegar það upplýsist að á varamannabekknum sá+u Icikmenn sem metnir voru á !8 milljónir króna! Þeir sem Iéku voru Luis Coll* 22 ára Spánverji, metinn á rúma, 1,5 millj., Sandor Kocsis, 31 árs gamall Ungverji, sem metinn er á 9 millj., Eurlogio Martiney, 24 ára gamall frá Paraguay, metinn á uin 5 millj., Luiz Suarez, 34 ára gamall Spánverji, og í hann hefur Barcelona fengið tilboð upp á 10 millj. Dýrasti varamaðurinn v ir Macedo Evaristo, 25 ára gamail Brasilíumaður, metinn á 6.5: millj. Ungverjinn Czibor, 31 árs„ var metinn á rúmlega 1,5 mill i. SÍMNOTENDUR Heimildarmiðarnir eru íallnir úr gildi. — TryggiÖ yður eigin númer nú þegar. Dregið 21. júní - SímahappdrœHi S.L.F.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.