Þjóðviljinn - 09.06.1960, Síða 9
Fimmtudagur 9. júní 1960 — ÞJÓÐVTLJINN — (9
Skarðsmótið var haldið á
Siglufirði um helgina
Ritsfjóri: Frímqnn Hélgason
st íslendingum að sigra
Norðmenn á heimavelli í dag?
I idag keppa Islendingar og
Norðmenn í knattspyrnu svo
sem kunnugt er og fer leikur-
inn fram í Osló.
Ennþá hefur Islendingum
ekki tekizt að sigra Norðmenn
heima, en hér hafa þeir tapað,
bæði B-landsliðið og A-lands-
Jiðið.
Norðmenn eru ekki sérlega
bjartsýnir með landslið sitt að
þessu sinni, minnugir ósigurs-
ine fyrir Dönum nú fyrir
skömmu. Hinsvegar má gera
ráð fyrir að þeir telji sig hafa
í fullu tré við ísland. Einnig
má gera ráð fyrir að þeir séu
ekki búnir að gleyma tapinu
hér í fyrra og eins því að þá
munaði ekki nema einu marki í
síðari leiknum. Sagt er að þeir
muni breyta liði sínu mikið
Nýtt Evrópumet
í sleggjukasti
Ungverjinn Gyula Zsivotsky,
sem sagt var frá í erlendum
íþróttafréttum hér á síðunni á
fimmtudaginn, setti nýtt evr-
ópumet i sleggjukasti á sunnu-
daginn. Kastaði hann 68,22 m.
F.yrra metið átti Rússinn Rud-
enkov og var það 30 sm. styttra
en met Zsivotzskys.
Það er augljóst að Ungverjar
hafa hér eignazt olympíuvon í
sleggjukastinu, sem oft hefur
verið „ungversk grein“ ef svo
mætti segja.
Dýr sýning Real
á Idrætsparken
Danska knattspyrnuforystan
hefuj- að undanförnu staðið í
samningum við hið heimsfræga
spánska knattspyrnulið Real
.Madrid um leiki á Idrætsparken
í Kaupmannahöfn. Samningum
lauk á miðvikudaginn var, og
ekki verður sagt að Spánverj-
arnir séu mjög ódýrir á list sína,
enda varla ástæða til. Krafa
þeirra, sem var þegar samþykkt
hljóðaði upp á 250.000 danskar
krónur fyrir leikinn. Leikurinn
mun fara fram þann 18. ágúst
á Idrætsparken, hinum geysi-
mikla velli þeirra Hafnarbúa.
Brazilisku heimsmeistararnir,
sem léku í Höfn snemma í maí-
mánuði sl. gerðu talsvert lægri
kröfur en Real, en drógu mikinn
skara áhoi-fenda að leikjunum,
meira að segja svo mjög að
hlið Idrætsparkens létu undan
þrýstingi mannfjöldans.
frá því sem var í leiknum við
Dani.
Erfitt er að spá um úrslit í
leik þessum, en nái íslenzka lið-
ið saman, eins og það gerði á
móti Dynamó á föstudaginn, er
ekki fráleitt að gera ráð fyrir
jöfnum leik.
Endanlega liðið veikara?
Landsliðsnefnd gerði þó 4
breytingar á framlínu liðsins
og er það mjög hæpið, þegar
liðið í heild og framlínan náði
betri leik en nokkurn óraði fyr-
ir. Að vísu eru fjórir sömu
menn í línunni, en þeim er
hrært til, þannig að nú leikur
Þórólfur miðherja, en Ingvar
er látinn sem innherji og Þórð-
ur á sinn stað. Reynslan er sú
að Þórólfur leikur alltaf sem
hálfgerður innherji og notast
leikni hans og nákvæmni mjög
vel í því að undirbúa sókn, —
eins og sýndi sig um daginn.
Ingvar er aftur á móti hreyf-
anlegur miðherji, sem liggur
framarlega, og því verður hon-
um erfiðara að falla inní stöðu
sem honum er ótöm. Þetta kom
w
líka fram í blaðaleiknum um
daginn.
Það var eðlileg tilfærsla að
setja Þórð Jónsson út á sinn
stað aftur, og með tilliti til
vandræðanna með innherjana
hefði ekki verið forsending að
setja Gunnar Guðmannsson
í þá stöðu. Hann er enginn við-
vaningur þar, því að í þeir-ri
stöðu lék hann um margra ára
skeið með KR. Hann hefur ver-
ið frískari í vor en í mörg ár
undanfarið og leikni og skiln-
ing á knattspyrnu á hann í rík-
um mæli þegar honum tekst
upp. Hinsvegar er Gunnar sett-
ur út úr liðinu og Sveinn
Jónss. tekinn í staðinn. Sveinn
hefur ekki átt góða leiki í sum-
ar og sízt af öllu á móti Dyna-
mó, sem var síðasti leikur hans
fyrir þetta val.
Þessar breytingar á framlín-
unni virðast heldur miða að því
að veikja hana en hitt, og það
þýðir að liðið í heild er tæp-
ast eins sterkt og það sem
lék á móti Dynamó.
Allmiklar umræður eru líka
um val Rúnars í stöðu mið-
framvarðar, en þó að Hörður
Felixson sé sterkur í návígi og
góður keppnismaður, þá vantar
hann þann hreyfanleik sem
Rúnar hefur og flýti.
Hvað sem um það er og
hvernig sem menn líta á niður-
röðun liðsins að þessu sinni, en
um hana má alltaf deila, þá
hefur leikur þeirra við svo
sterkt lið sem Dynamó ábyggi-
lega mikils virði verið er þeir
koma til atlögu við Norðmenn,
keppnisvilji liðsins móti Rúss-
unum nokkrar vonir um að
frammistaða þess þar geti líka
komið á óvart.
Frá fréttaritara Þjóðviljans
á Siglufirði.
Skarðsmótið, hið fjórða í röð-
jnni, fór fram á Siglufirði um
hvítasunnuna. Eins og nafnið
bendir til fór mótið fram við
Siglufjarðarskarð, en þar er
ennþá nægur snjór og ágætis
aðstaða til skíðaferða. 22 skíða
menn voru skráðir til keppni,
níu frá Reykjavík og tíu frá
Siglufirði.
Á hvítasunnudag kl. 15.30
hófst keppnin í svigi. Veður
var hið fegursta, logn og hita,
sólskin, og ágætt færi. I braut-
inni voru 58 port og fallhæð-
in um 200 metrar. Úrslit urðu
þau, að fyrstir og jafnir voru
þeir Hákon Ólafsson Siglufirði
og Svanberg Þórðarson Reykja.
vík á 125,6 sek. I þriðja sæti
varð Gunnlaugur Sigurðsson
Siglufirði á 128 sek. og í f jórða
sæti Ólafur Nilsson Reykjavík
á 128,3 sek. Svanberg náði
beztum brautartáma í fyrri
ferðinni, 61,7 sek. Jóhann ViÞ
bergsson náði beztum brantar-
tíma í seinni ferðinni, 59,3 sek.
en það var utan keppni, því
að hann hafði sleppt porti í
fyrri umferðinni og þar með
úr leik..
Á annan í hvítasunnu fór
svo fram keppni í stórsvigi.
Hófst hún kl. 13. Veðrið var
ágætt en þoka til fjalla og
gerði hún keppendunum erfið-
ara fyrir. I brautinni voru 35
port og fallhæð um 250 metr-
ar. Fyrstur varð Jóhann Vil-
bergsson Siglufirði á 76,3 sek.
annar varð Gunnlaugur Sig-
urðsson Siglufirði á 80,5 sek.,
þriðji Svanberg Þórðarson Rvík
á 81,2 sek. og fjórði Leifur
G^slason Rvík á 82,2 sek.
í Alpatvíkeppni urðu úrslit
þau, að Svanberg Þórðarson
varð sigurvegari, hlaut samtals
5,35 stig, annar varð Gunnlaug-
ur Sigurðsson Siglufirði, hlaut
5,70 stig, þriðji Hákon Ólafsson
Siglufirði, hlaut 7,42 stig og
fjórði Leifur Gíslason Reykja-
vík me^ 10,70 stig.
Laugardaginn fyrir hvíta-
sunnu háðu skíðamennirnir
knattspyrnukappleik og lauk
honum með sigri Siglfirðinga.
Reykvíkingar unnu aftur á
móti boðhlaup, sem fram fór
á milli skíðamannanna.
Að mótinu loknu var þátt-
takendum boðið til kaffi-
drykkju að Hótel Ilöfn. Þar fór
fram verðlaunaafhending og R-
víkingarnir voru kvaddir, en
þeir héldu heimleiðis klukkan
5.30 á mánudag. Sla'ðafélae;
Siglufjarðar Skíðaborg sá um
undirbúning og framkvæmó
mótsins, sem var hin skemmti-
legasta þrátt fyrir þokuna á
jnánudag. Skarðsmótin munu
að marga áliti einhver skemr.it;
legustu skíðamót ársins.
að margra áliti einhve"
skemmtilegustu skiðamót árs-
ins.
Dúkskurðarmynd eftir Ragnar Lár.
Owens fær verðlaunapeninga
sína frá OL 1936 aftur
Innan skamms mun Jessie
Owens fá afhenta 4 gullpeninga
frá Olympiuleikunum 1936.
Ástæðan fyrir þessu er sú, að
eftir hina glæstu sigra Owens
á OL 1936 var haldin sýning á
verðlaunum hans fyrir sigrana
fjóra (100, 200 og 4x100 m.
boðhlaup og langstökk). Eftir
sýninguna kornu peningarnir
aldrei fram, og hafa ekki fundizt
þrátt fyrir rnikla eftirgrennslan.
Forseti vesturþýzku olympíu-
nefndarinnar hefur nú ákveðið
að gerð skuli önnur verðlaun fyr-
ir Owens.
Owens á sem kunnugt er enn-
þá heimsmetið í langstökki, 8,13
og eins og fyrr segir gefur m. Fyrir nokkrum dögum síðan- ógna að ráði,
varð þetta met 25 ára gamalt,
því metið setti Owens þann 28.
maí 1935 í Ann Arbor í Michi-
gan. Á sama móti setti hann
einnig tvö heimsmet tii viðbótar
og jafnaði eitt; allt saman á
þrem stundarfjórðungum. Það
voru met í 100 og 220 jarda
hlaupum og jöfnun í 220 jarda
grindahlaupi. og svo auðvitað
8,13 í langstökki. Og það sem
e.t.v. er furðulegast er það að
einmitt þessa dagana átti Owens
við slæm eymsli í baki að etja,
og þjálfarinn leyfði aðeins eitt
stökk í langstökkinu, og það
stökk va.r þetta gamla heimsmet
hans, sem nú fyrst er farið að
Ungverjaland og Skotland
gerðu jafntefli.
Ungverjar og Skotar igerðu
jafntefli í landsleik í Ungverin-
landi á sunnudaginn var. Ur-
slitin urðu 3:3 Ungverjar skor-
uðu 3. mark sitt er aðeins
nokkrar sekúndur voru til
leiksloka.
Til sölu
Allar tegundir BÚVÉLA.
Mikið úrval af öllum teg-
undum BIFREIÐA.
Bíla- og
Búvélasalan
Ingólfsstræti 11.
Símar 2-31-36 og 15-0-14.
BARNA-
RtM ’
Húsgagnabúðin h.f. !
Þórsgötu 1 J
. -..ac